Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 2
Fékk 600 milljóna lán
við starFslokin
n Þorgils Óttar Mathiesen, fyrrverandi
forstjóri Sjóvár og fyrrverandi landsliðs-
fyrirliði í handknattleik, fékk tæplega
600 milljóna króna kúlulán frá Íslands-
banka til hlutabréfakaupa þegar hann lét af
störfum hjá tryggingafélaginu í árslok 2005. Þetta
kemur fram í starfslokasamningi Þorgils Óttars
við Sjóvá og í öðrum gögnum sem DV hefur und-
ir höndum. Þorgils Óttar hætti hjá Sjóvá því rýma
þurfti fyrir Þór Sigfússyni.
Lánið frá Íslandsbanka notaði Þorgils Óttar til
að kaupa fjörutíu prósenta hlut í fasteignafélag-
inu Klasa af Íslandsbanka og Sjóvá. Samkvæmt
gögnunum var lánið skilyrt á þann hátt að Þorgils Óttar varð að nota það til að
kaupa hlutabréfin í Klasa en hann varð jafnframt forstjóri félagsins í kjölfarið á
starfslokunum hjá Sjóvá.
milljónaFólkið í orkuveitunni
n Æðstu stjórnendur Orkuveitu Reykjavíkur fá
vel á aðra milljón króna í mánaðarlaun, auk þess
sem sumir þeirra hafa notið ríkulegra
hlunninda ofan á mánaðarlaun sín.
Hjörleifur Kvaran forstjóri fær til að
mynda um 1,9 milljón í mánaðar-
laun fyrir störf sín. Rétt á eftir honum
kemur Jakob Sigurður Friðriksson,
framkvæmdastjóri hjá Orkuveitunni, með um
1,8 milljón í mánaðarlaun. Páll Erland, fram-
kvæmdastjóri veitureksturs hjá Orkuveitunni fær
tæpa 1,8 milljón króna á mánuði.
Anna Skúladóttir, fjármálastjóri Orkuveitunn-
ar, fylgir þeim svo fast eftir og er með um 1,6
milljón króna í mánaðarlaun. Eftir að DV fjallaði
um Mercedes Benz-lúxusjeppa sem fjármála-
stjórinn átti að fá afnot af sem hluta af starfskjörum sínum, ákvað hún að
skila jeppanum. Sameiginleg árslaun þessara toppa Orkuveitunnar eru um 85,2
milljónir.
viðskiptaFélagi runólFs dæmdur
Fyrir skjalaFals
n Steinbergur Finnbogason, nú-
verandi eigandi og stjórnarmaður
eignar haldsfélagsins Obduro, sem
framan af var í eigu Runólfs Ágústs-
sonar, var árið 2002 dæmdur í átta
mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hæstarétti
Íslands fyrir skjalafals. Eins og DV hefur fjallað
um færði Runólfur Ágústsson, sem ráðinn var
umboðsmaður skuldara í júlí, eignarhaldsfélag-
ið Obduro yfir á lögmanninn Steinberg Finn-
bogason árið 2008. Samkvæmt heimildum DV
innan úr bankakerfinu þarf að afskrifa rúmlega
500 milljóna króna hlutabréfaskuld félagsins.
Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu Hæstaréttar
var Steinbergur dæmdur fyrir skjalafals í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur sem og í Hæstarétti Íslands. Ekki er vitað hvers vegna Run-
ólfur færði Obduro yfir á Steinberg á sínum tíma eða hvort greitt hafi verið fyrir
það. En ljóst er að undir lok árs 2008 skuldaði félagið tæpar 530 milljónir króna.
Steinbergur var nemandi í lögfræði við Háskólann á Bifröst þegar Runólfur var
rektor og sat meðal annars í háskóla- og íbúaráði skólans. Steinbergur hlaut
einnig tvo dóma fyrir skjalafals árið 1990. Árni Páll Árnason félags- og trygginga-
málaráðherra kallaði á þriðjudag eftir upplýsingum um skuldamál Runólfs allt
frá árinu 2003. Þá bað hann Runólf um að stíga til hliðar sem umboðsmaður
skuldara. Runólfur sagði í kjölfarið af sér embætti.
