Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Síða 6
SANDKORN
n Eiður Guðnason hefur vakið
athygli í seinni tíð fyrir pistla
sína á Moggablogginu um mál-
far í fjölmiðlum. Eftir ritstjóra-
skiptin á Morgunblaðinu í
haust hefur álit Eiðs á blaðinu
og vefnum
minnk-
að statt og
stöðugt og
er nú svo
komið að
hann hefur
lýst yfir að
tvenns kon-
ar breyt-
ingar verði á högum hans um
áramót. Annars vegar komi
Morgunblaðið ekki lengur inn
fyrir dyr heima hjá honum því
hann ætlar að segja upp áskrift-
inni, hins vegar ætli hann að yf-
irgefa Moggabloggið og blogga
á eigin vef, eidur.is.
n Ritdeilur hafa stundum verið
með áhugaverðasta efni blaða
og tímarita.
Sumar hafa
staðið lengi
yfir með-
an öðrum
hefur lokið
fljótt af. Rit-
deila Jóns
Ólafsson-
ar og Þórs
Whitehead hlýtur hins vegar að
teljast með langlífari ritdeilum
í seinni tíð. Jón skrifaði grein í
Sögu árið 2007 þar sem hann
sagði frá skjali sem hann hafði
fundið og gaf til kynna að Kom-
intern hefði verið á móti sam-
starfi íslenskra kommúnista
og krata á síðustu árum fjórða
áratugarins. Þessu andmælti
Þór í sama tímariti 2008 en Jón
svaraði fyrir sig í fyrra tölublaði
þessa árs og Þór í því síðara
sem nú er nýkomið út.
n Ritdeilu Jóns Ólafssonar og
Þórs Whitehead um afstöðu
Komintern til samstarf komm-
únista og
krata er
væntanlega
ekki lokið
enda kemur
nýtt tölu-
blað Sögu út
næsta vor.
En þeir eru
ekki einir í
ritdeilunni því Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, sem vinn-
ur nú að ritun sögu íslenskra
kommúnista, hefur blandað sér
í málið og nú síðast í blogg-
færslu á Pressunni. Hann segir
sem fyrr að skjalið sem Jón fann
sé lítils virði og tekur þannig
undir með Þór. Jón svaraði hins
vegar á sama stað og sagði að
Hannes væri eins og Séð og
Heyrt, gerði lífið skemmtilegra
svo lengi sem hann væri ekki
tekinn alvarlega.
6 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
Ó
dý
ra
ri
sm
ur
st
öð
o
g
ve
rk
st
æ
ði
H
el
lu
hr
au
n
4
| 2
20
H
af
na
rfi
rð
i |
S
ím
i:
56
5
44
40 Meðlimur CTF-kirkjunnar vísar frásögnum af kynlífshópum á bug:
Lifa góðu og heiðarlegu lífi
„Ég er meðlimur í CTF og var í
þessum hópum sem kallaðir eru
ljósahópar. Frásagnirnar af hóp-
unum eru algjört bull. Þar var eng-
inn neyddur til að tala um sjálfs-
fróun eða kynlíf,“ segir Sigvarður
Hans Hilmarsson.
DV greindi í vikunni frá frásögn-
um fyrrverandi meðlima Catch the
Fire-kirkjunnar hér á landi, CTF,
sem lýsa því yfir að í svokölluðum
ljósahópum hafi meðlimir verið
hvattir til að segja frá kynlífsupp-
lifunum sínum. Bæði Sigvarður
og Guðbjartur Guðbjartsson, for-
stöðumaður CTF, vísa frásögnun-
um á bug sem þeir telja komnar
frá óprúttnum einstaklingum sem
vilji sverta söfnuðinn. Ekkert sé at-
hugavert við safnaðarstarfið enda
sé dagskrá kirkjunnar öllum opin á
vefsvæði hennar.
Sigurður bendir á að kaþólikkar
hafi í gegnum aldirnar létt á sam-
visku sinni með því að skrifta. Hann
segir líka ekkert athugavert við það
að játa syndir sínar. „Það að setja
hlutina í ljósið snýst ekkert um að fá
fyrirgefningu eða ekki. Jesús hefur
þegar fyrirgefið allar syndir. Það er
ekkert athugavert við að játa syndir
sínar eða tala um þá hluti sem eru
að trufla fólk. Það að hafa allt í ljós-
inu snýst fyrst og fremst um að vera
ekki með nein leyndarmál og neinn
óheiðarleika í lífi sínu. Því að mark-
mið hvers einstaklings á að vera að
lifa góðu og heiðarlegu lífi,“ segir
Sigvarður.
trausti@dv.is
Rangar frásagnir Sigvarður vísar á bug frásögnum um óeðlilegt safnaðarstarf
kirkjunnar.
