Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Page 46
46 föstudagur 23. október 2009 NafN og aldur? „Þórarinn Leifsson, 43 ára.“ atviNNa? „Rithöfundur og myndskreytir.“ Hjúskaparstaða? „Giftur Auði Jónsdóttur.“ fjöldi barNa? „Ein dóttir, Salvör.“ Hefur þú átt gæludýr? „Beljur og hesta þegar ég var í sveit. Nokkra geðbil- aða ketti, páfagauka og kanínu.“ Hvaða tóNleika fórst þú á síðast? „Fríspilandi Jazz á La Fontaine í Kaupmannahöfn fyrir viku.“ Hefur þú komist í kast við lögiN? „Óspektir á almannafæri nokkrum sinnum þegar ég var um tvítugt.“ Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju? „Lummulegu sandalaskórnir sem ég keypti á mark- aði í Barcelona fyrir þremur árum og nota ef ég er að flýta mér út úr húsi.“ Hefur þú farið í megruN? „Já, og líkamsrækt. Mér finnst hins vegar miklu skemmtilegra að borða blóðsteik heldur en vera í megrun.“ Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmæl- um? „Oft. Nota tækifærið núna og mótmæli því að hinn nítján ára gamli Nour-aldin Al-azzawi var sendur úr landi og það án gjaldeyris.“ trúir þú á framHaldslíf? „Nei. Þetta getur ekki orðið betra.“ Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að Hafa Haldið upp á? „Eitthvað með Cure í gamla daga. Ég vil helst láta banna svokallaða nýbylgjutónlist frá níunda ára- tugnum.“ Hvaða lag kveikir í þér? „Immigrant song með Led Zeppelin, Fight the power með Public enemy eða Super bad með Jam- es Brown.“ til Hvers Hlakkar þú NúNa? „Að ná einbeitingu og friði og klára eitthvað af þeim allt of mörgu verkefnum sem liggja fyrir.“ Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aft- ur? „Deconstructing Harry Woody Allen.“ afrek vikuNNar? „Útgáfa Bókasafns ömmu Huldar 20. október.“ Hefur þú látið spá fyrir þér? „Konan mín spáir reglulega fyrir mér í tarot. Hún bjargaði okkur einu sinni frá mikilli ógæfu í fast- eignakaupum á þann hátt.“ spilar þú á Hljóðfæri? „Nei.“ viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið? „Já. Að vandlega athuguðu máli.“ Hvað er mikilvægast í lífiNu? „Konan mín og dóttir mín.“ Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja Hella fullaN og fara á trúNó með? „Ég hef reynt að fylla Kötu Jak – sem er gömul vin- kona okkar hjóna – en það virðist ekki vera hægt með góðu móti. Svo væri gaman að gefa Jóhönnu stóran skammt af rítalíni og sjá hana gelta.“ Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst vilja Hitta og af Hverju? „Tim Burton. Svo hann geti hjálpað mér að klára kvikmyndahandrit og fjármagna myndina í fram- haldi.“ Hefur þú ort ljóð? „Nei. Hef samið nokkra vonda pönktexta.“ Nýlegt prakkarastrik? „Stal hatti í brúðkaupi æskuvinkonu konu minnar fyrir vestan.“ Hvaða fræga eiNstakliNgi líkist þú mest? „Bennito Mussolini og Ole Lund Kirkegaard. Báðir þessir menn áttu sama afmælisdag og ég eða 29. júlí.“ ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika? „Get lært tungumál af sjónvarpsskjám á hótelher- bergjum.“ á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi? „Það á að leyfa öll vímuefni. Skálmöldin sem ríkir í Kaupmannahöfn kenndi okkur það.“ Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN? „Baba lú á Skólavörðustíg.“ Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú ferð að sofa? „Ég loka augunum.“ Hver er leið íslaNds útúr kreppuNNi? „Smáiðnaður. Útrás listamanna. Markaðssetning á Íslandi sem sundlaugar- og líkamsræktarparadís.“ Rithöfundurinn Þórarinn Leifsson gaf í vikunni út barnabókina Bókasafn ömmu Huldar. Hann myndi vilja gefa Jóhönnu Sigurðardóttur skammt af rítalíni og sjá hana gelta. blóðsteikiN betri eN megruN Dalvegi 2, Kóp. | Dalshrauni 13 Hfj. | S: 577 3333 | www.castello.is Höfum opnað nýjan stað á Dalshrauni 13, Hfj. 20 % afsláttur af sóttum pizzum H u g sa s é r! S. 562 2104 Varahlutaverslunin Varahlutaverslunin Kistufell | Brautarholti 16 | Sími: 562 2104 | www.kistufell.is | kistufell@kistufell.is Legur Örugg og góð þjónusta í 25 ár. MYND Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði S: 565 4207 - Gsm: 893 5950 www.ljosmynd.is Pantaðu jólamyndatökuna tímalega NICOLAI Véla- og hjólastillingar Tímareimar - Viðgerðir BIFREIÐASTILLINGAR Faxafeni 12 Sími 588-2455

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.