2
3
1 Sölvi á trúnó með Davíðn æviSaga Jónínu Ben í fæðingu
n runólfur
hættur Sem
umBoðSmaður
SkulDara
LAUNAÐ
MEÐ 600
Þorgils Óttar Mathiesen:
miðvikuDagur og fimmtuDagur 4. – 5. ÁgÚST 2010 dagblaðið vísir 88. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
n feitur StarfSlokaSamningur
frá SJóvá og íSlanDSBanka
n fékk lánið á „hagStæðum
kJörum“ og án þóknunar
n Bað Seinna um afSkrift lánSinS
n nýfluttur í einBýliShúS
BankaStJóra
féLAgi
rUNóLfs vAr
dæMdUr fyrir
skjALAfALs
ofurlaun í
orkuveitu
n StJórar með næStum tvær millJónir á mánuði
fréttir
n Jón áSgeir JóhanneSSon Batt miklar vonir við SamStarfið við mileStone
„StJórna iSB og
græða peninga“
fréttir
stöð 2:
krækti í
hjörvAr
fréttir
fréttir
fólk
grEiddi
sér ArÐ
Á tAPÁri
steini í kók
stendur illa:
MiLLjóNA
kÚLULÁNi
2 fréttir
4. ágúst 2010 miðvikudagur
Steinbergur Finnbogason, núver-
andi eigandi og stjórnarmaður eign-
arhaldsfélagsins Obduro, sem fram-
an af var í eigu Runólfs Ágústssonar,
var árið 2002 dæmdur í átta mán-
aða skilorðsbundið fangelsi í Hæsta-
rétti Íslands fyrir skjalafals. Eins og
DV hefur fjallað um færði Runólfur
Ágústsson, sem ráðinn var umboðs-
maður skuldara í júlí, eignarhalds-
félagið Obduro yfir á lögmanninn
Steinberg Finnbogason árið 2008.
Samkvæmt heimildum DV innan úr
bankakerfinu þarf að afskrifa rúm-
lega 500 milljóna króna hlutabréfa-
skuld félagsins.
Samkvæmt upplýsingum af vef-
síðu Hæstaréttar var Steinbergur
dæmdur fyrir skjalafals í Héraðs-
dómi Reykjavíkur sem og í Hæstarétti
Íslands. Ekki er vitað hvers vegna
Runólfur færði Obduro yfir á
Steinberg á sínum tíma eða hvort
greitt hafi verið fyrir það. En ljóst er
að undir lok árs 2008 skuldaði félagið
tæpar 530 milljónir króna. Steinberg-
ur var nemandi í lögfræði við Háskól-
ann á Bifröst þegar Runólfur var rekt-
or og sat meðal annars í háskóla- og
íbúaráði skólans. Steinbergur hlaut
einnig tvo dóma fyrir skjalafals árið
1990. Árni Páll Árnason félags- og
tryggingamálaráðherra kallaði í gær
eftir upplýsingum um skuldamál
Runólfs allt frá árinu 2003. Þá bað
hann Runólf um að stíga til hliðar
sem umboðsmaður skuldara. Run-
ólfur sagði í kjölfarið af sér embætti.
Sakfelldur fyrir skjalafals
Á vefsíðu Hæstaréttar er að finna
upplýsingar um dómsmálið sem er
númer 125/2002 í dómasafni Hæsta-
réttar. Steinbergur var dæmdur fyrir
skjalafals í Héraðsdómi Reykjavíkur
5. febrúar árið 2002. Hann áfrýj-
aði málinu til Hæstaréttar Íslands
sem staðfesti dóm héraðsdóms,
26. september 2002. Var Stein-
bergur í kjölfarið dæmdur í átta
mánaða skilorðsbundið fang-
elsi. Hann var sakfelldur í
héraðsdómi fyrir skjala-
fals, fyrir að hafa fram-
vísað fjórum tékk-
um undirrituðum af
Guðlaugi Búa Þórð-
arsyni, samstarfs-
félaga sínum, og
var hver þeirra
upp á 1.000.000
krónur, og að hafa
reynt að innleysa
þá og síðan inn-
heimta. Í dómi
Hæstaréttar þótti
sannað að tékk-
arnir væru úr hefti
í eigu Guðlaugs sem
var með undirrituðum
en óútfylltum tékkum.
