Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Síða 23
Hver er maðurinn? „Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasam- bands fatlaðra.“ Hvar ertu uppalinn? „Ég er uppalinn í Vesturbænum í Reykjavík. KR-ingur.“ Hvar langar þig að búa ef ekki á Íslandi? „Hvergi. Get bara ekki ímyndað mér að búa annars staðar. Þetta er besta land í heimi þrátt fyrir allt.“ Hvað eldaðirðu síðast? „Það bara man ég ekki.“ Hversu langur hefur undirbún- ingurinn verið fyrir EM í sundi? „Hann er búinn að vera svolítið langur. Það er alveg rúmt ár síðan þetta var endanlega ákveðið.“ Er þetta stærsta verkefni Íþrótta- sambands fatlaðra hingað til? „Já, langstærsta.“ Hvernig hafa umsagnir um skipu- og verklag mótsins verið hingað til? „Bara mjög góðar. Íslendingarnir eru mjög ánægðir sem og útlendingarnir. Svo höfum við verið heppin með veður líka. Almennt eru allir mjög ánægðir.“ Eru íslensku keppendurnir að gera góða hluti? „Já, það myndi ég segja. Flestöll eru að synda á betri tíma og bæta Íslandsmet.“ Eigum við fatlað íþróttafólk í heimsklassa? „Eyþór Þrastarson var allavega í öðru sæti í sínu sundi og hann er að synda með bestu mönnum heims. Við erum með ungt fólk núna og margir að koma upp.“ Er kostnaðurinn mikill við að halda svona mót? „Já, hann er mikill. Við erum með styrktaraðila eins og Össur og svo hefur ríkisstjórnin aðeins komið inn í þetta ásamt Reykjavíkurborg að skaffa aðstöðuna alla.“ Hver er draumurinn? „Að okkur muni ganga vel hér á landi og eiga verðandi heimsmeistara.“ Ertu byrjuð/-aður að kaupa jólagjafirnar? „Nei, ég er ekki einu sinni farin að hugsa um jólin.“ AnnA Hildur HildibrAndsdóttir, 46 ÁRA StARFSmAðuR HJÁ ÚtÓN „Nei, ég er ekki byrjuð. Það liggur nú ekkert á, jólin mega bíða smá.“ KAMillA ingibErgsdóttir, 30 ÁRA StARFSmAðuR HJÁ ÚtÓN „Nei, ég er ekki byrjuð - það liggur ekkert á.“ sigrún gunnArsdóttir, 60 ÁRA ÍSLENdiNGuR „Já, ég er aðeins byrjaður, fór á bókamarkaðinn og keypti þar nokkrar bækur.“ gunnAr Þór Jónsson, 67 ÁRA LæKNiR Dómstóll götunnar svEinn ÁKi lúðvÍKsson er formaður Íþróttasambands fatlaðra. ÍF stendur nú í ströngu að halda Evrópumót fatlaðra í sundi sem hefur tekist frábærlega. mótinu verður slitið á sunnudaginn. Allir ánægðir með mótið „Nei, ég er ekki byrjaður.“ óli HJörtur ólAfsson, 31 ÁRS StARFSmAðuR Á JAcoBSEN maður Dagsins Í hinni ágætu kvikmynd „Íslenska draumnum“ segir persóna Jóns Gnarr frá manni sem er á móti hlut- um sem enginn er einu sinni á móti, eða eitthvað í þá veruna. Þetta seg- ir ansi mikið um íslenska umræðu- hefð. Í raun og veru hefur maður tvo valkosti, annaðhvort að fylgja meiri- hlutanum að málum eða þá að til- heyra einhverjum skýrt skilgreind- um minnihluta. Þetta getur haft undarlegar af- leiðingar. Sá sem hefur áhyggjur af því að það ríki skortur á samkeppni á íslenskum markaði á þannig á hættu að vera stimplaður kommún- isti, enda hljóti hann að vera á móti markaðnum sem slíkum. Sá sem hefur áhyggjur af því að listamenn séu keyptir af stórfyrirtækjum verð- ur óvinur listamanna og jafnvel list- arinnar sjálfrar. Meðvirknistjórnmál Oft er því þannig farið að valkostirnir tveir eru þeir að vera „með öllu“ eða „á móti öllu“. Fæstir vilja jú fá þann stimpil á sig að vera á móti öllu og þannig verður auðveldlega til sam- félag eins og íslenska góðærisþjóðfé- lagið, þar sem enginn þorir að mæla á móti