Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Page 20
Margar í Kvenna-
athvarfið
Aðsókn var mikil í Kvennaathvarf-
ið á síðasta ári og einungis einu
sinni í 27 ára sögu athvarfsins
hafa verið skráðar fleiri komur.
Alls dvöldu 118 konur og 60 börn
í athvarfinu á árinu og veitt voru
tæplega 500 ráðgjafar- og stuðn-
ingsviðtöl við konur sem ekki
komu í dvöl. Það sem af er árinu
2010 hefur aðsókn í viðtöl enn
stóraukist. Alls fóru 40 prósent
dvalarkvenna aftur heim í sömu
aðstæður og þær komu úr en sá
hópur hefur sennilega aldrei ver-
ið jafnstór.
20 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 FRÉTTIR
Innri endurskoðun Reykjavíkurborg-
ar skoðar nú ráðstöfun styrkveitingu
borgarinnar til Golfklúbbs Reykjavík-
ur sem hefur síðustu þrjú ár þegið 210
milljónir króna frá Reykjavíkurborg til
framkvæmda. Klúbburinn hefur ekk-
ert framkvæmt í samræmi við ákvæði
samningins á árunum 2008 og 2009 en
fengið greitt samkvæmt honum. Sam-
kvæmt ársreikningi og skýrslu stjórnar
GR sem DV hefur undir höndum hef-
ur peningunum verið varið í að greiða
niður langtímaskuldir, kaupleigu-
samning vegna vélakaupa og yfirdrátt.
Fram kemur í skýrslu stjórnar GR að
með uppgreiðslu á langtímalánum
spari klúbburinn sér um 25 milljónir
króna í vaxtagreiðslur.
Umræddur samningur var gerður
í apríl 2006 þar sem Reykjavíkurborg
samþykkti að reiða fram 210 milljóna
króna styrk vegna framkvæmda GR
upp á 267 milljónir króna. Fram kemur
í ársreikningi að ráðist hafi verið í rétt
rúmlega helming af áætluðum fjár-
festingum en „klúbburinn hefur hins
vegar fengið greitt allt framlagið,“ eins
og segir í ársreikningi GR.
Borgaryfirvöld hafa óskað eft-
ir skýringum frá forsvarsmönnum
Golfklúbbs Reykjavíkur sem og inn-
an úr borgarkerfinu vegna málsins.
Komist innri endurskoðun borgar-
innar að þeirri niðurstöðu að fjár-
magni frá borginni hafi verið ráðstaf-
að í trássi við gerða samninga mun
koma til endurskoðunar borgaryfir-
valda á samningum um greiðslur til
golfklúbbsins.
Forsvarsmenn golfklúbbsins munu
á morgun funda með yfirvöldum til að
skýra mál sitt.
Skilanefnd Landsbankans leysti ný-
verið til sín allar eignir félagsins
Nordic Partners sem var áður í eigu
athafnamannsins Gísla Reynissonar
sem lést á síðasta ári. Skuldir Nord-
ic Partners við gamla Landsbankann
eru taldar nema um 100 milljörðum
íslenskra króna. Í samtali við DV seg-
ir Friðrik Jóhannsson, fyrrverandi
forstjóri Straums Burðaráss sem að-
stoðað hefur skilanefndina við fjár-
hagslega endurskipulagningu Nord-
ic Partners að Landsbankinn muni
tapa verulegum fjárhæðum á eign-
um félagsins. Hann vill þó ekki gefa
upp neinar fjárhæðir enda sé óljóst
hvað bankinn muni endanlega fá
fyrir eignir félagsins. Það sé þó ljóst
að tap Landsbankans nemi tugum
milljarða króna. Landsbankinn held-
ur áfram fimm Dornier-þotum og
þremur hótelum í Kaupmannahöfn
og þar á meðal hinu fræga Hotel
D‘Angleterre.
Leppur kaupir meirihlutann
Um eignir Nordic Partners í Eystra-
saltslöndunum og Póllandi hef-
ur verið stofnað sérstakt félag sem
fengið hefur nafnið NP Limited. Hef-
ur Daumants Vitols og stjórnenda-
teymi undir hans forystu eignast 51
prósent hlut í NP Limited. Daum-
ants Vitols starfaði áður sem fram-
kvæmdastjóri Nordic Partners í Lett-
landi og átti ellefu prósent í félaginu.
Í tilkynningu frá Landsbankanum
kom fram að afskiptum annarra fyrr-
verandi eigenda væri lokið. Er þar átt
við þá Bjarna Gunnarsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóra félagsins á
Íslandi og Jón Þór Hjaltason sem var
stjórnarformaður.
Enginn rekstrarmaður
Samkvæmt heimildum DV er Dau-
mants Vitols lítill rekstrarmaður og
segir heimildarmaður að útilok-
að sé að hann hafi getað reitt fram
þá fjármuni sem þurfti til að yfir-
taka félagið. Hann hafi ávallt starf-
að sem handbendi Gísla Reynis-
sonar og verið notaður í önnur verk
en þau sem tengdust fjárhagsleg-
um rekstri Nordic Partners. Gísli
og Dau mants Vitols kynntust árið
1995 og störfuðu saman eftir það.
