Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2010, Side 56
n Sjónvarpsmaðurinn Auðunn
Blöndal hefur hingað til ekki verið
þekktur fyrir mikla sundhæfileika.
Segja fróðir menn um sund að
hann sé allt að því ósyndur. Í sjón-
varpsþættinum skemmtilega Auddi
og Sveppi, keppir Auðunn í sundi
við fatlaðan sundmann. Sundmað-
urinn notast við aðra
hönd og annan fót í
sundinu. Þrátt fyrir
það má búast við
ójafnri keppni því
eins og aðdá-
endur Sveppa
og Audda vita
er sjónvarps-
maðurinn
slakur sund-
maður með
eindæmum.
Eru þeir ekki með fulla
vasa silfurs?
FRÉTTASKOT 512 70 70
DV BORGAR 2.500 KRÓNUR FYRIR FRÉTTASKOT SEM LEIÐIR TIL FRÉTTAR. FYRIR FRÉTTASKOT SEM VERÐUR
AÐALFRÉTT Á FORSÍÐU GREIÐAST 25.000 KRÓNUR. FYRIR BESTA FRÉTTASKOT VIKUNNAR GREIÐAST ALLT
AÐ 50.000 KRÓNUR. ALLS ERU GREIDDAR 100.000 KRÓNUR FYRIR BESTA FRÉTTASKOT HVERS MÁNAÐAR.
Menn verða seint ríkir á því að
spila fyrir íslenska landsliðið í hand-
bolta en strákarnir okkar eru sennilega
einu landsliðsmennirnir í hópi þeirra
þjóða sem taka þátt á Evrópumótinu
í handbolta sem þurfa að greiða með
sér meðan á mótinu stendur. Strákarn-
ir okkar fá litlar 20 evrur í dagpeninga
en það er í kringum 3.600 krónur og er
viðbúið að það dugi skammt yfir dag-
inn í Austurríki.
Til viðmiðunar fær alþingismaður
við störf rúmar 40.500 krónur í dag-
peninga meðan hann dvelur í Austur-
ríki. Af því er gert ráð fyrir að um 26.000
krónur fari í gistingu þannig að alþing-
ismaðurinn hefur um 14.500 krónur
eða 80 evrur til ráðstöfunar í annað.
HSÍ greiðir einnig gistingu landsliðs-
mannanna en alþingismaðurinn fær
þrátt fyrir það fjórfalt meira fé til ráð-
stöfunar en landsliðshetjurnar.
Ástæða þess að svo naumt er
skammtað er fjárhagsstaða HSÍ sem
er ekki sterk frekar en flestra annarra
sérsambanda hér á landi. KKÍ tilkynnti
meðal annars nýlega að ekki yrði sent
lið frá sambandinu á Evrópumót að
þessu sinni. Til samanburðar greindi
Morgunblaðið frá því að hver norsk-
ur landsliðsmaður fengi 2,4 milljón-
ir króna ef liðið ynni gullverðlaun á
mótinu. Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, hló þegar hann var
spurður hvað íslensku landsliðsmenn-
irnir fengju mikið.
Það yrði fróðlegt að sjá niðurstöð-
ur úr þeirri skoðanakönnun þar sem
landsmenn yrðu spurðir hvernig þeir
vildu sjá þessum dagpeningum al-
þingismanna ráðstafað. Til að halda
uppi alþingismönnunum eða strákun-
um okkar?
asgeir@dv.is
KEPPIR VIÐ
FATLAÐAN
Alþingismenn fá fjórfalt meiri dagpening en landsliðsmennirnir í handbolta:
STRÁKUNUM OKKAR NAUMT SKAMMTAÐ
n Á föstudaginn voru rétt tæp-
lega 300 manns búnir að skrá sig í
stuðningshóp á Facebook sem vill
að íþróttafréttamaðurinn Adolf
Ingi Erlingsson haldi sig frá heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu
næsta sumar. Ríkissjónvarpið er
með sýningaréttinn á mótinu og má
því fastlega búast við að Adolf lýsi
mörgum leikjum enda langreynd-
asti starfsmaður íþróttadeildarinn-
ar. Nú þegar hafa nokkrir nafntog-
aðir einstaklingar skráð sig. Þar á
meðal eru bikarmeistararn-
ir með Breiðabliki Alfreð
Finnbogason og Arnór
Sveinn Aðalsteinsson,
vonarstjarnan Kol-
beinn Sigþórs-
son, blaðamaður-
inn Atli Fannar
Bjarkason og
annar blaðamað-
ur og kollegi Ad-
olfs, Henry Birgir
Gunnarsson.
DOLLALAUST
HM 2010
n Svo virðist sem íþróttadeild RÚV
hafi hitt naglann á höfuðið með
ráðningu nýja starfsmannsins. Í
vikunni var gengið frá ráðningu
handknattleiksmannsins Einars
Arnar Jónssonar, Íslandsmeist-
ara með Haukum og fyrrverandi
atvinnu- og landsliðsmanns. Einar
hefur ekki enn hafið formlega störf
en aðstoðaði Adolf Inga Erlings-
son við lýsingu á landsleik Íslands
og Portúgal. Í beinni útsendingu var
sagt að Guðjón Valur Sigurðsson
væri með skilaboð til Einars Arnar
en þegar kom að því að
láta þau út úr sér hætti
hann snögglega við.
„Nei, ég kann ekki við
það. Það er betra að
segja þetta ekki í beinni
útsendingu,“ sagði Guð-
jón og hló dátt. Guðjón
og Einar þekkjast vel
úr landsliðinu frá
því á árum áður en
það gerist ekki oft
að landsliðsmenn
ávarpi aðstoðarlýs-
endur eftir leiki.
EINAR MINNIR Á SIG
Logi og félagar Þurfa að fara sparlega
með dagpeningana til að láta þá duga.
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík s: 522 4500
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
©
I
LV
A
Í
s
la
n
d
2
0
10
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík s: 522 4500 www.ILVA.is
laugardagur 10-18 sunnudagur 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
ILVA kaffi: laugardaga 10-17 sunnudaga 12-17 mánudaga-föstudaga 11-18
sendum um allt land
OG VIÐ MEINUM ÖLLUM
SÓFUM OG SÓFASETTUM!
20-60% AF ÖLLUM
SÓFUM OG SÓFASETTUM
16. OG 17. JANÚAR
BÆTUM VIÐ ÚTSÖLUNA
AÐEINS ÞESSA HELGI
Nýtt kortatímabil
Gulrótakaka 195,-
Frítt kaffi
alla helgina
kaffi
Bjóðum uppá
vaxtalaust
lán til 6 mánaða