Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2009, Page 84
84 FÖSTUDAGUR 18. desember 2009
900 LEIKIR
HJÁ ÞEIM
GAMLA
Með aldrinum, og þá sérstaklega starfsaldrinum, raðar Sir
Alex Ferguson inn metunum og verða mörg þeirra ekki
slegin í bráð. Í vikunni stýrði hann Manchester United í 900.
deildarleik sínum og hafði sigur á Úlfunum, 3-0. Þegar litið
er á þessa 900 leiki er ótrúlegt að sjá hversu hátt hlutfallið án
taps er. Kannski ekkert svo ótrúlegt þegar horft er til ævin-
týralegs árangurs hans síðustu
24 árin á Old Trafford.
EILÍFUR Sir Alex Ferguson
hefur unnið meira en allir á
Englandi.
Sir Alex Ferguson hefur eft-
ir áramótin sitt 24. starfsár hjá
Manchester United. Hann hefur
verið lengur við stjórn en nokkur
annar þjálfari en alls hefur hann
stýrt liðinu í 1.303 leikjum. Sigur
Englandsmeistaranna á Úlfunum í
miðri viku var í hans 900. deildar-
leik við stjórnvölinn en þar höfðu
United-menn sigur á varaliði ný-
liðanna, 3-0. Árangur Fergusons
í gegnum tíðina þekkja flestir þó
ekki sé úr vegi að rekja sögu þessa
mikla sigurvegara í grófum drátt-
um á þessum tímamótum í lífi þess
gamla. Afar áhugavert er að skoða
hlutfall leikja sem Manchester Un-
ited hefur fengið stig út úr á þess-
um 24 árum.
60 prósenta sigurhlutfall
Á sínum 24 árum hjá Manchester
United hefur Ferguson stýrt liðinu
í 900 deildarleikjum eins og áður
segir. Vel ríflega 500 þeirra hafa
endað með sigri, ríflega 200 með
jafntefli og 200 töp hefur Skotinn
þurft að þola. Sé rýnt í tölfræðina
kemur í ljós að Ferguson er með
vinningshlutfall upp á 59 prósent
sem er náttúrlega hreint ótrúlegt á
svo löngum tíma. Það sem er enn
merkilegra er sú staðreynd að í 80
prósentum leikjanna hefur United
verið ósigrað, og fengið eitthvað út
úr leiknum. Það er jú ástæða fyrir
því að liðið hefur unnið jafnmarga
titla og raun ber vitni.
Árangurinn heilt yfir eru engu
síðri. Alls hefur Ferguson stýrt Un-
ited-liðinu í 1.303 leikjum í öllum
keppnum. 765 þeirra hafa end-
að með sigri, 303 jafntefli hafa lit-
ið dagsins ljós og 233 hafa tapast.
2.355 mörk hefur liðið skorað og
fengið aðeins 1.164 á sig. Þetta er
sigurhlutfall upp á 58,71 prósent.
Ferguson hóf þjálfaraferil-
inn hjá East Stirlingshire í Skot-
landi og stýrði því í 17 leikjum. Svo
skemmtilega vill til að þar var hann
einnig nærri 60 prósenta sigur-
hlutfalli, 58,82 nákvæmlega. Þegar
hann stýrði Aberdeen í skosku úr-
valsdeildinni og náði mögnuðum
árangri með það lið var hann svo
með 59,12 prósenta sigurhlutfall.
Þeim gamla líður greinilega ágæt-
lega við 60 prósenta mörkin. Með
Aberdeen rauf hans eins og frægt
er sigurgöngu Rangers og Celtic á
Skotlandi og vann meira að segja
frækinn Evróputitil með félaginu.
Árin 24
Sögu Sir Alex Ferguson þekkja all-
flestir knattspyrnuunnendur en
það er ekki úr vegi að fara yfir hana
á hundavaði þar sem þessi mikli
meistari stendur nú á enn einum
tímamótunum. Skotinn rauðnefj-
aði var ráðinn til Manchester Un-
ited 6. nóvember 1986 þegar Ron
Atkinson var rekinn. Liðið hafði
þá verið í algjörri meðalmennsku í
mörg ár og var þetta stórlið farið að
þyrsta í titla. Maðurinn sem vann
Evrópukeppnina með Aberdeen
átti að verða maðurinn til að koma
með silfrið á Old Trafford.
Það byrjaði ekki vel því liðið var
við að falla lengi vel á fyrsta tíma-
bili Fergusons. Honum tókst þó að
snúa því gengi við og endaði lið-
ið í ellefta sæti. Árið eftir var mun
betra og endaði United í öðru
sæti á eftir Liver-
pool. Ferguson
hafði einmitt sagt að
markmið hans væri
að fella Liverpool af
stallinum sem besta
lið Englands þeg-
ar hann gekk í raðir
United.
Það var svo 1990
að hjólin byrjuðu að
snúast. Bikarkeppn-
in kom Ferguson
og hans mönnum á
bragðið. United var
eftirminnilega dreg-
ið á útivöll í gegnum
alla bikarkeppnina
en endaði með því
að vinna hana þegar
það lagði Crystal Pal-
ace, 1-0, á Wembley.
Sögufrægur er leik-
urinn í 8 liða úrslitum gegn Nott-
ingham Forest. Talið er að hefði
Ferguson tapað þeim leik hefði
hann misst starfið en Mark
Robbins „bjargaði“ því með
sigurmarkinu.
Árið eftir fylgdi sigur í Evr-
ópukeppni bikarhafa með
2-0 sigri á Barcelona og svo
var það tímabilið 1992-
1993 að sigurgangan hófst.
Fyrsti Englandsmeistara-
titillinn af ellefu kom í
hús, ellefu úrvalsdeild-
artitlar á sautján árum.
Sá síðasti nú í maí varð
til þess að Manchest-
er United jafnaði met
Liverpool, átján Eng-
landsmeistaratitla,
og er því orðið sig-
ursælasta liðið á
Englandi þar sem
United hefur unn-
ið flesta bikar-
titla. Hvort Fergu-
son fari svo í 1000
deildarleiki verð-
ur að koma í ljós
en sá gamli hef-
ur oft á tíðum
einfaldlega ver-
ið talinn eilífur.
Í GAMLA DAGA Ferguson
hér með verðlaun fyrir stjóra
mánaðarins í september 1993.
ELSKAR AÐ VINNA Ferguson
hefur aldrei misst starfsánægj-
una á 24 árum í starfi.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is