Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 FRÉTTIR
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands,
rær nú að því öllum árum að kveða
niður orðróm um vandamál í ranni
hans og forsetafrúarinnar Cörlu
Bruni. Það kostulega í málinu er að í
þann mund sem orðrómurinn hafði
nánast hljóðnað tóku forsetinn og
ráðgjafar hans þá ákvörðun að benda
fingrum í allar áttir.
Ráðgjafar Sarkozys ýjuðu að al-
þjóðlegu samsæri sem miðaði að því
að koma franska ríkinu á hné, þeir
skelltu skuldinni einnig á Rachidu
Dati, fyrrverandi dómsmálaráðherra,
sem var í eina tíð í sérstöku uppáhaldi
hjá forsetanum en hefur nú verið sett
út af sakramentinu. Einnig hefur erki-
keppinautur Sarkozys, Dominique de
Villepin, fyrrverandi forsætisráðherra,
verið nefndur til sögunnar, og þess
hefur nú verið krafist að öryggislög-
reglan líti nánar á málið.
Forsaga málsins
Fyrir þá sem misstu af fyrstu þáttun-
um þá er forsagan í stuttu máli sú að
í janúar komst sú saga á kreik á sam-
skiptasíðunni Twitter og fleiri netsíð-
um að Carla Bruni og Nicolas Sarkozy
ættu hvort um sig í ástarsambönd-
um við þekkta einstaklinga. Einn-
ig var sagt að þau byggju ekki saman
en héldu til hjá þeim sem þau stæðu í
sambandi við.
Í fyrri mánuði ákvað ungur mað-
ur að teygja lopann á bloggsíðu sem
tengist frönsku dagblaði og eins og við
var að búast hentu bresk slúðurblöð,
og önnur, boltann á lofti og fjölluðu
um orðróminn.
Nú berast þær fregnir að Sark ozy
hafi þá verið verulega sár yfir orð-
rómnum, svo sár að hann blés til
gagnsóknar. Það sem Sarkozy senni-
lega gerði sér ekki grein fyrir og eng-
um datt í huga að upplýsa hann um,
var að hann varð fórnarlamb tveggja
öflugra miðla, netsins og slúðurblaða,
sem ekki láta sannleikann eyðileggja
góða sögu um völd, glans og gjálífi,
ekki síst ef um er að ræða útlendinga
sem sennilega höfða ekki mál.
Ekki í hefndarhug
Á miðvikudagskvöld reyndi Carla
Bruni að eyða fullyrðingum um að
hún og ektamaður hennar væru hel-
tekin af samsæriskenningum vegna
orðróms um ótryggð þeirra beggja í
hjónabandinu.
„Gagnvart mér og eiginmanni
mínum hefur þessi orðrómur enga
þýðingu. Það er satt að við vorum
fórnarlömb gróusagna og það var ekki
ánægjulegt, en þessar sögusagnir hafa
enga þýðingu fyrir okkur,“ sagði Carla.
Carla sagði ennfremur að þau bæru
engan hefndarhug í garð þeirra sem
ábyrgð bæru á orðrómnum og að þau
hefðu ekki fyrirskipað leyniþjónust-
unni að rannsaka upptök hans. Sú
fullyrðing gengur þvert á fullyrðingar
starfsfólks forsetaembættisins í fyrri
viku og staðfestingar frönsku leyni-
þjónustunnar, DCRI, á miðvikudag-
inn á því að leyniþjónustan hefði feng-
ið skipun um að komast að uppruna
sögusagnanna. Sögusagnir um ástar-
ævintýri forsetahjónanna utan hjóna-
bands fengu byr undir báða vængi fyrr
á árinu og samkvæmt þeim áttu bæði
Carla Bruni og Nicolas Sark ozy að eiga
í sambandi við þekkta samstarfsaðila.
Sem fyrr segir hefur Sarkozy senni-
lega skotið sjálfan sig í fótinn með
gagnárásinni nú því franskir fjöl-
miðlar höfðu að mestu leyti hundsað
sögusagnirnar.
Veldur áhyggjum
meðal bandamanna
Sem fyrr segir hefur Rachida Dati ver-
ið bendluð við að hafa komið kviksög-
unum af stað en hún hefur staðfastlega
neitað þeim ásökunum. „Orðrómur,
rógburður og slúður um einkalíf eru
algjörlega ótæk og hneykslanleg. [...]
Það er bara hneyksli að ég hafi verið
bendluð við þetta beint,“ sagði Dati í
útvarpsviðtali.
Undanfarna daga hefur Rachida
Dati verið sökuð af ráðgjöfum forset-
ans um að eiga sinn þátt í samsæri
um að ata Nicolas Sarkozy auri. Vin-
ur forsetans og aðstoðarmaður, Pierre
Charon, mun hafa fullyrt að starfsfólk
forsetaembættisins hafi undir hönd-
um sannanir fyrir aðild Rachidu, og
hefur hún hótað meiðyrðamálsókn.
Á miðvikudaginn blandaði starfs-
mannastjóri forsetaembættisins
Claude Guéant sér í umræðuna um
þátttöku Rachidu Dati og sagði að
„forseti lýðveldisins vildi ekki berja
Rachidu Dati augum framar“.
Nú er svo komið að sumir banda-
menn Sarkozys hafa áhyggjur af því
að ríkisstjórnin sé að gera úlfalda úr
mýflugu og sagði talsmaður ríkis-
stjórnarinnar Luc Chatel, sem einnig
er menntamálaráðherra, að ummæli
Pierres Charon hafi verið ótímabær.
