Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Síða 18
18 fréttir 6. ágúst 2010 föstudagur
Baltasar Kormákur er með margar stór-
myndir í burðarliðnum. Hann ætlar að
gera kvikmynd byggða á sundafreki Guð-
laugs Friðþórssonar, sem sjálfur er ekki
hrifinn af framtakinu. Hann hefur áður
stigið á fæturna á fólki. Fyrirtæki hans
hafa skilið eftir sig mörg hundruð millj-
óna skuldir, en á öðrum myndum hefur
hann grætt. Baltasar býr sjálfur á glæsi-
legum hestabúgarði í Skagafirði þar sem
ekkert hefur verið til sparað.
skuldir og deilur Baltasars
Baltasar Kormákur er 44 ára leikari
og leikstjóri sem hefur bæði sleg-
ið í gegn á ferlinum og misstigið sig.
Hann hefur grætt og tapað, borg-
að starfsfólki kvikmynda sinna ríku-
lega bónusa og skilið eftir sig risastór
gjaldþrot. Hann hefur fengið stór-
stjörnur til liðs við sig og erlendir að-
ilar hafa treyst honum til þess að gera
kvikmynd sem á að kosta milljarða
króna. Þrátt fyrir að ferilinn hafi ver-
ið upp og ofan, þá virðist hann ekki á
flæðiskeri staddur, enda er hann gift-
ur Lilju Pálmadóttur til 14 ára, dótt-
ur og erfingja Pálma í Hagkaup og
systur Ingibjargar Pálmadóttur, sem
er eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar. Baltasar Kormákur er því
tengdur fjölskylduböndum inn í eitt
stærsta viðskiptaveldi Íslands.
Á yngri árum var hann að eig-
in sögn kvensamur næturlífskóng-
ur í miðborginni og Kaffibarinn var
hans varnarþing. Baltasar og Lilja
voru meðal annars um tíma eigend-
ur Kaffibarsins, þar til þau seldu at-
hafnamanninum Þorsteini Stephen-
sen barinn árið 2007, enda hentaði
ráðsettu fjölskyldufólki ekki endi-
lega að eiga einn frægasta djamm-
stað miðborgarinnar. Baltasar setti
sjálfur tappann í flöskuna fyrir átta
árum og hætti að drekka. Hann hef-
ur viðurkennt að drykkjan hafi orðið
til þess að hann sinnti ekki fjölskyld-
unni eins og hann hefði viljað.
Kvikmynd um sjóslys
í óþökk eftirlifanda
Baltasar Kormákur hefur stundum
stigið á tær annarra og þrátt fyrir
velgengnina hefur hann skilið eftir
sig hundraða milljóna króna skuld-
ir eins og rakið verður hér. Hann
vinnur nú að gerð kvikmyndarinnar
Djúpið sem byggð er á leikriti Jóns
Atla Jónassonar og fjallar um hörmu-
legt sjóslys sem átti sér stað þegar
báturinn Hellisey VE 503 fórst árið
1984. Fjórir sjómenn fórust í slysinu
en Guðlaugur Friðþórsson er sá eini
sem komst lífs af, en hann vann mik-
ið þrekvirki þegar hann synti fimm
kílómetra í svartamyrkri í köldum
sjónum við hrikalegar aðstæður, þar
til hann náði landi í Vestmannaeyj-
um. Þá komst hann við illan leik yfir
hraunbreiðu þar til honum var bjarg-
að.
Kvikmyndin verður byggð á at-
burðunum en skáldskapur verður
fléttaður inn í söguna. Baltasar hef-
ur fengið Ólaf Darra Ólafsson til þess
að leika Guðlaug í myndinni. Guð-
laugur hefur sjálfur lýst yfir andstöðu
sinni við að nafn hans verði dregið
inn í myndina. Í samtali við frétta-
vefinn Eyjafréttir í Vestmanneyjum
sagði Guðlaugur: „Það hefur tvisvar
verið haft samband við mig vegna
þessarar myndar en í bæði skiptin
var það eftir að búið var að ákveða að
gera hana. Hefði kannski verið eðli-
legra að heyra í manni hljóðið áður
en lagt var af stað en greinilega hef-
ur maður lítið að segja um þetta.“ Þá
sagði Guðlaugur að frá sínum bæj-
ardyrum séð væri búið að skrifa nóg
um atburðinn og að hann efaðist að
haft hefði verið samband við ætt-
ingja þeirra fjóru ungu manna sem
fórust í sjóslysinu. „Atburðirnir sem
gerðust kvöldið 11. mars 1984 eru í
mínum huga ekki leikrit heldur ís-
kaldur raunveruleikinn.“
Sjálfur hefur Baltasar sagt að að-
eins vaki fyrir honum að gera þess-
ari mögnuðu sögu góð skil og heiðra
minningu þeirra sem létust.
Töpuðu dómsmáli
um landamerki
Þetta eru ekki einu deilurnar sem
Baltasar hefur staðið í upp á síðkast-
ið. Í júlí á síðasta ári töpuðu Baltas-
ar og Lilja eiginkona hans dómsmáli
fyrir Héraðsdómi Norðurlands vestra,
sem þau höfðuðu til þess að fá viður-
kenndan eignarétt sinn á landspildu
sem þau töldu að tilheyrði jörð-
inni Hofi í Skagafirði, þar sem hjón-
in búa. Deilurnar um landspilduna
teygðu sig marga áratugi aftur í tím-
ann. Meðal málsgagna sem stuðst var
við í dómnum voru landamerki sam-
kvæmt landa merkja bréfi þinglesnu
árið 1882. Í málinu var einnig stuðst
við þinglýst gögn frá árinu 1922.