Runólfur sagðist í
samtali við DV í síðustu
viku ekkert hafa fylgst með
stöðu félagsins frá því að
hann losaði sig við það. Að-
spurður af hverju hann hafi
selt félagið til Steinbergs árið
2008, sagði Runólfur að hann
hefði talið „... eðlilegt að selja fé-
lagið á þeim tíma.“ Spurður hvort
hann hafi þekkt Steinberg
á þeim tíma sagði
Runólfur: „Ég
vissi alveg
hver hann
var.“
Opinberrar rannsóknar krafist
Í umfjöllun um skjalafölsunarmál
Steinbergs á heimasíðu Hæstarétt-
ar Íslands kemur fram að forsaga
málsins er sú að hinn 21. júní 1999
hafi Guðlaugur Búi Þórðarson kært
meintan þjófnað á fjórum tékka-
eyðublöðum úr tékkhefti sínu. Guð-
laugur Búi mun hafa verið ásamt
Steinbergi félagi í spilaklúbbi vor-
ið 1998 og geymdi hann tékkhefti á
eigin reikning í Landsbanka Íslands
í húsnæði klúbbsins. Þá kemur fram
að í heftinu hafi verið eyðublöð sem
hafi verið undirrituð af Guðlaugi en
óútfyllt að öðru leyti. Guðlaugur Búi
hafi tekið tékkheftið þegar hann hafi
gengið úr klúbbnum en ekki tek-
ið eftir því að eyðublöð vantaði fyrr
en Steinbergur hafi krafið hann um
greiðslu á fjórum tékkum úr heft-
inu, hverjum að upphæð ein milljón
króna. Þá hafi komið í ljós að tékk-
arnir, sem báru númerin 7360215,
-216, -217, -218, voru úr áðurnefndu
hefti. Í kærunni var opinberrar rann-
sóknar krafist á því hvernig Stein-
bergur hefði komist yfir tékkaeyðu-
blöðin og hver hefði fyllt þau út.
Steinbergur hélt því fram fyrir
dómi að Vésteinn Gauti Hauksson
hefði afhent sér tékkana í því skyni
að tryggja að Vésteinn myndi innan
ákveðins tíma greiða um 4.000.000
króna skuld við sig vegna uppgjörs
eftir lok samstarfs þeirra. Í Hæstarétti
þótti ekki koma nein haldbær skýring
frá Steinbergi á því á hverju skuld Vé-
steins við hann hefði byggst. Þá and-
mælti Vésteinn því fyrir dómi að hafa
afhent Steinbergi tékkana og skuldað
honum fé. Þegar þessa var gætt þótti
ekki hafa komið fram nein haldbær
skýring á því hvers vegna Steinberg-
ur hefði haft skjölin undir höndum
og framvísað þeim í banka í því skyni
að fénýta sér þau. Málið dæmdu
hæstaréttardómararnir Markús Sig-
urbjörnsson, Árni Kolbeinsson og
Ingibjörg Benediktsdóttir.
Gagnrýnir ráðherra
Runólfur var skipaður í embætti um-
boðsmanns skuldara fyrir hálfum
mánuði eftir að níu höfðu sótt um
embættið. Rektorinn fyrrverandi var
hins vegar metinn hæfastur. Ekki var
tekið fram í tilkynningu frá félags- og
tryggingamálaráðuneytinu um ráðn-
inguna hvernig hæfnismatið fór fram.
Í bréfi sem Runólfi barst frá ráðuneyt-
inu í gær sagði meðal annars að á um-
boðsmanni skuldara hvíli sú ábyrgð
að semja fyrir hönd fólks við kröfu-
hafa. Ráðuneytið fór þess þá á leit við
Runólf að hann upplýsti ráðuneytið
um lánaviðskipti og skuldaskil sín og
félaga sem eru eða hafa verið í eigu
hans frá 1. janúar 2003. Í Kastljósi
greindi Runólfur frá því að félags-
málaráðherra hefði farið þess á leit
við hann að hann segði af sér emb-
ætti umboðsmanns skuldara. Það
gerði Runólfur en gagnrýndi Árna Pál
harðlega og sagði lítinn „mannsbrag“
af frammistöðu hans í því og að hann
hefði ekki viljað taka pólitíska höggið
sem ráðningunni fylgdi.
