Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Blaðsíða 22
Til eru fræ...
Ekki geta allir draumar ræst. Sú var tíð að Björn Bjarna-son fóstraði með sér draum um að verða borgarstjóri
í Reykjavík. Eins og pabbi. Hann
langaði líka að verða ritstjóri Morg-
unblaðsins. Eins og pabbi. Og hann
langaði að verða forsætisráðherra og
formaður Sjálfstæðisflokksins. Eins
og pabbi.
Björn Bjarnason varð leiðtogi minnihlutans í Reykjavík. Hann varð aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. Og hann
varð aldrei formaður, ekki einu sinni
varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Hann varð heldur ekki forsætisráð-
herra, en endaði ferilinn sem frekar
úrillur dómsmálaráðherra.
Nú er Björn Bjarnason þáttagerðarmaður á hinni bráðskemmtilegu sjón-varpsstöð Ingva Hrafns,
auk þess að reyta af sér brandara á
netinu. Nú síðast með því að krefjast
þess að Egill Helgason, sem strangt
tekið er keppinautur Björns á öldum
ljósvakans, verði rekinn frá RÚV fyrir
að setja fram skoðanir á Eyjunni!
Áður höfðu ekki minni menn en Sturla Böðvars-son (muniði eftir honum?) og Hannes Hólmsteinn (er
engin leið að gleyma honum?) glefs-
að í hælana á Agli, sem er greinilega
orðinn óvinur númer eitt í Valhöll.
Það er full ástæða til að óska rauð-
hærða Vesturbæingnum til ham-
ingju með þann árangur. Áður var
sagt: Segðu mér hverjir vinir þínir
eru, og ég skal segja þér hver þú ert
– en því má nú snúa við: Segðu mér
hverjir eru óvinir þínir, og ég skal
segja þér hver þú ert.
Sá sem á Sturlu Böðvarsson, Hannes Hólmstein og Björn Bjarnason að óvinum hlýtur að vera á réttri leið (á sama
hátt og sá sem hefur Árna Johnsen
og Auði Eir sem bandamenn ætti að
hugsa sinn gang).
Það eru í hæsta máta dapurleg ör-
lög þess manns, sem eitt sinn lét sig
dreyma stóra drauma, að daga uppi
sem áhrifalaus kverúlant og aðhlát-
ursefni. Slíkt er því miður hlutskipti
Björns Bjarnasonar. Egill Helgason
er líklega einn af fáum mönnum á
Íslandi sem gæti stofnað stjórnmála-
flokk utan um sjálfan sig, og þyrfti
varla meira en eitt síðdegi. Hann er
stórveldi í íslenskri þjóð- fé-
lagsumræðu, og eigin-
lega fyrir neðan virð-
ingu hans að ansa
gasprinu í Birni,
Stulla stuð og fé-
lögum.
Sandkorn
n Dagur B. Eggertsson, leiðtogi
Samfylkingar í borginni, glímir
við dvínandi vinsældir ef marka
má messufall sem hann varð
fyrir. Dagur boðaði til fundar
með öllum
leikskóla-
stjórum,
100 talsins, í
síðustu viku.
Flestir eru
stjórarnir
konur sem
Dagur með
sveipi sína
og dökka lokka hefur gjarnan
höfðað til. En nú er hún Snorra-
búð stekkur. Aðeins fjórar af
konunum 100 mættu til fundar
við kyntröllið.
n Sjálfstæðismenn eru nú óðum
að hervæðast innbyrðis fyrir
prófkjör til borgarstjórnarkosn-
inga í janúar.
Meðal þeirra
sem stefna
hátt er Þor-
björg Helga
Vigfúsdóttir,
borgarfull-
trúi og einn
nánasti sam-
herji Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur borgar-
stjóra. Allt eins er búist við því
að Þorbjörg muni sækjast eftir
öðru sæti listans eins og reyndar
Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjart-
an Magnússon að ónefndum
Gísla Marteini Baldurssyni sem
situr fyrir á fleti. Það mun ráðast
af afstöðu Hönnu Birnu hver
áðurnefndra borgarfulltrúa fær
silfursætið.
n Björn Bjarnason, eftirlauna-
þegi og fyrrverandi ráðherra, er
nokkurn veginn með Egil Helga-
son, sjónvarpsmann Íslands, á
heilanum. Nú síðast setti hann
fram stífa kröfu á bloggsíðu
sinni um að Egill yrði rekinn frá
Sjónvarpinu. „Hér skal áréttuð
sú skoðun, að hlutdrægni Egils
Helgasonar í afstöðu hans til
manna og málefna geri hann
óhæfan til að stjórna sjónvarps-
þætti um þjóðmál, eigi þátturinn
að lúta lögum um Ríkisútvarpið,“
bloggar Björn og segir lögleysu
vera í kringum þátt Egils. Björn
hvetur í lokin Pál Magnússon út-
varpsstjóra til að sýna heimild-
ina fyrir lögleysunni.
