Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Page 16
„Þú sækir ekki vel að mér. Ég er í fríi
með fjölskyldunni og er að hlaupa á
milli sundlauga og fótboltaæfinga,“
sagði Ari Daníelsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Glitnis í Lúxem-
borg, þegar DV náði tali af honum.
Hann er einn eigenda fyrirtækisins
Reviva Capital sem sér um að inn-
heimta kröfur skilanefnda Glitnis og
Landsbankans í Lúxemborg. Ari fékk
170 milljóna króna kúlulán til hluta-
bréfakaupa í Glitni í maí 2008 eða
sama dag og bankinn veitti 16 stjórn-
endum sínum 8,5 milljarða króna
kúlulán til hlutabréfakaupa í bank-
anum. Lán Ara stendur í 232 millj-
ónum króna í dag. Friðrik Sophus-
son, stjórnarformaður Íslandsbanka,
tilkynnti nýlega að eignarhaldsfélög
fyrrverandi starfsmanna Glitnis yrðu
rekin í þrot. „Ég tjái mig ekki um þær
skuldir og sé ekki að þær komi mál-
efnum Reviva Capital neitt við,“ sagði
Ari þegar blaðamaður spurði hann
hvort hann ætlaði sér að greiða 232
milljóna króna kúlulán sitt vegna
hlutabréfakaupa í Glitni.
Fyrrverandi stjórnendur að
baki Reviva
Að frumkvæði skilanefndar Glitnis
og Erics Collard, starfsmanns KPMG
og skiptastjóra þrotabús Glitnis í
Lúxemborg, var Ara og nokkrum
öðrum fyrrverandi stjórnendum
Glitnis í Lúxemborg leyft að stofna
fyrirtækið Reviva Capital í maí 2010.
Félagið er í eigu Ara, annarra starfs-
manna og þrotabús Glitnis. Reviva
sér um að innheimta útlán þrotabús
Glitnis. Aðallega er um að ræða útlán
sem tengd eru fasteignaverkefnum.
Þess skal getið að skilanefnd Glitnis
í Lúxemborg hefur yfir að ráða eign-
um sem eru metnar á einn millj-
arð evra eða nærri 160 milljarða ís-
lenskra króna. Auk þessara verkefna
kemur fram í tilkynningu frá skila-
nefnd Landsbankans þann 22. júlí
síðastliðinn að Reviva sjái einnig um
að innheimta stóran hluta af kröfum
þrotabús Landsbankans í Lúxem-
borg eða um 70 prósent af öllum lán-
um bankans í stýringu.
Ekki í vinnu hjá skilanefnd
„Félagið var stofnað til að sjá um
eignaumsýslu á eignum Glitnis í Lúx-
emborg. Það var gert í samráði við
slitastjóra þrotabúsins sem er endur-
skoðandi í Lúxemborg. Ástæðan var
sú að það er eðli þessarar starfsemi
að innheimta eignir og gera úr þeim
verðmæti. Þar sem starfsemi þrota-
bús Glitnis í Lúxemborg minnkar
stöðugt þá óttuðumst við að ef þetta
væri áfram í þrotabúinu myndum við
missa hæfa starfsmenn. Til að bregð-
ast við því var Reviva Capital stofnað.
Það gerir starfsmönnunum kleift að
sækja sér önnur verkefni,“ segir Árni
Tómasson, formaður skilanefndar
Glitnis.
Að sögn Árna hefur skilanefnd
Glitnis ekki greitt Ara laun né önn-
ur fríðindi frá því að skilanefndin hóf
störf. Það geri þrotabúið í Lúxemborg
en það var yfirtekið af stjórnvöldum í
Lúxemborg og því kemur skilanefnd
Glitnis ekki að rekstri þrotabúsins í
Lúxemborg. Hann hafi því sem dæmi
ekki ákvörðunarvald um það að víkja
Ara frá störfum heldur hefði það ver-
ið í höndum slitastjóra þar ytra ef
slíkt hefði komið upp áður en Reviva
var stofnað.
Náinn samstarfsmaður Lárusar
Ari var á sínum tíma framkvæmda-
stjóri hugbúnaðarfyrirtækisins
Mentis en var ráðinn forstöðumað-
ur viðskiptaþróunar tekjusviða
viðskiptabanka Glitnis árið 2006.
Nokkru síðar var hann gerður að
framkvæmdastjóra fjármögnunar
Glitnis. Vorið 2008 gerði Lárus Weld-
ing, þáverandi forstjóri Glitnis, Ara
að framkvæmdastjóra Glitnis í Lúx-
emborg. Fyrsta verk Ara var að fækka
starfsfólki Glitnis í Lúxemborg úr 60 í
20. Auk þess reyndi Glitnir að koma
sér út úr fasteignaverkefnum á sama
tíma. Með því móti ætlaði bankinn
að afla sér um 100 milljarða króna í
lausafé.
Samkvæmt heimildum DV var Ari
einn af nánustu samstarfsmönnum
Lárusar eftir að hann tók við Glitni
í maí 2007. Sömu heimildir herma
að með því að gera Ara að fram-
kvæmdastjóra Glitnis í Lúxemborg í
apríl 2008 hafi Lárus Welding ætlað
Ara að stórauka innlánssöfun Save &
Save reikninganna en Glitnir byrjaði
með þá innlánsreikninga í lok júní
2008. Þeir voru þó aðeins í boði á Ís-
landi og í Noregi.
