Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 38
KEMUR MEÐ JÓLIN TIL FÓLKS Vissulega eiga jólin að vera hátíð ljóss og friðar og ekki verra að þau minni fólk á hvað það er sem mestu máli skiptir í lífi hvers manns. Að gleðjast yfir því sem maður á, ekki síst með tilliti til þess sem ekki telst til veraldlegra gæða, er ávísun á ánægjurík jól. Ánægjan af jólaljós- um, samvistum við ástvini og boð- skap hátíðarinnar fer fyrir lítið ef fólk veltir sér upp úr ergelsi vegna þess sem það á ekki. Víst er að það er hægara sagt en gert að tileinka sér þennan boðskap, en það er gott veganesti í þeirri viðleitni að reyna að skilja hve lífið og allt sem tilheyrir því er hverfult. Fyrir margt löngu munstraði ég mig á Skaftafell, verslunarskip Skipa-deildar Sambandsins sem þá var og hét. Það var í desembermánuði árið 1986 og hrein tilviljun að mál æxluðust með þeim hætti. Skipið var statt á Fáskrúðsfirði, hafði fengið á sig brot mikið þannig að allt var á rúi og stúi í lestum þess. Einn skipverja þurfti bráðnauðsynlega að komast til Reykjavíkur, var á leið til hlýrra lands þar sem hann hugðist eyða jólunum það árið. Bróðir minn var skráður á skipið og vissi af mér á Reyðarfirði þar sem ég vann á síldarplani og benti skipstjóranum á að mögulega væri ég tilleiðanlegur að koma um borð. Allt um það. Þegar búið var að koma skikk á farminn lá leið Skafta-fells til Reyðarfjarðar þar sem Suðurland Eimskipafélagsins lá einnig við bryggju. Var verið að lesta Suðurlandið og áfangastaður skipsins var Murmansk í Rússlandi. Þar sem Skaftafellið lá bundið við bryggju fyrir framan Suðurlandið var okkur bræðrunum gengið aftur skut og stóðum við þar skamma stund, reyktum og virtum fyrir okkur Suðurlandið, sem var miklum mun stærra skip en Skaftafellið. Bróðir minn varð allt í einu hálfundarlegur á svipinn og muldraði fyrir munni sér eitthvað á þá leið að eitthvað væri ekki í lagi. Ég gaf orðum hans lítinn gaum, enda hugur minn bundinn við þetta nýja starf sem ég hafði fengið. Þegar þar var komið sögu voru nokkrir dagar til jóla árið 1986. Nokkrir klukkutímar skildu að brottför Skaftafellsins og Suður-landsins og ef minnið bregst mér ekki lögðu bæði skip úr höfn 22. desember, Suðurlandið til Murmansk og Skaftafellið til Leith, hafnarhverfis í Edinborg í Skotlandi. Fram að aðfangadegi gekk lífið sinn vanagang um borð í Skaftafellinu og áhöfnin sinnti sínu. Skipsfé-lagar mínir voru engir grænjaxlar og höfðu eytt jólum á hafi úti oftar en ég kærði mig um að vita. Þegar klukkan nálgaðist sex um kvöldið fóru menn í betri fötin og ilmurinn af jólasteikinni barst að vitum okkar. Þrátt fyrir að jólin sem voru við það að ganga í garð væru mín fyrstu fjarri fjölskyldu minni leið mér ágætlega, hafði enn ekki verið nið- urlægður vegna fákunnáttu í störfum farmennsku og ilmurinn úr eldhús- inu var svo lokkandi. Þegar leið á kvöldið leitaði hugur okkar eðlilega til fjölskyldna og ástvina og við ræddum um að fara upp í brú og hafa samband við fjölskyldur okkar heima í gegnum radíóið og óska þeim gleðilegrar hátíðar. Þær fyrirætlanir okkar fengu snöggan endi því okkur var tilkynnt í gegnum radíóið að ekki væri hægt að afgreiða persónuleg símtöl: „Suðurlandið er að fara niður“. Á áhöfn Skaftafellsins sló þögn og sú hátíðarstemning sem áður hafði fyllt hug okkar og hjarta breytt- ist í þöglar bænir starfsbræðrum okkar til handa sem hugsanlega börðust fyrir lífi sínu í vályndu veðri hundruð sjómílna fyrir norðan okkur, fjarri landi, í ríki ægis. Þetta aðfangadagskvöld fórust sex menn; sex feður, eiginmenn, kær-astar, synir, bræður. Ættingjar og ástvinir heima á Íslandi biðu frétta af afdrifum áhafnarinnar á milli vonar og ótta. Margt af því sem fyllir tilvist manna er hjómið eitt, en ættingjar og vinir og fjölskyldubönd og vinátta eru verðmæti sem ómögulegt er að meta til fjár. Írski rithöfundurinn James Joyce lagði einni sögupersóna sinna þau orð í munn að „every bond, [...] is a bond to sorrow“ í einni smásagna sinna. Orð hans má skilja eitthvað á þá leið að öll tengsl leiddu til sorg-ar og vissulega er það svo að sorg fylgir óumflýjanlega andláti ástvinar eða ættingja og vinslitum. En veraldlegir hlutir koma og fara og lífið geng- ur sinn vanagang hvað sem því líður. Vissulega eru þetta hvorki ný sannindi né speki en engu að síður áminning um að sumt er mikilvægara en annað. Ég óska landsmönnum nær og fjær hamingjuríkrar jólahátíðar. ÞAÐ SEM MÁLI SKIPTIR KOLBEINN ÞORSTEINSSON skrifar HELGARPISTILL „Ég kann ofsalega vel við mig hérna. Ég er búin að vera bréfberi í fimm ár og finnst þetta mjög gaman,“ segir Helma Dröfn Karlsdóttir, bréfberi í Hafnarfirði. Helma ber út póstinn í sínu heimahverfi og líkar vel bæði við vinnufé- lagana og vinnutímann. Helma kemur inn klukkan átta að morgni og hjálpar þá til við að grófflokka póstinn sem hefur komið inn að morgni dags. Eftir grófflokkun sest hún niður á sinn bás, sem er númer 11 og 12, og setur póstinn niður á húsnúm- er. „Hér er mætt með bros á vör og það er gaman að vera í góðum félagsskap á morgnanna.