Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Síða 41
heimildir og sjálfstjáningu áttaði ég
mig á að það er eitthvað sem drífur
fólk til þess að segja sína sögu opin-
berlega. Ég fann það sjálfur að það
vantaði eitthvað í þessa tjáningu þeg-
ar ég skrifaði hana bara fyrir sambýl-
iskonuna. Það var ákveðin takmörk-
un á tjáningunni. Í þessu samhengi
verða til dæmis tattúin skiljanleg
vegna þess að þau voru einhvers
konar yfirlýsing um varanleika ástar-
innar,“ segir Sigurður Gylfi sem fékk
sér tattú eftir útkomu allra bókanna
og þau er að finna aftan á bókarkápu
Spánar kóngsins.
Hið fyrsta setti hann á hægri sköfl-
ung sinn, mynd af sæhesti og gælu-
nafn Tinnu, „Dr. tin tin“. Tattú númer
tvö er á hægri framhandlegg og skart-
ar upphafsstöfum skötuhjúanna,
vöfðum saman í eina mynd sem líkist
snák eða slöngu á eins konar gálga,
og nýjasta húðskrautið er einnig á
hægri framhandlegg. Í þetta sinn lét
Sigurður teikna á sig hluta af skjald-
armerki Spánarkonungs, samanber
titil bókarinnar sem sóttur er í titil
verks eftir naívistann og myndlistar-
manninn Eggert Magnússon. Tinna
Laufey er aftur móti ekki með nein
tattú og stendur ekki til hjá henni að
fá sér að sögn Sigurðar.
Aldursmunurinn truflaði
Tinnu Laufeyju
Í bókinni sést að Tinna Laufey bar
ekki sömu sterku tilfinningar til Sig-
urðar Gylfa strax eftir þeirra fyrstu
kynni. „Nei, það tók hana lengri
tíma að sætta sig við aldursmun og
fleiri hluti. Og ég lýsi því að nokkru
leyti í bókinni hvernig sambandið
þróaðist,“ segir Sigurður sem er átj-
án árum eldri en Tinna. Þau kenna
bæði við Háskóla Íslands, hann er
stundakennari í sagnfræði fyrir utan
að vera sjálfstætt starfandi fræði-
maður við Reykjavíkur Akademíuna
og forstöðumaður Miðstöðvar ein-
sögurannsókna sem gefur bókina út,
en Tinna Laufey er lektor og umsjón-
armaður meistaranáms í heilsuhag-
fræði við HÍ.
Á tímabili sótti Sigurður Gylfi
tíma hjá Tinnu Laufeyju líkt og lýst er
í bókinni. Hann var þó ekki skráður
í kúrsinn enda ekki ætlunin að taka
próf í faginu. „Ég vildi bara kynnast
faginu sem hún var að kenna. Þegar
tvær manneskjur verja löngum tíma
saman þá beinist umræðan óneitan-
lega að viðfangsefnum dagsins. Ég
fékk því löngun til að vita meira um
hagfræði.“
Biður afsökunar á
að valda velgju
Aftarlega í bókinni segist Sigurður
kannski vera væminn, og ef til vill séu
orð sín þannig fram sett að þau valdi
„velgju í iðrum lesenda“. Honum
finnist það þá leitt og biðst afsökunar
á þeirri vanlíðan sem bók sín kunni
að valda, en tekur fram að hann láti
sér vanlíðan lesandans samt í léttu
rúmi liggja.
„Já, já, en ef til vill er þetta retorísk
afsökun líka; ávarp til hugsana sem
kunna að brjótast um í huga fólks.
Þegar allt kemur til alls þá hef ég
fengið mjög sterk viðbrögð við þess-
ari bók frá þeim sem hafa lesið hana
og séð ástæðu til að tjá sig um efnið.
Ástin er fyrirbæri sem fólk hefur hug-
leitt öldum saman en nútíminn hef-
ur skapað svigrúm til þess að velta
henni fyrir sér með öðrum hætti en
áður. Ætli þessi bók sé ekki lýsandi
dæmi um það.“
Stendur til hjá þér að skrifa fleiri
bækur af þessum toga?