Yves Censi, þingmaður Sarkozys,
sagði að önnur áhyggjuefni hvíldu á
Frökkum. „Stjórnmálaleiðtogar gerðu
betur í því að vekja máls á einhverju
öðru en því sem er algjör vitleysa,“
sagði Yves.
Er í vígahug
Hvað sem áhyggjum Lucs Chatel
og Yves Censi líður er ljóst að Pi erre
Charon er í vígahug og hefur farið
mikinn undanfarna daga. „Við lýsum
yfir stríði á hendur þessum svívirði-
legu sögusögnum. Við munum ganga
eins langt og við getum til að tryggja
að svona eigi sér ekki stað aftur. Við
viljum að þeir sem reyndu að breiða
út ótta finni sjálfir til ótta,“ sagði Char-
on, en að hans mati leikur grunur á að
upprunann megi að einhverju leyti
rekja út fyrir landsteina Frakklands
því bæði þýskir og breskir fjölmiðlar
fjölluðu um meint hjúskaparbrot for-
setahjónanna. Að sögn Charons er
ætlunin að grafa undan Sarkozy nú
þegar líður að því að hann taki við for-
mennsku í G20-hópnum á næsta ári.
Lögfræðingur Sarkozys, Thierry
Herzog, er álíka ómyrkur í máli og
Charon og segir að einstaklingar eða
skipulögð leynisamtök vinni að því að
„veikja stöðu“ forsetahjónanna.
Þáttur Cörlu Bruni
Eins og komið hefur fram voru um-
mæli Cörlu Bruni í útvarpsviðtali í
hrópandi mótsögn við bæði fullyrð-
ingar frá starfsmannaskrifstofu forset-
ans og frönsku leyniþjónustunni. Hún
bætti um betur í viðtali við frönsku
útvarpsstöðina Europe1 þegar hún
vísaði á bug þeim fullyrðingum ráð-
gjafa forsetans að forsetinn væri jafn-
vel fórnarlamb samsæris um að veikja
stöðu hans í embætti.
Þvert á það sem einkennt hefur
undanfarna daga sagði Carla að það
„væri ekkert samsæri, engar hefnd-
araðgerðir“ í gangi, og að þetta snerti
þau hjónin ekki. „Við höfum snúið
okkur að öðrum málum,“ sagði Carla.
Einnig bar hún blak af Pierre Char-
on og sagði hann hafa tjáð sig um
málið sem vinur hjónanna og að hann
hafi gleymt sér. „Hann tók þetta nærri
sér – í meira mæli en við gerðum. [...]
Hann vildi verja okkur og gekk helst til
langt,“ sagði Carla í viðtalinu.
Einnig lýsti Carla því yfir í viðtalinu
á Europe að hún legði ekki trúnað á
þær fullyrðingar að Rachida Dati ætti
hlut að máli: „Ásakanirnar sem urðu
að sögusögn eru sögusagnir. Því legg
ég ekki trúnað á þær.“
Sápuópera Sarkozys
Vinsældir Nicolas Sarkozy eru nú
í sögulegu lágmarki og kveður svo
rammt að að hann stendur jafnvel
frammi fyrir mótþróa í eigin herbúð-
um. Stjórnmálaskýrendur ýjuðu að
því fyrir inngrip forsetafrúarinnar
að Sarkozy hafi komist að þeirri nið-
urstöðu að með því að kynda undir
samsæriskenningum í tengslum við
orðróm sem nánast var farið að slá í
fengi hann stöðu fórnarlambs og tæk-
ist jafnvel að þétta raðirnar.
Samsæriskenningarnar hafa ekki
eingöngu fengið háðulega útreið í
erlendum fjölmiðlum heldur einn-
ig bjargað deginum hjá stjórnarand-
stöðunni, sem segir að málið hafi
aðeins styrkt „Sarko-sápuóperu“-
ímyndina sem hafi einkennt „revíu“-
forsetatíð hans.
François Hollande, fyrrverandi
formaður Sósíalistaflokksins, sagði að
nú ríkti sjaldgæfur andi sundrungar í
frönskum stjórnmálum, það væri for-
setans að binda endi á það. „Hvernig
gátum við lagst svona lágt,“ sagði Holl-
ende.
Við lýsum yfir stríði á hendur þessum sví-virðilegu sögusögnum. Við munum ganga
eins langt og við getum til að tryggja að svona eigi
sér ekki stað aftur. Við viljum að þeir sem reyndu
að breiða út ótta finni sjálfir til ótta.
Nicolas Sarkozy hefur tekist að blása lífi í nánast kulnaðar glæður orðróms um hjú-
skaparbrot hans og forsetafrúarinnar Cörlu Bruni. Ráðgjafar hans hafa blásið til gagn-
sóknar gegn þeim sem ábyrgð bera á sögusögnunum sem fengu vængi fyrr á árinu.
Til sögunnar eru nefndir fyrrverandi dómsmálaráðherra Frakklands og óþekktir ein-
staklingar sem hyggja á samsæri um að veikja stöðu Frakklandsforseta. Stjórnarand-
staðan segir málið „sápuóperu“ Sarkozys.
SARKOZY OG „SÁPUÓPERAN“
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Rachida Dati Fyrrverandi dómsmálaráðherra hefur fallið í ónáð hjá Frakklandsforseta. MYND AFP