Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Side 54
54 úttekt 6. ágúst 2010 föstudagur
Helstu fræðimenn í forsetafræðum Bandaríkjanna hafa kveðið upp úr-skurð sinn um hver hafi verið sá versti og hver sá besti af þeim sem
vermt hafa forsetastólinn í gegnum tíðina.
Hvað verstu forsetana varðar koma Nixon og
Bush upp í hugann, en samkvæmt könnun sem
gerð var á meðal áðurnefndra fræðimanna var
George W. Bush ekki eins slæmur og Richard
Nixon, hann var verri.
Nixon skýtur einnig hnetubóndanum
Jimmy Carter ref fyrir rass, en hann er gjarna
talinn hafa verið meinleysisgrey og léttvægur í
embætti.
Um George W. Bush hefur margt verið sagt
og flest niðrandi og eflaust má til sanns vegar
færa að hann hafi uppskorið líkt og hann sáði.
Bush á það sameiginlegt með Richard Nixon að
hafa leitt bandarísku þjóðina út í styrjaldir sem
grundvallaðar voru á hræðsluáróðri og blekk-
ingum. Báðir yfirgáfu forsetaskrifstofuna rúnir
trausti þjóðarinnar og fylgi, en hvor með sínum
hætti.
Richard Nixon var neyddur til að segja af
sér eða horfast ella í augu við möguleg réttar-
höld og fangelsisvist, en George W. Bush yfir-
gaf sviðið með einhverju sem túlka mátti sem
reisn.
Einkunnir í tuttugu flokkum
Þrátt fyrir að brotthvarf Nixons hafi verið væg-
ast sagt dramatískt og undir formerkjum vafa-
sams framferðis af hans hálfu fær hann mun
betri dóm, af hálfu stjórnmálasérfræðinganna
sem Siena Research Institute leitaði til, en
George W. Bush.
Forsetunum eru gefnar einkunnir í tuttugu
flokkum frá einum, sem er best, upp í fjöru-
tíu og þrjá, sem er verst. Flokkarnir varða bak-
grunn, menntun, samskiptahæfileika (talað
mál og ritað), stefnu í utan- og innanríkismál-
um, heilindi, merkileg afrek heima fyrir og
fleira. Forsetinn Franklin Roosevelt hefur bor-
ið höfuð og herðar yfir stallbræður sína í hverri
einustu könnun síðastliðin tuttugu og átta ár.
tvEir roosEvElt-ar
Sem fyrr segir trónir Franklin Roosevelt í efsta
sæti. Roosevelt fær góða einkunn í öllum flokk-
um, allt frá utan- og innanríkisstefnu til sam-
skiptahæfileika. Honum tókst að mati fræði-
mannanna að forðast afdrifarík mistök, en fékk
frekar slaka einkunn hvað heilindi varðar.
Næstbesti forseti Bandaríkjanna, að mati
fræðimannanna, er Teddy Roosevelt sem var í
embætti frá 1901 til 1909. Þrátt fyrir að mögu-
lega hafi fennt yfir minningu Teddys Roosevelt
hjá meginþorra almennings í Bandaríkjunum
er sú ekki raunin hjá sérfræðingunum sem
eru þeirrar skoðunar að hann hafi haft að bera
marga þeirra eiginleika sem prýddu Franklin.
Teddy fær fyrstu einkunn í þremur flokkum
þeirra á meðal áhættusækni og hugmynda-
flugi. Teddy var þekktur fyrir afstöðu sína gegn
hagsmunum stórfyrirtækja heima fyrir en
hugnaðist ágætlega heimsveldislegir tilburðir
utan landssteinanna.
fastir liðir Eins og vEnjulEga
Á hæla Roosevelt-unum er fátt um nýja menn.
Abraham Lincoln, George Washington og
Thomas Jefferson verma þriðja, fjórða og
fimmta sætið og skammt undan eru Dwight
Eisenhower og John F. Kennedy, sem tók við af
Eisenhower. Kennedy fær þokkalega einkunn
í nánast öllum flokkum nema heilindum þar
sem hann fær 35 stig.
Sitjandi forseti Bandaríkjanna, Barack
Obama, sem átti að vera ljósberi nýrra tíma fyr-
ir bandarísku þjóðina, situr í fimmtánda sæti
og má kannski vel við una því hann tók við afar
bágbornu búi af George W. Bush. Á meðal þess
sem Obama er talið til tekna eru hugmyndaflug
hans, samskiptahæfileikar og greind. En hon-
um hefur hins vegar ekki tekist að forðast af-
drifarík mistök að mati fræðimannanna. Leik-
arinn Ronald Reagan er þremur sætum neðar
en Barack Obama og vega lágar einkunnir fyrir
bakgrunn (fjölskylda, menntun og reynsla) og
greind meðal annars þungt í heildarútkomu
hans. Reagan fékk 34 fyrir bakgrunn og 36 fyr-
ir greind.
