Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2010, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 16. apríl 2010 FRÉTTIR
NÁHIRÐ GEGN
SANNLEIKSNEFND
n Flótti þeirra sem fá þyngstar um-
sagnir í Sannleiksskýrslu Páls Hreins-
sonar stendur nú sem hæst. Hver um
annan þver-
an lýsa þeir yfir
sakleysi sínu og
reyna þannig að
þvo ímynd sína.
Stuðningsmenn
þrjótanna eru
einnig duglegir.
Sérstaklega á það
við um sértrú-
arhópinn í kringum Davíð Odds-
son, ritstjóra Morgunblaðsins, sem
á tyllidögum nefnist náhirð. Nýjasta
upphlaupið á þeim bænum er að ýja
að því að rannsaka þurfi Pál Hreins-
son, formann nefndarinnar, og félaga
hans vegna þeirrar vanrækslu að
skila ekki skýrslunni á réttum tíma.
HÁPÓLITÍSK AÐFÖR
n Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi
ritstjóri Moggans, fær útreið í skýrslu
sannleiksnefndarinnar þar sem fjall-
að er um skuldamál hans. Ritstjórinn
skuldar langt á
annað hundrað
milljónir króna.
Öfl innan Sjálf-
stæðisflokksins
nýttu sér þetta
í tilraun til að
láta hann hlýða.
Styrmir skrifaði
mikla varnar-
grein í Moggann þar sem hann við-
urkennir skuldir sínar. Hann gefur
þá skemmtilegu skýringu á þeim að
þær séu tilkomnar vegna misgengis
lánskjaravísitölu og launavísitölu. Þá
kennir hann fjölmiðlum um að reyna
að bregða fyrir sig fæti með umfjöll-
un þótt fyrir liggi að aðförin að Styrmi
var hápólitísk.
GERVIMENNIRNIR
HALDA ÁFRAM
n Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis hefur vakið nokkra athygli
hversu umsvifamiklir „gervimenn í
útlöndum“ hafa verið í íslensku við-
skiptalífi á liðn-
um árum. Þannig
átti „gervimaður
í útlöndum“ til
dæmis helm-
ingshlut í fjöl-
miðlaveldi Jóns
Ásgeirs Jóhann-
essonar, 365, árið
2008. Svo virðist
hins vegar sem
tími gervimannanna sé enn ekki lið-
inn í viðskiptalífinu því leynd hvílir
yfir raunverulegu eignarhaldi á 365
eftir nýlega hlutafjáraukningu félags-
ins. Þeir sem nefndir hafa verið til
sögunnar sem þátttakendur í aukn-
ingunni eru hins vegar menn eins
og Hannes Smárason, Þorsteinn M.
Jónsson, Þórður Már Jóhannesson
og Magnús Ármann en ekkert hefur
fengist staðfest í þeim efnum.
AÐSTOÐARMAÐUR
BJÖRGÓLFS
n Gunnar Andersen, forstjóri Fjár-
málaeftirlitsins, var til umfjöllun-
ar á forsíðu Morgunblaðsins í gær
vegna nærri tíu
ára gamals máls
sem fjallað er um
í skýrslu rann-
sóknarnefndar-
innar. Það snýst
um fléttu Kaup-
þings til að fela
fjármögnun á
eigin bréfum með
milligöngu eignarhaldsfélagsins LB
Holding. Gunnar var stjórnarmaður
í félaginu sem starfsmaður Lands-
bankans en sagðist ekki muna eftir
málinu sem ekki kemur sér vel fyrir
hann. Ívari Páli Jónssyni, ritstjóra
viðskiptafrétta Moggans, hefur ör-
ugglega ekki þótt leiðinlegt að birta
fréttina á forsíðu en hann var áður
starfsmaður Björgólfsfeðga sem að-
stoðarmaður Ásgeirs Friðgeirssonar.
Illindin á milli Gunnars og Björgólfs
eldri ná aftur á níunda áratuginn
þegar Gunnar bar vitni í Hafskips-
málinu gegn Björgólfi.
