Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 60
60 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009 HELGARBLAÐ
Friðjón fæddist á Breiðabólstað á
Fellsströnd og ólst þar upp. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1941,
embættisprófi í lögfræði frá HÍ
1947, dvaldi við nám og kynningu
við aðalstöðvar SÞ í New York 1949
og við Ríkislögregluskólann í New
Haven, Connecticut, 1950. Hann
öðlaðist hdl-réttindi 1948 og hrl-
réttindi 1991.
Friðjón starfaði hjá Ragnari
Jónssyni hrl. að námi loknu, var
fulltrúi borgardómarans í Reykja-
vík 1947-48, fulltrúi lögreglustjór-
ans í Reykjavík 1948-49, 1950-51
og 1952-55 og oft settur lögreglu-
stjóri 1948-55, settur bæjarfógeti
á Siglufirði 1951-52, sýslumaður
Dalasýslu 1955-65, Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu 1965-75 og
sýslumaður Dalasýslu frá 1991-93
er hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir.
Friðjón var landskjörinn alþm.
1956-59, þingmaður Vesturlands-
kjördæmis 1967-91 og dóms- og
kirkjumálaráðherra og samstarfs-
ráðherra um norræn málefni 1980-
83.
Friðjón söng með kvartettinum
Leikbræðrum 1945-52 sem gaf út
hljómplötu 1977 og söngbók með
kvartettútsetningum nokkru síðar.
Friðjón sat í stjórn ungmenna-
sambands Dalamanna 1941-43,
var formaður Orators 1945-46, for-
maður Stúdentafélags Reykjavíkur
1950-51, formaður Breiðfirðingafé-
lagsins í Reykjavík 1953-54, í stjórn
SUS 1955-57, stjórnarformað-
ur Sparisjóðs Dalasýslu og spari-
sjóðsstjóri 1956-65, formaður
Vatnsveitufélags Búðardals 1956-
64, formaður sauðfjársjúkdóma-
nefndar1960-65, í bankaráði Bún-
aðarbanka Íslands 1960-94 og
formaður þess 1969-72, fyrsti for-
maður Lionsklúbbs Búðardals
1963, stjórnarformaður Héraðs-
bókasafns Dalasýslu í mörg ár og
amtsbókasafnsins í Stykkishólmi
1965-75, sat í stjórn Sementsverk-
smiðju ríkisins 1977-93, í stjórn
Brunabótafélags Íslands og var
formaður þar 1987, í hreppsnefnd
Stykkishólmshrepps 1966-70, sat
á allsherjarþingi SÞ 1966, 1985 og
1987, var fulltrúi Íslands í þing-
mannasamtökum NATO 1967-74,
fulltrúi á fundum þingmannasam-
taka EFTA-ríkjanna 1975 og 1977,
á þingi Evrópuráðsins 1974, sat í
Vestnorræna þingmannaráðinu
og í Norðurlandaráði 1983-87. Þá
var hann formaður Breiðafjarðar-
nefndar frá stofnun hennar og var
formaður nefndar um Eiríksstaði
í Dalasýslu frá 1998. Friðjón var
heiðursborgari Dalabyggðar frá ár-
inu 2000.
Fjölskylda
Friðjón kvæntist 28.10. 1950 Krist-
ínu Sigurðardóttur, f. 30.12. 1928,
d. 19.5. 1989, skrifstofumanni og
húsmóður. Hún var dóttir Sigurð-
ar Lýðssonar, f. 15.12. 1893, d. 26.6.
1956, bónda í Selssundi og á Eystri-
Geldingalæk á Rangárvöllum, og
k.h., Guðrúnar Bárðardóttur, f. 7.1.
1894, d. 30.9. 1962, húsfreyju.
Börn Friðjóns og Kristínar eru
Sigurður Rúnar, f. 5.6. 1950, mjólk-
ursamlagsstjóri við Mjólkursam-
lagið á Akureyri, kvæntur Guð-
borgu Tryggvadóttur húsmóður
og eiga þau þrjú börn; Þórður, f.
2.1. 1952, forstjóri Kauphallarinn-
ar, búsettur á Seltjarnarnesi, var
kvæntur Þrúði Guðrúnu Haralds-
dóttur húsmóður en þau skildu
og eiga þau þrjú börn en sambýl-
iskona Þórðar er Ragnheiður Agn-
arsdóttir framkvæmdastjóri og eiga
þau eina dóttur auk þess sem hann
á dóttur frá því áður; Helgi Þor-
gils, f. 7.3. 1953, myndlistarmaður
og myndlistarkennari í Reykjavík,
kvæntur Margréti Lísu Steingríms-
dóttur forstöðukonu og eiga þau
þrjú börn; Lýður Árni, f. 24.3. 1956,
framkvæmdastjóri í Lettlandi, var
kvæntur Ástu Pétursdóttur ritara
en þau skildu og eiga þau fjög-
ur börn en sambýliskona hans er
Renata og eiga þau einn son; Stein-
unn Kristín, f. 27.4. 1960, húsmóðir
í Hafnarfirði, gift Árna Mathiesen,
dýralækni og fyrrv. alþm. og ráð-
herra og eiga þau þrjár dætur.