Sævar Óli Helgason telur sýslumanninn á Selfossi, Ólaf Helga Kjartansson, leggja sig
í einelti. Hann var dæmdur fyrir að veitast gróflega og að tilefnislausu á sýslumanninn
sem hann segir ofsækja sig. Hann hefur nú leitað til forsætisráðherra eftir stuðningi.
KLAGAR SÝSLUMANN
TIL JÓHÖNNU
„Ég er nýbúinn að senda forsæt-
isráðherra kvörtun og beiðni um
leiðréttingu á mínum málum. Ég
bíð eftir svörum frá ráðherra.“
Sævar Óli Helgason hefur ritað Jó-
hönnu Sigurðardóttur forsætisráð-
herra bréf þar sem hann óskar eft-
ir liðsinni hennar gegn Ólafi Helga
Kjartanssyni, sýslumanni á Selfossi.
Hann telur sýslumanninn leggja sig
í einelti og vill fá það viðurkennt af
stjórnsýslunni.
Sævar og sýslumaðurinn hafa
deilt í gegnum tíðina. Sá fyrrnefndi
hlaut sex mánaða fangelsisdóm fyrir
að þrífa í öxl Ólafs Helga við embætt-
isstörf og bregða fyrir hann fæti á leið
inn í réttarsal. Dómari sagði hegð-
un Sævars Óla ruddalega og að brot
hans gegn sýslumanninum hefði
verið gróft og tilefnislaust. Hann er
hins vegar ósáttur við það sem hann
kallar ofsóknir sýslumannsins í sinn
garð og vill opinbera viðurkenningu
á eineltinu.
Bíður eftir svörum
Sævar Óli fullyrðir að bæði dómstig
hérlendis hafi úrskurðað Ólaf Helga
sýslumann vanhæfan til að fjalla um
sín málefni. Hann bendir á að sökum
ofsókna hafi hann neyðst til að sækja
um hæli í Danmörku sem pólitískur
flóttamaður. „Ég sótti um sem póli-
tískur flóttamaður vegna eineltis Ól-
afs Helga. Mér varð á að grípa í öxl-
ina á honum fyrir utan dómssal. Ég
geri mér vel grein fyrir einelti sýslu-
mannsins, það er bara þannig. Ég get
talið upp fullt af dæmum þar sem
sýslumaður hefur brotið á mínum
rétti og lagt mig í einelti. Ég er nýbú-
inn að senda forsætisráðherra kvört-
un og beiðni um leiðréttingu á mín-
um málum. Ég bíð eftir svörum frá
ráðherra,“ segir Sævar Óli.
Finnur ekki eigur sínar
Áður en Sævar Óli hlaut dóm fyrir að
veitast að sýslumanninum á Selfossi
hafði hann afplánað annan fangels-
isdóm fyrir að rassskella kvenkyns
leikskólakennara. Viðkomandi hafði
þá lagt í bílastæði fyrir innkeyrslu
Sævars Óla sem brást við með því að
beygja konuna upp á vélarhlíf bílsins
og veita henni nokkur högg á aftur-
endann. Sjálfur lýsti Sævar
Óli því yfir að leikskóla-
kennarinn hefði veist
að sér kynferðislega og
reynt að sparka í pung-
inn á sér.
Í dag bíður Sævar
Óli eftir svörum frá for-
sætisráðherra en hann
leitar líka búslóðar sinnar
sem hann segir hafa horf-
ið þegar hann sat í fang-
elsi fyrir brot gegn Ólafi
Helga. Hann segir eign-
ir sínar hafa verið tekn-
ar eftir leiðbeiningum
frá sýslumanninum.
„Á meðan ég var að af-
plána dóminn var bú-
slóðin mín hreinsuð
út úr íbúðinni og
samkvæmt mínum
heimildum frá lög-
reglunni var það
gert með leiðbein-
ingum frá sýslu-
manninum. Ég
hef ekki getað nálgast eigur mínar
eftir afplánunina og fæ engar
upplýsingar um hvar búslóð-
in mín er. Þegar ég kom út úr
fangelsinu þurfti ég að byrja
með tvær hendur tómar því
búslóðin mín finnst hvergi.
Ég hef því ekki hugmynd um
hvar eigur mínar eru,“ segir
Sævar Óli.
Við vinnslu frétta-
rinnar var leitað
viðbragða hjá Ól-
afi Helga, sýslu-
manni á Selfossi,
en án árangurs.
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ósáttur Sævar Óli er ekki hrifinn af framkomu sýslumannsins á Selfossi í sinn garð.
Beðið svara
Jóhönnu
forsætisráðherra
hefur verið
sent bréf frá
hinum meinta
þolanda
eineltis.
Kvartað undan sýslumanni Ólafur
Helgi er sagður leggja í einelti en Sævar
Óli var áður dæmdur fyrir að veitast að
sýslumanninum með gróflegum hætti.