„Nei, ég held ekki. En maður veit
aldrei. Ég er höfundur sextán bóka
og ég held áfram að skrifa bækur,
en ef til vill ekki svona um sjálfan
mig. En ég er hins vegar staðráðinn
í að halda áfram að elska konuna
mína!“
kristjanh@dv.is
M
Æ
LI
R
M
EÐ
...
... JESÚ LITLA Í BORGAR-
LEIKHÚSINU
Það langbesta sem
sést hefur á fjölum
leikhúsanna í
haust að mati
gagnrýnanda.
... ÞÞ - Í FORHEIMSKUN-
ARLANDI EFTIR PÉTUR
GUNNARSSON
Vel stíluð og tímabær
kynning á Meistaran-
um.
... GLOW MEÐ WORM IS
GREEN
Stórgóð plata.
Í senn þægileg
og grípandi.
... NÝRRI
ÞÝÐINGU Á
UMMYNDUNUM
ÓVÍDS
Stórvirki í íslenskum
þýðingabókmennt-
um sem mun lengi
... PANDORUM
Í grunninn flott hugmynd og
ágætis mynd.
... FUGLALÍFI Á FRAMNES-
VEGI EFTIR ÓLAF HAUK
SÍMONARSON
Góð lýsing á
uppvexti ungra
Reykjavíkurdrengja á
6. áratug 20. aldar.
FÓKUS 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR 41
Hljómsveitin Worm Is Green tilnefnd til Independent Music Awards:
Tom Waits dæmir íslenska hljómsveit
FÖSTUDAGUR
n Lárusdætur í Salnum
Systurnar Ingibjörg Lárusdóttir,
Þórunn Lárusdóttur og Dísella
Lárusdóttir syngja allar saman á
mögnuðum tónleikum sem fara fram
í Salnum í Kópavogi. Tónleikarnir
hefjast klukkan 21.00 og kostar 2.100
krónur að sjá þessar dívur taka sviðið
allar saman.
n Jólasinfó
Jónatónleikar Sinfóníunnar fara fram
í Háskólabíói á föstudagskvöldið.
Verða spiluð öll helstu jólalögin
eins og Sinfóníunni er einni lagið.
Tónleikarnir hefjast klukkan 17.00 en
aðeins kostar 1.700 krónur á þá. Jólin
blásin í gang í Háskólabíói.
n Jólaborgardætur
Hinar óviðjafnanlegur Borgardætur
troða upp á Café Rosenberg á
föstudagskvöldið en þær syngja
ætíð inn jólin með pompi og prakt.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21.00 og
kostar 2.500 krónur að sjá stelpurnar
með hinum mögnuðu hljóðfæraleik-
urum sem hjálpa til að vanda.
n Jól Jólsson
Það verður heldur betur tónleika-
veisla á föstudaginn þegar Jól Jólsson
fer fram á Broadway. Miðinn kostar
2.900 krónur en þar verða meðal
annars Gus Gus, FM Belfast, Lúdó
Stefáns, Egill Sæbjörnsson og Ben
Frost. Þar verða einnig plötusnúðar
á borð við Party Zone-plötusnúðana
og DJ Breakbeat.
LAUGARDAGUR
n Hjálmar og Hjaltalín
Tvær af allra bestu hljómsveitum
landsins, Hjálmar og Hjaltalín, taka
höndum saman á mögnuðum
tónleikum sem bera heitið Jóla-
grauturinn. Þeir fara fram á Nasa á
laugardagskvöldið og kostar ekki
nema 2.000 krónur inn. Ballið byrjar
klukkan 23.30.
n Litli tónsprotinn
Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur
Litla tónsprotann í Háskólabíói á
laugardaginn. Skemmtilegir tónleikar
sem enginn má missa af. Þeir hefjast
klukkan 14.00 og kostar 1.700 krónur
inn.
n Langsholtskirkjukór í jólaskapi
Hinn magnaði kór Langholtskirkju
heldur sína árlegu jólatónleika á
laugardagskvöldið. Síðkvöldstónleik-
ar sem hefjast klukkan 23.00 og fara
fram í hinni feykifögru Langholts-
kirkju að sjálfsögðu. Ekki kostar nema
3.000 krónur inn á herlegheitin.
