Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Page 42
42 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FÓKUS
Avatar er stórmynd. Það eru nokkur atriði sem stuðla að því. Í fyrsta lagi er þetta fyrsta leikna myndin sem James Camer-on sendir frá sér síðan Titanic, tekju-
hæsta mynd allra tíma, kom út árið 1997. Í öðru
lagi hefur þessi mynd og þróun hennar átt hvað
stærstan þátt í þróun hinnar stafrænu þrívíddar
sem nú ryður sér til rúms og mun verða áberandi
og í þriðja lagi setur hún ný viðmið hvað útlit og
gæði slíkra mynda varðar.
Cameron fékk hugmyndina að Avatar árið
1995 en ákvað
þá að kvik-
myndatækn-
in væri ein-
faldlega ekki
nógu góð til
þess að segja
söguna á trú-
verðugan hátt.
Hann ákvað
því að bíða og
dustaði ryk-
ið af handrit-
inu einum tíu
árum seinna.
Þá var tækn-
in orðin mun
meiri en mikil
vinna enn þá
fram undan.
Avatar ger-
ist á plánet-
unni Pand-
oru. Þar hafa
mennirnir
komið sér fyr-
ir til þess að grafa eftir dýrasta orkugjafa heims og
senda til jarðarinnar sem er í algjörri niðurníðslu.
Helsta hindrun mannanna er heimafólkið, Na’vi,
en heimkynni þeirra eru beint ofan á stærstu
námunni. Hópur vísindamanna hefur fundið upp
leið til þess að setja huga sinn inn í klónaðan lík-
ama heimamannanna til þess að reyna kynnast
menningu þeirra betur. En óprúttnir einkaaðil-
ar misnota þá aðstöðu til þess að koma höggi á
Na’vi-fólkið.
Það er Jake nokkur Sully sem fær tækifæri til
þess að kynnast Pandorum í líkama heimamanna
en hann er leikinn af Sam Worthington sem er
þekktastur fyrir hlutverk sitt í nýjustu Termina-
tor-myndinni. Sully þessi verður fljótt ástfanginn
af bæði Na’vi-fólkinu og menningu þess og þarf að
velja hvort hann eigi að hjálpa til við að eyðileggja
þennan heim eða reyna bjarga honum.
Saga Avat-
ar er ekki ný. Hún
er í raun klassísk.
Við höfum séð hana
áður í þó nokkrum
myndum, til dæm-
is myndinni Dansar
við úlfa. Aðili kynn-
ist ókunnugri menn-
ingu og verður ást-
fanginn af henni
og fólkinu en þarf
svo að ákveða hvort
hann eigi að standa
með sínu fólki eða
ekki. En þótt sagan
sé í grunninn ekki
ný þá er hún sögð á
frábæran hátt. Það
er ekki verið að dvelja í of miklum smáatriðum og
maður fær fljótt tilfinningu fyrir því hversu stór-
kostlegan heim er að finna á plánetunni Pandoru.
Cameron er búinn að skapa veröld alveg frá
grunni með menningu, sögu, tungumáli og hefð-
um sem maður efast aldrei um. Við sjáum þessa
veröld í gegnum þrívíddargleraugu okkar og góði
Guð hvað myndin lítur vel út og rennur ljúft áfram.
Í eiginlega öllum þrívíddarmyndum hingað til
hefur tæknin verið ofnotuð gjörsamlega. Alltaf
eitthvað drasl að koma út úr skjánum og oft er
ekkert annað boðlegt við myndir en þrívíddin.
Hér er þessi tækni notuð til þess að styrkja upp-
lifun þína en ekki ýkja hana. Áður en langt er
um liðið gleymir maður gleraugunum og þrí-
víddinni.
Myndin er vel leikinn. Ekki bara af þeim sem
leika mannverur heldur er Zoe Saldana einna
trúverðugust sem Na’vi-prinsessan Neytiri. Þá
er Stephen Lang frábær sem hinn grjótharði
Miles Quaritch.
Avatar er fyrst og fremst upplifun og það
mjög jákvæð. Hún verður aldrei neitt annað
en tímamótamynd hvað útlit varðar og flagg-
skip fyrir sjónræna tæknibyltingu líkt og Term-
inator 2, sem Cameron gerði einnig, var á sín-
um tíma . Avatar er þó ekki fullkomin frekar
en flestar aðrar myndir og alltof löng en ég á
samt erfitt með að sjá hvernig hefði verið hægt
að stytta söguna mikið án þess að það myndi
bitna á henni.
Það ættu allir sem hafa áhuga á fagurfræði
og kvikmyndum að leggja leið sína á Avatar og
þessa verður fólk að sjá í bíó. Ásgeir Jónsson
AVATAR
Leikstjórn: James Cameron
Aðalhlutverk: Sam Worthington, Zoe
Saldana, Sigourney Weaver, Michelle
Rodriguez, Giovanni Ribisi
KVIKMYNDIR
ÞREKVIRKI
Sjónrænt
RÁNDÝR MYND
Það var ekki ókeypis að búa
til myndina Avatar en það fer
tvennum sögum af því hver
raunverulegur kostnaður
hennar var. Þeir allra djöfrustu
segja myndina hafa kostað 500
milljónir dala í framleiðslu eða
um 64 milljarða króna. Það
gerir hana að langsamlega dýr-
ustu mynd allra tíma. Flestar
fréttir segja þó kostnaðinn vera
á bilinu 200-300 milljónir dala
sem er samt gríðarlega mikið.
Til dæmis kostaði 175 milljónir
að gera myndina Waterwolrd
sem var langdýrasta mynd
heims þegar hún kom út árið
1995.
EINTÓMAR
STÓRMYNDIR
Sam Worthington, sem leikur að-
alhlutverkið í Avatar, virðist leika í
eintómum stórmyndum um þess-
ar mundir. Í sumar var hann í að-
alhlutverki í myndinni Terminator
Salvation og á næsta ári er hann
væntanlegur í myndinni Clash
of the Titans. Þar leikur hann
gríska hálfguðinn Perseus sem
berst gegn hinum ýmsu ófreskj-
um sem guðirnir senda á menn-
ina. Í myndinni leika einnig Liam
Neeson, Ralph Fiennes, Gemma
Arterton og Pete Postlethwaite svo
einhverjir séu nefndir. Það er Lou-
is Leterrier sem leikstýrir en hann
gerði síðast The Incredible Hulk.
GLÆSILEGUR
FERILL
Það eru ekki margir leikstjórar sem
geta státað af álíka ferli á James
Cameron. Hann vakti fyrst athygli
árið 1984 með myndinni Termina-
tor. Árið 1986 var það svo tímamóta-
myndin Aliens, 1989 The Abyss,
1991 Terminator 2: Judgement Day,
1994 True Lies og svo árið 1997 var
það stórmyndin Titanic, tekjuhæsta
mynd allra tíma. En síðan þá hefur
Cameron ekki gert mynd fyrr en nú
og aðdáendur hans bíða í ofvæni.
Sam Worthington og Zoe Saldana
Hér í hlutverkum sínum í myndinni Avatar.
Cameron Ræðir við
leikara myndarinnar.
Pandora Er ótrúlega
fallegur heimur.