Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Qupperneq 34
neyslunnar. „Einstöku sinnum hugsa ég með mér að það væri gaman að fá sér eitt rauðvínsglas en ég loka strax á það. Ég veit að það yrði aldrei eitt glas, ég get ekki drukkið eins og ann- að fólk. Ég er búinn að vera edrú vel á sjötta ár og fjarlægðin gerir sukk- ið lítið eftirsóknarvert. Þá sjaldan sem ég fer niður í bæ iða ég ekkert í skinninu að vera í sama ástandi og fólkið þar og veit fátt aulalegra en lið sem slefar drafandi upp í eyrun á gubbandi fólki. Ég var á þessum stað en langar ekki þangað aftur. Ég er líka orðinn fertugur og allar hug- myndir um djamm heilla mig ekki lengur. Maður verður þó alltaf að vera á varðbergi og ég þekki fólk sem hefur fallið nánast fyrirvaralaust eft- ir margra ára edrúmennsku og far- ið illa út úr því. Þótt þú sért í góðum málum í dag er ekki þar með sagt að þú verðir í góðum málum á morgun.“ HATAÐI EUROVISION Sigmar hefur fjórum sinnum ver- ið þulur Evrovision-keppninnar og viðurkennir að gömlu félagarnir úr rokkinu hafi líklega gert grín að honum þegar hann tók starfið að sér. „Ég hugsa að þeir séu enn að hlæja. Í minni kreðsu á þeim tíma var Eurovision lægsti samnefn- ari þess smekklausasta sem fyrir- finnst á jörðinni. Á X-inu spiluð- um við stundum Eurovision-lög en það var bara í vondulagakeppni. Á X-inu var það nánast lífsstefna okk- ar að hatast út í þessa keppni og í rauninni alla aðra tónlist en þá sem við spiluðum. Sjálfur hefði ég aldrei trúað að ég ætti eftir að lýsa þess- ari keppni en raunin er sú að þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Ég hlusta enn á rokk og það verður bara harðara með árun- um en ég fíla líka Eurovision enda orðin alæta á tónlist. Kúnstin er sú að horfa á þetta sem skemmtun en ekki sem alvarlegan tónlistar- viðburð því stór hluti af tónlistinni þarna er krapp, það viðurkenna all- ir. En oft er krappið svo fáránlega framreitt að það verður yfirgengi- lega skemmtilegt. Eða býr til aula- hroll sem hríslast niður eftir bakinu og hver hefur ekki gaman af góðum aulahrolli? En svo er þarna líka frá- bær tónlist inni á milli og ég fagna því sérstaklega að það hafa verið fínustu rokklög í keppninni und- anfarin ár. En heilt yfir hlýtur þetta Eurovision-dæmi hjá mér að vera til marks um ákveðinn þroska; að ná sátt við það sem þú hatar og á endanum fíla það.“ VARÐ PABBI 18 ÁRA Fjölskylda Sigmars er flókin en hann á fjögur börn. Hann segist vinna myrkranna á milli virka daga en nota helgarnar til að vera með börnunum. „Þessa stundina er ég þessi týpíski helgarpabbi og föðurhlutverkið gef- ur mér mjög mikið,“ segir Sigmar sem var aðeins 18 ára þegar hann varð faðir í fyrsta skiptið. „Elsta stelpan mín heitir Kristín Alma og er 22 ára. Mér fannst ég tilbúinn að verða pabbi þegar hún fæddist en ég hlæ að því í dag. Ég var bara barn að eignast barn og barnsmóðir mín var á svipuðu reki. Við höfðum mikið af góðu fólki í kringum okkur og þetta blessaðist allt saman,“ segir hann og bætir við að þau Kristín Alma séu í góðu sam- bandi. „Hún bjó í Danmörku í nokkur ár en býr núna í Grundarfirði og því sé ég hana ekki eins oft og ég vildi. Hún er þó dugleg að koma í höfuðborgina auk þess sem ég fer stundum vest- ur í heimsókn,“ segir hann og segist aðspurður ekki vera orðinn afi. „Ekki nema við flokkum hundinn hennar sem barnabarn,“ segir hann og brosir. FLÓKIN EN VEL SAMSETT FJÖLSKYLDA Fyrrverandi sambýliskona Sigmars, Birna Bragadóttir, kom með son úr fyrra sambandi inn í þeirra samband. Hann heitir Sindri og er á 15. ári og þeir Sigmar hafa haldið góðu sam- bandi eftir að upp úr sambandi hans og Birnu slitnaði. Með Birnu á Sig- mar dótturina Sölku sem er nýorðin sjö ára. Í dag er Birna gift Sigurði Kára Kristjánssyni, fyrrverandi alþingis- manni, sem er því fósturfaðir Sölku. Sigmar segir þá Sigurð Kára eiga í góðu sambandi. „Við erum að ala upp sömu börnin og tölum því talsvert saman og erum ágætis vinir. Við erum samstiga í uppeldinu og á milli okkar er enginn metingur eins og stundum vill verða við svona aðstæður. Siggi hefur reynst mínum börnum einstak- lega vel og þau sjá ekki sólina fyrir honum svo þetta hefur gengið prýði- lega. Reyndar er ég svo heppinn að í kringum mín börn er bara eðalfólk, hvort sem þar er um að ræða barns- mæður, fósturpabba eða aðrar kynja- verur. Samsettar fjölskyldur þurfa ekki að vera meira vandamál en fólk ákveður sjálft.“ SAKNAR HENNAR GRÍÐARLEGA Þegar Sigmar og Þóra Tómasdóttir, fyrrverandi umsjónarmaður Kast- ljóss, byrjuðu saman var Þóra ófrísk, komin þrjá mánuði á leið. Þóra og Sigmar skildu upp úr áramótum en Þóra var ein af þeim sem var látin taka poka sinn í niðurskurðinum á RÚV og hefur nú flutt með dóttur- ina, Kötlu, til Noregs. „Ég er búinn að vera pabbi Kötlu síðan hún fæddist en nú skilja leiðir og það er mjög erf- itt. Ég sakna hennar gríðarlega. Hún var mjög stór hluti af lífi mínu en nú heyri ég bara í henni í síma og sé hana á Skype. Eins er þetta erfitt fyrir Kötlu og svo Sölku, því þær systurnar eru miklar vinkonur og því eru þetta eðlilega miklar breytingar fyrir þær.“ Fréttir af skilnaði þeirra Þóru birt- ust á síðum slúðurblaða en Sigmar tekur ekki undir þá fullyrðingu að þau hafi skilið fyrir framan alþjóð. „Ég er ósammála þeim sem telja að fjölmiðlar geti fjallað um mitt einka- líf án míns samþykkis. Einkalíf er mjög gegnsætt orð. Í orðinu liggur að ég á sjálfur mitt einkalíf. Ég er sá eini sem getur ráðstafað því og sam- þykkt opinbera birtingu á því eins og ég geri til dæmis í þessu viðtali. Þess vegna heitir það einkalíf. Eins og hálf þjóðin veit er erfitt að ganga í gegn- um skilnað og það er ekkert erfiðara fyrir mig en aðra þótt ég flokkist sem opinber persóna.“ SKAPSTÓR OG ÞVER Sigmar vill lítið tjá sig um ástæður skilnaðarins við Þóru. Segir þó að það samband hafi bera verið komið á endastöð og að þau hafi skilið sátt og sem vinir. „Á milli okkar er góð vin- átta enda kom ekkert sérstakt upp á í sambandi okkar sem var endapunkt- urinn. Við bara ákváðum að þetta væri orðið gott og tókum þá ákvörð- un saman. Á diplómatísku máli myndi einhver segja að við höfum þroskast í sundur en ég myndi frek- ar orða það þannig að við höfum ekki náð að þroskast nægjanlega saman. En þetta var óhjákvæmilegt, framtíð Þóru og Kötlu er í Noregi á næstunni á meðan mín framtíð er hér heima á Íslandi. En á milli okkar er gott og við heyrumst reglulega. Svona er bara lífið og það heldur áfram.