Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Page 27
m
æ
li
r
m
eð
...
Bókin Harmur
englanna
Margar fallegar
blaðsíður. Þó
smábakslag hjá
höfundinum.
leikritið Biedermann
og Brennuvargarnir
Áhugaverð-
asta sýning
haustsins til
þessa.
FiFa 10
Besti fótbolta-
tölvuleikur sem
gerður hefur
verið, að mati
gagnrýnanda.
anticHrist
Þvílíkur
sálrænn
terror.
Gains-
bourg er
rosaleg.
stúlkan sem
lék sér að
eldinum
Lisbeth Salander
gefur ekki þuml-
ung eftir í annarri myndinni í
Millenium-þríleiknum.
fókus 23. október 2009 föstudagur 27
Og við svífum um loftið
föstudagur
n kvikmyndatónlist hjá sinfó
Sinfoníuhljómsveit Íslands leikur
þessa dagana kvikmyndatónlist eftir
John Williams og verða tónleikar í
Háskólabío með lögum eftir hann á
föstudaginn klukkan 19.30. Miðarnir
kostar 3.300 og 3.700 en hægt er að
kaupa sér miða á miði.is.
n rándýrt á kirkjubraut
Sjálfir Paparnir verða með tónleika í
Kirkjubraut á Akranesi á föstudags-
kvöldið sem hefjast klukkan 20.30.
Þar leika þeir lög eftir Gylfa Ægisson
og verður Gylfi sjálfur með. Það sem
meira er verður Bubbi Morthens
sérstakur gestur á tónleikunum.
Þessu má enginn missa af. Miðinn
kostar 2.500 krónur.
n dalton á sPot
Meistararnir í Dalton verða á Spot í
Kópavogi á föstudagskvöldið og leika
fyrir dansi eins og þeim er einum
lagið. Það vantar aldrei fjörið þegar
Dalton-bræður mæta og verður
enginn afgangur gefinn á SPOT á
föstudagskvöldið.
n ennisrakaðir í salnum
Afar áhugaverðir tónleikar fara fram í
Salnum í Kópavogi á föstudagskvöld-
ið. El puerco, Ennisrakaðir, verða
í Salnum og kostar 2.500 krónur
inn. Þar syngja ásamt hljómsveit
söngkonurnar Íris Guðmundsdóttir
og Agnes Björt Andradóttir.
laugardagur
n rottweiler á nasa
Burn býður upp á frábært partí á
NASA á laugardagskvöldið. Húsið
verður opnað klukkan 22.00 þar
sem drykkir verða í boði. Hinir
stórkostlegu XXX Rottweilerhundar
munu kveikja í liðinu ásamt U.M.T.B.S.
Skemmtunin verður svo fram eftir
nóttu þar sem DJ Danni Deluxxx og
DJ Coldhands (Nick Kvaran) sjá um
fjörið.
n kokteilpinnar í kjallaranum
Helgi Björns og Kokteilpinnarnir
ætla að vera í dúndursveiflu og rifja
upp danssöngva og drykkjuvísur
fyrri ára í Þjóðleikhúskjallaranum á
laugardagskvöldið. Leikið verður fyrir
dansi að gömlum sið en 1.500 krónur
kostar inn og hefst gamanið klukkan
23.00.
n Papar og gestir í dalbúð
Paparnir verða með frábæra tónleika
í Dalabúð í Búðardal á laugardaginn
en 2.500 krónur kostar inn. Paparnir
verða þar með Gylfa Ægissyni en
leikin verða lög eftir hann enda
tónleikarnir titlaðir Við sjávarsíðuna.
n kjólaball í iðnó
Hið árlega kjólaball Heimilistóna
verður haldið í Iðnó á laugardags-
kvöldið en að venju verður mikið
um dýrðir og glæsileikinn hafður í
fyrirrúmi á þessu skemmtilega balli.
2.000 krónur kostar á ballið en hægt
er að kaupa miða á miði.is. Ballið
hefst klukkan 23.00.
Hvað er að
GERAST?
tölvuleikurinn
WolFenstein
Fínn skotleikur sem óhætt er
að mæla
með við
hasarhaus-
ana.
Sumir leikir eru gerðir með það
í huga að ná til ákveðins hóps og
skemmta honum í drasl. Svoleiðis
leikir eru oft ágætir. Aðrir leikir eru
gerðir til þess að höfða til fólks sem
mögulega leiðist og vantar eitthvað
til dægrastyttingar. Enn aðrir leikir
eru gerðir með það að leiðarljósi að
koma tölvuleiknum, sem hugtaki, á
hærra plan. Uncharted 2 er slíkur
leikur.
Þegar fyrsti leikurinn kom út
myndi ég segja að hann hafi skartað
bestu grafík sem PS3 hafði séð þá.
Og núna er það allt saman endur-
tekið. Leikmenn stýra eins og áður
Nathan Drake; Indiana Jones, Usain
Bolt, Alexei Nemov, Rambo og Löru
Croft, vöðlað saman í eina persónu.
Sá er fenginn með til að hafa upp
á einhvers konar leyndardómum
Marco Polo. Í það blandast hrotta-
legir stríðsherrar, svikulir Bretar og
brjálaðar skutlur. Í raun og veru er
búið að laga allt sem ég kvartaði
út af í fyrri leiknum. Nú þarf ekki
að skjóta menn átján sinnum með
haglabyssu svo þeir drepist og ekki
að byrja upp á nýtt í hvert skipti sem
maður deyr. Grafíkin og allt útlit er
helsjúkt. Í stað þess að dekkja hvern
einasta krók og kima til að fela galla
í útliti er hér allt bjart og skært. Nep-
al, Istanbúl og fleiri staðir, gullfal-
legir. Hasaratriðin eru fyrsta flokks,
ég man ekki eftir slíkum hasar í
neinum tölvuleik, hvort sem mað-
ur er að berjast við
þyrlu á þaki, stökkva
á ógnarhraða á milli
vörubíla á fjalls-
toppi eða tæta allt
sem tætt getur á
lest.
