Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Qupperneq 48
48 föstudagur 23. október 2009 lífsstíll
Victoria Beckham í gossip girl
Heyrst hefur að Gossip Girl-leikkonan Blake Lively
hafi hitt Victoriu Beckham þegar sú síðarnefnda
sýndi nýjustu tískulínu sína um daginn. Á Blake
að hafa náð að sannfæra Victoriu um að leika
lítið gestahlutverk í þáttunum. Sagðist hún frekar
hafa áhuga á því að leika fyrrverandi ástkonu eins
strákanna í þáttunum, en ekki móður.
Stefani Joanne Angelina
Germanotta eða Lady GaGa er
fædd árið 1986 og er af ítölskum
ættum. Sem barn stundaði hún
nám við kaþólskan skóla og var
farin að spila á píanó eftir eyranu
um fjögurra ára aldurinn. Hún
var uppgötvuð 19 ára gömul og
fékk samning við sama plötu-
framleiðanda og tónlistarmaður-
inn Akon. Stuttu seinna var þeim
samningi rift og hún fór að vinna
fyrir sér sem dansari og skemmti-
kraftur á svokölluðum burlesque-
sýningum. Á sama tíma byrjaði
Lady GaGa að nota fíkniefni og
lenti í miklum útistöðum við for-
eldra sína, en hún hefur viður-
kennt að hafa ekki talað við föður
sinn á þeim tíma.
Nafnið Lady GaGa tók hún
upp eftir að útgefandi hennar
líkti söngstíl hennar við
söng Freddy Mercury, en
hugmyndina fékk hann úr
lagi Queen, Radio ga ga.
Frá unglingsárum hef-
ur hún samið slagara fyrir
þekkta tónlistarmenn eins
og Fergie, Britney Spears,
The Pussycat Dolls og New
Kids on The Block.
Lady GaGa er ekki síst
þekkt fyrir frumlega og
flippaða tískuvitund en
hún segist „lifa“ fyrir tísk-
una en fyrirmyndir henn-
ar eru meðal annars Grace
Jones og Andy Warhol.
Lady GaGa er skemmtilegur karakter og er þekkt fyrir frumlegan klæðaburð:
lady gaga er töff pía!
UmSjón: HeLGa kriStjÁnSdóttir
Woody allen
hrifinn af
adriana lima
Woody allen er að spá í að ráða
ofurfyrirsætuna adriana Lima til
þess að leika í nýjustu mynd sinni,
sem tekin verður upp í rio de
janeiro. Gaman verður að sjá hvort
adriana sé með leiklistarhæfileika,
en hingað til hafa fyrirsætur ekki
verið að gera það gott í kvikmynda-
bransanum.
lady gaga og
Beyoncé saman
Stórstjörnurnar Lady GaGa og
Beyoncé eru að taka upp nýtt
myndband saman. talað er um að
þær verði í fötum í því myndbandi!
(Sjokk). Beyoncé og Lady GaGa eru
án efa að plana eitthvað svakalega
djúsí saman og hljóta margir að bíða
spenntir eftir útkomunni.
tim gunn í sex
and the city
Project rynway-homminn góðlegi
tim Gunn mun leika lítið gestahlut-
verk í nýju Sex and the City
myndinni. tim er þekktur fyrir
sterkar skoðanir á tískunni og
hárbeittan húmor og mun því án efa
vera skemmtilegur innan um hinar
pæjurnar.
Við konur eyðum alltof miklum tíma, orku og peningum í fegurðarstúss. Hvenær verð-
um við sáttari í eigin skinni?
Feik Fegurð
Stjarna Lady GaGa skín
skært þessa dagana Þekkt
fyrir persónulegan stíl.
