Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR „Ég mun alveg sætta mig við að fá ekki þennan pening en ég vil ekki að þeir komist upp með þetta þegjandi og hljóðalaust,“ segir Friðjón Ingi Guð- mundsson sjómaður sem vill vara fólk við því að borga húsaleigu fyrir- fram. Friðjón flutti til Íslands frá Nor- egi í byrjun október. Áður en hann kom til landsins hafði hann sam- band við leigumiðlunina Neseignir og gekk frá leigusamningi um íbúð á fimmtu hæð í nýbyggingu í Grinda- vík. Hann greiddi 200 þúsund krónur í leigu fyrirfram. Þegar hann kom til Íslands og ætlaði að flytja inn í íbúð- ina reyndist hún ekki tilbúin. Frið- jón leitaði á önnur mið og tókst að fá aðra íbúð með engum fyrirvara, íbúð með hærri leigu. Hann hefur enn ekki fengið peninginn endurgreiddan og er orðinn langþreyttur á samskiptum sínum við eiganda íbúðarinnar, Járn- gerði ehf, og umboðsaðila fyrirtækis- ins, Neseignir. Ókláruð íbúð „Ég fékk fyrst lykil að rangri íbúð sem var á fyrstu hæð en ég var með samn- ing upp á íbúð á fimmtu hæð,“ seg- ir Friðjón. „Ég vildi hins vegar gera gott úr þessu og skoðaði íbúðina á fyrstu hæð. Hún var alls ekki tilbúin, það vantaði raftæki sem áttu að vera, loftin voru ómáluð og veggir illa mál- aðir. Allir skápar og gólf voru drullu- skítug eftir borun og framkvæmdir. Ég var búinn að kalla út fullt af fólki til að hjálpa mér að flytja en varð að senda það aftur heim.“ Friðjón kærði sig ekki um að flytja inn í hálfkláraða og skít- uga íbúð með unga dóttur sína. „Við berum ekki ábyrgð“ Kári Kort Jónsson, sölustjóri Nes- eigna, segir að eigandi Járngerðis ehf. beri ábyrgð á því að Friðjón hefur ekki fengið endurgreitt, jafnvel þótt Frið- jón hafi millifært 200.000 krónurnar á reikning Neseigna. Þeir hafi greitt Járngerði helming fjárins en sam- kvæmt samkomulagi greiði eigandi hússins miðluninni sem nemur einni mánaðarleigu í þóknun. „Við berum ekki ábyrgð á því að byggingameist- arinn efni ekki samninginn. Það get- um við einfaldlega ekki,“ segir Kári og bendir á að samningurinn sé bara á milli leigutaka og eiganda hússins, Járngerðis. Greiðir sinn hluta Ólafur Garðar Þórðarson, eigandi Járngerðis, staðfestir að hafa móttek- ið 100 þúsund krónur, helming upp- hæðarinnar sem Friðjón greiddi, frá Neseignum. Ólafur segist upphaflega hafa samþykkt að leigja honum íbúð á jarðhæð en á daginn hafi komið að hann hafi viljað íbúð á fimmtu hæð, líkt og stendur í húsaleigusamningn- um. Þá íbúð hafi hann ekki geta klárað í tæka tíð. Hann segir misskilninginn frá Neseignum kominn. „Ég leigi ekki það sem ég get ekki leigt. Þeir hafa eitthvað klúðrað því,“ segir hann. Ólafur segir, þrátt fyrir að tveir mánuðir séu nú liðnir, að ekki muni standa á honum að endurgreiða þessar 100 þúsund krónur. Hitt eigi Neseignir að endurgreiða þar sem ekkert hafi orðið af leigunni. „Ef ég kaupi íbúð og hætti svo við hana, þá fær sölumaðurinn ekki nein laun fyrir það,“ útskýrir Ólafur. Ekkert gerist Sigurður Helgi Guðjónsson, for- maður Húseigendafélagsins, seg- ir alveg skýrt að leigusalinn eigi að endurgreiða Friðjóni peninginn, ef hann hefur ekki efnt samning- inn. Það geti hins vegar vel verið að leigumiðlarinn eigi kröfu á leigu- salann vegna vinnunnar. Friðjón er óánægður með fram- komu beggja aðila. „Ég fer bara fram á að fá þennan pening til baka, sem ég greiddi Neseignum,“ segir hann og bætir við að Kári sé hættur að svara síma og pósti, bæði frá sér og lögfræðingi sem hann hefur ráðfært sig við. „Eig- andi hússins, hann Ólafur, virð- ist allur af vilja gerður til að leysa þetta mál en það gerist bara aldrei neitt,“ segir Friðjón sem þurfti að leggja út aðrar 200 þúsund krónur vegna íbúðarinnar sem hann fann sér þegar hitt brást. FÆR HVORKI ÍBÚÐ NÉ INNBORGUNINA „Ég var búinn að kalla út fullt af fólki til að hjálpa mér að flytja en varð að senda það aftur heim.“ BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is Friðjón Ingi Guðmundsson greiddi Neseign- um 200.000 krónur fyrir fram vegna íbúðar sem hann ætlaði að leigja. Íbúðin var ekki tilbúin þegar á reyndi en hann hefur enn ekki fengið endurgreitt. Leigumiðlunina Neseignir og Járngerði ehf, eiganda íbúðarinnar, greinir á um hvor eigi að greiða Friðjóni til baka. Fær ekki endurgreitt Friðjón þurfti að leggja út 200 þúsund krónur við undirritun samningsins. Annað eins þurfti hann að leggja út fyrir nýrri íbúð sem hann fann þegar hitt brást. MYND SIGTRYGGUR ARI SÖLUSTAÐIR Davidsson: Rammagerðin ehf Hafnarstræti 19, Reykjavík • Leifsstöð, Keflavíkurflugvelli • Brekkugötu 3, Akureyri • Miðvangi 13, Egilsstöðum • www.rammagerdin.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.