Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Side 56
ur og fleira í kringum REI-málið og
í eftirköstum þess þegar meirihluta-
skipti voru tíð. Hvernig er fyrir ykkur
borgarfulltrúana að vinna saman eft-
ir svona mikinn átakatíma og þegar
stór orð hafa fallið á báða bóga?
„Það var erfitt til að byrja með, en
þetta hefur breyst. Það getur verið
að áfallið sem fylgdi efnahagshrun-
inu hafi þjappað okkur betur sam-
an. Þetta er eins og þegar menn eru
á björgunarbát þá leggja allir sitt af
mörkum. Það þá má líkja þessu við
eitthvað slíkt og við teljum okkur sjá
ágætlega til lands. Annars hafa marg-
ir talað um óróleika í Ráðhúsinu. Ég
segi: Maður, líttu þér nær og horfðu
yfir götuna og á það sem viðgengst á
Alþingi. Ástandið sem var í borgar-
stjórninni um tíma er lítið miðað við
það sem hefur verið að gerast á þing-
inu. Allar þessar uppákomur, um-
ræður og læti jaðra stundum við að
vera eins og hjá óþekkum leikskóla-
krökkum.“
Sumir segja að það andi köldu
á milli þín og Gísla Marteins Bald-
urssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, og hafi gert lengi. Hvað er
hæft í því?
„Það eru alltaf litlir hópar sem
myndast í stjórnmálaflokkum.
Kannski eru klíkur ekki rétta orðið, en
þetta eru svona vina- og samstarfs-
hópar. Auðvitað hefur þetta alltaf ver-
ið svona og verður líkast til alltaf. Og
ég hef auðvitað misjafnt álit á borg-
arfulltrúum, ekki bara í okkar flokki
heldur öllum flokkum, og það er mis-
jafnt hvað ég hef mikil tengsl við þetta
fólk. En ég ber engan kala til neins og
hef aldrei lent í því að hata einhvern.“
Valdabarátta í
gangi í flokknum
Sjálfstæðisflokkurinn er á tíma-
mótum þessi misserin eftir hrunið í
fyrrahaust og formannsskiptin fyrr á
árinu. Skynjarðu mikil átök um völd
og stöður innan flokksins?
„Já, það er ekkert hægt að leyna
því. Það voru mikil átök í kringum
formannskjörið í flokknum og ýms-
ar sviptingar. En ekki slíkar svipting-
ar sem benda til þess að flokkurinn
klofni. Ég held til dæmis að við hér í
Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík höf-
um verið að gera góða hluti og því
ástæðulaust fyrir fólk að hafa áhyggj-
ur af einhverjum óróa hér. Það ætti
frekar að hafa augastað á Alþingi.“
Kaustu Bjarna Benediktsson í for-
mannskjörinu?
„Nei, ég kaus Kristján [Þór Júlíus-
son]. En ég vil gefa Bjarna öll tæki-
færi. Þegar búið er að kjósa hann
sem formann þá á flokkurinn að
sameinast um hann og styðja hann
eins og kostur er. Svo er það auðvit-
að mest undir honum komið hvernig
hann stendur sig.“
Hvaða áhrif hefur hrunið og eftir-
köst þess haft á þig og þína?
„Í sjálfu sér ekki mikil því ég hef
viðhaldið góðri stjórn á mínum eig-
in fjármálum, eins og ég vil hafa á
fjármálum borgarinnar. Ég byrjaði til
dæmis í tveggja herbergja íbúð, fór
svo í þriggja herbergja, síðan fjögurra
herbergja og loks byggðu ég og þá-
verandi konan mín okkur hús uppi
í Breiðholti. Ég var því ekki að safna
skuldum heldur tók svolítið langan
tíma í að feta mig svona áfram í hús-
næðismálum.
Ég átti engin hlutabréf sem heitið
getur þegar hrunið varð, nema lítil-
ræði í SPRON, mínum gamla banka.
Að öðru leyti hafði ég selt mín hluta-
bréf um áramótin 2006-2007. Ég hef
aldrei á ævinni tekið bílalán eða er-
lent lán af nokkrum toga og fjárhags-
legt tjón mitt og Guðrúnar [Kristjáns-
dóttur kennara, eiginkonu Vilhjálms] í
hruninu er því lítið sem ekkert. Ég hef
alltaf lifað þannig lífi að vera með mitt
í skilum.“
Rómantískur golfari
Hvað finnst konunni þinni um að þú
sért að hætta í borgarpólitíkinni?
„Hún er mjög sátt við það,“ seg-
ir Vilhjálmur og brosir. „Og þetta er
auðvitað ákvörðun sem við tökum í
sameiningu.“
Pressaði hún á þig?
