Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Síða 24
Skemmtileg Vinna yfirtekur einkalífið Í ársbyrjun 2007 flaug ég, ásamt nokkrum öðrum blaðamönnum, frá Reykjavíkurflugvelli til Barcelona með einkaþotu auðmannsins Magn- úsar Þorsteinssonar, þáverandi stjórnar- formanns og eiganda Eimskipafélags- ins. Slíkar boðsferðir stórfyrirtækja fyrir fjölmiðlamenn voru nokkuð al- gengar á Íslandi fyrir hrunið. Tilgangur ferðarinnar hjá okkur blaðamönnunum var að fylgjast með Magn-úsi og knattspyrnumann- inum Eiði Smára Guðjohnsen, leikmanni Barcelona, undirrita samstarfssamning: Fótboltamaðurinn átti að vera andlit Eimskips í aug- lýsingum félagsins. Við undirskrift samningsins var talað um að þessi tvö óskabörn þjóðarinnar væru að sameinast. Áður en samningurinn var undirritaður fórum við á leik með Barcelona á heimavelli félagsins, Ný- vangi, þar sem liðið lék við Celta Vigo. Í einkaþotunni á leiðinni út og heim gegndi Magnús hálfgerðu þjón-ustuhlutverki um borð: Bar ljúffengar samlokur, ávexti og drykki í fjöl-miðlamennina sem sátu í makindum sínum í mjúkum, leðurklædd-um hægindastólum. Ég man að ég taldi Magnúsi þetta til tekna á þeim tíma: Að þrátt fyrir auðæfin teldi hann sig ekki yfir það hafinn að þjóna blaðamönnum til borðs. Ég komst svo vitanlega aldrei að því hvort þetta hefði verið fyrir fram ákveðinn PR-leikur hjá Magnúsi og samstarfsmönn- um hans til að sýna hve alþýðlegur útrásarvíkingurinn væri. Ég man að á meðan Magnús gaf mér að borða í einka-þotunni las ég í bók Þórbergs Þórðarsonar, Sálmin-um um blómið. Sennilega er fátt mótsagnakennd-ara í þessum heimi en að lesa einmitt þá einlægu, barnslegu og fallegu bók á meðan milljarðamæringur réttir manni kók um borð í einkaþotu sinni í boðsferð til út- landa. Augnablikið er kannski líka lýsandi fyrir það hvert Íslendingar fóru á tiltölulega fáum árum – við vorum komnir óravegu frá Suðursveit þarna í háloftunum. Þegar við lentum í Barcelona þurftum við ekki að bíða í neinum röð-um, framvísa skilríkjum eða annað slíkt heldur fórum við beint úr flugvélinni og upp í rútu sem keyrði okkur á hótelið. Ekkert vesen fyrir þá sem fljúga í einkaþotum. Ég minnist þessarar ferðar í dag og fæ hálfgert óbragð í munn-inn. Reyndar gerði ég það alveg frá byrjun, eftir að ég kom heim úr henni, en ónotatilfinningin hefur ágerst eftir efnahagshrunið. Óþægindatilfinningin er ekki tilkomin vegna þess að ég hafi gert eitthvað í ferðinni eða í tengslum við hana sem ég vildi ekki. Nei, hvorki Magnús né starfsmenn hans reyndu að hafa áhrif á hvernig við blaðamennirnir fjölluðum um ferðina og þeir voru hinir þægilegustu meðan á ferðinni stóð. Ástæðan er sú að samt var verið að kaupa okk-ur með gjöfum til að fjalla alveg örugglega um samning Eimskips og Eiðs Smára í þeim fjöl-miðlum sem við unnum hjá; að umfjöllun- in fengi meira vægi en ef venjuleg fréttatilkynning um málið hefði verið send. Þegar búið er að gera vel við fólk er miklu líklegra að það vilji þakka vel fyrir sig með því að gjalda velgjörðarmanninum líku líkt. Slíkt varð svo raunin á þeim miðlum sem fjölluðu um málin þó inntak og efnistök fréttanna væru ekki ólík því sem tíðkast þegar fréttatilkynningar eru hraðsoðnar gagnrýnislaust ofan í notendur fjölmiðla. Enginn spurði neinna gagnrýn- inna spurninga og afraksturinn varð nokkrar steingeldar kranafréttir um ómerkilegt mál: Eimskip fékk sína auglýsingu fyrir rausnarskapinn. Engan af þeim „blaðamönnum“ sem var um borð grunaði á þessum tíma að Magnús væri á leið með Eimskip inn í einn mesta taprekst-ur Íslandssögunnar og enginn var búinn að átta sig á þeim sjón-hverfingum sem íslenska efnahagsundrið byggðist á. Á þessum tíma vorum við líklega sáttir við að fá að tilheyra hinum útvalda hópi sem fékk að fljúga í einkaþotunum og taka örlítinn þátt í allri velgengninni. Per- sónulega hafði ég í gagnrýnisleysi mínu ekkert velt því fyrir mér á þessum tíma á