Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2010, Blaðsíða 53
HELGARBLAÐ 9. apríl 2010 MIÐVIKUDAGUR 53
ENGIR ATVINNU-
HNEFALEIKAR
n Það tók langan tíma og mikið
japl, jaml og fuður að fá ólympíska
hnefaleika leyfða á Íslandi. Gífurlegur
áhugi er fyrir íþróttinni hér heima
en frumvarp þess efnis þurfti að fara
oft í gegnum Alþingi áður en það
var samþykkt. Atvinnuhnefaleikar
eru þó enn bannaðir og engin plön
um að leyfa þá. Aðeins má berjast á
opinberum mótum, skipulögðum af
íþróttafélögum og allir verða að vera
með hjálm.
EKKI MÁ AKA Í DAGSBIRTU ÁN
ÞESS AÐ HAFA LJÓSIN KVEIKT
n Sama þótt birtan úti sé meiri en á sólinni er ólöglegt að hafa ljós bíla og annarra
vélknúinna ökutækja slökkt við akstur. Þessi lög hafa verið í gildi í á annan áratug
og voru þeir margir sem sótbölvuðu þeim framan af. Ólíklegt er þó að margir
agnúist út í þau núna í ljósi þess að gildi almennrar ljósanotkunar hefur sannað
sig sem sterkt vopn í baráttunni fyrir fækkun umferðarslysa.
MÁTT EKKI
KAUPA VÆNDI
n Alþingi samþykkti frumvarp í apríl í fyrra sem gerir það refsivert að greiða fyrir
vændi. Sá sem er staðinn að slíku má eiga von á sekt eða fangelsi í allt að einu ári.
Íslendingar urðu þar með þriðja þjóðin til að fara þessa svokölluðu sænsku leið, á
eftir Norðmönnum og að sjálfsögðu Svíum.
á Íslandi
BANNA RÚNTINN
n Samkvæmt frumvarpsdrögum samgönguráðherra sem send hafa verið til
samgöngunefndar Alþingis verður ökumönnum yngri en 20 ára bannað að vera
með fleiri en einn farþega í bíl frá klukkan 23.00 til 09.00 á föstudögum og laug-
ardögum. Þetta er partur af frumvarpi sem mun einnig hækka bílprófsaldurinn í
18 ár. Verði þetta ákvæði samþykkt er verið að gera harða atlögu að „rúntinum“
svokallaða sem íslensk ungmenni hafa stundað af miklu kappi um áratugaskeið.
NEKTARDANS
BANNAÐUR
n Smátt og smátt hefur verið þrengt að
starfsemi nektardansstaða undanfarin ár og
er nú svo komið að það er bannað að dansa
nektardans með öllu. Fyrst var bannað að
dansa nektardans í lokuðu rými en í síðasta
mánuði var dansinn svo bannaður með öllu
samkvæmt lögum. Helstu rökin fyrir því hafa
verið tengsl slíkra staða við mansal þó aldrei
hafi verið sýnt fram á slík tengsl hér á landi.
HRAÐATAKMARKANIR
n Um áramót 2007 tók gildi reglugerð sem fól í sér að nýir vörubílar yfir 3.500
kílóum þurftu hraðatakmarkara til að fást skráðir hér á landi. Hraðatakmarkari
virkar þannig að bíllinn kemst ekki yfir ákveðinn hraða og var miðað við 90
kílómetra hámarkshraða. Flestir stóru amerísku pallpílarnir falla í þann flokk
sem hefur dregið verulega úr áhuga manna á þeim.
YNGRI EN 18
MEGA EKKI
FARA Í LJÓS
n Það er staðreynd að útfjólubláir
geislar valdi sortuæxlum og öðrum
húðkrabbameinum en Alþjóðleg
stofnun í krabbameinsfræðum
hefur rannsakað það í þaula. Hér á
Íslandi er mikil ljósabekkjanotkun
og stöðugt fleiri greinast með
húðkrabbamein. Nú er búið að
leggja fram frumvarp til Alþingis um
að börnum og ungmennum undir
18 ára verði bannað að fara í ljós. Ef
það verður samþykkt verður Ísland
fyrst Noðurlanda til að innleiða slíkar
reglur.
MÝTAN UM LYF
n Flestir kannast við það að fá
ekki góða lyfið sem menn gátu
keypt erlendis. Flestir halda að
lyfin séu bönnuð hér á landi en
það er algengur misskilningur. Það
hefur enginn sótt um að selja þessi
vinsælu erlendu lyf því markaðurinn
hér er svo lítill. Öll lyf þurfa að fá
markaðsleyfi og það er fullt af lyfjum
sem eru algeng erlendis en fást ekki
hér vegna þess að enginn hefur sýnt
áhuga á að flytja þau til landsins,
borga leyfisgjaldið og fara í gegnum
skriffinnskuna sem því fylgir. Lyf eru
ekki öll bönnuð þótt þau fáist ekki
hér á landi. Sömu lyfjalög gilda hér á
landi og á Schengen-svæðinu.
EKKI MÁ
KAUPA ÁFENGI
FYRIR TVÍTUGT
n Lengi hafa verið skiptar skoðanir um hvort
áfengiskaupaaldurinn hér á landi, 20 ár, sé of
hár. Þeir sem eru fylgjandi því aldurstakmarki
benda meðal annars á að þrátt fyrir það sé
unglingadrykkja vandamál hér á landi og
því engin ástæða til tilslökunar. Hinir hafa
bent á fáránleikann í aldurstakmarkinu í
samhengi við til dæmis hjúskaparlögin
sem leyfa 18 ára einstaklingum og eldri að
ganga í hjónaband. Það má því ímynda
sér ungan mann, í nokkuð ýktu dæmi
þó, sem er ábyrgur, tveggja barna faðir, á
eigin íbúð og bíl, en í brúðkaupsveislunni
sinni má hann ekki fá sér freyðivín eða
aðra áfenga drykki.