og allir kóa með. Fólk slekk- ur þó ekki alveg á sér, heldur verður til nokkurs konar tvöfeldnishugsun, eins og í Ráðstjórnarríkjunum sál- ugu. Mér barst til eyrna að á árshá- tíð Kaupþings fyrir um einu og hálfu ári hafi fólk, komið vel við skál, rætt það sín á milli að allt væri að fara til fjandans. Allir vissu það innst inni, enda höfðu þeir jú séð tölurnar. Dag- inn eftir héldu síðan allir áfram að sannfæra hver annan um að allt væri í himnalagi, rétt eins og þeir höfðu gert alla daga fram að því. táragasstjórnmál Það er kannski ekki að undra að ís- lensk stjórnmál eru alltaf úti á kant- inum, ef svo má að orði komast. Flestir hægri- og vinstrimenn á Norðurlöndunum eru í raun miðju- menn þegar allt kemur til alls og sósíaldemókratar, sem standa þarna mitt á milli, eru stærstir. Hérna hef- ur stærsti flokkurinn verið sá sem er lengst til hægri, meðan sá sem er lengst til vinstri hefur lengi not- ið meiri hylli en sá sem er minna til vinstri. Meiriháttar ákvarðanir, svos- em Nató-aðild, Kárahnjúkavirkjun eða stuðningur við innrás í Írak eru teknar í trássi við vilja stórs hluta þjóðarinnar. Á hinum Norðurlönd- unum ríkir hins vegar sátt um flestar meiriháttar ákvarðanir. Flestir Norð- menn voru sammála um að ganga í Nató, meðan flestir Svíar voru sam- mála um að gera það ekki, svo dæmi sé nefnt. Ekkert táragas þurfti til. samstöðustjórnmál Lítið hefur verið til af því hér sem kall- að er „consensus politics“ á ensku, og mætti kalla samstöðustjórnmál. Hugtakið er útskýrt þannig á Wikip- edia: „Það að ná samstöðu þýðir að taka fyrir ígrundaða skoðun hvers meðlims hópsins. Þeir sem kjósa að taka upp einhverja stefnu vilja heyra í þeim sem eru á móti, vegna þess að þeir treysta því að umræðan muni styrkja samstöðuna. Aðgerðir án þess að leysa úr andstöðunni eru sjaldgæfar...“ Þetta hljómar ekki eins og lýsing á íslenskum stjórnmálum. Menn hér líta á stjórnmál sem „zero-sum game“, nokkurs konar íþróttaleik þar sem vinningur annars hljóti að vera tap hins. Svo virðist sem menn hér taki iðulega flokkspólitíkina fram yfir þjóðarhagsmuni, jafnvel varðandi mál eins og Icesave þegar þjóðarhag- ur er augljóslega í húfi. Núverandi ríkisstjórn reyndi að innleiða samstöðustjórnmál hér í upphafi Icesave-umræðna, með því að sækjast eftir skoðunum og stuðn- ingi allra, en sú tilraun mistókst hrap- allega. Nú hafa þær umræður stað- ið í hálft ár, án þess að vera nokkuð nær því að skila niðurstöðu sem allir geta verið sammála um. Annaðhvort hlýtur hagur þjóðarinnar að liggja í því að samþykkja þessar skuldbind- ingar eða ekki. Ættu þá allir flokkar að sjá sóma sinn í því að styðja þá stefnu sem er best fyrir þjóðina alla, enda erum við öll í þessu saman. En samt eru allir annaðhvort bara með eða á móti. Að vera á móti öllu mynDin Allir eins Þrátt fyrir að allt geti gerst í umferðinni þá er sjaldséð að tvær nákvæmlega eins toyotur skelli saman. Þá þekkist vart að her lögreglumanna sé kallaður út vegna áreksturs. Hér er í líka allt í góðu. Áreksturinn sviðsettur til þess að nemendur í Lögregluskólanum geti æft sig í aðkomu að árekstri. Mynd róbErt kjallari umræða 23. október 2009 föstudagur 23 vAlur gunnArsson rithöfundur skrifar Sá sem hefur áhyggjur af því að listamenn séu keyptir af stór­ fyrirtækjum verður óvinur listamanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.