SANDKORN Alterna er nýjasta íslenska farsímafélagið. Fyrirtækið segir háu mínútuverði stríð
á hendur og býður lægsta verð á landinu. Alterna er eina farsímafélagið sem ekki er,
eða hefur verið, í eigu útrásarvíkinga. Róbert Bragason framkvæmdastjóri segir að
fyrirtækið leggi áherslu á einfalda verðskrá og lágt verð.
FARSÍMAFÉLAG ÁN
ÚTRÁSARVÍKINGA
„Eigendur Alterna eru IMC Worldcell
en það fyrirtæki er í eigu Bandaríkja-
manna,“ segir Róbert Bragason, fram-
kvæmdastjóri fjarskiptafyrirtækisins
Alterna.
Eins og sjónvarpsáhorfendur hafa
eflaust tekið eftir hefur fyrirtækið nú
hafið innreið á farsímamarkað. Mark-
mið félagsins er að bjóða þjónustu á
skiljanlegum verðum svo fólkið í land-
inu geti talað saman, að því er segir á
alterna.is.
Ekki í eigu útrásarvíkinga
Róbert vísar á heimasíðu IMC
Worldcell þegar hann er spurður að
því hverjir eigi móðurfélagið. Þar kem-
ur fram að fyrirtækið er í eigu Banda-
ríkjamannsins Blake Swensrud en á
heimasíðunni stendur að hann hafi
unnið í fjarskiptaheiminum í meira en
16 ár og hefur starfað með mörgum af
helstu fjarskiptafélögum í heimi.
Allt lítur því út fyrir að Alterna, sem
dregur nafn sitt af enska orðinu altern-
itive, eða valkostur, sé ekki á nokkurn
hátt tengt útrásarvíkingum, eins og
lengst af gilti um önnur símafélög.
Þannig er Síminn í eigu Skipta
sem aftur er í eigu Exista. Það fé-
lag var lengst af í eigu Ágústs og Lýðs
Guðmundssonar en eignarhald á Ex-
istu er í lausu lofti um þessar mundir.
Voda fone og Tal eru í eigu Teymis sem
Vestia, eignarhaldsfélag Landsbank-
ans, á. Þar sem ríkið á stóran hlut í
Landsbankanum eru fyrirtækin tækni-
lega í eigu ríksisins. Félögin voru áður í
eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Loks
er Nova í eigu Novator ehf., félags í
eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar.
Fæstir hafa heyrt um IMC
IMC Ísland hefur verið með starfsemi
á Íslandi frá árinu 2000. „IMC Ísland er
eins konar bakendi á þeirri þjónustu
sem World Cell er að selja en þjón-
ustan þó fyrst og fremst verið seld er-
lendis. Þetta er svona reikiþjónusta.
Ef þú ert til dæmis Bandaríkjamaður
sem ferðast mikið erlendis ertu hugs-
anlega með símkort frá Worldcell. Fé-
lagið hefur starfað samkvæmt leyfi frá
Póst- og fjarskiptastofnun,“ segir hann
og bætir við að IMC sé líklega eina far-
símafélagið á Íslandi sem fæstir hafa
heyrt um. „Við sjáum núna tækifæri á
því að koma inn á farsímamarkað á Ís-
landi af fullum krafti og Alterna er nýtt
fyrirtæki fyrir þá starfsemi,“ útskýrir
Róbert. Hann segir að samkeppnisað-
ilar á markaði séu margir hverjir skuld-
settir og því telji þeir sem standa að
Alterna að svigrúm sé til að fara í verð-
samkeppni.
Alterna segir í tilkynningu að félag-
ið ætli að vera með lægsta mínútuverð
á landinu, hvort sem hringt er í far-
síma eða heimasíma. Allir viðskipta-
vinir Alterna munu hringja frítt hver í
annan og félagið leggur mikla áherslu
á gagnsæi í verðlagningu þannig að
neytendur eigi auðveldara með að
bera saman verð og skera niður í út-
gjöldum heimilisins.
