Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 37
Hver er maðurinn? „Ég heiti Haukur og er 29 ára gamall starfsmaður á leikskóla og einsetu- maður.“ Hvar ólstu upp? „Ég ólst upp í Garðabænum.“ Hvað drífur þig áfram? „Ég myndi segja að það væri jafnaðargeð og gott skap.“ Hvert fórstu síðast í frí? „Síðast fór ég til Bandaríkjanna árið 2008.“ Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi? „Ég myndi vilja búa einhvers staðar þar sem ég gæti farið út í garð og tínt mér banana og kókoshnetur og spjallað við villtar skepnur.“ Hvað verður í jólamatinn hjá þér? „Ég reikna með að það verði appelsínuönd.“ Er mikill heiður að vera á Kraumslistanum? „Já, mér finnst það. Það er gaman að sjá það svart á hvítu að fólk kunni að meta plötuna.“ Bjuggust þið við að vera á honum? „ Eiginlega ekki, satt besta að segja . Þegar ég renndi yfir tilnefn- ingarnar sá ég hljómsveitir sem ég hélt að myndu taka okkur í nefið. Er nýja platan ykkar sú besta? „Okkur finnst það öllum í hljómsveit- inni, allavega.“ Hversu harðir eru Morðingjarn- ir? „Eins og linsoðið egg.“ Eruð þið hættulegir? „Nei, við erum hvers manns hugljúfi. Það er bara að gefa okkur séns.“ Hvað er svo næst á dagskrá? „Við ætlum að halda áfram að spila fram í janúar og svo tökum við pásu fram á vorið. Það verður fyrsta pásan frá því hljómsveitin var stofnuð fyrir fjórum árum og við ætlum að standa við það. GEFURÐU MARGAR JÓLAGJAFIR? „Sex barnabörnum og þremur börnum.“ ERLA SIGURVINSDÓTTIR 58 ÁRA GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR „Já, ég gef ættingjum, vinum og vinkonum.“ INGIBJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR 15 ÁRA NEMI Í ÁRBÆJARSKÓLA „Alltof margar. Ég á svo mikið af börnum. Þær eru þó ódýrari í ár.“ BJÖRG JÓNSDÓTTIR 54 ÁRA „Talsvert, já. Samt svipað og venjulega.“ AÐALBJÖRN SIGURÐSSON 37 ÁRA FRÉTTAMAÐUR DÓMSTÓLL GÖTUNNAR HAUKUR VIÐAR ALFREÐSSON er meðlimur hljómsveitarinnar Morðingjarnir. Hún var ein af hljómsveitunum sem komust á Kraumslistann í ár, ásamt sveitum á borð við Hjaltalín og Bloodgroup. MORÐINGJARNIR HVERS MANNS HUGLJÚFI „Já, slatta. Svipað samt í ár og venjulega.“ ARNAR HALLDÓRSSON 42 ÁRA BÚÐAREIGANDI MAÐUR DAGSINS Þessi jól hafa ævisögur íslenskra tónlistarmanna verið áberandi. Slíkar bækur þykja góð skemmtun, ekki aðeins er oftast um mikið hæfi- leikafólk að ræða heldur er einnig allt morandi í svallsögum. Sérstak- lega ku vera mikið um slíkar í bók- um um Magnús Eiríksson og Gylfa Ægisson. Ekki er þó víst að þeir komist nálægt stuðboltunum Slash og Nikki Sixx hvað þetta varðar, en bækurnar Slash og The Heroin Di- aries, sem að einhverju leyti segja sögur úr sömu partíunum, komust báðar á metsölulista New York Ti- mes fyrir jólin 2007. Eiturlyf hafa verið hluti af ímynd listamanna alveg síðan í rómantík- inni, þegar skáldin ortu um og und- ir áhrifum ópíums. Ólögleg eitur- lyf hafa einnig löngum verið tengd ýmsum jaðarhópum, en líklega náðu þau fyrst útbreiðslu meðal stórs hluta almennings á 7. áratugn- um. Hipparnir boðuðu heimsfrið undir áhrifum ofskynjunarlyfja, en meira varð úr hassreykingum og LSD-neyslu heldur en samfélags- umbótum þegar allt kom til alls. Pönkararnir voru spenntari fyrir an- arkíi