Viðskiptafélagi Runólfs
dæmduR fyRiR skjalafals
Steinbergur Finnbogason núverandi eig-
andi og stjórnarmaður eignarhaldsfélags-
ins Obduro, sem framan af var í eigu Run-
ólfs Ágústssonar, var árið 2002 dæmdur
í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í
Hæstarétti fyrir skjalafals. Runólfur færði
félagið yfir á Steinberg árið 2008, en þá
voru skuldir þess komnar yfir 500 milljón-
ir króna. Félagsmálaráðherra bað hann
í gær um að stíga til hliðar sem umboðs-
maður skuldara. Það hefur hann nú gert.
ÍHUGAR
AÐ FARA
AFTUR Á
SJÓINN
MIÐVIKUDAGUR OG FIMMTUDAGUR 28. – 29. JÚLÍ 2010
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 86. TBL.
100. ÁRG. – VERÐ KR. 395
UMBOÐSMAÐUR SKULDARA:
SLAPP VIÐ
HÁLFAN
MILLJARÐ
n RUNÓLFUR ÁGÚSTSSON
FÉKK LÁN FYRIR ICEBANK
n „ÞESSI VIÐSKIPTI
VORU EÐLILEG“
n SPARISJÓÐURINN
VERÐUR AÐ AFSKRIFA
n FÆRÐI GJALDÞROTA
FÉLAG Á KUNNINGJA
n „VIÐSKIPTIN FÓRU FRAM
AÐ FRUMKVÆÐI BANKANS“
SKULD
UGUR
SKULD
A-
RÁÐGJ
AFI
n BJÖRN VALUR GÍSLASON ER
ÞREYTTUR Á ÞINGMENNSKU
ELÍAS HELGI KOFOED-HANSEN:
Á TRÚNÓ MEÐ
AXL ROSE
FÓLK
JÓN VIÐAR DÆMIR
HALLVEIGU EHF.
MERKISKONA
Á „SKEGGJAÐRI
SKÁLMÖLD“
FÓKUS
GÖTUSALAR
FLÆMDIR ÚR
MIÐBORGINNI
BUFFETT VILDI FJÁRFESTA
Í ORKU Á ÍSLANDI
n ROSS BEATY SVARAR ENGU UM
AÐGERÐIR RÍKISSTJÓRNARINNAR
FRÉTTIR
10 ÓDÝRARMÁLTÍÐIR
Í MIÐBORGINNI
TORTÓLALÁN
BJÖRGÓLFA
RANNSAKAÐ
n SUMARHÖLLIN Í PORTÚGAL ENN TIL SÖLU FRÉTTIR
jón bjaRki maGnúSSOn
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að með þessari háttsemi hafi Steinbergur notað
fölsuð skjöl í þeim tilgangi að blekkja með þeim
í lögskiptum og telst Steinbergur með því hafa
fullframið brot gegn 1. málsgrein, 155. greinar al-
mennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Skjalafals SteinbergurFinnbogason
tókviðeignarhaldsfélagiRunólfsárið
2008,enþáskuldaðiþaðtæpar530
milljónir.Steinbergurvarárið2002
fundinnsekurumskjalafals.
28. júlí 2010
8 fréttir 4. ágúst 2010 miðv
ikudagur
Topparnir í Orkuveitu Reykjavíkur hafa tæpar tvær milljónir króna á m
ánuði, þrátt fyrir erfiða fjárhags-
stöðu fyrirtækisins. Auk forstjóra, fjármálastjóra og nokkurra framkvæm
dastjóra, er fjöldi sviðsstjóra með
rétt undir milljón á mánuði. Vefstjóri Orkuveitunnar er með 879 þúsund
á mánuði og upplýsingafulltrúi er
með 821 þúsund krónur.