n Árás Björns Bjarnasonar á
Egil Helgason kemur í beinu
framhaldi þess að Hannes
Hólmsteinn Gissurarson próf-
essor slær
á svipaða
strengi á
bloggsíðu
sinni. Hann-
es, sem
sjálfur er
dæmdur rit-
þjófur, finn-
ur Agli og
þáttum hans flest til foráttu.
Hann finnur síðan arftaka Egils
í Birni Bjarnasyni, reglubróð-
ur sínum, sem hann segir að sé
miklu betri sjónvarpsmaður.
Björn stýrir að sögn sjónvarps-
þætti á ÍNN. Hannes er þekktur
að sérkennilegri gamansemi og
verður tillagan líklega að skoðast
í því ljósi.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Það er ekki séns
að fá ekki plötu-
samning ef maður
tekur þátt í Melodifestivalen.“
n Söngkonan Halla Vilhjálmsdóttir reynir að
koma sér á framfæri í Svíþjóð þar sem hún býr.
- Fréttablaðið
„Ég stefni á að bæta mig
eins mikið og ég get.“
n Fatlaði sundkappinn Hjörtur Már Reynisson
hefur farið á kostum á EM í sundi og stórbætti sitt
eigið Íslandsmet í 50 metra skriðsundi.
- Morgunblaðið
„Sannleikurinn er sá, að
íslenskir fjölmiðlar voru
eintóna, áður en
Davíð kom á
vettvang.“
n Hannes Hólmsteinn
Gissurason ver Davíð Oddsson vegna
greinar rithöfundarins Guðmundar Andra þar sem
hann kvartar yfir nýja ritstjóranum. - pressan.is
„Ég er ekki á útleið og
reyndar tel ég mig eiga
mjög vel heima í VG.“
n Þingkonan Lilja Mósesdóttir segir orðróm um
brotthvarf hennar úr þingflokknum ekki frá henni
kominn. - DV.is
„Þetta er bara áhugamál og
skemmtilegt sem slíkt.“
n Sjónvarpsstjarnan Auðunn Blöndal hefur gert
samning við pókersíðuna Pokerstars.com og keppir
á erlendum mótum á vegum hennar. Hann ætlar
ekki að segja upp dagvinnunni. - Fréttablaðið
Gömul táknmynd
Leiðari
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-lands, hefur að mörgu leyti brugð-ist sem samein-ingartákn þjóðar
á örlagatímum. Aldrei í lýð-
veldissögunni var meiri þörf
á lítt umdeildum þjóðarleið-
toga en eftir hrun fjármála-
kerfisins. En þjóðin átti eng-
an slíkan. Forsetinn var með
þá ímynd að vera fyrst og
fremst fulltrúi útrásarinn-
ar. Eftir áralöng ferðalög um
heiminn í þágu þeirra sem
stunduðu viðskipti erlend-
is var hann orðinn eins fjar-
lægur þjóð sinni og mögulegt
var. Hann var í senn ósýni-
legur og ósnertanlegur al-
þýðu landsins. Fólki var orðið
nokkuð sama um embættið
og þann sem það skipaði. Ól-
afur Ragnar var ekki einn af
þeim, líkt og gerðist með Vig-
dísi Finnbogadóttur og Kristján Eldjárn, fyrr-
verandi forseta Íslands. Sú krafa hefur verið
borin fram að Ól-
afur Ragnar víki
úr embætti vegna
þeirrar gjáar sem
myndast hefur milli
hans og þjóðarinn-
ar. Ekki er hægt að
fullyrða um að mik-
ið fylgi sé meðal
þjóðarinnar við þá
kröfu. En það er þó
ljóst að forsetanum
hefur ekki tekist að
stíga niður til þjóðar
sinnar. Hann baðst
í áramótaávarpi af-
sökunar á því að
hafa látið blekkjast
í þoku útrásarinn-
ar. Þjóðin yppti öxl-
um. Forsetinn hefur
í nokkrum kyrrþey
farið um landið til að hitta fólk og byggja upp
trúnað. Tvennum sögum fer af árangri þess.
Staða forsetans hefur líklega aldrei verið
veikari. Sjálfur gerir hann lítið til að bæta þar
úr. Fjölmiðlar vildu birta bréf sem hann var
grunaður um að rita til stuðnings útrásinni.