“ Hann viðurkennir hins vegar að samband hans við Birnu hafi farið í hundana vegna drykkju og neyslu. „Ég trúi ekki á eftirsjá og þótt margt af þessu sem maður gekk í gegnum hafi verið erfitt, sárt og sumt ljótt er þetta partur af þroskasögu minni. Svona reynsla þroskar mann og gef- ur mér, eftir á að hyggja, verðmæta sýn á lífið. Það er kannski auðvelt að segja þetta eftir á, því á meðan á erfiðleikunum stóð vildi maður svo sannarlega breyta öllu. En í dag vil ég ekki breyta neinu,“ segir hann og bætir við að tíminn hafi hjálpað hon- um að sættast við fortíðina. Með tvo skilnaði að baki liggur beinast við að spyrja hvort hann sé svona erfiður í sambúð? „Örugglega. Nema ég sé svona óheppinn með konur, ég veit það ekki,“ segir Sigmar og brosir en bætir við að hann sé langt frá því að vera gallalaus mað- ur. „Ég er skapstór og þver og mætti örugglega vera diplómatískari á stundum. En einhverjum kostum er ég vafalítið líka gæddur. Annars get ég ómögulega tekið undir að ég sé erfiður í sambúð, mér gengur í það minnsta frábærlega að búa einn með sjálfum mér,“ segir hann brosandi. MANNLEG VIÐTÖL ERFIÐUST Sigmar hefur tekið mörg viðtöl í Kast- ljósinu og eru viðmælendurnir afar fjölbreyttur hópur. „Eitt erfiðasta við- tal sem ég hef tekið, og jafnframt eitt það eftirminnilegasta, var viðtalið við Thelmu Ásdísardóttur, þegar hún steig fram og sagði sína sögu. Eins er minnsstætt viðtalið við Geir Þórisson, íslenskan fanga sem situr inni í Virgin- íu í Bandaríkjunum og afplánar 20 ára dóm fyrir líkamsárás og þjófnað. Það var ótrúleg reynsla að labba í gegn- um þetta rammgerða öryggisfangelsi, í gegnum mörg hlið og vopnaleit. Um- hverfið var niðurdrepandi og ömur- legt og setti einhvern einkennilegan tón fyrir þetta viðtal. Ég sat hjá honum í tvo tíma og hann grét allan tímann. Hjá honum fór eitt fyllerí úrskeið- is með hörmulegum afleiðingum því hann þarf að sitja inni í að minnsta kosti 18 ár fyrir brot sem hann hefði fengið fjögur ár fyrir hérna heima. Þetta var í fyrsta sinn sem íslensk- ur fjölmiðill fjallaði um mál hans og voru viðbrögðin svolítið önnur en ég átti von á því margir höfðu samband og sögðu að það ætti ekki að taka við- töl við svona menn, heldur læsa inni og henda lyklinum. Þarna upplifði ég sterkt hvað refsigleðin er í raun mikil á meðal Íslendinga,“ segir hann og bæt- ir við að það renni ekki upp sá dagur að hann hugsi ekki til mannsins. Eins hafi hann tekið viðtal við hetjuna Ástu Lovísu sem lést frá börnum sínum eftir erfiða baráttu við krabbamein. „Þetta eru viðtöl sem taka miklu meira á en einhver viðtöl við stjórnmála- menn eða útrásarvíkinga um krónur og aura,“ útskýrir hann og bætir við að hann taki því miður vinnuna með sér heim á kvöldin. „Ég næ ekki alltaf að kúpla mig út og hugsa mikið um viðmælendur mína og viðfangsefnin hverju sinni. Hins vegar reyni ég að nota fríin mín til að hreinsa hugann og sleppi þá yfirleitt öllum fréttum. Ann- ars er hætta á að maður brenni út.