Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.2010, Page 64
n Þýðandinn Lára Hanna Einars-
dóttir sem um langt skeið hefur
verið í hópi vinsælustu bloggara
landsins er hætt að blogga. Þetta
tilkynnti Lára Hanna lesendum sín-
um í pistli á vef Eyjunnar á fimmtu-
dag. „Þetta er líklega erfiðasti pist-
ill sem ég hef skrifað,“ sagði Lára
Hanna en ástæðan fyrir því að hún
segir skilið við bloggið er sú að of
mikill tími fer í færslurnar. „...Ég
get ekki hugsað mér að skrifa fimm
setninga færslur eða
eitthvað aðeins
lengra af og til
eins og marg-
ir bloggarar
gera. Ann-
aðhvort geri
ég þetta á
minn hátt
eða sleppi
því alveg,“
segir Lára
Hanna.
Sá er hugaður!
Vinsæll bloggari
kVeður
Getur þú hugsað þér
daglegt líf án rafmagns?
Dreifikerfi RARIK er mikið að vöxtum enda þjónar það bæði fjölmörgum
þéttbýlisstöðum um land allt og strjálbýlinu. Traust dreifikerfi rafmagns er
lykillinn að öflugu samfélagi.
www.rarik.is
n Geir Gunnlaugsson, landlækn-
ir og formaður félags áhugafólks
um málefni Afríku, flytur nú inn
til landsins hljómsveitina Super
Mama Djombo frá Gíneu-Bissá.
Þetta er í annað skipti sem hljóm-
sveitin kemur til landsins á veg-
um Geirs, en hann bjó sjálfur um
árabil í Afríkuríkinu og heillað-
ist af menningu landsins. Super
Mama Djombo verður með tón-
leika á Nasa á afrískri tónlistar- og
dansveislu. Þá verð-
ur hljómsveitin á
Græna Hattin-
um á Akureyri
á laugardag
og svo verður
hljómsveitin
með lokatón-
leika á sunnu-
dagskvöldið
á Land-
náms-
setrinu í
Borgar-
nesi.
landlæknir flytur
inn super MaMa djoMbo
n Hugi Jens Halldórsson, sem sló
eftirminnilega í gegn sem Ofurhugi
í Strákunum og 70 mínútum fyrir
nokkrum árum, er meðal þeirra
sem sækja um starf sveitarstjóra í
Skagafirði.
Hugi hefur komið víða við á undan-
förnum árum en auk þess að koma
fram í sjónvarpi hefur Hugi komið
að knattspyrnuþjálfun. Þá spilaði
hann um tíma með Tindastóli á
Sauðárkróki þar sem hann er fædd-
ur. Annar þekktur einstaklingur af
vettvangi fjölmiðla
er einnig á meðal
umsækjenda um
starfið í Skagafirði.
Það er Pálmi Jón-
asson fréttamað-
ur á RÚV til fjöl-
margra ára.
ofurhugi Vill
Verða sVeitarstjóri
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Áskriftarsíminn er 512 70 80
Fréttaskot 512 70 70
sólarupprás
04:50
sólsetur
22:15
Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi
forstjóri fjárfestingafélagsins Gnúps,
var með nærri 11 milljónir á mánuði
árið 2007 fyrir að stýra Gnúpi, sam-
kvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar
það árið. Þessi laun Þórðar Más þýða
að ef hann hefur fengið alla þessa
upphæð frá Gnúpi hafa heildarlauna-
greiðslur til hans frá félaginu numið
nærri 130 milljónum króna.
Fyrir skömmu greindi DV frá
helstu tölum úr ársreikningi Gnúps
fyrir árið 2007 en búið var að bíða
eftir reikningnum með nokkurri eft-
irvæntingu vegna þess hversu mik-
ilvægt fall Gnúps var í ljósi íslenska
efnahagshrunsins. Segja má að hrun-
ið 2008 hafi byrjað með falli Gnúps
árið 2007. Skilanefnd Glitnis stýrir
Gnúpi í dag en Glitnir yfirtók Gnúp í
ársbyrjun 2008 vegna skulda félags-
ins. Ársreikningi félagins var hins veg-
ar ekki skilað fyrr en nú í sumar. Í árs-
reikningnum kom fram að Gnúpur
hefði greitt níu starfsmönnum félags-
ins rúmar 405 milljónir króna í laun
árið 2007. Þetta var gert þrátt fyrir
að tap Gnúps hefði numið nærri 34
milljörðum króna árið 2007.
Launatölur Þórðar Más fyrir árið
2007 sýna að forstjóri Gnúps hefur
persónulega fengið meira en fjórð-
ung af þeim rúmlega fjögurhundruð
milljónum króna sem Gnúpur greiddi
í laun til starfsmanna félagsins á árinu
2007.
Þórður Már Jóhannesson fékk greitt ríkulega fyrir að stýra Gnúpi í strand:
130 Milljónir í laun á fallári