Hann hafnaði því og taldi reglur í samskipt-
um þjóða koma í veg fyrir það. Samt var eitt
bréfanna ritað til útrásarvíkingsins Björgólfs
Thors Björgólfssonar. Nú síðast var athyglis-
verð uppákoma í framgöngu forsetans. Hann
mærði í viðtali á Skjá einum forna óvini en
lagði lykkju á leið sína til að höggva til Egils
Helgasonar sjónvarpsmanns. Embætti Ól-
afs Ragnars Grímssonar er í dag táknmynd
gamla Íslands. Þjóðhöfðinginn á Bessastöð-
um er án sambands við þjóðina. Og það er
vandséð hvernig hann ætlar að brúa þá hyl-
dýpisgjá sem er milli hans og almennings
í landinu. Forsetinn er á góðri leið með að
gera sig óþarfan. Staða embættisins er svo
veik að þeim vex fiskur um hrygg sem vilja
leggja embættið niður.
reynir TrausTason riTsTjóri skrifar. Þjóðhöfðinginn á Bessastöðum er án sambands við þjóðina.
bókStafLega
Hjálparsveit skálda
Um daginn fórum við til Kína, ég og
varaformaður Hjálparsveitar skálda.
Við áttum vægast sagt stórkostlega
fundi með ráðamönnum og var okk-
ur sýnd sú mesta virðing sem hugsast
getur. Hvarvetna vorum við látnir vita
af því að allir Íslendingar væru ávallt
velkomnir til Kína. Við vorum þarna
fyrst og fremst til að freista þess að
biðja þarlenda stjórnarherra um lán.
Og til að gera langa sögu stutta upp-
lýsist það hér með að Kínverjar vilja
lána okkur Íslendingum 20 þúsund
milljarða.
Í sumar sem leið bauðst ég til að
taka á mig allar Icesave-skuldbind-
ingarnar en enginn hefur viljað hlusta
á þessi boð mín. Og núna hefur mér
tekist að redda stóru láni frá Kína og
þá trúir mér enginn. Menn bara væla
og tala um að stjórnvöld geri ekkert
fyrir fólkið í landinu. Sagt er að rík-
isvaldið hugsi um það eitt að bjarga
bönkum. En ég trúi því að stjórnin
vilji gera meira fyrir fólkið í landinu
en stjórnarherrar vildu gera á meðan
frjálshyggja og helmingaskipti riðu
hér röftum. Meira að segja Þorgerður
Katrín er byrjuð að væla – talar um að
hún sé orðin hundleið á því að heyra
fólk klifa á því í tíma og ótíma að ólán-
ið sé Sjálfstæðisflokki að kenna. Þessi
kona er yndisleg. Ég orti meira að
segja til hennar ástarljóð fyrir nokkr-
um misserum og fékk hlýlegt bros að
launum. Ætli glæpagengin frá Pól-
landi og Litháen séu ekki fyrir löngu
orðin hundleið á því að hér er stöðugt
klifað á því hversu óheiðarlegt fólk er
í þessum klíkum? Hvað ætli þeir Vít-
isenglar hafi að segja um stöðugar
árásir? Og þeir eru ábyggilega marg-
ir sem eru orðnir hundleiðir á mann-
orðsmeiðandi aðdróttunum fólks í
garð mafíuforingja.
Og síst af öllu vil ég líkja Sjálfstæð-
isflokki og Framsókn við glæpaklíkur.
En lán það sem við getum fengið
frá Kínverjum verður að stórum hluta
í formi hrísgrjóna og vopna. En auk
þess vilja Kínverjar lána okkur mik-
ið magn flugelda og svo vilja þeir að-
stoða okkur sérstaklega við að byggja
upp orkusölufyrirtæki sem þjóða upp
á glænýtt rafmagn.
Á næstu dögum ætlum við í
Hjálparsveit skálda að fara til N-Kór-
eu, Sómalíu og Simbabve. Ætlunin
er að fá ráð hjá seðlabankastjórum
og fólki í fjármálageiranum. Þá hef-
ur okkur boðist lán frá hagyrðingi í
Nígeríu. Hann vill fá að leggja ein-
hverjar grilljónir inn á bankareikn-
inga ríkisins.
Hver veit nema við getum bráð-
um grætt á daginn og grillað á kvöld-
in ...
Hjá okkur það er einlæg trú
að ástand geti skánað,
við fullveldinu fórnum nú
og fáum annað lánað.
kristján hreinsson
skáld skrifar
„Meira að
segja Þor-
gerður Katrín
er byrjuð að
væla.“
SkáLdið Skrifar
22 föstudagur 23. október 2009 umræða