Dansað á Broadway
Hinn magnaði raflistamaður,
plötusnúður og Íslandsvinur Sander
van Doorn spilar á Broadway ásamt
plötusnúðum Techno.is á laugar-
dagskvöldið. Það er nokkuð ljóst að
enginn rafhaus fer út „ódansaður“
eftir þessa tónleika.
Hvað er að
GERAST?
Brot úr Spánar kónginum
„Ég kepptist við að draga upp mynd af henni í huga mínum með marg-
víslegum hætti. Ég fann að þessar tilraunir allar stöppuðu nærri sturlun,
annað eins hafði aldrei hent mig áður. Ég fékk mig ekki fullsaddan á
því að horfa á hana og hugsa um einstaka þætti lífs hennar. Til viðbótar
bættist við mikil og samfelld samvera og þess á milli löng símtöl sem oft
stóðu klukkustundum saman.“ (Bls. 18)
„Við í þeirri stellingu að þurfa að teygja okkur - frá báðum endum
sófans - að hvort öðru þar til nefbroddarnir mætast, augun opnast upp á
gátt og bros færist yfir andlit okkar beggja - tungurnar iða, augun lokast
og sælan nemur land í kjarrskóginum allt í kring.“ (Bls. 42)
„Kannski er ég væminn, ef til vill eru orð mín þannig fram sett að þau
kalli fram velgju í iðrum lesenda; sannarlega mögulegt eða hreinlega
rétt og mér þykir það leitt, ég biðst afsökunar á vanlíðaninni sem frásögn
mín kann að skapa, en læt mér ástandið samt í léttu rúmi liggja. Ég hef í
öðru að snúast, ég elska nefnilega af öllu hjarta.“ (Bls. 110)
Sigurður Gylfi Hefur skrifað þrjár bækur um ástarsamband sitt og konu sem hann kynntist fyrir þremur árum. Spánar kóngurinn er þó sú fyrsta sem kemur fyrir sjónir
almennings. MYNDIR SIGTRYGGUR ARI
Hljómsveitin Worm Is Green hef-
ur verið tilnefnd til hinna virtu Ind-
ependent Music Awards fyrir plötu
sína Glow sem nýverið kom út. Plat-
an er tilnefnd í flokki bestu dans-/
rafhljómplatna.
IMA-hátíðin er nú haldin í ní-
unda skipti og hefur hún farið vax-
andi með hverju ári. Dómnefnd er
skipuð þekktum tónlistarmönnum
og „bransafólki“, svo sem Tom Waits,
Bettye LaVette, Markus Hopus
(Blink 182), Ken Jordan (The Cryst-
al Method), Head (Korn), Anthony
DeCurtis (Rolling Stone Magazine)
og Melinda Newman (The LA Tim-
es, The Washington Post). Aðrar
hljómsveitir sem tilnefndar eru og
ættu að vera Íslendingum að góðu
kunnar eru til dæmis ... and You
Will Know Us By the Trail of Death,
Ra Ra Riot, Boys Noize og Alaska in
Winter.
Aðdáendur fá að hafa áhrif með
því að gefa böndum einkunn og
hlýtur sú hljómsveit sem er með
hæsta meðaleinkunn aðdáenda sér-
staka viðurkenningu. Sigurvegarar
hljóta kynningu á sínu efni í heilt
ár á vegum IMA. Lesendur eru því
hvattir til að standa með piltunum
í Worm is Green í netkosningunni á
independentmusicawards.com.
Plötuna Glow er hægt að nálgast
í gegnum heimasíðu hljómsveitar-
innar, wormisgreen.com, en hún er
eingöngu fáanleg á stafrænu formi.
Hljómsveitin er einnig að gefa út röð
af stuttskífum sem innihalda end-
urhljómblandanir af öllum lögum
hljómplötunnar ásamt b-hliðar-lög-
um. Stuttskífurnar verða níu talsins,
ein fyrir hvert lag, og mun ein koma
út í hverjum mánuði.
Worm is Green Einhverjir tónlistarmenn eru hugsanlega grænir af öfund út í
hljómsveitina vegna þessarar vegtyllu.