Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Page 45
15. janúar 2009 FÖSTUDAGUR 45
Hver er Brian Laws? Það er von
að fólk spyrji. Sá ágæti maður var
ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs
Burnley á Englandi í vikunni þeg-
ar ljóst var að guðinn þar á bæ,
Owen Coyle, væri farinn til Bolton.
Burnley reyndi við Simon Grayson,
stjóra Leeds, til dæmis en minni lið-
in vildu himinháar fjárhæðir fyr-
ir sína menn. Því ákvað Burnley að
taka annan pól í hæðina og ráða
Laws til liðsins, mann sem fyrr í vet-
ur var rekinn frá Sheffield Wednes-
day fyrir slakan árangur. Afar sér-
stök ákvörðun verður að segjast, að
ráða mann með enga reynslu af úr-
valsdeildinni þegar liðið er að berj-
ast fyrir lífi sínu í deild þeirra bestu.
Laws fær svo sannarlega eldskírn
um helgina þegar hann heldur með
sína menn á Old Trafford og mæt-
ir meisturum síðustu þriggja ára,
Manchester United.
Henti kjúklingi í leikmann
Rúllum snögglega yfir þjálfaraferil
Laws sem spannar sextán ár. Hann
gerðist spilandi þjálfari Grims-
by árið 1994 og stýrði því í tvö ár.
Þar komst hann lítið áleiðis og er
minnst fyrir lítið annað í togara-
bænum en að henda diski fullum
af kjúklingavængjum í ítalskan leik-
mann liðsins, Ivano Bonetti. Var
Laws þar eitthvað ósáttur eftir 3-2
tap Grimsby gegn Luton í febrúar
1996. Hann var síðan rekinn í byrj-
un tímabilsins eftir það en liðið
byrjaði þá hræðilega.
Laws var tiltölulega snöggur að
fá aftur vinnu. Hann tók við Dar-
lington í mjög stuttan tíma en var
síðan ráðinn þjálfari Scunthorpe í
byrjun árs 1997. Þar var hann einn-
ig spilandi þjálfari fyrstu tvö árin
áður en hann lagði skóna á hilluna.
Hjá Scunthorpe komst hann tvíveg-
is upp um deild á tíu árum sínum
hjá félaginu. Seinni upprisan var
mjög sérstök því Laws var rekinn
frá Scunthorpe 2004, endurráðinn
þremur vikum síðar og kom liðinu
svo upp í næstefstu deild 2005.
Sá árangur kveikti áhuga stærri
liða og réð Sheffield Wednes-
day hann til starfa fyrir tímabil-
ið 2006/2007. Hans verður seint
minnst þar á bæ fyrir utan eitt
magnað afrek. Hann varð fyrsti
þjálfarinn í 95 ár hjá Wednesday
sem vann bæði heima- og útileik-
inn gegn erkifjendunum í Sheffi-
eld United. Þegar Uglurnar, eins og
liðið er kallað, var svo komið í 20.
sæti deildarinnar eftir meðal ann-
ars fjögur töp í röð á heimavelli
var hann látinn taka pokann sinn
og hefur verið atvinnulaus núna í
nokkra mánuði.
Reynslulaus í risaverkefni
Það er ekkert smávegis verkefni sem
liggur nú á herðum Brians Laws.
Hann þarf að sjá til þess að þunn-
skipað lið Burnley haldi sæti sínu í
deild þeirra bestu. Deild sem hann
hefur aldrei áður þjálfað í. Það má
fastlega búast við því að hann fái
vægt sjokk þegar hann sækir hvorki
meira né minna en Englandsmeist-
ara Manchester United heim í fyrsta
leik. Honum til happs og lukku eru
meistararnir á niðurtúr þessa dag-
ana og gætu því verið góðir við ný-
liðann á laugardaginn.
Owen Coyle sem kvaddi Burn-
ley í vikunni hefur staðið sig vel en
meira að segja sá frábæri þjálfari
hefur lítið getað gert í málunum að
undanförnu. Burnley er sem stend-
ur í fjórtánda sæti úrvalsdeildarinn-
ar en þegar litið er raunsætt á mál-
in kemur eitt og annað í ljós. Aðeins
eru tvö stig í fallsæti og það sem
meira er að Burnley hefur ekki unn-
ið leik í rúma tvo mánuði. Það hafði
þá sigur á Hull, 2–0, en síðan hafa
liðið níu leikir þar sem Burnley hef-
ur aðeins innbyrt fimm stig af fjöru-
tíu og fimm mögulegum.
Síðustu leikir hafa líka margir
hverjir verið mikilvægir gegn lið-
um með svipaðan stigafjölda. Hef-
ur Burnley farið í gegnum ágætt
prógramm en nú tekur svo sannar-
lega alvarleikinn við. United bíður
Burnley um helgina og síðan taka
við leikir gegn Bolton úti, Chelsea
heima, West Ham heima, Fulham
og Villa úti og Arsenal heima. Pró-
gramm sem reyndustu þjálfarar
deildarinnar myndu verða smeyk-
ir við. Hvað þá óreyndur kjúklinga-
kastari sem síðast var rekinn úr
næstefstu deild.
KJÚKLINGA-
KASTARINN
BYRJAR Á
OLD TRAFFORD
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Owen Coyle Gerði frábæra hluti með
Burnley og er farinn á brott til Bolton.
Jóhannes Karl Fær vonandi
meira að spila undir stjórn Laws.
Brian Laws Óreyndur
í úrvalsdeildinni.
Brian Laws er ekki sá þekktasti í knattspyrnuheiminum. Hann fékk þó í vikunni tækifæri lífs síns þegar
hann var ráðinn í ensku úrvalsdeildina sem stjóri Burnley. Ráðningin kom mjög á óvart þar sem það síð-
asta sem hann gerði var að láta reka sig frá Championship-liði Sheffield Wednesday fyrir slakan árangur.
Fyrsti leikur Laws er gegn Englandsmeisturum.