Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Page 2
HRAKTIST FRÁ
SÓKNINNI, RÚ-
INN ÆRUNNI
n Séra Flóki Kristinsson,
sóknarprestur á Hvanneyri,
starfaði í Langholtskirkju
árið 1996 þegar Sigrún
Pálína Ingvarsdóttir leitaði
til hans. Í kjölfarið sendi Ólafur
Skúlason út fréttatilkynningu, þar
sem Flóki var sagður hafa feng-
ið konurnar til að ljúga ofbeldinu
upp á Ólaf. Hann segir Karl Sigur-
björnsson hafa stutt Ólaf og hefur
aldrei treyst honum síðan. Nú sé
aftur kominn tími til að gera þessi
mál upp.
LEYFT AÐ HALDA
LÁTLAUST
HEIMILI
n Héraðsdómur Reykjavíkur
úrskurðaði á föstudag að
heimila skuli skiptastjóra
þrotabús Stefáns Hilmars
Hilmarssonar, fjármála-
stjóra 365, aðgang að inn-
búi Stefáns. Stefán áfrýjaði
úrskurðinum til hæstaréttar og er
vongóður um að niðurstöðunni verði
snúið. Stefán og eiginkona hans,
Friðrika, fá að halda því sem telst
nauðsynlegt til þess að halda látlaust
heimili. Þau munu að öllum líkindum
missa málverk eftir Kjarval til kröfuhafa.
JÓHANNES KARL KEYPTI
GLITNISBRÉF Í HRUNINU
n Jóhannes Karl
Guðjónsson knatt-
spyrnumaður keypti
og seldi
hlutabréf
í Glitni
skömmu
fyrir hrun
og græddi á þeim.
Glitnir keypti bréf-
in af félagi hans á
hærra verði en þau
höfðu verið seld á
jafnvel þó bankinn
hefði verið kom-
inn á hliðina. Jakob
Valgeir Flosason og Tómas Hermannsson gerðu þetta einnig. Jóhannes
segir að viðskiptafélagi hans hafi haft allsherjarumboð til að skuldbinda
félagið og að hann hafi ekki komið að ákvörðuninni.
2
3
1
SKIPTASTJÓRI SÆKIR Á HEIMILI STEFÁNS OG FRIÐRIKU:
mánudagur og þriðjudagur 23. – 24. ÁgÚST 2010 dagblaðið vísir 96. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
fréttir
„KARL BIRTIST
MÉR SEM
ALLT ANNAR
MAÐUR“
INNBÚIÐ
TEKIÐ AF
ÞEIM
brÚðkaUP aNítU brieM:
„allir með
tárin í
augunum“
fólk
sigrÚN PálíNa:
n Segir hann hafa
þrýSt á Sig að þegja
n „ég hef aldrei treySt
honum eftir þetta“
Chelsea:
29-0
í SíÐUSTU
FIMM
LEIKjUM
Sport
ÓTTAST
SPRENGI-
HÆTTU
n af gaSfélagi
Bjarna ármannS
ÞEGAR
ÁFENGI
DREPUR
úttekt
fréttir
n fyrrVerandi
fjármálaStjóri
BaugS SViptur
eigum SÍnum
n fá að halda
„látlauSt“ heimili
n flutti húSið á móður SÍna
n „Vona að þeir Snúi þeSSu Við“
n „alltaf erfitt fyrir fólk að
takaSt á Við SVona“
vitNað UM aðild sigUrðar eiNarssoNar:
þeSS Vegna er
hann grunaður
fréttir
Séra Flóki hraktiSt úr kirkjunni:
miðvikudagur og fimmtudagur 25. – 26. ÁgÚST 2010 dagblaðið vísir 97. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
fréttir
EINS OG
GLÆPA-
SAMTÖK
Ósætti við nágranna:
fólk
FREKAR
VÉLAR EN
LÍFVERUR
ErlENt
n Stóð mEð SigrÚNu
PÁlÍNu gEgN ólafi
SkÚlaSYNi
n „StuNdum lEið
mér EiNS og ég væri
komiNN iNN Í glæPaSamtök“
n „kallað Á Eftir mér og Hrækt Á mig“
n „SPilliNg“ iNNaN kirkJuNNar