MILLJÓNAFÓLKIÐ
Í ORKUVEITUNNI
Æðstu stjórnendur Orkuveitu
Reykjavíkur fá vel á aðra millj-
ón króna í mánaðarlaun, auk þess
sem sumir þeirra hafa notið ríku-
legra hlunninda ofan á mánaðar-
laun sín. Hjörleifur Kvaran forstjóri
fær til að mynda um 1,9 milljónir í
mánaðarlaun fyrir störf sín. Rétt á
eftir honum kemur Jakob Sigurður
Friðriksson, framkvæmdastjóri hjá
Orkuveitunni, með um 1,8 millj-
ónir í mánaðarlaun. Páll Erland,
framkvæmdastjóri veitureksturs hjá
Orkuveitunni fær tæpar 1,8 milljón-
ir króna á mánuði.
Anna Skúladóttir, fjármálastjóri
Orkuveitunnar, fylgir þeim svo fast
eftir og er með um 1,6 milljónir
króna í mánaðarlaun. Eftir að DV
fjallaði um Mercedes Benz-lúxus-
jeppa sem fjármálastjórinn átti að
fá afnot af sem hluta af starfskjör-
um sínum, ákvað hún að skila jepp-
anum. Samanlögð árslaun þessara
toppa Orkuveitunnar eru um 85,2
milljónir.
Fjórtán sviðsstjórar
Fleiri lykilstarfsmenn Orkuveitunn-
ar hafa um og yfir eina milljón króna
í mánaðarlaun. Þeirra á meðal er
Loftur Reimar Gissurarson, sem er
einn framkvæmdastjóra Orkuveit-
unnar með 1.083.142 krónur á mán-
uði. Þrátt fyrir að hjá Orkuveitunni
sé starfandi forstjóri, auk nokkurra
framkvæmdastjóra, ákvað meiri-
hluti Samfylkingarinnar og Besta
flokksins í Reykjavík að Harald-
ur Flosi Tryggvason yrði starfandi
stjórnarformaður Orkuveitunnar
með um 920 þúsund krónur á mán-
uði. Við það fjölgaði enn í hálaun-
aðri yfirstjórn fyrirtækisins. Auk
forstjórans, framkvæmdastjóranna,
stjórnarformannsins og fjármála-
stjórans eru svo 14 sviðsstjórar hjá
Orkuveitu Reykjavíkur. Laun margra
þeirra eru rétt undir einni milljón
króna á mánuði. Ingólfur Hrólfsson,
sviðsstjóri nýrra virkjana fær til að
mynda 893.606 krónur í mánaðar-
laun og Ólöf S. Pálsdóttir sviðsstjóri
fjármálasviðs fær 762.680 krónur í
laun á mánuði.
Elín Smáradóttir, lögfræðing-
ur sem er titluð framkvæmdastjóri
auðlinda og laga, fær 929.000 krón-
ur í laun á mánuði. Ingi J. Erlingsson
sviðsstjóri fjár- og áhættustýringar
er með svipuð laun eða um 961.227
krónur á mánuði.
Vefstjóri með 879 þúsund
Það eru ekki aðeins lykilstjórn-
endur Orkuveitu Reykjavíkur sem
njóta hárra launa. Eiríkur Hjálm-
arsson upplýsingafulltrúi fyrirtæk-
isins er með um 821 þúsund krónur
í mánaðarlaun. Annar starfsmað-
ur af upplýsingasviði, Helgi Péturs-
son, sem er titlaður vefstjóri, fær 879
þúsund krónur á mánuði í sinn hlut.
Starfsmannastjóri fyrirtækis-
ins, Skúli Waldorff, fær 905 þús-
und krónur í laun á mánuði. Rann-
veig Tanya Kristinsdóttir, sviðsstjóri
reikningshalds og launa, fær um 800
þúsund krónur á mánuði.
Laun endurskoðuð
Fram hefur komið að meirihluti Sam-
fylkingar og Besta flokksins hefur
boðað allsherjarúttekt á starfshátt-
um Orkuveitunnar. Þessari úttekt á
að vera lokið um miðjan ágúst. Meðal
þess sem tekið er til skoðunar í úttekt-
inni er hár launakostnaður fyrirtækis-
ins. Í Fréttablaðinu á þriðjudag kom
fram að meðallaun starfsmanna fyr-
irtækisins eru um 470 þúsund krón-
ur á mánuði. Meðallaun hafa hækk-
að um 16 prósent á þremur árum og
heildarlaunakostnaður fyrirtækisins
nam um 3,7 milljörðum króna á síð-
asta ári. Haraldur Flosi Tryggvason
stjórnarformaður hefur boðað niður-
skurð í rekstri Orkuveitunnar til þess
að mæta fjárhagsvanda fyrirtækisins.