Leikari úr Star Trek
Auglýsing Alterna, sem fór í sýningu
í vikunni, hefur vakið athygli. Boð-
skapurinn í henni er að hér á Íslandi
ríki ekki raunveruleg samkeppni á far-
símamarkaði. Bandaríski leikarinn Jeff
McCarthy leikur í auglýsingunni en
hann lék meðal annars gestahlutverk í
Star Trek, RoboCop 2, Cliffhanger, Law
& Order og Staupasteini, svo fátt eitt sé
nefnt.
Mínútugjald Upphafsgjald SMS Mánaðargjald
Alterna* 10,0 kr. 10,0 kr. 10,0 kr. 490 kr.
Nova* 15,5 kr. 5,5 kr 11,0 kr. 550 kr.
Tal** 15,0 kr. 4,95 kr. 10,0 kr. 494 kr.
Síminn*** 12,0 kr. 12,0 kr. 12,0 kr. 494 kr.
Vodafone**** 15,5 kr. 5,9 kr. 11,9 kr. 800 kr.
Verð símafélaganna í áskrift:
*Frí símtöl (1.000 mín.) og SMS (500 stk.) innan kerfis. Kostar 20,0 kr. á mínútu að hringja í Nova.
**Hægt að hringja frítt innan kerfis með dýrari áskriftum.
***Miðað við áskriftarleiðina: Lægsta mínútuverðið. Einn GSM vinur (1.000 mín og 500 SMS innifalin til vinar).
**** Einn vinur innan Vodafone (1.000 mín og 500 SMS innifalin). Ódýrara mánaðargjald í gulláskrift.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: baldur@dv.is
Alterna Róbert Bragason framkvæmda-
stjóri segir að félagið ætli í verðsamkeppni á
farsímamarkaði. Verslunin er í Borgartúni.
Leikarinn í auglýsingunni Jeff
McCarthy hefur meðal annars leikið
gestahlutverk í Star Trek og Staupasteini.
Þrír menn í gæsluvarðhaldi vegna gruns um frelsissviptingu:
Misþyrmt í hálfan sólarhring
„Við lítum þetta mjög alvarlegum aug-
um enda beitum við bara gæsluvarð-
haldi í alvarlegustu málunum,“ segir
Alda Hrönn Jóhannsdóttir, lögreglu-
stjóri á Suðurnesjum.
Þrír karlmenn á þrítugsaldri sitja í
gæsluvarðhaldi vegna gruns um frels-
issviptingu og stórfellda líkamsárás
sem átti sér stað á Suðurnesjum í síð-
ustu viku. Mennirnir voru úrskurðaðir
í vikulangt gæsluvarðhald á föstudag-
inn í síðustu viku. Á fimmtudagskvöld-
ið sagðist Alda ekki geta tjáð sig um það
hvort farið yrði fram á lengra gæslu-
varðhald en ákvörðun um það yrði tek-
in á föstudag.
Samkvæmt heimildum DV hafa
mennirnir þrír allir komið við sögu lög-
reglu áður, meðal annars vegna ofbeld-
ismála. Þá bíður einn af hinum meintu
árásarmönnum þess að afplána dóm
sem hann fékk fyrir skemmstu.
Fórnarlambi árásarinnar var haldið
föngnu í að minnsta kosti tólf klukku-
stundir, að því er heimildir DV herma.
Var maðurinn fluttur á slysadeild vegna
áverka sinna. Aðspurð hvort maður-
inn hafi hlotið beinbrot í árásinni segir
Alda svo ekki vera. „Hann var marinn
og bólginn.“
Aðspurð hvort þarna hafi verið um
handrukkun að ræða sagðist Alda ekki
geta tjáð sig um það vegna rannsókn-
arhagsmuna. Alda segir að það liggi þó
fyrir að mennirnir hafi verið að „gera
upp einhver samskipti“.
Sem fyrr segir er málið litið mjög al-
varlegum augum en refsiramminn fyr-
ir ofbeldisbrot af þessu tagi er allt að
sextán ára fangelsi. einar@dv.is
Litið alvarlegum augum Mennirnir eru grunaðir
um að hafa valdið fjórða manni mikla áverka.