Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Page 19
FRÉTTIR 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR 19
Einkahlutafélag í eigu Guðbjargar
Matthíasdóttur, útvegskonu úr Vest-
mannaeyjum, gerir rúmlega tveggja
milljarða króna kröfu í þrotabú
gamla Glitnis. Kröfulýsingaskráin var
send til kröfuhafa fyrir skemmstu.
Félagið heitir Kristinn ehf. og er
sama félag og hélt utan um 1,71 pró-
sents eignarhlut hennar í bankanum
fyrir hrun.
Um er að ræða kröfu vegna víkj-
andi bréfa sem Guðbjörg keypti í
bankanum, að sögn Sigurbjörns
Magnússonar, lögmanns Guðbjarg-
ar. Slík bréf eru fjárfesting þar sem
viðskiptavinur banka gerir samn-
ing við hann um að söluverðmæti
bréfanna sem hann hefur keypt geti
breyst í hlutafé í bankanum á tiltekn-
um tíma ef hann kærir sig um. Því er
um að ræða fjárfestingu sem hugsuð
er til nokkuð langs tíma.
Í tilfelli Guðbjargar gat hún breytt
fjárfestingunni í hlutafé í bankan-
um árið 2013, að sögn Sigurbjörns.
Kröfuupphæðin er sú upphæð sem
Guðbjörg lagði fram til að kaupa
bréfin auk vaxta, að sögn Sigur-
björns. „Þetta er tiltekið form sparn-
aðar,“ segir Sigurbjörn.
Sigurbjörn segir að hann hafi
rift viðskiptunum skömmu eftir ís-
lenska efnahagshrunið haustið 2008
þar sem fyrirséð hafi verið að samn-
ingurinn sem gerður var við Glitni
myndi ekki ganga eftir vegna hruns-
ins. „Við töldum að það væru fyrirsjá-
anlegar vanefndir á samingnum sem
við höfðum gert við bankann ... Þess
vegna rifti ég og vildi fá peningana
til baka eins og samningurinn hefði
aldrei verið gerður ... Þetta er bara
endurkrafa út af þessu,“ segir Sigur-
björn en á þessum tíma var augljóst
að Guðbjörg myndi ekki geta nýtt sér
réttinn til að breyta fjárfestingunni í
hlutafé árið 2013 þar sem bankinn
var hruninn.
Ótengt FL Group-viðskiptunum
Guðbjörg hefur verið nokkuð í um-
ræðunni vegna þess að Fjármála-
eftirlitið hefur kært viðskipti henn-
ar með hlut sinn í Glitni til embættis
sérstaks saksóknara, Ólafs Hauks-
sonar. Verið er að rannsaka hvort um
innherjaviðskipti hafi verið að ræða.
Einkahlutafélag Guðbjargar átti
nærri 254 milljónir hluta í bankan-
um miðvikudaginn 24. september
2008 en hún seldi helming þessara
bréf dagana áður en bankinn var yf-
irtekinn að hluta af íslenska ríkinu
þann 29. september 2008. Guðbjörg
fékk um 3,5 milljarða króna í sinn
hlut fyrir helming bréfanna.
Guðbjörg eignaðist bréfin í Glitni
þegar hún seldi þriðjungshlut sinn í
Tryggingamiðstöðinni til FL Group
árið 2007. Samningurinn sem Guð-
björg gerði við FL Group gerði henni
kleift að innleysa hluti sína dagana
25. og 26. september 2008, en svo
vildi til að það voru síðustu virku
dagarnir áður en Glitnir féll í hendur
ríkisins mánudaginn 29. september.
Sá samningur fól í sér rétt Guðbjarg-
ar til þess að selja helming eignar
sinnar í bankanum eða um 127 millj-
ónir hluta fyrir nærri 4,1 milljarð
króna. Að frádregnum arðgreiðslum
og þóknun fékk Guðbjörg tæplega
3,5 milljarða króna í sinn hlut þegar
hún seldi bréfin.
Krafa Guðbjargar í Glitnisbúið er
hins vegar með öllu ótengd þessum
viðskiptum með hlutabréfin í Glitni
sem hún fékk fyrir söluna á hlutnum
í Tryggingamiðstöðinni, að sögn Sig-
urbjörns.
Tapaði helmingnum af hluta-
bréfunum
Sigurbjörn segir aðspurður að samn-
ingur Guðbjargar við FL Group hafi
gengið út á það að félagið sölu-
tryggði helminginn af söluverðmæti
hlutar hennar í Tryggingamiðstöð-
inni. „Þeir sölutryggðu helminginn
af bréfunum [Innskot blaðamanns:
Á þessum tíma var FL Group stærsti
hluthafi Glitnis] ... Það var bara til-
viljun að þetta kom upp viku áður
en þetta allt gerðist [Innskot blaða-
manns: Hrun íslenska bankakerfis-
ins]. Í staðinn fyrir að borga henni
með peningum borguðu þeir henni
með sölutryggðum bréfum, ann-
ars vegar í FL Group og hins vegar
í Glitni. Því má segja að í raun hafi
hún verið að innleysa peninga,“ seg-
ir Sigurbjörn og bætir því við að ef
hrunið hefði orðið áður en Guðbjörg
hefði getað selt bréfin þá hefði hún
átt kröfu á bankann út af sölutrygg-
ingunni..
Hann segir að við fall Glitnis hafi
Guðbjörg tapað hinum helmingn-
um af hlutabréfunum sem hún átti í
Glitni. „Hinu tapaði hún bara,“ segir
Sigurbjörn.
Slitastjórn Glitnis á eftir að taka
afstöðu til þessarar kröfu Guðbjargar.
Milljarðakrafa vegna víkjandi bréfs
Guðbjörg Matthíasdóttir gerir rúmlega
tveggja milljarða króna kröfu í þrotabú
Glitnis. Krafan er vegna víkjandi bréfs
sem Guðbjörg hefði getað breytt í
hlutafé í bankanum árið 2013.
Guðbjörg Matthíasdóttir gerir rúmlega tveggja milljarða króna kröfu í þrotabú Glitnis. Krafan er vegna víkj-
andi bréfs sem Guðbjörg fjárfesti í sem gert hefði henni kleift að breyta fjárfestingunni í hlutabréf á tilteknum
tíma. Krafan er ótengd viðskiptum Guðbjargar með hlutabréf í Glitni sem hún fékk í sinn hlut þegar hún seldi
hlut sinn í Tryggingamiðstöðinni til FL Group. Samningnum var rift vegna fyrirsjáanlegra vanefnda.
GUÐBJÖRG KREFST 2 MILLJARÐA
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Þeir sölutryggðu helm-
inginn af bréfunum
[Innskot blaðamanns:
Á þessum tíma var FL
Group stærsti hluthafi
Glitnis]... Það var bara
tilviljun að þetta kom
upp viku áður en þetta
allt gerðist .“