hverju þetta ríkidæmi þjóðarinnar byggðist eiginlega og ég gat ekki útskýrt það. Þrátt fyrir það spurði ég ekki neinna spurninga um það. Ferðin í einkaþotu Magnúsar minnir mig óþægilega á þetta gagnrýnisleysi mitt og margra annarra blaðamanna hér á landi á meðan góðærið gekk yfir. Og hún minnir mig líka á þau fleygu orð að allt sé falt, líka blaðamenn og ég sjálfur auðvitað. Ég neita aftur á móti að trúa þeim orðum þó sagan sýni kannski fram á annað í mínu tilfelli. Þótt þessi minning sé slæm af þessum ástæðum get ég ekki annað en talið mér trú um að hvorki ég, né flestir aðrir blaðamenn vonandi, muni aftur falla í þessa aumu gryfju gagnrýnis- leysis. Sem og lofað sjálfum mér því að þiggja ekki aftur brauðmolana sem bjóðast af borðum auðmanna og stórfyrirtækja og ætlað er að fæða mig til ákveðinna verka. Í EinkaÞoTu Magnúsar ingi f. VilhjálmSSon skrifar HELGARPISTILL „Ég er með BA í fjölmiðlafræði frá University of Derby. Mig langaði að vinna sem blaðakona, og þá helst á fjölbreytt- um fjölmiðli. Það gerist ekki mikið fjölbreyttara en Séð og heyrt. Einn daginn tek ég til dæmis viðtal við foreldra barns með hjartagalla eða krabbamein en þann næsta skrifa ég um að Garðar Cortes hafi grennst eða að Dorrit hafi keypt sér nýja kápu,“ segir Þorbjörg Marinósdóttir, blaðakona á Séð og heyrt. Þorbjörg segir vinnuna á Séð og heyrt afar skemmti- lega, fjölbreytta og hún geti valið sér efni eftir áhuga. „Ef ég væri að vinna á íþróttadeild Moggans eða fréttadeild Vísis yrði ég bara að fjalla um það sem fyrir mig væri lagt. Nýj- asta landsliðsleikinn eða nýtt fjárlagafrumvarp. Það er lítil stemning í því til lengdar, allavega myndi það ekki höfða til mín,“ segir hún og hlær. „Það er magnað að fá að skrifa um allt milli himins og jarðar eins og ég geri.“ Vinnur með miklum snillingum Þorbjörg segir móralinn á Séð og heyrt vera góðan en alls sitja fjórir á ritstjórn Séð og heyrt - Svanur Már Snorrason, Ragnheiður Kristjónsdóttir og ritstjórinn sjálfur, Eiríkur Jónsson fyrir utan Þorbjörgu. „Ég vinn með miklum snillingum og það er mikið um vinnustaðarhrekki og alls kyns gleði. Ég eyði meiri tíma í vinunni en með mínum nánustu og því er mikilvægt að það sé gaman í vinnunni. Svo er einnig mikið um viðburði og partí sem Séð og heyrt fjallar um þannig að það er ekki hangið yfir skrifborði alla daga. Þetta er líka þannig blað að ég hef kynnst alls konar fólki sem ég hefði annars aldrei kynnst.“ Snýst um að vera á tánum Hinn eðlilegi dagur á Séð og heyrt snýst um að vera á tán- um og vera með puttana á púlsinum. Þorbjörg mætir yfir- leitt í vinnuna um níu og fer á fund með ritstjórninni þar sem er farið yfir hvað verður í næsta blaði, hver er að gera hvað og hvað gæti hugsanlega orðið á næstu forsíðu. „Eftir hann fæ ég mér kaffi og kíki á myndveituna og skoða þær myndir sem hafa verið teknar fyrir mig kvöld- ið eða daginn áður. Því næst klára ég þau viðtöl sem ég er með í vinnslu og fer svo að hamast við að bóka fólk í við- töl, bóka myndatökur, skoða hvað er að gerast í menningu og skemmtanalífinu þá vikuna og helgina, velja það sem er mest spennandi og bóka ljósmyndara á það,“ segir hún og svarar í símann. Einhver lesandi blaðsins að koma með fréttaskot. „Starfið snýst einnig mikið um að vera á tánum og fylgj- ast með öðrum fjölmiðlum og fólkinu sem við skrifum um. Séð og heyrt kemur út vikulega og því er mikilvægt að passa sig að vera ekki að eyða tíma í efni sem hefur birst annars staðar svo sem í daglegu blöðunum. Það er því löngu orðið úrelt þegar við komum út. Þegar ég hef skilað grein inn til lesturs og próförkin er búin að samþykkja hana, myndvinnslan búin að vinna myndirnar og umbrotið búið að brjóta um síðuna þarf að fara yfir að myndatextar séu við réttar myndir og allt sé eins og það á að vera. Fyrst þá er greinin tilbúin til prentunar.