n „NÚNa Er komiNN tÍmi Á HrEiNSuN“
n trEYStir Ekki karli
GLITNIR
BORGAÐI
ALLT FYRIR
BJARNA
n lJÚft lÍf Í NorEgi
M
Yn
d
r
Ó
be
rt
r
eY
n
is
sO
n
ENdINGAR-
BESTU FAR-
TÖLVURNAR
kEYPti Í glitNi
rétt fYrir HruN
n „ég taPaði,“ SEgir JóHaNNES karl
fréttir
alHeiMUrinn:
bretland:
ÍSLENSKUR
KÚLULÁNÞEGI
Í EFTIRLITIÐ
fréttir
STARFSMENN
MERKTIR MEÐ
LÍMMIÐUM
álverið á grUndartanga:
NEYtENdur
fréttir
ÞÓRUNN
FLYTUR MEÐ
HUNDANA
jóhannes karl keypti
glitnisbréf í hruninu
2 fréttir 25. ágúst 2010 miðv
ikudagur
Félag í eigu Jóhannesar Karls Guð-
jónssonar, knattspyrnumanns hjá
Huddersfield Town, keypti og seldi
umtalsvert magn hlutabréfa í Glitni
banka rétt fyrir hrun bankans haust-
ið 2008. Þetta kemur fram í yfirliti
frá Glitni yfir viðskipti bankans með
hlutabréf í sjálfum sér frá því í maí
2008 fram að hruninu í september
sem DV hefur undir höndum. Heima-
síðan Wikileaks lét DV fá yfirlitið um
þessi eigin viðskipti bankans en bók-
in sem hýsti þessi viðskipti var kölluð
„Bók 1000“ hjá Glitni.
Í yfirlitinu er fjallað um kaup og
sölu Glitnis á eigin hlutabréfum á um-
ræddu tímabili og kemur meðal ann-
ars fram í því sú sala á hlutabréfum til
lykilstarfsmanna bankans sem fram
fór í maí 2008. Nokkra athygli vekur í
yfirlitinu að í flestum tilfellum er mót-
aðili Glitnis í viðskiptunum yfirleitt
bankinn sjálfur, starfsmenn hans eða
viðskiptavinir sem, eins og síðar hefur
komið fram, voru í eignastýringu hjá
bankanum. Glitnir virðist því í flest-
um tilfellum hafa verið að eiga við-
skipti við sjálfan sig með bréf í sjálfum
sér á umræddu tímabili.
Bréfin seld á hærra verði
Félag Jóhannesar heitir JH Trad-
ing en hann er ennþá skráður fyr-
ir því ásamt Hlöðver Geir Tómassyni
hugbúnaðar sérfræðingi. Jóhannes og
Hlöðver eiga helmingshlut í félaginu
hvor. Í yfirlitinu frá Glitni kemur fram
að Glitnir hafi selt JH Trading 24,5
milljónir hluta í Glitni þann 23. sept-
ember 2008 og er söluverðið skráð
sem „3,64 E + 0,8“. Þremur dögum síð-
ar, þann 26. september 2008, kaup-
ir Glitnir svo nákvæmlega eins mikið
magn bréfa í bankanum af JH Trad-
ing og greiðir fyrir þau hærra verð en
bankinn hafði selt þau á nokkrum
dögum áður. Kaupverð Glitnis á bréf-
um JH Trading er þar skráð sem „3,85
E + 0,8“.
Athygli vekur að þetta var degi
eftir að þáverandi stjórnarformaður
Glitnis, Þorsteinn Már Baldvinsson,
fór þess á leit við Seðlabanka Íslands
að hann veitti Glitni 600 milljóna
evra lán til að hann gæti staðið í skil-
um með skuldbindingar sínar og ein-
ungis þremur dögum áður en tilkynnt
var að íslenska ríkið myndi yfirtaka
75 prósent eignarhlut í Glitni. Bréf JH
Trading í Glitni voru því keypt á þessu
hærra verði þrátt fyrir þessa þróun og
yfirvofandi fall bankans.