Friðjón kvæntist 29.6. 1992 eftir-
lifandi eiginkonu sinni, Guðlaugu
Guðmundsdóttur, f. 14.8. 1936,
húsmóður. Hún er dóttir Guð-
mundar Halldórs Þorlákssonar, f.
4.10. 1887, d. 31.8. 1958, arkitekts
og trésmíðameistara í Reykjavík,
og k.h., Ingunnar Sigríðar Tómas-
dóttur, f. 13.12. 1899, d. 15.10. 1983,
húsmóður.
Systkini Friðjóns: Ingibjörg
Halldóra, f. 29.5. 1919, d. 31.8. 1936;
Guðbjörg Helga, f. 11.10. 1920, nú
látin, var húsmóðir í Reykjavík;
Sigurbjörg Jóhanna, f. 5.2. 1924,
kennari, búsett í Kópavogi; Sturla,
f. 31.7. 1925, fyrrv. bifreiðarstjóri
í Búðardal; Halldór Þorgils, f. 5.1.
1938, bóndi á Breiðabólstað og
fyrrv. skólastjóri Tónlistarskóla
Dalasýslu, (sá sjötti í röðinni sem
setið hefur Breiðabólstað í beinan
karllegg frá 1767).
Foreldrar Friðjóns voru Þórður
Kristjánsson, f. 26.3. 1890, d. 19.5.
1967, hreppstjóri á Breiðabólstað,
og k.h., Steinunn Þorgilsdóttir, f.
12.6. 1892, d. 4.10. 1984, kennari og
húsfreyja.
Ætt
Systir Þórðar var Salóme, amma
Svavars Gestssonar sendiherra
og fyrrv.alþm. og fyrrv. ráðherra..
Þórður var sonur Kristjáns, b. á
Breiðabólstað Þórðarsonar, b. þar
Jónssonar, b. þar Jónssonar, b. þar
Ásgeirssonar, sem bjó þar 1767.
Móðir Kristjáns var Jófríður Ein-
arsdóttir frá Hallsstöðum. Móðir
Þórðar hreppstjóra var Sigurbjörg,
systir Guðmundar, afa Péturs Guð-
mundssonar körfuboltamanns.
Sigurbjörg var dóttir Jóns, hús-
manns í Skógum Jónssonar.
Meðal systkina Steinunnar eru
Helga skólastjóri, Þórhallur mag-
ister, faðir Ólafs Gauks tónlistar-
manns, og Fríða, móðir Auðar Ey-
dal. Steinunn var dóttir Þorgils,
kennara og oddvita í Knarrarhöfn
í Hvammssveit Friðrikssonar, b. á
Ormsstöðum Þorgilssonar. Móð-
ir Steinunnar var Halldóra Sig-
mundsdóttir, b. á Skarfsstöðum í
Hvammssveit Grímssonar. Móð-
ir Sigmundar var Ingibjörg Orms-
dóttir, b. í Fremri-Langey og ætt-
föður Ormsættar Sigurðssonar.
Móðir Halldóru var Steinunn, syst-
ir Þórðar Jónssonar á Breiðaból-
stað.
Jörundur
Pálsson
ARKITEKT OG LISTMÁLARI -
f. 20. 12. 1913, d. 6.9. 1993
Jörundur var sonur Páls Bergs-
sonar, kennara, útgerðarmanns
og hreppstjóra í Ólafsfirði og í
Hrísey, og Svanhildar, dóttur Há-
karla-Jörundar í Hrísey Jónsson-
ar. Jörundur átti fjölda systkina,
s.s. Hrein, forstjóra BP og óp-
erusöngvara; Gest,
leikara; Guðrúnu
söngkennara og
Gunnar skrif-
stofustjóra.
Jörundur lauk
stúdentsprófi frá
MA, lærði auglýsinga-
teiknun í Det Tekniske Selskabs
Skole í Kaupmannahöfn, stund-
aði nám í málaralist við Listahá-
skólann í Kaupmannahöfn og
nám í arkitektúr við Kunstaka-
demiets Arkitektskole í Kaup-
mannahöfn 1956-60.
Hann starfaði við auglýsinga-
teiknun í fimmtán ár og starf-
rækti síðan eigin teiknistofu í
Reykjavik 1939-56. Eftir að Jör-
undur lauk námi í arkitekt-
úr starfaði hann á Teiknistofu
Húsameistara ríkisins þar sem
hann fékkst einkum við kirkju-
teikningar.