„Nei, nei, það var ekki þannig. En
við sjáum núna fram á að hafa meiri
tíma í að spila golf. Við erum komin
í það af fullum krafti. Barnabörnun-
um okkar hefur líka fjölgað verulega
á undanförnum árum og ég fæ vænt-
anlega meiri tíma til að sinna þeim.
Ég er aðeins byrjaður að passa þau,“
segir Vilhjálmur sem á sjö barnabörn
og Guðrún fimm. Vilhjálmur átti þrjú
börn með fyrri konu sinni, Önnu
Johnsen, þau Jóhönnu (f. 1970),
Helgu Björk (f. 1974) og Baldur Þór
(f. 1976).
Ekki er ýkja langt síðan Vilhjálm-
ur, sem er sextíu og þriggja ára, og
Guðrún, sem er tveimur árum yngri,
fóru að rugla saman reitum. Þau
gengu í það heilaga í júní í fyrra.
Þurftirðu að beita rómantík til að
vinna Guðrúnu á þitt band?
„Já og nei. Þetta var nú svona
gagnkvæmt hjá okkur. Ég hugsa að
ég hafi ekki beitt rómantíkinni neitt
meira en hún,“ segir Vilhjálmur og
hlær.
Ertu rómantískur almennt?
„Já, ég myndi segja það,“ segir Vil-
hjálmur og verður örlítið vandræða-
legur á svip. En ekki mikið.
„Við njótum þess að vera sam-
an, ferðast saman og spila golf sam-
an. Það er auðvitað mjög gott fyrir
hjónabandið að fólk geti verið saman
í einhverju, en ekki karlinn að þvæl-
ast einhvers staðar og konan annars
staðar. Og ég tel að golfíþróttin sé ein
besta fjölskylduíþróttin sem völ er á.“
Tengdasonurinn
frambærilegur í pólitík
Hjónin byrjuðu í golfinu fyrir um fimm
árum. Þegar Vilhjálmur var borgar-
stjóri greip hann þó lítið sem ekkert í
kylfurnar sökum tímaskorts. En hvort
þeirra ætli sé betra í sportinu?
„Eigum við ekki að segja að ég
sé aðeins betri,“ segir Vilhjálmur og
brosir út í annað. „En það má senni-
lega varla á milli sjá.“
Talandi um afrek á íþróttasvið-
inu – tengdasonur þinn og fyrirliði
handboltalandsliðsins til margra ára
[Geir Sveinsson] tilkynnti um fram-
boð í prófkjöri sjálfstæðismanna í
borginni nánast á sama tíma og þú
tilkynntir um brotthvarf þitt af þeim
vettvangi. Hvernig líst þér á það?
„Að sjálfsögðu finnst mér þetta
bara fínt hjá honum. Þetta kom mér
reyndar á óvart en þetta er alfar-
ið hans ákvörðun. Og hann er mjög
frambærilegur í pólitíkinni, hefur
mikla reynslu og er hörkuduglegur.
Þetta er líka mjög gott fyrir prófkjör-
ið, að það sé ekki bara gamla góða
liðið í því heldur eitthvert nýtt blóð
líka.“
Hvað ætlar þú að fara að gera
annað en að spila golf?
„Ég er náttúrlega í ýmsum verk-
efnum og ýmsum stjórnum sem ég
held væntanlega áfram í, að minnsta
kosti einhverjum þeirra. Annars hef
ég góðan tíma til þess að velta því
fyrir mér. En lífið er þannig að það
kemur yfirleitt eitthvað óvænt upp í
hendurnar á manni.“
Frátekið sendiherraembætti er
ekkert í spilunum?
„Nei, nei, ég er ekki með neitt
þannig í hendi. Og það hefur ekki
einu sinni hvarflað að mér.“
kristjanh@dv.is
56 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 HELGARBLAÐ
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
48
01
8
11
/0
9
3.990kr.Verð frá
Kraftar í kögglum
Bolir
3.490kr.Verð frá
Stuttbuxur
2.490kr.Verð frá
Sippubönd
19.990kr.Verð frá
Hlaupaskór
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Í skotlínu Öll spjót stóðu á Vilhjálmi í október 2007 þegar REI-málið hófst. Hér er hann á blaðamannafundi í Valhöll. MYND ÁSGEIR M. EINARSSON
„Ástandið sem var
í borgarstjórninni um
tíma er lítið miðað við
það sem hefur verið að
gerast á þinginu. All
ar þessar uppákomur,
umræður og læti jaðra
stundum við að vera
eins og hjá óþekkum
leikskólakrökkum.“
Aftur í meirihluta Vilhjálmur og félagar hans í borgarstjórnarflokki sjálfstæð-
ismanna komust aftur í meirihluta í borginni í janúar 2008. Tjarnarkvartettinn
svokallaði hafði þá aðeins haldið um stjórnartaumana í um hundrað daga. Ólafur F.
Magnússon varð borgarstjóri. MYND SIGTRYGGUR ARI