“ Í DRAUMASTARFINU Sigmar segist ekki eiga sér drauma- umfjöllunarefni. „Í blaðamennsku þarf maður að temja sér að um- gangast alla jafnt og bera jafnmikla virðingu fyrir öllum, hvort sem um smærri eða stærri mál er að ræða. Ólíkt mörgum kollegum mínum þrái ég ekki að fara út í lönd til að segja fréttir af stríðsátökum því ég hef lít- inn áhuga á að hætta lífinu fyrir vinn- una. Í rauninni er ég í draumastarf- inu mínu. Ég hef alltaf haft áhuga á að vinna á fjölmiðlum og hef haft það að markmiði síðan ég var ungur drengur að vinna í svona þætti, eða einhverju sambærilegu. Vissulega er þetta mikil áskorun í þessu árferði en ég ætla að gera mitt besta.“ indiana@dv.is 34 FÖSTUDAGUR 9. apríl 2010 VIÐTAL Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17 Ókeypis námskeið og ráðgjöf Mánudagur 12. apríl Miðvikudagur 14. apríl Fimmtudagur 15. apríl Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir fólki að a a, varð- veita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00. Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 13.00 -14.00. Íslenskuhópur - Hefur þú lært íslensku en þarft að æfa þig í að tala? Tími: 13.00 -14.00. Prjónahópur - Komdu og prjónaðu. Tími: 13.00 -15.00. Vinnum saman - Ný viðhorf (Bý‡ugurnar) - Vertu með í skapandi hópi atvinnuleitenda. Tími: 14.00-16.00 Skiptifatamarkaður - Barnaföt - Tími: 16.00 -18.00. Fyrir utan rammann - Helena Kristinsdóttir, framleiðandi leiðbeinir í leiklistar- og framkomuþjálfun þar sem farið er ofan í þæginda- og vitundarramma hvers og eins og hvern- ig má stíga út fyrir hann. Fyrri hluti. Skráning nauðsynleg. Tími: 9:00 -12.00. Fluguhnýtingahópur - Komdu með ‡uguhnýtingastand ef þú getur. Tími: 12.00-13.30. Saumasmiðjan - Breytt og bætt. Tími: 13.00-15.00. Þýskuhópur - Æfðu þig í að tala þýsku. Tími: 14.00-14.45. Spænskuhópur - Við æfum okkur í að tala saman á spænsku um mat. Tími: 15:00 -15.45. Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00. Fyrir utan rammann - Seinni hluti. Tími: 9.00-12.00. Félagsvinir - Sjálfboðaliðar óskast í skemmtilegt verkefni með konum og börnum af erlendum uppruna. Tími: 12:30-13:00. Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 12.30 -13.30. Hvernig stöndumst við álag - Hvað fær okkur til að pirrast og reiðast y“r smámunum? Tími: 13.30 -15.00 Hláturjóga - Viltu losa um spennu? Tími: 15.30-16.30. Föstudagur 16. apríl Allir velkomnir! Þriðjudagur 13. apríl Rauðakrosshúsið Líðan atvinnuleitenda - Umræður og vinnuhópar. Tími: 12.30-13.30. Tölvuaðstoð - Persónuleg aðstoð. Komdu með fartölvu ef þú getur. Tími: 13.30-15.30. Áhugasviðsgreining - Könnun og fagleg ráðgjöf. Skráning nauðsynleg. Tími: 14.00 -16.00. Ráðgjöf fyrir inn‡ytjendur - Sérsniðin lögfræðiráð- gjöf og stuðningur við inn ytjendur. Tími: 14.00 -16.00. Briddsklúbbur - Hefur þú gaman af bridds? Langar þig að læra bridds? Tími: 14.00-16.00. Föst dagskrá og spennandi nýjungar LOKAÐ! Námskeiðið Barnið komið heim verður á næstu vikum haldið í Rauðakrosshúsinu, á Akureyri, Akranesi og Selfossi. Upplýsingar og skráning í síma 570 4000. Viltu fá meira fyrir þinn snúð? - Silja Bára Ómarsdóttir, kennir hvernig samningatækni getur hjálpað þér að fá meira út úr lí“nu, hvort sem er í hversdagslí“nu eða stórum ákvörðunum. Fyrri hluti. Tími: 15.30-16.30. Hún var mjög stór hluti af lífi mínu en nú heyri ég bara í henni í síma og sé hana á Skype. Rokkari Sigmar hóf sinn fjölmiðlaferil á rokkstöðinni X-inu en segir þann tíma hafa einkennst af sukki og neyslu. MYND KARL PETERSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.