Snyrtivöruframleiðandinn Dove
hefur vakið athygli að undanförnu
fyrir „óvenjulega“ auglýsingaher-
ferð. Þar eru „alvöru“ konur fyrir-
sæturnar, konur sem eru meira en
50 kíló, yfir fertugt og meira að segja
með annan húðlit en hvítan. Dove
hefur unnið til verðlauna fyrir sam-
félagslega vitund og þykir ímynd
fyrirtækisins hjálpa til í baráttunni
við óheilbrigða ímynd kvenna í fjöl-
miðlum. Á meðan Dove hvetur kon-
ur til að vera stoltar af heilbrigðum
línum sínum og sáttar í eigin skinni
er verið að auglýsa krem sem stinn-
ir húðina og á að fela appelsínuhúð.
Smá tips til Dove: „Alvöru“ konur
eru með appelsínuhúð!
Þrátt fyrir ágætis tilraun hjá Dove
eru almennu skilaboðin til kvenna
þau sömu. Fegurð er ekki sjálfgefin.
Við erum endalaust plataðar í gegn-
um fjölmiðla út í að kaupa varning
sem á að fela eða lagfæra hitt og
þetta. Fyrirsæturnar sem við sjáum
í tískublöðunum eru 25% léttari en
hin almenna kona. Fáar okkar geta
nokkurn tíma orðið þannig í vext-
inum og okkur ætti heldur ekki að
langa það, viljum við vera heilbrigðar
og hamingjusamar. Þó þessi fegurð-
arstandard sé illfáanlegur hefur það
ekki komið í veg fyrir að konur svelti
sig, láti sjúga úr sér fituna eða jafn-
vel hefti saman á sér muninn í von
um að líkjast því sem fallegast þyk-
ir, samkvæmt nútímasamfélagi.
Ekki nóg með það að okkur er sagt
að við séum of feitar heldur þarfn-
ast flest annað í fari okkar lagfæring-
ar líka. Auglýsingar selja okkur þá
hugmynd að við þurfum að sprauta
collageni í varirnar á okkur því þær
eru of þunnar og okkur vantar bót-
ox til að frysta vöðva andlitsins til að
koma í veg fyrir hrukkur. Skítt með
það þó ómögulegt sé að sýna svip-
brigði, það er lítill kostnaður miðað
við hversu sætar við getum orðið við
það. (Nicole Kidman er gott dæmi).
Tennur okkar eru ekki nógu hvítar,
húðliturinn ekki heldur (eða nógu
dökkur), hárið ekki nógu glansandi
og slétt og svo mætti lengi telja. Þrátt
fyrir mikla baráttu kvennahreyfing-
arinnar er fegurðarpressan jafnvel
meiri en hún var fyrir þrjátíu árum.
Og það er ekki einungis erfiðara
að standa undir þessum kröfum í
dag heldur er markhópurinn sífellt
yngri stúlkur. Í síðustu viku blöskr-
aði mér yfir lýtalækningaþættinum
dr. 90210 þar sem móðir kom með
17 ára gamla dóttur sína í nefminnk-
un og brjóstastækkun. Litla greyið
var nýkomið úr fermingarkyrtlinum
og fannst ágætt að mamma gamla
splæsti í nýtt sett. Raunveruleika-
þættir eins og I Want a Famous Face
gera konum kleift að „panta“ sér
andlit eftir uppáhalds Hollywood-
gyðjunni sinni. Hvenær ætlum við
að segja þetta gott og sættast við
okkur eins frábærar og við erum, frá
náttúrunnar hendi?
Sem nútímafemínistar lærum
við að horfa krítískum augum á
myndir í glanstímaritunum en fáar
okkar komast hjá því að sjúgast inn
í óraunveruleikaheim þeirra. Ekki
nóg með það að við þurfum marg-
ar hverjar að kljást við slæma sjálfs-
mynd heldur líka við samviskubitið
sem fylgir þeim fáránleika að vera
ekki sama um hvað öðrum finnst
um útlit okkar.
Það er stundum vandlifað í þess-
um heimi, sem kona.
helgak@birtingur.is
Mynd úr auglýs-
ingaherferð Dove.
Nicole Kidman Hefur að
margra mati farið yfir strikið í
fegrunaraðgerðum og er næst-
um óþekkjanleg frá því hún
kom fyrst fram á sjónarsviðið.