Uncharted er almennilegur,
fimm stjörnu fjandi, sem allir áhuga-
menn um tækni eða tölvuleiki ættu
að skoða. P.S. Body countið er meira
en í Hot Shots Part Deux. Dóri DNA
uncharted 2 Fimm
stjörnu leikur sem allir
áhugamenn um tækni
eða tölvuleiki ættu að
skoða.
Uncharted 2:
among thieves
tegund: Ævintýraleikur
spilast á: PS3
TölvulEikiR
Frá Superbad til Zombieland:
tvö ár í lífi
emmu stone
Hana hefur ekki vantað verkefnin, 21
árs gömlu leikkonuna Emmu Stone,
síðustu tvö árin eftir að hún skaust
snögglega fram á sjónarsviðið.
Fyrir rétt rúmum tveimur árum lék
hún aukahlutverk í hinni frábæru
kvikmynd Superbad, sem er almennt
talin ein besta gamanmynd síðari
ára. Hún leikur nú stórt hlutverk í
kvikmyndinni Zombieland sem fær
frábæra dóma um allan heim. Zomb-
ieland er sjötta myndin sem Emma
leikur í á þessum tveimur árum en
hún hefur verið afar heppin með
myndir og hlutverk. Maður skapar
sér vissulega sína eigin heppni og
hefur Emma ávallt fengið góða
dóma fyrir frammistöðu sína, hvort
sem myndirnar hafa notið rífandi
vinsælda eða ekki.
Þessi dísæta rauðka fæddist í Scotts-
dale í Arizona það herrans ár 1988.
Leiklistarferill hennar hófst árið 2005
þegar hún lék í misheppnaðri nýrri
útgáfu af þáttunum um Partridge-
fjölskylduna sem er ein af stoðum
bandarísks sjónvarps í gegnum
tíðina. Eftir aukahlutverk í einstaka
þáttum fékk Emma tækifærið sem
Jules í Superbad, stelpan sem hinn
óviðjafnanlegi Jonah Hill var skotinn
í og vildi allt gera fyrir. Þrátt fyrir
að hafa verið skölluð í andlitið af
blindfullum Jonah Hill í myndinni
endaði hún vel þar sem þau töltu
saman í fata- og maskarakaup.
Nær ár leið þar til Emma sást aftur á
hvíta tjaldinu. Nú sem Amelia, sæt
rokkpía í þriggja manna hljómsveit
sem Rainn Wilson úr þáttunum
The Office trommaði í en hann lék
aðalhlutverkið í myndinni sem heitir
The Rocer. Aftur sá Emma um að
vera sæt og enda með söngvara
hljómsveitarinnar. Enginn úr mynd-
inni varð heimsfrægur en ágætis lið
leikara ásamt Emmu gerði hana að
fínustu ræmu.
Myndin The House Bunny kom út
í lok síðasta árs. Þar fer Anna Faris
á kostum sem útbrunnin Playboy-
stelpa sem endar í nördasamfélagi
stelpna í háskóla í grennd við
Playboy-setrið. Aðalnördið var sjálf
Emma og sýndi hún þar ágætis
leik. Í upphafi myndarinnar er hún
gleraugnanörd sem hefur sig aldrei
til en eftir „makeover“ frá Faris er
hún orðin þrusupía. Emma ber það
nefnilega með sér að vera mjög
sæt og sjarmerandi og gefur af sér
mikinn þokka í myndum sem auðvelt
er að tengja við.
Eftir hlutverk á móti skyrtulausa
kyntröllinu Matthew McConaughey
í Ghost of Girlfriends Past og annað
hutverk í mynd sem fór lítið fyrir,
Paper Man, er Emma enn og aftur
komin á hvíta tjaldið, nú í kvikmynd-
inni Zombieland sem hefur slegið
í gegn hvar sem hún hefur verið
sýnd. Þegar hafa tæplega 20.000
manns gefið henni einkunn á stærstu
kvikmyndavefsíðu heims, IMDb.com,
og fær hún 8,2 í einkunn, er því sem
stendur í 166. sæti yfir bestu myndir
frá upphafi.
Emma á enn eftir að leiða mynd
sem aðalleikari en hún á framtíðina
fyrir sér. Það gerist samt snemma á
næsta ári því í mars 2010 kemur út
myndin Easy A sem meðal annars
Lisa Kudrow úr Friends leikur í. Þar
fer Emma með aðalhlutverkið og
getur loks sýnt hvað hún hefur lært á
þessum viðburðaríku tveimur árum í
hörðum bransanum í Hollywood.
mynd sem mig langaði virkilega mik-
ið til að gera vegna þess að ég var
handviss um að fjölda fólks myndi
líka finnast þetta sniðugt. Auðvitað
veit maður samt aldrei hvernig bíó-
myndum mun vegna þegar á hólm-
inn er komið. Ég hef þess vegna ver-
ið mjög spennt en mér sýnist myndin
fá betri viðtökur en ég þorði að vona.
Ég er mjög stolt af myndinni og leik-
stjóranum, Ruben Fleischer, og er
bara ánægð með að fólk virðist al-
mennt njóta hennar.“
toti@dv.is
sæt og klár Emma Stone
þykir bæði gullfalleg og ákaflega
sjarmerandi og ekki fer heldur á
milli mála að stúlkan er eldklár í
sínu fagi enda hefur hún ekki enn
stigið feilspor í hlutverkavali.