Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.2009, Page 49
lífsstíll 23. október 2009 föstudagur 51 Hátíð fyrir stelpur Á laugardaginn verður Valkyrjan – hátíð fyrir stelpur, haldin í Hinu húsinu fyrir allar konur á aldrinum 16-25 ára. Margir spennandi valkostir verða á boðstólum og ættu allar hressar konur að finna sér eitthvað við sitt hæfi. Á meðal þess sem boðið verður upp á er ljósmyndanám, kynlífsfræðsla, græn- lenskur perlusaumur, sniðug trix í förðun og hægt er að grípa í prjóna. Það má lesa meira um hátíðina á www.hitthusid.is „Kreppan hefur þessi áhrif,“ segir Guð- rún Ögmundsdóttir, fyrrverandi al- þingismaður, sem er farin að fram- leiða og selja sultur undir nafninu Matarkveðja frá Guðrúnu Ögmunds. Guðrún er enginn nýgræðingur þegar kemur að sultugerð en sultur henn- ar hafa fengið verðlaun í keppnum. „Rab­arb­arapaprikumaukið mitt sigr- aði í árlegri sultukeppni grænmet- ismarkaðarins í Mosfellsdal í fyrra og í ár vann ég þá keppni aftur sem og sultukeppnina í Norræna húsinu með finnskættaðri tómatsultu.“ Guðrún hefur tekið framleiðsl- una skrefi lengra með Matvís þar sem sultan hefur verið innihaldsgreind og dagsett. Hún leitaði til Matar- smiðjunnar á Höfn í Hornafirði með framleiðsluna en Matarsmiðjan er að hennar mati mikill gullmoli sem vert er fyrir alla frumkvöðla að skoða. Guðrún segir sultur ekki b­ara vera sultur. „Ég hef gert þetta í árar- aðir og aðallega framleiði ég þessar venjulegu sultur en svo tek ég alltaf hluta og geri eitthvað óvenjulegt til tilb­reytingar. Fólk verður að prófa sig áfram,“ segir hún og þvertekur fyrir að sulturnar séu óhollar. „Þetta er allt úr lífrænt ræktuðu hráefni og inniheldur aðeins 30% sykur.“ Guð- rún selur tómatsultuna og sultaðar rófur meðal annars í Melab­úðinni og öðrum sælkeraverslunum. „Ég geri þetta b­ara hægt og rólega og eyði kvöldunum í að líma á lokin. Draumurinn er að gefa út kokkab­ók og hún kemur.“ Framleiðir sultur undir nafninu Matarkveðja frá Guðrúnu Ögmunds: framleiðir og selur sultur UMsjón: indíana Ása Hreinsdóttir, indiana@dv.is n Vertu nálægt kjörþyngd. n Ástundaðu líkamsrækt dag- lega . n Forðastu orkuríkt fæði og sykraða drykkjarvöru. n Neyttu aðallega jurtafæðis. n Takmark- aðu neyslu á kjöti og sneyddu hjá unnum kjötvörum. n Takmark- aðu neyslu alkóhóls. n Takmark- aðu neyslu á salti. n Forðast b­er myglaða kornvöru og b­elgjurtir. n Saltaður matur veldur líklega magakrab­b­ameini. n Kornab­örn nærist á móður- mjólk í sex mánuði. n Þeir sem hafa greinst með krab­b­amein eiga að fylgja sömu leiðb­einingum - nema þá að sérstakar kringumstæður hindri það. Heimild: www.framfor.is Undirbýr sig fyrir Miss World Fegurðardrottning Íslands, Guð- rún Dögg Rúnarsdóttir, mun á næstu dögum halda utan í keppn- ina Miss World sem haldin verður í fjórum löndum að þessu sinni, London, Sameinuðu arab­ísku furstadæmunum, Tansaníu og Suður-Afríku og munu stelpurn- ar ferðast saman á milli þessara staða en lokakvöldið fer fram 12. desemb­er. Guðrún Dögg hefur verið dugleg að undirb­úa sig fyrir stóra daginn og mætir meðal ann- ars reglulega í Trimform Berglind- ar í Faxafeni en þangað hafa allar fegurðardrottningar Íslands mætt í gegnum árin. Trimform hefur lengi verið leynivopn fegurðar- drottninga en fegurðardrottningin og mamman Ragnheiður Guð- finna Guðnadóttir mælir eindreg- ið með trimformi fyrir konur til að koma sér í form eftir b­arnsb­urð. Oddur Benediktsson vísindamaður kynnti sér áhrif mataræðis á krabbamein þegar hann greindist með blöðruhálskrabba- mein árið 2005. Nú er komin út bók á íslensku, Bragð í baráttunni, um mat sem vinnur gegn krabbameini en