ÓhEilindi og grEindarskortur
Richard Nixon mætti vel una við þann dóm sem
forsetafræðingar Bandaríkjanna hafa fellt yfir
honum. Hann er þrátt fyrir allt í þrítugasta sæti
af fjörutíu og þremur. Háar einkunnir fyrir hug-
myndaflug, utanríkisstefnu og greind bjarga
því sem bjargað verður hjá Nixon. En heilindi
og hæfileiki til að forðast afdrifarík mistök voru
greinilega ekki á meðal helstu kosta hans því í
þeim flokkum fékk hann lægstu einkunn.
Af síðari tíma forsetum er það George W.
Bush sem fær verstu útreiðina og hafnar hann í
39. sæti af 43, og geri aðrir betur. Það er aðeins
í heppni og vilja til að taka áhættu sem hann
fær þokkalega einkunn. Í öðrum liðum fær
Bush slæma einkunn og í fimm flokkum fær
hann næstlægstu einkunnina, samskiptahæfi-
leikum, hvernig hann tókst á við efnahagsmál
landsins, hæfileikum til málamiðlana, árangri
í utanríkismálum og greind. Aðeins Warren
Harding er talinn hafa minni greind til að bera
en Bush yngri, en Harding er samkvæmt nið-
urstöðu könnunarinnar þriðji versti forseti
Bandaríkjanna frá upphafi.
mánuður í Embætti
Hvað sem meintum samskiptahæfileikum
George W. Bush líður þá tókst honum engu að
síður að sannfæra þjóðina um nauðsyn styrj-
aldar og tókst að auki að telja leiðtoga annarra
þjóða á að taka þátt með einum eða öðrum
hætti. Reyndar má leiða líkur að því að Bush
hafi tekist að vinna fylgi fjölda stefnumála sem
Bandaríkin hefðu verið betur stödd án.
Fjögur neðstu sætin skipa forsetar sem nán-
ast alltaf hafa orðið þess vafasama heiðurs að-
njótandi að vera taldir til verstu forseta Banda-
ríkjanna: Franklin Pierce, James Buchanan,
Warren G. Hardin og, í neðsta sæti, Andrew
Johnson.
Það kann að vekja furðu að George W. Bush
er talinn jafnvel verri forseti en William Henry
Harrison, sem er í 35. sæti. Harrison var níundi
forseti Bandaríkjanna, en sökum þess að hann
sat aðeins einn mánuð í embætti vannst hon-
um sennilega ekki tími til að gera nein axar-
sköft.
hEimskur, hEimskari
Sérfræðingar í forsetafræðum telja George W.
Bush ívið vitgrennri en áðurnefndan William
Henry, því Bush lenti í 42. sæti hvað greind
varðar, en William Henry í því 31. Engu að síður
má velta fyrir sér hvort William Henry Harrison
eigi skilið svo „góðan“ dóm því frægt er þegar
hann flutti innsetningarræðu sína í mars 1841.
En fyrst er vert að drepa aðeins á forsögu hans.
Árið 1811 fór William Henry Harrison fyr-
ir her Bandaríkjanna gegn Shawnee-indján-
um í bardaga sem síðar var kenndur við Tippe-
canoe. Bandaríkjamenn höfðu sigur þótt áhöld
séu um hversu glæsilegur hann hafi verið. Fyrir
vikið varð William Henry Harrison, þá rétt inn-
an við fertugt, hetja í augum bandarísku þjóð-
arinnar.
Á köldum og blautum degi, þrjátíu árum síð-
ar, lét hann sig hafa það að standa án yfirhafn-
ar eða hatts í kalsaveðri og halda innsetning-
arræðu sína. Ræðan var tveggja klukkustunda
löng og hafði þó verið stytt eitthvað. Einnig fór
William Henry í opnum vagni um götur Wash-
Sagan hefur farið misblíðum höndum um Bandaríkja-
forseta. Sérfræðingar í forsetafræðum felldu nýlega
dóm sinn um forsetana og tóku tillit til ýmissa þátta í
fari þeirra. Í efstu sætum eru fastir liðir eins og vana-
lega. barack obama lendir í fimmtánda sæti, en forveri
hans fær frekar háðulega útreið.
BusH ekki Hátt skrifaður
barack obama og forveri
hans í starfi George W. Bush
fær falleinkunn á nánast
öllum sviðum. mynd rEutErs
abraham lincoln Fáir sérfræðingar velkjast í vafa
um ágæti Lincolns. mynd WikipEdia
dýrkeyptir karlmennskutilburðir William
Harrison varð ekki langlífur í embætti. mynd WikipEdia