“ Aldrei lent í málaferlum Ritstjórnarstefna Séð og heyrt er að gera lífið skemmti- legra. En blaðið fjallar einnig um skilnaði fræga fólksins og sambandsslit, jarðarfarir og veikindi stjarnanna. Þor- björg segir að það sé alltaf erfitt að skrifa um viðkvæm mál hjá fólki. „Það lærist þó fljótt að yfirleitt er hægt að finna nokkuð góðan meðalveg svo lesandinn fái sína frétt án þess að sú sem hún snýst um hljóti skaða af. Ég hef aldrei lent í málaferlum eða slíku þar sem ég reyni af minni bestu getu að fara vel með þá sem eru í kringum mig. Margir þekktir íslendingar skilja ekki að það er ekki erfitt að eiga í góðu sambandi við Séð og heyrt. Við erum ekki vondi karlinn. Ef við værum alltaf að gera fólki grikk myndi engin tala við okkur og blaðið myndi því fljótt leggjast af.“ Fólk forvitið Eðlilega er fólk afar forvitið um starf blaðamanns á Séð og heyrt og fær Þorbjörg oft spurninguna; Hvernig er að vera blaðakona á Séð og heyrt. „Fólk er oft forvitið og ég er mest spurð hvort Fjölnir Þorgeirsson sendi sjálfur inn fréttir af sjálfum sér, sem hann gerir aldrei blessaður,“ segir hún og hlær. „Við fylgjumst vel með okkar fólki og vitum oftast hvað er í gangi. Fæstir senda inn fréttir af sjálfum sér en það er bara skemmtilegt þegar það gerist. Um að gera að koma sér á framfæri ef fólk er að gera eitthvað áhugavert.“ Hún segir að sér sé misjafnlega tekið sem blaðakonu. Sumum finnst það mjög spennandi á meðan aðrir hrein- lega fríki út. „Ég hef verið í partíum þar sem allir byrja að hvísla eftir að ég segi að ég sé að vinna á Séð og heyrt. Ég hef líka lent í því að karlmenn sem ég er búin að spjalla heillengi við, fölna við að heyra starfstitilinn, sérstaklega ef þeir eru þekktir. Það er samt fremur barnaleg afstaða. Ef fjölmiðlafólk gæti ekki haldið einkalífi sínu og vinnu aðskildum yrði það fljótt ansi einmana.“ En finnst þá Þorbjörgu vera fordómar í garð blaðsins? „Engin viðurkennir að hann kaupi það en samt vita allt- af allir hvað er í blaðinu hverju sinni. Mjög grunsamlegt,“ segir hún og hlær. Rífst mikið við Eirík Eiríkur Jónsson ritstýrir Séð og heyrt af mikilli festu. Ei- ríkur er yfirleitt kallaður blaðamaður án hliðstæðu. Hann hefur á löngum ferli komið víða við í fjölmiðlum þannig að eftir hefur verið tekið. Þorbjörg segir Eirík vera mikinn meistara og góðan yfirmann. „Hann er mun mýkri en fólk heldur og er sá fyrsti til að rétta fram höndina ef ég dett á rassinn, þótt hann hlæi kannski stundum áður. Það er fólk eins og hann með mikla reynslu sem kennir manni það sem enginn skóli getur gert. Hann hefur góðan skiln- ing á mannlegu eðli og þessum heimi sem íslenskir fjöl- miðlar eru. Það tók ekki langan tíma að kunna að meta hann, þó hann sé líklega sá karlmaður sem ég rífst hvað mest við,“ segir hún og glottir framan í ritstjórann sinn. Ekki að eilífu Þorbjörg ætlar ekki að vera blaðakona á Séð og heyrt að eilífu. Hún vill læra meira og klára meistaranámið. „Mig langar til þess að vinna við auglýsingar, þáttagerð, útvarp og almannatengsl á komandi árum. Ég er bara 24. ára og hef aðeins verið eitt ár á vinnumarkaðnum eftir að námi mínu lauk. Ég varast orðin „að eilífu“ mjög mikið enda er ekkert sem segir, þótt ég sé mjög ánægð í þessu starfi í dag, að ég gæti hugsað mér að vera hérna eftir tíu ár. Fjölmiðlar breytast hratt og þróunin er hröð. En í augnablikinu er ég mjög sátt við að vinna hjá heitasta glanstímariti Íslands,“ segir þessi hressa stúlka um leið og hún tekur upp sím- ann. Næsta forsíðumál er í bígerð. Þorbjörgu Marinósdóttur, blaðakonu á Séð og heyrt, finnst starfið sitt ákaflega skemmtilegt og fjölbreytt. Hún skrifar um hluti sem hún hefur áhuga á. Þorbjörg er með BA í fjölmiðlafræði frá University of Derby og stefnir á að klára meistaranámið innan tíðar. 24 föStudagur 23. október 2009 umræða blaðakonu Tekið við fréttaskoti Þorbjörg í símanum. Mikill tími blaðakonu á Séð og heyrt fer í að vera í símanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.