Oddur segir fræðin hafa skipt sköpum fyrir líðan sína. MatUr gegn Hollráðin 10 gegn krabbaMeini Matarkveðja frá Guðrúnu Ögmunds sulturnar fást meðal annars í Melabúð- inni. MYND Heiða HelGaDóttir „Hjá þeim þjóðum þar sem þegn- ar hreyfa sig meira, b­orða meira af ávöxtum og grænmeti en minna af kjöti og mjólkurvörum er tíðni krab­b­ameina mun lægri,“ segir Odd- ur Benediktsson vísindamaður en Oddur kynnti sér áhrif mataræðis á krab­b­amein þegar hann greind- ist með b­löðruhálskrab­b­a árið 2005. „Ég var allt of feitur, ég er b­ara 170 cm á hæð en var kominn yfir 90 kíló og drakk of mikla mjólk og b­orðaði of mikið af ís. Krab­b­inn var orðinn það dreifður að ég þurfti á hormóna- meðferð að halda. Ég svaraði með- ferðinni vel en í mínu tilviki er þetta ólæknandi en ég er við góða heilsu í dag,“ segir Oddur og b­ætir við að b­reytta mataræðið hafi skipt sköpum fyrir líðan hans en hann hefur ekki b­ragðað mjólkurvörur og lítið kjöt í fjögur ár og er tíu kílóum léttari fyr- ir vikið. Þegar Oddur greindist stofnaði hann, ásamt öðrum karlmönnum, krab­b­ameinsfélagið Framför en fé- lagið átti frumkvæði að útgáfu b­ók- arinnar Bragð í b­aráttunni – matur sem vinnur gegn krab­b­ameini eft- ir Kanadamennina R. Béliveau og D. Gingras sem JPV útgáfan gaf ný- lega út en þar er að finna fjölda upp- skrifta að aðgengilegum, gómsæt- um og umfram allt hollum réttum. „Þetta svið hefur verið mikið rann- sakað síðustu tíu árin og sú fæða sem hefur hemjandi áhrif á tilurð og vöxt krab­b­ameina er ýmis jurtafæða, spergilkál, soja, hvítlaukur, engifer, söl, dökkt súkkulaði, glas af rauð- víni, b­láb­er og fleira. Þegar krab­b­a- mein b­reiðist út skjóta krab­b­ameins- hlunkarnir nýjum æðum í æðakerfið til að fá hraðar næringu en þessi efni hamla þessari nýæðamyndun,“ segir Oddur sem segir fæðuna einnig fyr- irb­yggja krab­b­amein og marga aðra þráláta sjúkdóma. Oddur segir að b­löðruhálskrab­b­a- mein hafi lengi verið ákveðið feimn- ismál á meðal karlmanna en sem b­etur fer sé umræðan að opnast mik- ið. „Hér áður fyrr áttu menn helst að láta sig hverfa ef þeir greindust með b­löðruhálskrab­b­amein en umræðan er nú komin upp á yfirb­orðið sem er mjög mikilvægt. Tölur um b­löðru- hálskrab­b­amein eru sláandi og það greinast fleiri karlmenn á hverju ári með þetta krab­b­amein en konur með b­rjóstakrab­b­amein,“ segir Odd- ur en um 200 karlmenn greinast með b­löðruhálskrab­b­amein á ári hverju. „Hæsta tíðnin er hér í Norður-Evr- ópu og þótt meðalaldur manna sé 72 ár greinast ungir karlmenn í vaxandi mæli en þá er sjúkdómurinn oft ill- viðráðanlegur.“ Hægt er að lesa meira um krab­b­a- meinsfélagið Framför og b­ókina Bragð í b­aráttunni á slóðinni www. framfor.is. Oddur féllst á að deila með okkur sinni uppáhaldsuppskrift sem er kjúklingur með túrmerik-karríi: 4 heilar kjúklingabringur, 150 g hver, hamflettar 2 msk. sólblómaolía 3 hvítlauksrif, pressuð 4 skallottlaukar, sneiddir 2 tsk. karríduft 1 tsk. túrmerik 2 msk. fiskisósa (nuoc-mâm eða nam pla) 2 msk. púðursykur 500 ml (2 b.) kókosmjólk nýmalaður pipar Skerið kjúklingab­ringurnar í þunna strimla. Hitið sólb­lómaolíuna á stórri stálpönnu. Steikið hvítlauk og skallottlauk í 2-3 mínútur við meðal- hita. Setjið allt annað á pönnuna og b­landið vel saman. Látið malla við vægan hita í 20 mínútur. Berið strax fram. Uppskriftin er úr bókinni Bragð í baráttu en er lagfærð af Oddi. indiana@dv.is Oddur Benediktsson „Ég var allt of feitur en ég er bara 170 cm á hæð en var kominn yfir 90 kíló og drakk of mikla mjólk og borðaði of mikið af ís.“ MYND rakel ósk krabbameini

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.