Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Page 25
föstudagur 6. ágúst 2010 erlent 25
Talið er að bankinn hafi geymt um 20
milljarða Bandaríkjadala,
um 2.300 milljarða íslenskra
króna, á leynilegum reikn-
ingum viðskiptavina sinna
og aflað UBS um 200 milljóna
dala á ári í gróða.
ingana sína í UBS. Líkt og Michael
Bronner, blaðamaður Global Post,
komst að orði, jafnaðist það á við
dauðasynd í Sviss, þar sem banka-
leyndin er orðin eitt af þjóðarein-
kennunum.
Blaðamaður Global Post segir að
svo virðist sem dagar hinnar miklu
svissnesku bankaleyndar séu taldir
og að það sé einvörðungu Birken-
feld að þakka. „Birkenfeld verður að
telja til mikilvægustu uppljóstrara
allra tíma. Aleinn gerði hann árið
2009 á árinu þegar heimurinn gat
loksins barist af alvöru á móti skatt-
svikum,“ skrifuðu leiðarahöfundar
Tax Notes, sem er bandarískt fag-
tímarit um skattamál og útnefndu
hann mann ársins. En hvers vegna
situr Bradley Birkenfeld í fangelsi,
fyrst hann er jafn mikil hetja og af
er látið?
Dæmdur í fangelsi
„Ef herra Birkenfeld hefði ekki
gengið inn um dyr dómsmálaráðu-
neytisins sumarið 2007, efast ég um
að Bandaríkjastjórn hefði uppgötv-
að þessi gríðarlega umfangsmiklu
skattsvik. Hann hefur verið ákaf-
lega hjálpsamur og sagt rétt frá,“
sagði Kevin Downing, lögmaðurinn
sem fór fyrir rannsókninni á hend-
ur UBS, í réttarsalnum í ágúst í fyrra
eftir að Birkenfeld hafði játað sök í
einu ákæruatriði. En tæpum stund-
arfjórðungi síðar kom hann öllum í
réttarsalnum í opna skjöldu. Hann
snerist skyndilega gegn uppljóstr-
aranum hjálpsama. „Við krefjumst
þess að hann sæti fangelsisvist,“
sagði lögmaðurinn og benti á Birk-
enfeld. Líkt og Global Post útskýrir
kom refsigleði bandarískra stjórn-
valda gegn Birkenfeld mjög á óvart
þar sem uppljóstrarar eru sjaldnast
sendir í fangelsi, hvað þá ákærðir.
Birkenfeld var dæmdur í þriggja ára
og fjögurra mánaða fangelsi. Síðan
þá hafa verjendur hans reynt að fá
dóminum hnekkt og í júlí skrifaði
Birkenfeld Obama forseta bréf og
bað um náðun.
Stakk demöntum
í tannkremstúbu
Í starfi sínu hjá UBS-bankanum
beittu Birkenfeld og starfsbræð-
ur hans ýmsum ráðum til að lokka
auðmenn til að færa fjármuni sína
inn á leynireikningana í Sviss. Hver
starfsmaður sá um hundruð við-
skiptavina og þurfti að fljúga vítt og
breitt um heiminn til að funda með
þeim. Birkenfeld þurfti þó aðeins
að annast 40 viðskiptavini. Það var
vegna þess að hann sat á gullkálfi;
einum auðmanni sem kom fyrir yfir
200 milljónum Bandaríkjadala á
reikninga sína hjá UBS. Igor Olenic-
off, bandarískur milljarðamæringur
af rússneskum ættum, var gullkálf-
ur Birkenfeld hjá UBS, en varð óvin-
ur hans eftir uppljóstranirnar.
Olenicoff, hafði áður en Birk-
enfeld hóf störf hjá UBS, verið
skjólstæðingur hans hjá öðrum
bankastofnunum sem höfðu kom-
ið fjármunum hans fyrir í skatta-
skjóli á Bahamaeyjum. Birkenfeld
hefur ýmislegt á samviskunni hvað
þá gjörninga varðar en hann hefur
viðurkennt að hafa eitt sinn keypt
demanta í Evrópu, stungið þeim í
tannkremstúbu og sent þá til Olen-
icoff, til að fela umræddar 200 millj-
ónir dala. Hann viðurkenndi einnig
að hafa búið til flóknar viðskipta-
fléttur til að fela fjármunina í bönk-
um í Liechtenstein og Danmörku.