“ Þegar Helma er búin að setja póstinn sinn niður á húsnúmer gengur hún frá hon- um í pokann og heldur af stað. „Ég kem frá Bíldudal og mér finnst gaman að vera bréfberi. Ég ber út í mínu hverfi og krakkarnir þar stoppa mig og þekkja mig sem mömmu félaga sinna,“ segir Helma og brosir sínu smitandi brosi. „Þegar grófflokkun er búin þá erum við í rauninni okkar eigin herrar. Ég er ekkert að eyðileggja fyrir neinum þó að það sé foreldrafundur hjá mér eða ég þarf að gera eitthvað. Þessi eða hinn tefst ekkert út af því. Mér finnst það gott ver- andi með börn,“ en hún á tvo stráka sem æfa íþróttir með Haukum. „Ég er Haukakona - áfram Haukar,“ segir hún og bætir við að rauði litur bréfberans henti því ágætlega. „Það verður úrvalsdeildin í sumar í fótboltanum þannig það er hátíð í bæ. Ég fylgist bæði með handbolta og fótbolta og hef gaman af.“ Reynt að passa upp á öll bréf Þegar DV var á staðnum var eitt bréf að koma til baka. Húsráðendur voru fluttir og það var ótrúlegt að sjá hvað bréfberar landsins gera mikið til að koma bréfum til lands- manna. Fólk fór í símann, hringdi nánast út um allt til að koma bréfinu til skila. „Maður reynir að passa upp á fólk,“ segir Helma en stundum er ekki hægt að koma bréfum til skila því Helma var með eitt bréf merkt; Sjonni og Soffía 220 Hafnarfirði. Helma bjóst ekki við góðum árangri að finna það fólk. „En við reynum. Við viljum koma öllu okkar til skila en við þekkjum ekki öll gælunöfn. Það er því betra að nota full nöfn heldur en að nota gælunöfn.“ Innipúki Helma segist vera innipúki af guðsnáð og því var hún hik- andi að byrja fyrir fimm árum. „Það kom mér verulega á óvart hvað það er gott veður á Íslandi. Ég er innipúki af guðsnáð og mér leist ekkert á að fara út í þetta veður,“ segir hún og hlær en bréfberar fá góðan fatnað frá Íslandspósti. „Við eigum góðar flíkur. Maður fer í flís eða dúnúlpu og þá er maður klár. Við fáum úlpu, buxur, brodda, buff, sum- arjakka, húfur - allan pakkann.“ Mikill metnaður að koma öllu til skila Helma segir að pósturinn hafi alltaf lagt mikinn metnað í að koma öllum jólakortum til skila. „Þetta skilar fyrirtæk- inu engum sértökum gróða, örugglega einhverjum, en það hefur alltaf verið gríðarlegur metnaður að koma þessu öllu til skila. Maður hefur alveg lært það frá byrjun að það er mikið lagt á sig til að koma þessu til skila. Pósturinn hefur allltaf verið jólabarn,“ segir hún og hlær. Jákvæðni í garð bréfberans Helma segir að bréfberum sé yfirleitt tekið mjög vel. Sér- staklega yfir jólin þegar pokarnir eru þyngri en venjulega. „Þegar við erum klifjuð er mikil jákvæðni og skilningur. En fólk áttar sig kannski ekki á að þetta dettur ekki bara ofan í lúguna hjá því. Það er saga á bak við hvert bréf. En þetta er stundum mikið púl en ofsalega skemmti- legt,“ segir Helma og heldur af stað. Það þarf að koma jóla- kortunum til skila. Óskir bréfberans: Hafa útiljós í lagi Salta ef það er hálka Moka frá ef það er snjór Hafa bréfalúguna í lagi Merkja öll bréf réttum nöfnum benni@dv.is Helma Dröfn Karlsdóttir, bréfberi í Hafn- arfirði, leggur sérstaklega mikla vinnu á sig til að koma öllum jólakortunum til skila. Það sama gildir reyndar um alla bréfbera.Helma ber út í sínu heimahverfi, hún er Haukakona og hefur gaman af starfinu.Þrátt fyrir að vera bréfberi segist Helma vera innipúki af guðs náð og segir að veðrið hafi komið henni á óvart. Það sé mun betra en af er látið.. 38 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 UMRÆÐA Stelpurnar á dreifingarstöðinni Gríðarlega góður mórall er á dreifingarstöðinni í Hafnarfirði. bréfbera Á sinni stöð „Þó að við séum vinnufélagar erum við stutt saman,“ segir Helma en hún er sinn eigin herra eftir að pósturinn er kominn í rétt húsnúmer. Að dreifa pósti Helma komin með pokann á bakið. Tilbúin að dreifa öllum boðskap sem kemur inn um lúgu fólks. Á kaffistofunni Andinn er góður á dreifingarstöðinni og ekki skemmir gott kaffi og indælis bakkelsi. H&N-MYND RAKEL ÓSK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.