og amfetamíni, en svo undar- lega vildi til að hérlendis urðu þeir að mestu að sætta sig við hippad- ópið hass. Pönkbylgjan, eins og hippabylgjan, koðnaði niður í eit- urlyfjamóki og ein helsta táknmynd pönksins, Sid Vicious, dó úr of- neyslu heróíns. Íslenskir unglingar og Slash Síðan hafa fleiri hópar komið fram með nýjar stefnur og ný lyf, svo sem danstónlist og Ecstacy. Þeg- ar ég byrjaði að fást við tónlist fyrir um 20 árum síðan voru helstu hetj- urnar stórfelldir eiturlyfjaneytend- ur á borð við Guns n Roses og Kurt Cobain. Heróín var blessunarlega sjaldgæft hér þá, en einn vinur minn í Noregi var ekki jafnheppinn. Þess í stað höfðu íslenskir unglingar landabrúsa og sígarettur, en áðurnefndur Slash lét aldrei taka mynd af sér öðruvísi en með sígarettu danglandi í munnvik- inu og bokku í hendinni. Ekki spillti fyrir að hann studdi við bakið á ís- lenskri framleiðslu, en Svarti dauði var einn uppáhaldsdrykkur hans. Skilaboðin voru skýr. Ef þú ætlar þér að fást við tónlist verðurðu fyrst að fá þér í glas/nös/æð. Ekki eru hins vegar allir eiturlyfjaneytendur endilega jafngóðir gítarleikarar og Slash, það þarf þrátt fyrir allt meira til. Rokkarar og aðrir listamenn telja sig gjarnan ögra viðhorfum samfé- lagsins með því brengla huga sinn. Þó að þeir hafi verið duglegir við að ákveða eigin lyfjaskammta miðar þó hægt í áttina að betri heimi. Athafnaskáld og eiturlyfjarómantík Stórfelld neysla hæfileikafólks á eit- urlyfjum og áfengi gerir nefnilega lítið annað heldur en að viðhalda núverandi ástandi. Einn besti rit- höfundur þjóðarinnar, Einar Már Guðmundsson, hefur komið öfl- ugur inn undanfarið, en því miður eyddi hann stórum hluta góðær- isins í að berjast við áfengisdjöful- inn fremur en samfélagsmein. Fall Bubba er líklega skýrasta dæmið um þjóðfélagsgagnrýnanda sem lét af baráttunni fyrir betri heimi vegna baráttu við eigin fíkn. Undanfarið hefur þó orðið tals- verð breyting á því hverjir það eru sem helst neyta eiturlyfja. Líklega þarf ekki nema handbók um áhrif langvarandi neyslu kókaíns til þess að skilja bankamálastefnu Íslands undanfarin ár. Á sama tíma telja margir pönkarar sig vera „straight edge“ og forðast eiturlyf, áfengi, tóbak og jafnvel kjöt. Athafnaskáldin vildu gjarnan líta á sig sem listamenn, enda voru þeir afar skapandi í viðskiptauppgjöri sínu. Þeir sem vilja breyta samfé- laginu til betri vegar hafa hinsvegar fengið meiri áhuga á stjórnmálum og efnahagsmálum en eiturlyfja- rómantík. Kannski er kominn tími til að kveða þá mýtu í kútinn að maður þurfi dóp til að vera skap- andi. Besta leiðin til að skilja heim- inn er þrátt fyrir allt að reyna að skilja hann edrú. Listamenn og aðrir eiturlyfjaneytendur MYNDIN Klaki milli þings og þjóðar Á meðan stóru krakkarnir leika sér inni á hinu háa Alþingi dunda þau sem landið munu erfa sér við að byggja á því sem enn er nothæft í rústum hrunsins. MYND/KRISTINN MAGNÚSSON KJALLARI UMRÆÐA 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR 37 VALUR GUNNARSSON rithöfundur skrifar „Stórfelld neysla hæfi- leikafólks á eitur- lyfjum og áfengi gerir nefnilega lítið annað en að viðhalda núverandi ástandi.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.