Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Blaðsíða 42
42 skrýtið umsjón: helgi hrafn guðmundsson helgihrafn@dv.is 6. ágúst 2010 föstudagur
Hinn 1. apríl 1957 birtist í breska fréttaskýringaþættinum Pano rama á BBC þriggja mínútna löng frétt um stóraukna spagettíuppskeru
í suðurhluta Sviss. Uppskeran góða var rak-
in til milds vetrar og hvarfs spagettíbjöllunn-
ar. Áhorfendur hlustuðu á Richard Dimbleby,
einn virtasta sjónvarpsmann Bretlands, ræða
um smáatriði spagettíræktunar og sáu hreyfi-
myndir af svissneskri fjölskyldu sem tíndi
spagettí af trjám og setti í fötur.
frægasta aprílgabbið
Þessi frétt Panorama er eitt frægasta og best
heppnaða aprílgabb sögunnar. Talið er að þetta
hafi verið í fyrsta sinn sem sjónvarpsformið var
notað í aprílgabbi. Spagettítrés-gabbið hlaut
gríðarlega athygli, en talið er að átta milljónir
hafi horft á Panorama 1. apríl 1957. Þúsund-
ir hringdu á skrifstofur BBC og vildu fá að vita
hvernig þeir gætu ræktað sín eigin spagettítré.
Yfirmenn BBC sömdu staðlað svar við spurn-
ingunni: „Setjið spagettístrimla í tómatsósu-
dollur og vonið það besta.“ Símtölunum ætlaði
að aldrei að linna þetta kvöld. Leonard Miall,
yfirmaður hjá BBC, gekk að símaborðunum til
að sjá hvað væri í gangi. „Það var hringt án af-
láts. Sum símtölin voru frá áhorfendum sem
höfðu notið brandarans, einn hringdi frá Bris-
tol og vildi benda okkur á að spagettí yxi ekki
lóðrétt heldur lárétt, að sjálfsögðu. En flest sím-
tölin voru frá æstu fólki sem bað BBC um að út-
kljá harðvítugar deilur innan fjölskyldunnar:
Eiginmaðurinn vissi að það hlyti að vera rétt
að spagettí yxi á tré þar sem Richard Dimbleby
hafði sagt það en eiginkonan vissi að það væri
búið til úr vatni og hveiti, en hvorugt þeirra gat
sannfært hitt,“ skrifaði Miall í æviminningum
sínum.
uppruni spagettís ráðgáta
Þrátt fyrir að margir vissu að von væri á apr-
ílgabbi í fjölmiðlum, það var nú einu sinni 1.
apríl, virtust sárafáir trúa því að Panorama,
með hinn gríðarlega virta og hátíðlega Richard
Dimbleby í fararbroddi, myndi brydda upp á
þessu. Önnur ástæða fyrir trúgirni sjónvarps-
áhorfenda var að spagettí var ekki útbreitt í
Bretlandi á sjötta áratugnum. Þrátt fyrir að vin-
sældir þess hefðu aukist eftir síðari heimsstyrj-
öldina var spagettí í hugum margra exótískur,
útlendur réttur og uppruni þess var greinilega í
raun ráðgáta fyrir sumum.
Króaði undirmanninn af
Á meðal þeirra sem hlupu apríl þetta kvöld var
Sir Ian Jacob, æðsti yfirmaður BBC. Honum
hafði verið sent bréf þar sem hann var varaður
við þættinum, en hann hafði ekki fengið bréf-
ið. Hann vissi því ekki hverju hann átti að trúa
þegar hann horfði á þáttinn.
Daginn eftir króaði Jacob Leonard Miall af
á ganginum í byggingu BBC og sagði: „Þegar
ég sá þessa frétt sagði ég við konuna mína: „Ég
held að spagettí vaxi ekki á trjám,“ og því næst
flettum við því upp í Britannica-alfræðiorða-
bókinni. Vissirðu, Miall, að Britannica minnist
ekki einu orði á spagettí?“
BBC gabbaði bresku þjóð-
ina hinn 1. apríl 1957 með
því að sýna frétt um spag-
ettíræktun í Sviss. Sagt
var að spagettí yxi á trjám.
Milljónir trúðu fréttinni,
enda var spagettí enn exót-
ískur og útlenskur réttur í
hugum Breta sem vissu lít-
ið um pastagerð. Þúsundir
manna hringdu á skrifstof-
ur BBC og vildu fá að vita
hvernig þeir gætu sjálfir
ræktað spagettí.
Frábær spagettíuppskera
Textinn sem lesinn var í frétt BBC, 1. apríl 1957:
Það er ekki bara í Bretlandi sem vorið í ár hefur komið öllum á óvart. hér í Ticino, á landamær-
um sviss og Ítalíu, hafa hlíðarnar yfir lugano-vatni blómgast mun fyrr en venjulega. Þið munið
spyrja hvað snemmbúin koma býflugna og blóma hafi með mat að gera, en veturinn sem leið,
einn sá mildasti sem við munum eftir, hefur haft víðtæk áhrif og það sem skiptir mestu máli er
gríðarlega góð spagettíuppskera.
spagettíbændur hafa ávallt miklar áhyggjur í síðari hluta mars. Þá má búast við frosthörkum
sem eyðileggja bragðið og gera bændum erfitt fyrir að fá rétt verð fyrir uppskeruna, sem
eyðileggst þó ekki alveg, á heimsmarkaði. en nú eru þessar hættur að baki og spagettíræktin
gengur vel.
svissnesk spagettíræktun er að sjálfsögðu ekki jafngríðarlega umfangsmikil og sú ítalska.
mörg ykkar hafa líklega séð myndir af gríðarlega stórum spagettíökrum Pó-dalsins. Í sviss er
umfangið miklu minna.
menn búast við mikilli sprettu í ár af annarri ástæðu, hvarfi spagettíbjöllunnar, en eyðilegg-
ingarmáttur dýrsins smáa hefur oft valdið miklum áhyggjum.
eftir að spagettíið hefur verið týnt af trjánum er það látið liggja í hlýju alpaloftinu. margir eiga
erfitt með að skilja hvernig spagettí getur orðið jafnlangt og raun ber vitni, en það er ávöxtur
margra ára nákvæmnisvinnu bændanna sem hafa náð að framleiða hið fullkomna spagettí.
nú er uppskerunni fagnað með hefðbundinni máltíð. skálað er fyrir nýju uppskerunni og
svo koma þjónarnir með hátíðlegan rétt, sem er auðvitað spagettí, sem tínt var af trjánum
snemma morguns, þurrkað í sólinni og borið ferskt úr garðinum á matarborðið, en þannig
bragðast það best. unnendum þessa réttar finnst ekkert jafngott og heimaræktað spagettí.
dreymdi um spagettítré
Milljónir breta
góð uppskera samkvæmt frétt BBC var
spagettíuppskeran í sviss frábær þetta
árið, enda hafði veturinn verið mildur og
spagettíbjallan ekki sést lengi.
spagettíræktun spagettístrimlarnir eru tíndir af
trjánum og svo þurrkaðir úti í sólinni.
Virtur maður Richard Dimbleby var frægasti og
virtasti sjónvarpsmaður Bretlands. Áhorfendur
trúðu hverju orði sem hann sagði.
rifist yfir sjónvarpinu starfsmenn BBC
þurftu að útkljá fjölskylduerjur sem hófust
eftir að fréttin um spagettítrén birtist.