Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Síða 11
FRÉTTIR 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR 11
voru til að kaupa víxlana og skulda-
bréf Milestone.
Birkir gaf skýringarnar
Heimildir DV herma að Birkir Krist-
insson, þáverandi starfsmaður
eignastýringar Glitnis og núverandi
starfsmaður Íslandsbanka, hafi ver-
ið einn af þeim sem sat fyrir svör-
um þegar viðskiptavinir bankans
inntu eignastýringuna eftir svörum
um af hverju keypt hefði verið fyrir
þá í Milestone. Ein af skýringunum
sem var gefin var sú að verið væri að
tryggja ávöxtun fyrir hönd fólksins af
því að búist væri við að vextir færu
lækkandi. Þess skal getið að Birk-
ir tengdist Milestone á þann hátt að
skattaráðgjafi hans og vinur, Gunn-
ar Gunnarsson, var lögfræðingur hjá
Milestone.
Afar ólíklegt er að fólkið muni
fá nokkuð upp í kröfur sínar þar
sem heildarkröfur í þrotabú Mil-
estone nema um 95 milljörðum
króna. Ástæðan er sú að eignirnar í
búi Mile stone duga hvergi nærri fyr-
ir öllum kröfunum en í frumvarpi til
nauðasamninga höfnuðu kröfuhaf-
arnir því að fá 6 prósent upp í kröfur
sínar. Fé þess fólks sem Glitnir fjár-
festi fyrir í víxlum og skuldabréfum
Milestone er því líkast til tapað að
langmestu leyti.
Lögfræðingurinn tengdur eignastýringunni Skjalið sýnir meðal annars tengsl
Birkis Kristinssonar, starfsmanns eignastýringar Glitnis, og Gunnars Gunnarssonar,
lögfræðings hjá Milestone. Gunnar ráðlagði Birki hvernig hann gæti stundað viðskipti
við Magnús bróður sinn árið 2007 og var þetta skjal sent til KPMG sem kvitta átti upp
á viðskiptin. Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Nike 150 Eau De Toilette For Man
Spray 150 ml, 3 gerðir
kr. 4.298,-
GOSH Gjafakassi
Maskari, Augnblýantur og gerviaugnhár
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
48
01
8
11
/0
9
Skíðapakkar
20% afsláttur
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
„ÉG ER HRIKALEGA
REIÐUR ÚT Í ÞÁ“
Létu kaupa í Milestone Birkir Kristinsson var einn af þeim starfsmönnum
eignastýringar Glitnis sem sat fyrir svörum þegar viðskiptavinir bankans spurðu af
hverju fjárfest hefði verið fyrir þá í víxlum og skuldabréfum Milestone á seinni hluta
árs 2007.