Lilja og Baltasar keyptu jörðina í
gegnum félagið Hofstorfan slf. sum-
arið 2003 og höfðu hjónin talið spild-
una vera í sinni eigu. Í dómnum
kemur fram að Lilja hafi við kaup-
in á Hofi gengið á landamerki með
fyrrverandi eiganda jarðarinnar og
staðið í þeirri trú að spildan tilheyrði
jörðinni Hofi. Síðar hafi hún hitt eig-
anda jarðarinnar Þrastarstaða og af
tilviljun nefnt einhvers konar deilu
um landamerkin. Dómurinn komst
að þeirri niðurstöðu að Baltasar og
Lilja væru ekki eigendur spildunnar
sem deilt var um.
Glæsilegur hestabúgarður
Síðan Baltasar og Lilja keyptu jörð-
ina Hof árið 2003 hafa þau ráðist í
miklar framkvæmdir á staðnum og
reist þar glæsileg mannvirki. Íbúðar-
hús þeirra á Hofi hefur vakið heims-
athygli fyrir frumlegan arkitektúr og
var meðal annars tilnefnt til Mies van
der Rohe-verðlaunanna í fyrra. Verð-
launin eru nefnd eftir arkitekt sem er
í hópi frumkvöðla nútímaarkitektúrs.
Á jörðinni hafa þau einnig byggt
veglegt hesthús og reiðhöll og stend-
ur til að gera reiðvöll utandyra á jörð-
inni. Hjónin stunda hestamennsku
af miklum krafti og segir viðmælandi
DV sem er kunnugur búskapnum á
jörðinni að þar hafi hvergi verið til
sparað. Um sjötíu hross eru á jörð-
inni og hafa hjónin keypt mörg hross,
sum hver fyrir milljónir króna. Þau
eru með margar ræktunarmerar og
eiga orðið stórt safn af topphestum.
Mikið var lagt í reiðhöllina og hest-
húsin munu vera glæsilega innréttuð
með dýrum innréttingum. Auk þess
hafa þau ráðið menn til starfa til þess
að skipta um allar girðingar á jörð-
inni. Þá hafa smiðir síðustu miss-
eri unnið að því að gera upp gamla
íbúðarhúsið á jörðinni, sem afi Lilju
átti upphaflega. Nokkrir aðrir starfs-
menn hafa starfað á búgarði þeirra
hjóna, svo sem tamningamenn og
ráðskona.
Baltasar hefur sjálfur sagt að sér
líði afskaplega vel á Hofi. „Þetta er
besti staðurinn á jörðinni til þess að
slaka á sem er mjög mikilvægt fyr-
ir mig að gera inn á milli. Auðvitað
vinn ég þarna í handritum og svona
en það er ákveðið áreiti sem ég losna
við. Veran þarna endurnærir mig
mikið og heldur oft í mér lífinu,“
sagði Baltasar í viðtali við DV fyrr á
þessu ári.
Vel liðin í Skagafirði
Vegna umsvifa þeirra hjóna á Hofi
og á svæðinu í kring eru þau vinsæl
og vel liðin af flestum í Skagafirði.
Viðmælandi DV segir veru þeirra
í Skagafirði atvinnuskapandi fyrir
svæðið. Þau hafi keypt hross af fólki
í sveitinni og borgað hátt verð fyr-
ir þau. Það hafi glætt talsverðu lífi í
byggðina í sveitinni að fá þau. Í lok
mars á þessu ári opnaði ný sund-
laug á Hofsósi, sem var gjöf Lilju og
Steinunnar Jónsdóttur til bæjarfélag-
ins. Ljóst má vera að framkvæmd af
þessu tagi var mjög kostnaðarsöm.
Baltasar og Lilja eru mjög sýnileg í
Skagafirði og taka virkan þátt í félags-
lífinu. Þau eru dugleg að mæta á við-
burði sem tengjast hestamennsku,
meðal annars í Meistaradeildinni
í hestaíþróttum og um verslunar-
mannahelgina voru þau meðal gesta
á hestamannahátíðinni Fákaflug,
sem haldin var á Vindheimamelum
í Skagafirði.
Baltasar hefur einnig tekið fram
skóna á síðustu árum og spilað
nokkra leiki með liði Neista frá Hofs-
ósi í þriðju deildinni í knattspyrnu.
Risastórt gjaldþrot
Baltasar er jafnan talinn meðal far-
sælustu leikstjóra landsins og er
margverðlaunaður fyrir kvikmyndir
sínar. Hann hefur leikstýrt myndum
á borð við 101 Reykjavík, Brúðgum-
ValGeiR öRn RaGnaRSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
leikstjóri
nBrúðguminn -2008
nMýrin -2006
nALittleTriptoHeaven-2005
nHafið -2002
n101Reykjavík -2000
leikari
nEnglaralheimsins -2000
n101Reykjavík -2000
nDjöflaeyjan -1996
nDraumadísir -1996
nAgnes -1995
nVeggfóður:Erótískástarsaga -1992
Framleiðandi
nSumarlandið -2009
nReykjavik-Rotterdam -2008
nTheAmazingTruthAbout
QueenRaquela -2008
nBrúðguminn -2008
nMýrin -2006
nALittleTriptoHeaven -2005
nDís -2004
nStormyWeather -2003
nHafið -2002
n101Reykjavík -2000
nPoppíReykjavík -1998
KviKmyndir
Baltasars
Um sjötíu hross eru á jörðinni og
hafa hjónin keypt mörg
hross, sum hver fyrir
milljónir króna.
Farsæll Baltasarhefursentfrásérmargarafvinsælustukvikmyndumsíðustuáraenhefureinnigmisstigiðsig.mynd BRaGi þóR