Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
„Áhugasamir geta svo tengt heimil-
isföng úthlutananna við kjördæmin
og séð hvaða þingmenn berjast fyrir
hverju,“ skrifaði Þór Saari, þingmað-
ur Hreyfingarinnar, á bloggsíðu sína
þegar honum ofbauð hvernig staðið
var að úthlutun fjármuna í fjárlaga-
nefnd milli fyrstu og annarrar um-
ræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs.
Þór tók þar undir með mörgum sem
hafa í gegnum tíðina gagnrýnt að
þingmenn samþykki fjárframlög til
fjölda verkefna um allt land, oft verk-
efna í þeirra eigin kjördæmi.
„Að mínu viti er hér um algerlega
óábyrga og í raun spillta meðferð á al-
mannafé að ræða þar sem þingmenn-
irnir koma svo heim í kjördæmið í
jólafríinu með peninga í poka og fá þá
væntanlega atkvæði í staðinn en á Ís-
landi þykja þetta þó víst eðlileg stjórn-
mál,“ skrifaði Þór. DV fór því í gegnum
fjárlagaliðina, ekki síst þá sem falla
undir safnliði þar sem safnað er sam-
an mörgum litlum framlögum, oft til
safna og félagasamtaka sem fá styrki
víða frá, bæði frá ríki og sveitarfélög-
um auk annarra sjóða.
Stríð og friður á fjárlögum
Ekki er gert upp á milli stríðs og frið-
ar á fjárlögum. Alla vega er settur
jafn mikill peningur í Íslenska stríðs-
árasafnið á Reyðarfirði og viðgerð á
húsnæði Friðarsetursins að Holti í
Önundarfirði. Hvort um sig fær 700
þúsund krónur úr ríkissjóði sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu eins og
það lítur nú út.
Dýrin verða heldur ekki út undan
þegar hugað er að söfnum. Þannig
eru lagðar fimm milljónir króna í
Selasetur Íslands og rúmar fjórar
milljónir í Sögusetur íslenska hests-
ins. Þá er lágfóta ekki skilin út undan,
Melrakkasetur Íslands í Eyrardalsbæ
á Vestfjörðum fær 3,2 milljónir króna.
Safnið heldur uppi heiðri refsins og á
næsta ári stendur meðal annars til að
setja upp leikrit um refinn. Leikstjóri
hefur þegar verið ráðinn og styrkur
fenginn til að standa straum af kostn-
aði þess verks, reyndar ekki úr ríkis-
sjóði heldur frá Menningarráði Vest-
fjarða.
Fuglar og myndir Sigurgeira
Tveir menn að nafni Sigurgeir koma
við sögu á fjárlögum, hið minnsta.
Annar er Sigurgeir heitinn Stefánsson
en fuglasafn hans í Mývatnssveit fær
2,8 milljónir samkvæmt frumvarp-
inu. Fuglasafnið komst á síður DV fyrr
á þessu ári þegar það var tilnefnt til
menningarverðlauna DV í bygging-
arlist.
Hinn Sigurgeirinn er Jónasson og
kemur frá Vestmannaeyjum. Fyrir-
tækið Sigurgeir ljósmyndari ehf. var
stofnað um ljósmyndir hans, að frum-
kvæði Magnúsar Kristinssonar útrás-
arvíkings og með aðkomu tveggja út-
gerða í bænum. Nú er unnið að því að
flokka og skrá þúsundir mynda sem
Sigurgeir hefur tekið á löngum ljós-
myndaraferli sínum, fengust 1.400
þúsund krónur úr ríkissjóði til að
standa undir hluta þess kostnaðar.
Þetta eru ekki einu fjárlagaliðirn-
ir í menningartengdum verkefnum
í Vestmannaeyjum. Þannig fara 2,8
milljónir undir liðinn Vestmanna-
eyjabær „handritin heim“, Sögusetur
um Tyrkjaránið í Vestmannaeyjum
fær 1,4 milljónir, Landnámsbærinn
í Herjólfsdal fær 700 þúsund krónur,
Fiska- og náttúruminjasafnið fær tvær
milljónir og Stafkirkjan í Heimaey fær
þrjár milljónir.
Þjóðtrú og -búningar
Þingmenn eru ósjaldan á þjóðlegu
nótunum í málflutningi sínum og
þess sjást stundum merki í störfum
þeirra. Í það minnsta fær Þjóðbún-
ingaráð 400 þúsund krónur til ráð-
stöfunar. Þjóðtrúarstofa á Ströndum
hefur enn meira upp úr krafsinu í fjár-
lagagerð ársins og fær átta og hálfa
milljón króna í styrk úr ríkissjóði.
Þjóðveldisbærinn fær svo sínar tvær
milljónir króna.