Í yfirlitinu kemur fram að sams
konar viðskipti áttu sér stað á milli
Glitnis og tveggja þekktra viðskipta-
vina bankans, Tómasar Hermanns-
sonar bókútgefanda og Jakobs Val-
geirs Flosasonar, útgerðarmanns í
Bolungarvík, sem kenndur er við
Stím, á dögunum fyrir yfirtöku Glitn-
is. Þann 19. september keypti eignar-
haldsfélag Tómasar 28 milljón hluti
í Glitni af Glitni og seldi bankanum
þá svo fjórum dögum síðar á hærra
verði. Þann 22. og 25. september
gerði eignarhaldsfélag Jakobs Val-
geirs, Ofjarl, slíkt hið sama en einnig
þá fékk félagið meira fyrir bréfin frá
Glitni en greitt hafði verið fyrir þau.
Glitnir tapaði því á öllum þessum
viðskiptum á þessum tíma og verð-
ur ekki séð að þau hafi þjónað hags-
munum bankans nema að því leyti
að með þeim komst hreyfing á við-
skipti með bréf bankans og svo virt-
ist sem framboð væri eftir bréfum
á markaði. Hlutabréfaverð í Glitni
hafði farið hríðlækkandi frá því að
það náði hámarki í kringum 30 á
hlut um sumarið 2007 og verður því
að telja sérstakt að Jóhannes, Tóm-
as og Jakob Valgeir hafi keypt bréfin
á þessum tíma og enn sérstakara að
Glitnir hafi greitt meira fyrir bréfin en
þau voru seld á.
Segist ekki hafa komið að
viðskiptunum
Jóhannes Karl segir aðspurður, í
spjalli frá Bretlandi, að hann hafi
ekki tekið ákvörðun um að kaupa
bréfin í Glitni á þessum tíma heldur
viðskiptafélagi hans, Hlöðver Geir,
sem hafi haft allsherjarumboð fyrir
hans hönd til að skuldbinda félag-
ið. „Ég hef voða lítið getað verið með
puttana í mínum viðskiptum heima
á Íslandi út af minni vinnu hér úti,“
segir Jóhannes Karl. Hann segist hafa
vitað af því á sínum tíma að félagið
hefði keypt hlutabréfin í Glitni en að
ákvörðunin hafi ekki verið hans. Jó-
hannes segist ekki vita hvernig hluta-
bréfakaupin í Glitni voru fjármögn-
uð.
Staða JH Trading í dag er á þann
veg að félagið tapaði 70 og 88 millj-
ónum króna árin 2008 og 2009, sam-
kvæmt ársreikningum fyrir þessi
ár, og er eiginfjárstaðan neikvæð. Í
skýringum með ársreikningunum
kemur fram að efast sé um rekstr-
arhæfi félagsins vegna skuldastöðu
þess gagnvart Glitni banka en í árs-
reikningi síðasta árs kemur fram að
þessir skuldir nema meira en 210
milljónum og að þær séu tilkomnar
vegna uppgjörs á gjaldmiðlaskipta-
samningum við Glitni. Félagið er því
tæknilega gjaldþrota. Þar er einnig
tekið fram að félagið hafi fjárfest fyr-
ir 364 milljónir í hlutabréfum í félög-
um og selt hlutabréf fyrir 384 millj-
ónir árið 2008. Hugsanlegt er að hluti
þessa hagnaðar sé tilkominn vegna
sölunnar á Glitnisbréfunum.
Aðspurður hvort hann hafi ekki
tapað fjármunum á félaginu segir Jó-
hannes Karl að vissulega hafi hann
gert það. „Jú, jú, ég tapaði á þessu fé-
lagi, tryggingum og öðru slíku. Þetta
er ekki allt saman tekið út með sæld-
inni,“ segir Jóhannes en meðal þess
sem hann segir að hafi komið sér illa
fyrir félagið er að það tók þátt í skulda-
bréfaútboði í gegnum Glitni sem síð-
ar hafi „farið til fjandans“.
Viðskipti þessara þriggja aðila
með bréfin í Glitni þetta skömmu fyr-
ir hrunið renna því hugsanlega enn
frekari stoðum undir þá niðurstöðu
sem komist er að um eigin viðskipti
Jóhannes Karl Guðjónsson knattspyrnu-
maður keypti og seldi hlutabréf í Glitni
skömmu fyrir hrun og græddi á þeim.
Glitnir keypti bréfin af félagi hans á hærra
verði en þau höfðu verið seld á jafnvel þó
bankinn væri kominn á hliðina. Jakob
Valgeir Flosason og Tómas Hermannsson
gerðu þetta einnig. Jóhannes segir að
viðskiptafélagi hans hafi haft allsherjar-
umboð til að skuldbinda félagið og að hann
hafi ekki komið að ákvörðuninni.
inGi F. VilHJálmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Ég hef voða lítið getað verið með
puttana í mínum við-
skiptum heima á Íslandi
út af minni vinnu hér úti.
