Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 54
54 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 FRÉTTIR
Þetta er orðinn ágætur tími. Ég hef velt því fyrir mér í nokkur ár að hætta og mér finnst fínn tímapunktur að
gera það núna,“ segir Vilhjálmur Þór-
mundur Vilhjálmsson, borgarfull-
trúi og forseti borgarstjórnar, sem
tilkynnti í vikunni að hann hygðist
hætta í borgarpólitíkinni eftir tæp-
lega þriggja áratuga vinnu á þeim
vettvangi. Vilhjálmur var fyrst kosinn
í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn árið 1982, á sama tíma og Dav-
íð Oddsson varð borgarstjóri. Hann
hefur því upplifað margt og mikið í
sínum störfum fyrir Reykjavíkurborg
á þessum langa tíma, þar á meðal
einn undarlegasta og erfiðasta tíma
í sögu borgarmálanna eftir að REI-
málið setti allt á hvolf í Ráðhúsinu
haustið 2007 og svo auðvitað eftir-
köst fjármálahrunsins í fyrra.
„Það sagði einhver við mig í gær
að hann tæki eftir að ég segði aldrei
að ég væri hættur í stjórnmálum
heldur í borgarstjórn. Ég get ekk-
ert lofað því að ég sé hættur í stjórn-
málum. Maður veit aldrei hvað ger-
ist í lífinu,“ segir Vilhjálmur þar sem
hann og blaðamaður sitja á skrifstofu
hans í Ráðhúsinu síðastliðinn mið-
vikudagsmorgun. Vilhjálmur kveðst
hafa spurt viðkomandi sem nefndi
þetta við hann hvenær hann héldi að
næstu þingkosningar yrðu. Og hlær
svo við.
„Nei, nei, ég er ekki að boða það
að ég sé á leið í einhverja slíka veg-
ferð. En maður veit aldrei hvað ger-
ist í þessu lífi og maður á aldrei að
útiloka neitt. Ef það gerist þá gerist
það. Aftur á móti hef ég ýmislegt fyrir
stafni þannig að ég kvíði ekkert skorti
á verkefnum og viðfangsefnum. En
það er ekki svo að það sé búið að
bjóða mér eitthvað sérstakt. Það er
ekkert slíkt í myndinni og ég er ekki
að sækjast eftir neinu þannig.“
Ætlar ekki í sérframboð
Mér er sagt að þú hafir ýjað að sér-
framboði í borginni. Er eitthvað hæft
í því?
„Nei, ég hef ekki ýjað að því. Það
þyrfti mikið að gerast til þess að það
yrði sérframboð af minni hálfu. Þá
þyrfti minn flokkur að ganga fram
með stefnumál sem væru algjörlega
óásættanleg að mínu mati. Ég tel
engar líkur á að það gerist.“
Það er á þér að heyra að þú sért
ekki pólitískt saddur.
„Ég er náttúrlega búinn að alast
upp í þessu umhverfi í 28 ár og hef
gríðarlegan áhuga á stjórnmálum,
og þá sérstaklega sveitarstjórnarmál-
um og félagsmálum. Ég hef líka gert
margt annað en að sinna bara borg-
armálum og málefnum íslenskra
sveitarfélaga. Ég hef verið þátttak-
andi í ýmsum stjórnum og ráðum og
unnið að málum sem eru ekki inni á
borði borgarinnar og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga [þar sem Vil-
hjálmur var formaður 1990-2006]. Ég
mun halda áfram að sinna þeim mál-
um með einum eða öðrum hætti.“
Stoltur af mörgu
Vilhjálmur fær auðvitað klisjuspurn-
inguna um hvað standi upp úr eftir
öll þessi ár í borgarmálunum. Hann
segist ekki geta nefnt neitt eitt mál
eða viðfangsefni þar sem svo margt
gott hafi orðið að veruleika í Reykja-
vík á þessum tíma.
