Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 28
Latibær glímir við fjárhagsvandræði þar sem skuldabréfaeigendur hafa stefnt
fyrirtækinu vegna ógreiddra skulda. Samkvæmt heimildum DV ætlar Róbert
Wessmann, sem er einn stærsti hluthafi Latabæjar, ekki að leggja meira fjármagn í Latabæjarævintýrið.
Magnús er sagður lítill rekstrarmaður. Það hamlar vexti Latabæjar. Hann er sagður ofvirkur vinnufíkill.
28 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
ÍÞRÓTTAÁLFUR
Á LEIÐARENDA
Magnús Scheving og Latibær hafa
verið nokkuð í fréttum upp á síð-
kastið þar sem skuldabréfaeigend-
ur hyggjast stefna félaginu vegna
ógreiddra skulda. Samkvæmt heim-
ildum DV hefur Magnús Scheving
verið að leita að aðilum til að koma
með aukið fjármagn inn í rekst-
ur Latabæjar. Hefur það ekki geng-
ið sem skildi. Ein helsta örsök þess
er sögð sú að Magnús vilji ekki leyfa
öðrum að koma að stjórn Latabæjar
þar sem hann og eiginkona hans fara
með ráðandi hlut. Magnús er sagð-
ur lítill rekstrarmaður og nauðynlegt
væri að fá forstjóra með viðskipta-
menntun. Hefur Magnús meðal ann-
ars leitað til Róberts Wessmanns,
stærsta eiganda Latabæjar. Sam-
kvæmt heimildum DV vill Róbert
ekki leggja félaginu til meira fjár-
magn. Tvö félög í eigu Róberts fara
saman með 35 prósent hlut í Lata-
bæ. Magnús Schveving og eiginkona
hans fara með 38 prósenta hlut.
Stefnt fyrir Héraðsdóm
Héraðsdómur mun taka fyrir aðfara-
beiðni skuldabréfaeigenda í janúar
næstkomandi. Ef beiðni þeirra verð-
ur samþykkt er hægt að fara fram á
að sýslumaður geri fjárnám hjá Lata-
bæ. Ef fjárnám verður síðan árang-
urslaust er hægt að fara fram á að
Latibær verði tekinn til gjaldþrota-
skipta. Samkvæmt heimildum Við-
skiptablaðsins hefur Latibær ekki
staðið skil á greiðslum til eigenda
óveðtryggðra skuldabréfa í marga
mánuði. Er upphæðin sögð nema
um 26 milljónum dollara eða 3,3
milljörðum íslenskra króna. Einn-
ig greindi Viðskiptablaðið frá því að
Latibær skuldaði Landsbankanum
1800 milljónir króna. Þetta er ekki
í fyrsta skipti sem Latibær stendur
ekki við samninga. Árið 2005 eign-
aðist Nýsköpunarsjóður Atvinnulífs-
ins (NSA) um tveggja prósenta hlut
í Latabæ. Gerðist það í kjölfar dóms
vegna áhættuláns sem NSA hafði
veitt Latabæ árið 2001. Hafði Magn-
ús ekki staðið við skilmála á láninu
þrátt fyrir ítrekaðar beiðni frá sjóðn-
um. Ágúst Freyr Ingason, aðstoðar-
forstjóri Latabæjar, vildi lítið tjá sig
um fjárhagsstöðu félagsins þegar DV
náði tali af honum.
Bindindismaður
Magnús Örn Scheving fæddist þann
10. nóvember árið 1964. Ragnheið-
ur Pétursdóttur Melsted er sambýlis-
kona og barnsmóðir Magnúsar. Hún
er fædd árið 1971. Foreldrar Magnús-
ar eru Eyjólfur Magnússon Scheving,
íþróttakennari og Þórveig Hjartar-
dóttir. Þau skildu fyrir um fimmtán
árum síðan. Systkyni Magnúsar eru
tvö og er hann í miðjunni. Magnús
ólst upp í Borgarnesi til sextán ára
aldurs þar sem faðir hans var íþrótta-
kennari og var þar brautryðjandi í
íþróttastarfi með börnum. Magnús
er bindindismaður og hefur aldrei
drukkið né reykt.
Vanþakklátur egóisti
Hann er fremur lágvaxinn eða 173
sentimetrar á hæð. Þegar hann var
á hátindi ferils síns í þolfimi sagð-
ist hann vera að berjast við að verða
þyngri en 68 kíló. Það gengi hins veg-
ar afskaplega illa þar sem hann æfði
og kenndi þolfimi alla daga. Hann var
einn fremsti þolfimimaður í heimin-
um. Varð hann tvisvar sinnum Evr-
ópumeistari og einu sinni heims-
meistari í þeirri grein, árið 1995. Árið
áður hafði hann fengið silfur. Einnig
var hann kosinn íþróttamaður ársins
á Íslandi árið 1994 auk þess að vera
kosinn kynnþokkafyllsti karmað-
ur landsins af hlustendum Rásar 2.
Magnús starfaði sem þolfimikenn-
ari hjá World Class á árunum 1986 til
1993. Hann og Björrn Leifsson, eig-
andi World Class voru góðir félagar
en vinslit urðu þeirra á milli. Hefur
Björn látið hafa eftir sér að eftir að
Magnús varð þekktur sem þolfimi-
kennari og keppandi hafi egóið stígið
honum til höfuðs. Magnús taki lítið
eftir framlagi annars fólks sem hjálpi
honum.
Lifir á ruslfæði
Sagt er að Magnús sé haldinn mik-
illi fullkomnunaráráttu. Hann er les-
blindur og sagður ofvirkur vinnufík-
ill sem stundum sofi einungis þrjá til
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as @dv.is
Magnús og Jón Ásgeir Sagan segir að Magnús
Scheving hafi stokkið upp í bíl hjá Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni og náð að sannfæra hann um ágæti Latabæjar á
einungis fimm mínútum. MYND SIGURJÓN RAGNAR SIGURJÓNSSON
Með forsetanum Hér má sjá Magnús Scheving ásamt Ragnheiði sambýliskonu sinni
og Ólafi Ragnari Grímssyni á Edduverðlaununum árið 2006. MYND GUNNAR GUNNARSSON
FRAMHALD Á NÆSTU OPNU