Auk þess eru fyrirhugaðar hækkanir á
gjaldskrá.
Á sama tíma og Orkuveitan, sem er
opinbert fyrirtæki, greiðir hluta starfs-
manna sinna mjög há laun, glímir fyr-
irtækið við mjög erfiða skuldastöðu.
Talið er að Reykjavíkurborg þurfi að
taka frá um 10 milljarða á ári til að
vernda fyrirtækið greiðslufalli. Fjár-
hagsstöðu Orkuveitunnar má rekja
til erlendra lána sem tekin voru fyrir
bankahrun og hafa skuldirnar hækk-
að mikið eftir að gengi krónunnar
hrundi.
VaLgeir örn ragnarsson
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
rannVeig Tanya
KrisTinsdóTTir
Sviðstjórireikningshalds.
Mánaðarlaun: 802.463 kr.
HjörLeiFur KVaran
Forstjóri.
Mánaðarlaun: 1.905.335 kr.
anna sKúLadóTTir
Framkvæmdastjórifjármála.
Mánaðarlaun: 1.608.932 kr.
LoFTur reiMar
gissurarson
Framkvæmdastjórioggæðastjóri.
Mánaðarlaun: 1.083.142 kr.
guðMundur Þóroddsson
Fyrrverandiforstjóri.
Mánaðarlaun: 1.050.748 kr.
HaraLdur FLosi
TryggVason
Formaðurstjórnar.
Mánaðarlaun: 920.000 kr.
guðLaugur gyLFi
sVerrisson
Fyrrverandiformaðurstjórnar.
Mánaðarlaun: 791.668 kr.
eiríKur HjáLMarsson
Upplýsingafulltrúi.
Mánaðarlaun: 821.000 kr.
KrisTján n. óLaFsson
Sérfræðingur.
Mánaðarlaun: 1.017.000 kr.
Þorgeir einarsson
Rafmagnsverkfræðingur.
Mánaðarlaun: 850.000 kr.
PáLL erLand
Framkvæmdastjóri.
Mánaðarlaun: 1.778.570 kr.
eLín sMáradóTTir
Framkvæmdastjóriauðlindaoglaga.
Mánaðarlaun: 929.280 kr.
ingóLFur HróLFsson
Sviðsstjórinýrravirkjana.
Mánaðarlaun: 983.606 kr.
óLöF s. PáLsdóTir
Sviðsstjórifjármálasviðs.
Mánaðarlaun: 762.680 kr.
ingi j. erLingsson
Sviðsstjórifjár-ogáhættustýringar.
Mánaðarlaun: 961.227 kr.
sKúLi WaLdorFF
Sviðsstjóristarfsmannamála.
Mánaðarlaun: 905.020 kr.
HeLgi PéTursson
Vefstjóri.
Mánaðarlaun: 879.026 kr.
laun innan or
Haraldur Flosi Tryggvason
Laun:920.000
anna skúladóttir
Laun:1.608.932
Hjörleifur Kvaran
Laun:1.920.000
Auk forstjórans, framkvæmda-
stjóranna, stjórnar-
formannsins og fjár-
málastjórans eru svo 14
sviðsstjórar hjá Orku-
veitu Reykjavíkur.
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
þetta helst Starfsfólk Þjóðhátíðarnefndar í Vestmannaeyjum mokaði í þrjá risastóra hauga öllum þeim útilegubúnaði sem
skilinn var eftir í Herjólfsdal á mánudag. Um kvöldið og daginn
eftir leituðu leiðir gestir til nefndarinnar því þeir söknuðu verð-
mæta sinna.
hitt málið
2 fréttir 6. ágúst 2010 föstudagur
• Hindrar blöðrumyndun
– verndar fætur
• Vatnsheldur
– vörn gegn bakteríum
• Dregur úr óþægindum
og sársauka
• Gervihúð sem andar
Compeed
plásturinn
„Ég hef oft farið á Þjóðhátið í Eyjum
en ég mun nú hugsa mig tvisvar um
áður en ég fer þangað aftur. Seinni-
partinn á mánudag var búið að taka
hústjaldið mitt, ásamt fullt af verð-
mætu dóti, og demba því á mikla
tjaldhauga því starfsmenn voru
greinilega búnir að ákveða að ég
væri farinn frá Eyjum. Mér finnst það
lágmark að leyfa fólki að fara áður
en þeir fara að hreinsa dalinn,“ seg-
ir reiður gestur sem sótti Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum í ár.