Spákonan og skrímslin
Eitt af því sem hefur vakið athygli
er 2,8 milljóna króna fjárframlag til
Spákonuhofs á Skagaströnd, sér-
staklega eftir að Þór Saari, þingmað-
ur Hreyfingarinnar, tiltók það sem
dæmi um landsbyggðarbitlinga fjár-
laganefndar í bloggfærslu. „Á fund
nefndarinnar kom m.a. spákona sem
óskaði eftir fimmtán milljóna styrk
fyrir spákonuhús á Skagaströnd og
skrímslafræðingar sem óskuðu eftir
fimm milljónum fyrir skrímslasetur
á Bíldudal ásamt fjölda annarra með
alls lags furðulegar óskir.“
Þetta er ekki fyrsti styrkurinn sem
Spákonuhofið fær úr ríkissjóði. Árið
2007 veitti Jóhanna Sigurðardóttir, þá
félagsmálaráðherra, styrki til atvinnu-
uppbyggingar kvenna. Meðal þeirra
sem fengu hæstu styrkina var Spá-
konuhofið sem fékk hálfa aðra milljón
króna. Styrkirnir þá voru hluti af mót-
vægisaðgerðum vegna niðurskurðar á
þorskkvóta.
Menningarfélagið Spákonuarfur
stendur að Spákonuhofinu og bygg-
ir á arfleifð Þórdísar spákonu sem
nefnd hefur verið fyrsti landnáms-
maður Skagastrandar. Hún var sögð
forspá og fjölkunnug og
fóstraði Þorvald víð-
förla sem var fyrsti
kristniboðinn á
Íslandi.
Dagný Marín
Sigmarsdóttir,
sem er í forsvari
fyrir félagið, segir
unnið með Þór-
dísi spákonu og
allt henni tengt und-
ir merkjum sögutengdr-
ar ferðaþjónustu. Hún segir
spákonuviðurnefni Þórdísar sér-
staklega heppilegt. „Þar af leiðandi
getum við tengt mystík við þetta til að
gera þetta enn þá meira spennandi og
fá til okkar fleiri ferðamenn.“ Meðal
þess sem félagið gerir er að reka Ár-
nes, elsta húsið á Skagaströnd, þar er
spástofa þar sem fólk getur látið spá
fyrir sér, sýningarhald sem tengist
ekki endilega Þórdísi spákonu og nú
á jólaföstunni hefur verið lesið upp
fyrir börnin á Skagaströnd í gömlum
anda.
„Við erum að miðla okk-
ar sagnaarfi,“ segir Dagný og
bendir á að Spákonustofa sé
sambærileg mörgum öðrum
söfnum, svo sem Galdrasetri og fleiri
söfnum sem byggja á sögutengdri
ferðaþjónustu.
Milljón til Framtíðar,
tímabundið
Húsafriðun á upp á pallborðið hjá
meirihluta fjárlaganefndar. Þannig
vilja nefndarmenn setja 2,4 milljón-
ir króna í Kaupfélagshúsið á Höfn í
Hornafirði, en það er elsta íbúðar-
húsið í bænum. Þó horft sé til
fortíðar við úthlutun fjármuna
vegna húsafriðunar á framtíðin
sér líka málsvara, eða öllu heldur
Hótel Framtíð á Bíldudal sem fær
eina millj- ón króna, ekki
þó til
framtíðar heldur tímabundið - alla
vega að því er segir í tillögunni. Einn-
ig er sett fé í pakkhús í Ólafsvík, hlöðu
í Vogum og sjóræningja á Vestfjörð-
um. Sjóræningjar ehf. fá 1,4 milljón-
ir króna vegna endurbóta á húsnæði
þar sem eitt sinn var bílaverkstæði
en verður í framtíðinni safn
um sögu sjórána við
Vestfirði. Auk frá-
sagna af sjóránum
hefur Sjóræningja-
húsið staðið fyrir
námskeiðum í
samráði við Vín-
skólann, þar hafa
verið kynntir svo
sjóræningjavænir
drykkir sem romm
og bjór.
Og ekki má gleyma
réttunum, ein milljón er sett í
uppbyggingu Skaftholtsrétta.
Fá sitt eigið númer
Stundum hefur verið talað um að um-
sækjendur um fé úr ríkissjóði geti tek-
ið fram kampavínsflöskurnar, hellt í
glösin og byrjað að fagna þegar þeir fá
sérstakt númer í fjárlögunum. Þá séu
þeir næsta öruggir um að fá fé úr rík-
issjóði næstu árin. Því meðan verk-
efni fái greitt af safnliðum eigi þeir
til að gleymast og líklegra að þeir
séu skornir niður en ef þeir eru
komnir með sitt eigið númer.
Nú geta forsvarsmenn
Leikminjasafns Íslands fagnað.
Þeir fá sitt sérstaka númer fyr-
Grænlensk börn fá sundkennslu greidda
úr ríkissjóði Íslands á sama tíma og niður-
greiðsla á ferðakostnaði milli landanna er
skorin niður. Skrímsli, þjóðbúningar og
sjóvinnukennsla hljóta náð fyrir augum
fjárveitingarvaldsins og Vestmannaeyjar
fá ófáa styrkina í verkefni í Eyjum. DV
kannar litlu liðina í fjárlagafrumvarpinu.
SJÓRÆNINGJAR OG SPÁKONUR FÁ AUR
BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Spákonugöngur 2,8 milljóna
króna framlag til Spákonuseturs
hefur vakið mikla athygli.
Sjórán við Vestfirði Merki sjóræningja við Vestfirði
voru kannski frábrugðin þessu en Sjóræningjar ehf. fá
1.400 þúsund úr ríkissjóði.
Margir styrkir til Eyja Stafkirkj-
an, sjóránin og ljósmyndirnar
draga til sín fé úr ríkissjóði.