„Þegar ég var fyrst kosinn í borg-
arstjórn tók ég strax við formennsku
í skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar,
þá 36 ára gamall, og gegndi henni í
tólf ár. Þegar ég lít til baka þá er mér
mjög ofarlega í huga sú uppbygg-
ing sem fór í gang þá og þessi nýja
og breytta skipulagsstefna sem við
tókum upp. Það stóð til að byggja
uppi við Rauðavatn en okkur tókst
að eignast land þar sem hægt var að
byggja með fram strandlengjunni,
þar sem nú er Foldahverfi. Og svo
þessi gríðarlega mikla uppbygging
sem átti sér stað í framhaldinu alls
staðar í Grafarvoginum.
Einhver mesta þétting byggðar í
Reykjavík frá upphafi varð þegar við
tókum Skúlagötusvæðið og breytt-
um því svæði til hins betra. Það var
gríðarlega stórt og erfitt verkefni.
Svo voru Perlan og Ráðhúsið byggð
á þessum tíma undir stjórn okkar
ágæta þáverandi borgarstjóra [Dav-
íðs Oddssonar] og enn fremur byrj-
uðum við á einhverju mesta um-
hverfisátaki í sögu borgarinnar sem
fólst í að hreinsa alla strandlengj-
una umhverfis Reykjavík. Þetta voru
því mjög stór mál sem þarna voru í
gangi.“
Vilhjálmur kveðst einnig ánægð-
ur með að hafa fengið tækifæri til
þess að taka þátt í öflugri uppbygg-
ingu fyrir eldri borgara. Honum og
Páli Gíslasyni, sem eigi meiri heið-
ur skilinn en Vilhjálmur fyrir vinnu
sína í þeim málum, hafi tekist að
gerbreyta aðstöðu eldri borgara til
félagslegrar þátttöku með byggingu
félags- og þjónustumiðstöðva fyrir
þann þjóðfélagshóp á borð við þær
sem sjá má meðal annars í Bólstað-
arhlíð, í Mjóddinni og í Hvassaleiti.
„Og persónulega er ég auðvit-
að mjög stoltur af því að hafa feng-
ið tækifæri til þess að gegna for-
mennsku í Sambandi íslenskra
sveitarfélaga í sextán ár. Það var af-
skaplega skemmtilegur og góður
tími. Ég fór um allt land, kom á næst-
um því hvern einasta stað á Íslandi
og átti góða fundi með mörgum
mönnum og konum.“
REI-málið mjög erfitt
En hvaða mál myndirðu segja að hafi
reynt mest á þig?
„Það hafa nú ekki verið mjög
mörg erfið mál. En þetta svokall-
aða REI-mál, sem var reyndar svona
hliðarmál, var mjög erfitt,“ segir Vil-
hjálmur alvarlegur á svip.
„Mér fannst gríðarleg ósanngirni
þar í gangi og mikið af dylgjum og
rangfærslum. Fullyrðingar til dæm-
is um að ætlunin hafi verið að selja
hluta af eignum Orkuveitunnar og
afsala okkur auðlindum, þetta eru
bara tómar rangfærslur. Ég skrifaði
grein í Fréttablaðið í ágúst síðastliðn-
um þar sem ég fór yfir málið og það
var enginn sem gerði athugasemdir
við það. Menn spyrja frekar núna um
hvað málið hafi eiginlega snúist.“
Þetta var þér mjög erfitt mál.
„Já, já, að sjálfsögðu. Það var eins
gott að vera vel andlega undirbú-
inn og sterkur, og heilsuhraustur al-
mennt. En það sem hefur hjálpað
mér mikið í öllu mínu starfi er að
ég tel mig hafa ágæta lund, og oftast
létta lund. Stundum má maður ekki
leyfa sér að taka málin alltof alvar-
lega, þótt auðvitað taki maður sum
mál mjög alvarlega. Svo á ég náttúr-
lega góða fjölskyldu og góða konu
sem öll studdu við bakið á mér í
þessu erfiða máli.“
Framganga fréttamanna
rannsóknarefni
Þannig að létta lundin kom þér í
gegnum mesta brotsjó REI-málsins?