En Birkenfeld sagði lögmannin-
um Kevin Downing ekki frá því fyrr
en eftir að sá síðarnefndi hafði yfir-
heyrt Olenicoff. Bandarísk stjórn-
völd töldu að Birkenfeld hefði
leikið tveimur skjöldum og ekki við-
urkennt allan þátt sinn í hinum víð-
tæku skattsvikum. Dómarinn í mál-
inu sagði að ekki væri hægt að horfa
framhjá þessum alvarlegu glæpum.
Óréttlæti?
Bradley Birkenfeld segir hins
vegar í samtali við blaðamann-
inn Mic hael Bronner í viðtalsher-
berginu í fangelsinu að lögmenn
bandaríska dómsmálaráðuneytis-
ins séu einfaldlega fúlir og öfund-
sjúkir. „Þeim hefði aldrei tekist að
skúbba þetta. Og ég gerði það. Ég
kenndi þeim að vinna vinnuna
sína. Ég eyðilagði fyrir svo mörgu
valdamiklu og ríku fólki. Ég var
uppljóstrari og þeir hata það.“
En eins og Global Post bendir
á hlýtur að vera ergilegt fyrir Birk-
enfeld að dúsa í fangaklefanum
– af öllum þeim sem játuðu sök í
stærsta skattsvikamáli sögunnar,
yfirmenn UBS, Igor Olenicoff og
fimmtán þúsund aðrir skattsvik-
arar – situr hann einn í súpunni,
eftir að hafa ljóstrað upp um allt
saman.
Uppljóstrarinn
sem dúsir í
steininUm
Bandaríkjamaðurinn Bradley
Birkenfeld gerði eina mestu upp-
ljóstrun samtímans þegar hann
sagði bandarískum yfirvöldum
frá kerfisbundnum skattsvikum
bandarískra auðmanna sem
stunduð voru í svissneska bank-
anum UBS, þar sem hann starfaði.
Birkenfeld hóf fyrr á þessu ári
þriggja ára og fjögurra mánaða
fangelsisvist í rammgirtu fangelsi
vestra. Margir hafa furðað sig á
því að Birkenfeld sitji í steinin-
um, á meðan helstu leikend-
urnir í svikamyllunni,
sem hann ljóstraði upp
um, gangi lausir.
Hetja eða skúrkur? Bradley
Birkenfeld hjálpaði bandarískum
auðmönnum að svíkja undan
skatti en uppljóstraði um gríðar-
lega umfangsmikil svik um allan
heim. Á myndinni sést hann
fyrir utan fangelsið, daginn
sem hann hóf afplánun.
Fjallað er um fjölmörg aflandsfélög föllnu íslensku
bankanna í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem fyrst
og fremst voru notuð til að fela eignarhald þar sem komist
var hjá yfirtökuskyldu og hækka verð á hlutabréfum í
bönkunum. Hinir svokölluðu útrásarvíkingar áttu einnig
fjölmörg félög sem skráð voru á aflandseyjum víða um
heim. Þessi félög má finna á stöðum eins og á Kýpur,
Panama, Bresku Jómfrúaeyjunum, Delaware-fylki í
Bandaríkjunum, Cayman-eyjum og fleiri stöðum. Allt eru
þetta þekkt aflandssvæði þar sem mjög erfitt getur reynst
að fá upplýsingar um raunverulega eigendur félaganna.
Talið er að yfir 90 skattaskjól séu í heiminum í dag þar sem
milljónir huldufélaga eru starfrækt.
Í mörgum tilfellum er aflandsfélag sett upp af banka-
stofnun í landi sem býr við mikla bankaleynd, til dæmis
Lúxemborg, Sviss eða Liechtenstein. Starfsmenn í þessum
bankastofnunum stjórna félögunum og eru þeir einu sem
vita hverjir raunverulegir eigendur aflandsfélaganna eru.
90 skattaskjól í heiminum
Bankaleynd Í Genf í Sviss eru margar fjármálastofnanir þar sem vitneskju um aflandsfélög víða um heim er að finna.
Bankaleyndin í landinu er það mikil að sjaldnast tekst að fá upplýsingar um raunverulega eigendur aflandsfélaganna.