Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Síða 34
34 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
MARKAÐUR BARNS KRISTS
Í aðdraganda jóla og á aðventunni
eru víða settir upp jólamarkaðir.
Sumir þessara markaða eru jólalegri
en aðrir og sumir eru frægari en aðr-
ir. Hefðin að baki jólamörkuðum er
ævaforn og má rekja hana allt aftur
til síð-miðalda í þýskumælandi Evr-
ópu.
Einn elsti jólamarkaðurinn er
Dresden-jólamarkaðurinn, Striezel-
markt, sem var fyrst haldinn árið
1434. Hann laðar að sér á milli 1,5
milljóna og 2 milljóna gesta árlega
og státar af fleiri en sextíu sölubás-
um.
Þó nokkuð eldri er Bautzen-jóla-
markaðurinn sem fyrst var nefndur
til sögunnar árið 1384. Brautryðj-
andi jólamarkaða var „Desember-
markaðurinn“ sem haldinn er í Vín
í Austurríki en sögu hans má rekja
aftur til ársins 1294.
Markaðstorg
Flesta þekktustu jólamarkaðina er,
eðli málsins samkvæmt, að finna í
Evrópu og í mörgum bæjum Þýska-
lands og Austurríkis er aðventunni
fylgt úr hlaði með opnun jólamark-
aða, „Weihnachtsmarkt“. Í suður-
hluta Þýskalands og Austurríki
eru markaðirnir stundum kallaðir
„Christkind(e)l(s)markt“ sem þýðir
bókstaflega Markaður barns Krists.
Jólamarkaðir eru alla jafna
haldnir á aðaltorgi bæja og aðliggj-
andi göngugötum og boðið er upp
á mat og drykk í opnum sölubásum
ásamt hlutum sem tengjast hátíð-
inni og hefð er fyrir söng og dansi.
Á opnunarkvöldi bjóða gestir jóla-
barnið velkomið, en það er leikið af
barni sem býr í viðkomandi bæ.
Tvær milljónir gesta
„Nürnberger Christkindlesmarkt“,
Markaður barns Krists í Nürnberg,
er árlegur viðburður í borginni í
aðdraganda jóla og er haldinn á
Hauptmarkt-torgi, aðliggjandi göt-
um og torgum í gamla bænum. Um
tvær milljónir gesta sækja markað-
inn árlega sem gerir hann að ein-
um þeim stærsta sinnar tegundar í
Þýskalandi og einn þann frægasta í
heimi.
Þrátt fyrir miklar rannsóknir hef-
ur ekki tekist að henda reiður á upp-
runa Nürnberger Christkindles-
markt. Elsta vísbendingin sem vitað
er um er askja úr barri sem merkt
er á botninum: „Regina Susanna
Harßdörfferin af meynni Susönnu
Eleonoru Erbsin (eða Elbsin)“. Askj-
an var send á Kindles-Markt árið
1628, en er nú í eigu þjóðminjasafns
Þýskalands í Nürnberg.
Þýskaland, Frakkland, England
Jólamarkaðurinn í Nürnberg er
vafalítið sá alfrægasti í Þýskalandi
og státar af hátt í tvöhundruð sölu-
básum. Auk matar og drykkjar er
hægt að kaupa útskorin tréleikföng,
handunnin kerti, engla á jólatréð,
emaléraðar spiladósir eða úr viði og
fleira.
Sérstakur jólamarkaður er fyr-
ir börnin með gamaldags hringekj-
um og lestum, auk þess sem börnin
fá að spreyta sig í kertagerð og smá-
kökubakstri.
Sé litið til fjölda gesta hefur jóla-
markaðurinn í Stuttgart vinning-
inn en talið er að um þrjár milljónir
gesta sæki hann.
Í Strassborg í Frakklandi hefur
verið haldinn jólamarkaður, Christ-
kindelsmärik, við dómkirkju borg-
arinnar síðan árið 1570, en þá til-
heyrði Alsace-héraðið Hinu heilaga
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Sérstakur jólamark-
aður er fyrir börnin
með gamaldags hring-
ekjum og lestum, auk
þess sem börnin fá að
spreyta sig í kertagerð
og smákökubakstri.
Það er ekki margt jólalegra en jólamarkaður í fallegu umhverfi, þar sem ilmur af glögg og piparkökum
fyllir vit gesta. Jólamarkaðir eiga sér langa sögu sem hægt er að rekja til þýskumælandi Evrópu miðalda,
suma hverja allt aftur til ársins 1294.
Sibiu í Rúmeníu Torg í borg og bæ er nauðsynlegt fyrir jólamarkaði.
Toulouse í Frakklandi Jóla-
stemning á jólamarkaði í Toulouse.