„Já, það má segja það. Skapgerð-
in skipti þarna miklu, held ég. Ég er
til dæmis ekki langrækinn, frekar
langminnugur, og ég er ekki hefni-
gjarn. Mér fannst hins vegar fram-
ganga einstakra aðila í þessu máli,
til dæmis sumra fréttamanna, vera
með þeim hætti að það ætti að vera
sérstakt rannsóknarefni. Þetta mál er
ekkert gleymt en ég er svolítið hissa
á því að þegar ég birti þessa ítarlegu
grein um málið að enginn þeirra sem
hæst létu í málinu skyldu hafa döng-
un í sér til að svara. Kannski hentar
þeim aðilum best að þegja núna. Og
sumir kannski skammast sín.“
Er þá ekkert í þessu máli sem þú
myndir gera öðruvísi ef til boða stæði
að fara aftur til þessa tíma?
„Þetta mál var ekki eitt af þess-
um stóru málum sem við vorum að
vinna að. Meirihlutinn var í fínum
gír, eins og sagt er, og flokkurinn að
mælast í skoðanakönnunum með í
kringum fimmtíu prósenta fylgi og
ég sem borgarstjóri í kringum sextíu
prósent. Þetta var eins og að lenda í
hálku og missa bílinn út af. Ég hefði
kannski átt að vera með keðjur í
þessu máli en ekki bara vera á nagla-
dekkjum.“
Ef Björn Ingi Hrafnsson, odd-
viti Framsóknarflokksins í borginni,
hefði ekki slitið meirihlutasamstaf-
inu í kjölfar uppþotsins vegna REI-
málsins, heldurðu að þér hefði þá
verið sætt áfram sem oddviti sjálf-
stæðismanna?
„Vissulega. Ég hafði fullan stuðn-
ing til þess.“
Vonbrigði að missa
borgarstjórastólinn
REI-málið kostaði Vilhjálm borgar-
stjóraembættið, sem hann hafði tek-
ið við eftir borgarstjórnarkosning-
arnar vorið 2006, þar sem Björn Ingi
myndaði nýjan meirhluta með Sam-
fylkingu, Vinstri-grænum og Frjáls-
lynda flokknum. Blaðamaður spyr
hvort það hafi ekki sviðið undan því
að sjá á eftir borgarstjórastólnum
eftir einungis sextán mánaða setu í
honum.
„Jú, að sjálfsögðu voru það von-
brigði. En þetta er stundum svona í
pólitíkinni. Sumir hafa reyndar verið
enn þá skemur í þessu embætti eins
og dæmin sanna. En auðvitað hefði
ég viljað klára þetta dæmi og koma
ýmsum málum áfram sem borgar-
stjóri.“
Borgarfulltrúar sökuðu hver ann-
an um baktjaldamakk, rýtingsstung-
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sækist ekki eftir kjöri í borgarstjórn Sjálfstæðisflokksins næsta vor en þá verða
liðnir tæpir þrír áratugir síðan hann lét fyrst til sín taka við stjórn borgarmálanna. Hann kveðst hafa misjafnt
álit á öllum borgarfulltrúum, án þess þó að bera kala til nokkurs. Hann sagði Kristjáni Hrafni Guðmundssyni
einnig frá því að golfið og sístækkandi skari barnabarna fengju líklega meira af tíma hans á næstu árum.
KOMST Í GEGNUM REI-
MÁLIÐ Á LÉTTLEIKANUM
FRAMHALD Á NÆSTU OPNU
„Og ég hef auðvitað misjafnt álit á borgarfulltrúum,
ekki bara í okkar flokki heldur öllum flokkum, og það
er misjafnt hvað ég hef mikil tengsl við þetta fólk.“
Vilhjálmur Þ. Borgarfulltrúinn reyndi segir REI-málið það erfiðasta sem
hann hafi glímt við á tæplega þrjátíu ára ferli. Hann beri þó engan kala til
annarra borgarfulltrúa vegna málsins.
MYND SIGTRYGGUR ARI