Lögmaður Gísla í Lettlandi var
Marcis Mikelsons sem er þekktur í
Lettlandi fyrir að vera verjandi maf-
íuforingja. Talið er líklegt að Mikel-
son hafi átt einhvern þátt í yfirtök-
unni á 51 prósenta hlut í Nordic
Partners. Daumants Vitols lét ný-
verið hafa eftir sér í lettneskum fjöl-
miðlum að engar breytingar yrðu
gerðar á stjórn fyrirtækisins. Sagði
hann þau fyrirtæki sem hann yfir-
tók hafa velt um 16 milljörðum ís-
lenskra króna á síðasta ári.
Bjarni og Jón Þór
áfram við stjórn
Samkvæmt heimildum DV var
Bjarni Gunnarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Nordic Partn-
ers, staddur í Tékklandi fyrir stuttu
og mun hann hafa haft það á orði
að hann væri enn við stjórnvölinn
hjá Nordic Partners. Félagið keypti
stærsta matvælafyrirtæki Tékklands í
upphafi árs 2008 en það heitir Hamé.
Bjarni stjórnar því ennþá en Hamé
var ekki innan Nordic Partners og
var fjármagnað af tékkneskum bönk-
um. Jón Þór Hjaltason, fyrrverandi
stjórnarformaður, var nýverið í Lett-
landi og segir heimildarmaður DV
að svo virtist sem engar breytingar
hefðu verið gerðar á rekstri Nordic
Partners í Lettlandi. Friðrik Jóhanns-
son og Páll Benediktsson, upplýs-
ingafulltrúi skilanefndar Lands-
bankans neita því báðir að Jón Þór
Hjaltason komi enn að rekstri Nordic
Partners í Lettlandi.
Landsbankinn með
menn í stjórn
Friðrik Jóhannsson segir að hann
muni áfram fylgjast með rekstri
Nordic Partners ásamt Gunnari Páli
Tryggvasyni en hann starfaði áður
hjá Kaupþingi í Lundúnum. Þeir
muni sitja í stjórn félagsins. Þeir hafa
báðir unnið að endurskipulagn-
ingu Nordic Partners. „Verðið á þeim
hlutabréfum sem Daumants Vitols
kaupir er ekki hátt og félagið er áfram
töluvert mikið skuldsett,“ segir Frið-
rik. Að hans sögn er efnahagsástand-
ið í Lettlandi virkilega slæmt.
Lán með vitund eigenda
Landsbankans
DV sagði frá því síðasta sumar að
Landsbankinn hefði lánað Nord-
ic Partners 142 milljónir evra eða
rúmlega 25 milljarða íslenskra króna
miðað við núverandi gengi fyrir fast-
eignaverkefnum í Lettlandi. Lands-
bankinn ætti veð í þeim verkefnum
en verðmæti þeirra er talið allt að
40 sinnum lægra en lánin segja til
um. Samkvæmt heimildum DV var
Björg ólfi Thor Björgólfssyni kunnugt
um þessar leikfléttur hjá Gísla Reyn-
issyni. Ekki liggur þó ljóst fyrir hver
þóknun Björgólfs Thors var af þess-
um viðskiptum.
Land í Ríga Hér er dæmi af
landi í Ríga í Lettlandi sem
Nordic Partners veðsetti
hjá Landsbankanum fyrir
margfalt markaðsverðmæti.
Fallið veldi Ljóst er að Landsbankinn
þarf að afskrifa tugi milljarða króna
sem Gísla Reynisson og Nordic Partners
fengu lánað hjá Landsbankanum.
Landsbankinn þarf að afskrifa tugi milljarða króna vegna skulda félagsins Nordic Partners. Félagið skuldaði
Landsbankanum nærri 100 milljarða króna. Lettneskur stjórnandi fékk 51 prósenta hlut í félaginu NP Partners
sem fer með eignir í Eystrasaltslöndunum og Póllandi. Samkvæmt heimildum DV er hann leppur fyrir fyrrverandi
eigendur Nordic Partners sem eru sagðir fara áfram með stjórn félagsins. Landsbankinn neitar því.
LEPPUR YFIRTEKUR
NORDIC PARTNERS
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur fengið 210 milljónir króna frá Reykjavík til framkvæmda:
Styrkur notaður til að greiða skuldir
Kylfingar grynnka á skuldum
Peningum sem átti að verja
í framkvæmdir hjá GR virðist
hafa verið varið í að grynnka á
skuldum klúbbsins.
Daumants Vitols er lítill rekstrar-
maður og segir heimild-
armaður að útilokað sé
að hann hafi getað reitt
fram þá fjármuni sem
þurfti til að yfirtaka fé-
lagið.