Alfreð Flóki
MYNDLISTARMAÐUR -
f. 19.12. 1939, d. 18.6. 1987
Alfreð fæddist í Reykjavik, sonur
Guðrúnar Guðmundsdóttur og
Alfreðs Nielsen. Guðrún var af
hinni frægu listamannaætt sem
kennd er við Jötu í Ytrihreppi
en meðal afkomenda þaðan má
nefna Einar Jónsson mynd-
höggvara, Hörð Bjarnason húsa-
meistara, Nínu
Tryggvadóttur,
Gest Þorgríms-
son, Jón Óskar
Hafsteinsson,
Eirík Smith og
Sóleyju, dóttur
hans.
Alfreð stund-
aði nám við Handíða- og
myndlistarskólann í Reykjavík,
við Kúnstakademíuna í Kaup-
mannahöfn og lærði m.a. hjá
Hjorth Nielsen prófessor.
Að námi loknu hélt Alfreð
heim til Íslands en var jafnframt
mikið í Danmörku næstu árin.
Þá dvaldi hann tæpt ár í Banda-
ríkjunum.
Hann hélt fjölda sýninga
hér á landi og erlendis. Al-
freð var mikilhæfur listamað-
ur og er almennt talinn meðal
fremstu teiknara þjóðarinnar.
Mörg verka hans eru tilvísun í
evrópskar hryllingsbókmennt-
ir, súrrealískar blekteikningar,
hlaðnar táknhyggju, rómantík
og myrkum órum undirvitund-
ar. Í handbragði og stíl sótti hann
mjög til lista fyrri alda. Hann var
hlédrægur og elskulegur í við-
móti en kunni vel að leika lista-
mannshlutverkið fyrir fjölmiðla.
Um hann hafa komið út hefti eft-
ir Jóhann Hjálmarsson, bók eft-
ir Aðalstein Ingólfsson og end-
urminningabók eftir Nínu Björk
Árnadóttur.
MINNING
Friðjón Þórðarson
FYRRV. ALÞINGISMAÐUR OG RÁÐHERRA
MERKIR
ÍSLENDINGAR
f. 5.2. 1923, d. 14.12. 2009
Eftirmæli
Pálmi Jónsson, Akri
Við Friðjón áttum mjög langt sam-
starf. Heil 24 ár á Alþingi en hann
var nú fjögur ár þar á undan mér
og ég sat einu kjörtímabili lengur
en hann. Friðjón var prúður maður,
ekki framhleypinn og vandaði mál
sitt mjög vel. Í ræðustól á Alþingi
var hann fastur fyrir ef á reyndi og
kom mörgu því áleiðis sem hann
taldi til heilla verða. Á löngum tíma
áttum við gott og fjölbreytt samstarf
en öll samskipti okkar voru mjög
góð. Stundum voru átakatímar eins
og þegar að við tókum báðir sæti í
ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen í
febrúar 1980 en samstarf okkar var
alltaf unnið af miklum heilindum.
Friðjón var búinn listrænum
hæfileikum. Hann var söngmaður
góður, lék á hljóðfæri og var snjall
hagyrðingur. Þessa nutu félag-
ar hans oft, ekki síst á gleðimótum
eða þegar farið var í ferðir á veg-
um þingnefnda eða stofnana sem
hann starfaði í. Hann var bara ljúf-
ur og glaður maður. Friðjón var
einnig mjög fróður um sögu, ekki
síst á Vesturlandi. Þar voru honum
Dalirnir kærastir því þar var hann
fæddur og uppalinn. Í Dölunum
gegndi hann margvíslegum störf-
um, var meðal annars sýslumaður
og dvaldi þar oft á sínum síðustu
árum.
Friðjón kunni einnig Sturlungu
betur en aðrir, eins og aðrar breið-
firskar sögur á borð við Laxdælu og
Eirbyggju. Þar var hann svo sann-
arlega aldrei rekinn á stampinn.
Ég er þakklátur fyrir okkar kynni og
blessa minningu hans.
Hafðu samband
í síma 515-5555
eða sendu tölvupóst
á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
Hafðu samband
í síma 515-5555
eða sendu tölvupóst
á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
Hafðu samband
í síma 515-5555
eða send tölvupóst
á askrift@dv.is
- inn í hlýjuna
Fáðu DV heim
í áskrift
H
a
fð
u
s
a
m
b
a
n
d
í
sí
m
a
5
1
5
-5
5
5
5
e
ð
a
s
e
n
d
u
t
ö
lv
u
p
ó
st
á
a
sk
ri
ft
@
d
v
.i
s
- i
nn
í
hl
ýj
un
a
Fá
ðu
D
V
h
ei
m
í á
sk
ri
ft