Fleiri slíkar frásagnir hafa borist
DV eftir að Þjóðhátíðinni lauk þar
sem hátíðargestir sakna verðmæta
sinna, tjalda og annars útilegubún-
aðar. Páll Scheving, formaður Þjóð-
hátíðarnefndar, staðfestir að öllum
þeim útilegubúnaði sem lá á víða-
vangi síðla mánudagsins hafi ver-
ið mokað í þrjá risastóra hauga. Það
segir hann hafa verið gert þar sem
von var á vondu veðri.
Þrír haugar
„Ég fór ekki frá Eyjum fyrr en
snemma á þriðjudagsmorgun en ég
var staddur í öðru tjaldi í vonsku-
veðri þegar tjaldið mitt var tekið. Allt
dótið mitt var tekið; ferðataska full
af dýrum fötum, svefnpokar, stólar
og alls konar útilegubúnaður. Síð-
an stóð ég þarna við haugana með
fjölda fólks sem var að leita að dót-
inu sínu. Þarna var til að mynda mið-
aldra fólk sem hafði skroppið inn í
bæ til að borða og á meðan var öllu
dótinu þeirra hent á haugana,“ segir
reiði þjóðhátíðargesturinn.
Páll segir að hópur gesta hafi leit-
að til sín með slíkar frásagnir og far-
ið fram á bætur. Aðspurður segir
hann bætur ekki standa til boða en
reynt hafi verið að aðstoða gestina
við að finna eigur sínar. „Fólk hef-
ur haft samband við mig út af svona
málum og við höfum getað hjálpað
einhverjum með því að finna dótið
í haugunum. Það var farið að blása
all hressilega og flestir búnir að yf-
irgefa tjaldsvæðið. Þarna lágu tjöld
út um allt og við drógum einfaldlega
allt þetta drasl í hauga á svæðinu til
að við þyrftum ekki að vera tína þetta
úr fjöllunum næstu daga á eftir,“ seg-
ir Páll.
Gat leitað
„Við þurftum að bregðast við að-
stæðum og tókum það sem lá á víða-
vangi. Það sem var heillegt var dreg-
ið í þrjár stórar hrúgur og þar gat fólk
leitað að sínu glataða hafurtaski. Þar
fyrir utan er það þekkt víða á útihá-
tíðum að haldnar séu tjaldbrennur
en við erum í öðru umhverfi því hér
er meira um dýran búnað sem skil-
inn er eftir,“ segir Páll.
Fyrir utan þann búnað sem fólk
saknaði segir hann gífurlegt magn
af búnaði sem var einfaldlega skil-
inn eftir. Hann bendir á að farið hafi
verið með verðmæta hluti á lög-
reglustöðina. Aðspurður segir Páll
einnig nokkuð um að stolið hafi ver-
ið úr tjöldum. „Það er stundum eins
og fólk standi upp á mánudegin-
um, hristi sig aðeins og gangi síðan í
burtu frá öllum búnaði. Síðan er það
nú því miður þannig að fólk er einn-
ig að yfirgefa tjöldin sín með verð-
mætum í og þegar svo er gert er allt-
af hætta á gripdeildum. Því miður er
bara lífið þannig,“ segir Páll.
Verðmætin fóru
beint á haugana
trausti hafsteinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Mér finnst það lágmark að leyfa
fólki að fara áður en þeir
fara að hreinsa dalinn.
stemning á Þjóðhátíð Þráttfyrir
góðastemninguáÞjóðhátíðurðu
nokkrirgestirsárirútístarfsfólkÞjóð-
hátíðarnefndar.Mynd hörður sveinsson