Við skýrslutöku hjá rannsóknar-
nefnd Alþingis sagði Lárus að stefnt
hafi verið að því að koma á fót Save &
Save reikningum í Bretlandi og öðr-
um löndum í gegnum Lúxemborg
í upphafi árs 2009. Líklega mega Ís-
lendingar þakka sínum sæla að Lár-
usi og Ara hafi ekki tekist ætlunaverk
sitt. Sama fyrirkomulag var á þessum
reikningum og Icesave-reikningum
Landsbankans og Edge-reikningum
Kaupþings.
Glæsihýsi og Audi-jeppi
Ari Daníelsson býr í þriggja hæða
glæsihýsi í Cent-hverfinu í Lúxem-
borg sem er ekki langt frá miðbæn-
um. Ari og Hreiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings, eru
nágrannar en hús Hreiðars Más er
einungis nokkur hundruð metrum
frá Ara.
Samkvæmt heimildum DV nem-
ur leigan af húsi Ara 5.000 evrum á
mánuði eða nærri 800 þúsund ís-
lenskum krónum. Þann kostnað hef-
ur þrotabú Glitnis greitt frá því í lok
árs 2008. Ekki er vitað hvort breyting
hefur orðið á þessu fyrirkomulagi eft-
ir að Ari stofnaði félagið Reviva Capi-
tal. „Ég tjái mig ekki um mín per-
sónulegu mál. En nei, ég er hvorki
starfsmaður Glitnis né þrotabús
Glitnis í Lúxemborg,“ sagði Ari að-
spurður um launamál sín.
Auk þess að búa í glæsihýsi ekur
Ari um á nýlegum Audi Q7 glæsi-
jeppa sem vart er metinn á minna
en tíu milljónir króna. Í byrjun júní
hélt Ari glæsilega opnunarveislu
fyrir Reviva Capital í anda 2007. Var
þjónustufólk á hverju strái og meðal
veislugesta var Hreiðar Már Sigurðs-
son, nágranni Ara.
16 starfsmenn hjá Reviva
Capital
Morgunblaðið greindi nýlega frá því
að Reviva Capital væri að sækjast eft-
ir því að fá íslenska viðskiptavini frá
Havilland-bankanum sem áður var
útibú Kaupþings í Lúxemborg. Þó
kom fram að Reviva væri eingöngu
þjónustu- og ráðgjafarfyrirtæki en
sinnti ekki útlánastarfsemi. Sam-
kvæmt heimasíðu félagsins reviva-
capital.com eru 16 starfsmenn hjá
fyrirtækinu. Auk Ara starfa þeir Sig-
þór Guðmundsson og Arnar Ómars-
son hjá fyrirtækinu en þeir voru áður
stjórnendur hjá Glitni í Lúxemborg.
Einnig Brandur Thor Ludwig. Brand-
ur Thor var áður eigandi fyrirtækis-
ins Investum sem er einna þekktast
fyrir að hafa veitt tryggingafyrirtæk-
inu Sjóvá ráðgjöf við kaupin á hin-
um frægu turnum í Macau sem DV
fjallaði ítarlega um. Í stjórn Reviva
sitja Ari Daníelsson, Eric Collard og
Kristján Óskarsson, framkvæmda-
stjóri þrotabús Glitnis á Íslandi.
16 fréttir 6. ágúst 2010 föstudagur
Háþrýstidælur
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
K 6.91 M Plus
Þrýstingur: 20-150 bör max
Vatnsmagn: 550 ltr/klst
Túrbóstútur + 50%
Lengd slöngu: 9 m
Sápuskammtari
Stillanlegur úði
K 7.80 M Plus
Þrýstingur
20-160 bör max
Stillanlegur úði
Sápuskammtari
K 7.85 M Plus
Þrýstingur:
20-160 bör max
Vatnsmagn:
600 ltr/klst
Stillanlegur úði
Sápuskammtari
Túrbóstútur + 50%
12 m slönguhjól
Vatnsmagn: 600 ltr/klst
Túrbóstútur + 50%
Lengd slöngu: 9 m
SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS
K 5.91 M Plus
Þrýstingur:
20-140 bör max
Vatnsmagn:
490 ltr/klst
Lengd slöngu: 7,5 m
Stillanlegur úði
Túrbóstútur + 50%
Sápuskammtari
Ýmsir aukahlutir
Snúningsdiskur
Kúlulánþeginn Ari Daníelsson sem var framkvæmdastjóri Glitnis í Lúxemborg áður en bankinn fór í þrot
fékk nýverið að stofna eigið félag til að sjá um innheimtur á kröfum Glitnis og Landsbankans í Lúxemborg.
Félagið heitir Reviva Capital. Ari býr auk þess í glæsihýsi sem þrotabú Glitnis greiðir fyrir auk þess að aka
um á Audi Q7.
KÚLULÁNAKÓNGUR RUKKAR
KRÖFUR SKILANEFNDA Í LÚX
ANNAs siGmuNDssoN
blaðamaður skrifar: as@dv.is
Þú sækir ekki vel að mér. Ég er í
fríi með fjölskyldunni
og er að hlaupa á milli
sundlauga og fótbolta-
æfinga.
innheimtir kröfur þrotabúa
Ari Daníelsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Glitnis í
Lúxemborg, fékk að stofna
eigið fyrirtæki til að innheimta
kröfur þrotabúa Glitnis og
Landsbankans.
myND: moRGuNbLAðið
DV1008055716
Ari Daníelsson býr í þessu glæsihýsi
í Lúxemborg en þrotabú Glitnis greiðir
leiguna sem er talin nema nærri 800
þúsund krónum á mánuði.