Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Qupperneq 63
HELGARBLAÐ 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR 63
ÓÞEKKTARORMUR
sinni og ákvað að nota reynslu sína öðrum
stjörnum sem höfðu orðið hinu ljúfa lífi að bráð
til hjálpar. Næsta mynd, The Singing Detective
sem kom út árið 2003, fékk ekki mikla aðsókn
en leikaranum var hampað fyrir frammistöðu
sína auk þeirra Adriens Brody og Mels Gibs-
on. Það sama má segja um myndina Gothika
þar sem hann lék á móti Halle Berry en næsta
mynd var kvikmyndin Eros undir leikstjórn
Stevens Soderbergh. Næstu myndir sem á eft-
ir fylgdu gengu vel en kvikmyndin Good Night,
and Good Luck kom út árið 2005 sem og Kiss
Kiss, Bang Bang.
Þátttaka hans í endurgerðu Disney-mynd-
inni Shaggy Dog kom á óvart en Robert hefur
alltaf passað upp á fjölbreytnina og til að ná
jafnvæginu eftir Disney lék hann í hinni furðu-
legu A Scanner Darkly. Fjölbreytnin minnk-
aði ekki með Zodiac og Fur þar sem hann lék
á móti Nicole Kidman. Stóra „kommbakkið“
kom ekki fyrr en 2007 en þá nældi Robert í
titilhlutverkið í Iron Man og í The Incredible
Hulk. Þar með skein stjarna hans skærar en
hún hafði nokkurn tímann gert. Á eftir fylgdi
grínmyndin Tropic Thunder í leikstjórn Bens
Stiller en allar þessar myndir reyndust stórir
smellir og hittu einnig í mark hjá gagnrýnend-
um en Robert fékk Óskarsverðlaunatilnefn-
ingu fyrir hlutverk sitt í þeirri síðastnefndu
en tapaði fyrir Heath Ledger heitnum. Iron
Man var frumsýnd vorið 2008 og skilaði risa
summu í kassann fyrstu sýningarhelgina.
Robert lenti í töluverðum vandræðum þeg-
ar átti að frumsýna myndina í Japan. Stærstu
stjörnurnar áttu að mæta á staðinn en japönsk
yfirvöld vildu ekki hleypa leikaranum inn í
landið vegna alvarleika brota hans og fjölda
fangelsisdóma. Leikarinn fékk undanþágu í
þetta skiptið og var hleypt inn í landið til að
mæta á frumsýninguna en var tilkynnt um leið
að hann myndi aldrei aftur fá að heimsækja
Japan.
SYNGJANDI LEIKARI
Robert hefur einnig reynt fyrir sér sem tónlist-
armaður meðfram leiklistinni en hann sýndi
og sannaði að hann getur sungið í þáttunum
Ally McBeal. Þá söng hann lag Joni Mitchell
River, lagið Chances Are ásamt Vondu Shep-
ard og einnig lagið Every Breath You Take með
Sting. Á geisladiski með lögum úr þáttunum
sem gefinn var út árið 1997 söng leikarinn lag
eftir hann sjálfan, Snakes. Í nóvember 2004
gaf Robert út sína fyrstu plötu, The Futurist,
en platan var gefin út af Sony Classical og náði
121. sæti á Billboard-listunum og seldist í 16
þúsund eintökum fyrstu vikuna. Á plötunni
syngur Robert eigin lög auk tveggja tökulaga
og spilar undir á píanó.
Á níunda áratugnum bjó Robert með leik-
konunni Söruh Jessicu Parker í sjö ár en þeirra
leiðir skildu að lokum. Árið 1992 giftist hann
leikkonunni, fyrirsætunni og nú söngkonunni
Deboruh Falconer eftir aðeins 42 daga sam-
band. Robert og Falconer eignuðust soninn
Indio árið 1993 en þau skildu þegar Indio var
aðeins eins árs. Árið 2005 giftist hann aftur
og í þetta skiptið framleiðanda myndarinnar
Gothika, Susan Levin. Þau kynntust við tökur
á myndinni en Robert bað hennar á þrítugs-
afmælisdaginn hennar. Brúðkaupið fór fram
í Amagansett í New York þann 27. ágúst 2005
og klæddist Susan glæsilegum brúðarkjól frá
Veru Wang og ekki minni listamenn en Sting
og Billy Idol skemmtu gestum í veislunni.
EINN AF ÁHRIFAMESTU
MÖNNUM HEIMS
Fyrir þessi jól er hægt að sjá Robert í aðalhlut-
verki í myndinni um Sherlock Holmes í leik-
stjórn Guys Ritchie en fyrr í þessum mánuði
fékk leikarinn Golden Globe-tilnefningu fyr-
ir túlkun sína á spæjaranum. Á teikniborðinu
eru tvær framhaldsmyndir um Iron Man og
fjöldi annarra spennandi hlutverka svo ljóst
er að ef leikaranum tekst að halda sér á beinu
brautinni mun fátt geta stöðvað velgengni
hans. Í fyrra var hann valinn einn af 100
áhrifamestu mönnum heims og hefur þegar
fest sig í sessi sem einn af vinsælustu leikur-
um Hollywood.
indiana@dv.is
Vandræðagemlingur Robert kennir
pabba sínum um eiturlyfjavandamál sitt þar
sem pabbi hans gaf honum fyrstu jónuna
þegar leikarinn var aðeins átta ára.