Tölvupóstur Rósants til Lárusar
Weldings og fleiri 2. september 2008:
„Vil vekja athygli á því að
staða bankans í eigin bréf-
um er orðin mjög þung
og því skynsamlegt að
nálgast nýja aðila með
það í huga að koma
gömlum bréfum í
lóg. RMT“
HeiMild: SkýRSla
RannSóknaRnefndaR
alþingiS
Úr skýrslunni
Keypti líka bréf Bókaútgefandinn
Tómas Hermannsson hjá Sögum útgáfu.
Grætt á bréfunum félag
Jóhannesar karl græddi á
viðskiptunum með hlutabréfin í
glitni sem félagið hélt utan um.
miðvikudagur 25. ágúst 2010
fréttir 3
Glitnis í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis; að starfsmenn eigin við-
skipta Glitnis hafi haft óeðlilega að-
komu að viðskiptum með hlutabréf
í bankanum og að þessi afskipti hafi
miðað að því að koma röngum eða
misvísandi upplýsingum um stöðu
Glitnis út á markaðinn.
Viðskiptin foru fram í maí 2008 og er rætt um þau í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis og koma þau einnig fram á yfirlitinu frá Wikileaks.
Félag Starfsmaður Lánsfjárhæð í milljónum
Gnómi ehf Jóhannes Baldursson 782
AB 154 ehf Vilhelm Már Þorsteinsson 787
Strandatún ehf Rósant Már Torfason 782
Margin ehf Magnús Arnar Arngrímsson 787
Einarsmelur 18 ehf Einar Örn Ólafsson 782
HEKT ehf Eggert Þór Kristófersson 510
Langidalur ehf Magnús Pálmi Örnólfsson 519
AB 158 ehf Ingi Rafnar Júlíusson 519
Skebbi ehf Rúnar Jónsson 346
Hlutabréfakaup í Glitni
Einn helsti starfsmaður gamla Kaupþings, Guðni Níels Aðal-
steinsson, starfar nú fyrir breska fjármálaeftirlitið. Hlutverk
Guðna er að fylgjast með lausafjárstöðu breskra banka. Guðni
fékk nærri 1.300 milljóna kúlulán hjá Kaupþingi. Samstarfsmað-
ur Guðna hjá breska fjármálaeftirlitinu segir hann vera í fríi.
Guðni Níels Aðalsteinsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri fjárstýr-
ingar gamla Kaupþings og einn af
þeim sem fékk kúlulán frá bankan-
um til að kaupa hlutabréf í honum,
hefur verið ráðinn sem starfsmað-
ur breska fjármálaráðuneytissins
(FSA). Í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis kemur fram að við fall
bankans hafi Guðni og eignarhalds-
félag hans, RST ehf., verið búin
að fá nærri 1.300 milljónir króna
að láni frá Kaupþingi til að kaupa
hlutabréf í bankanum. Reikna má
með að slitastjórn Kaupþings krefji
Guðna um þessa fjármuni líkt og
aðra háttsetta starfsmenn Kaup-
þings.
Þessi staðreynd virðist skipta
litlu máli fyrir breska fjármálaeft-
irlitið þegar það metur hæfi Guðna
til að vinna fyrir stofnunina en hún
skipti miklu máli þegar hæfi Guðna
var metið hér heima á Íslandi. Ís-
lenska fjármálaeftirlitið vék Guðna
úr skilanefnd gamla Kaupþings í
ágúst í fyrra vegna tengsla hans við
bankann á sínum en Guðni hafði
þá setið í skilanefndinni frá hrun-
inu 2008. Nokkrum mánuðum eft-
ir þetta réði Guðni sig yfir til breska
fjármálaeftirlitsins.
Einn af fjórum
Guðni Níels var einn af fjórum
skilanefndarmönnum sem Fjár-
málaeftirlitið vék frá störfum í ágúst
í fyrra með þeim rökum að ekki væri
lengur þörf á þekkingu þeirra. Svo
vildi reyndar til að hinir mennirnir
þrír höfðu allir unnið fyrir bankana
fyrir hrun. Þeir sem um ræddi auk
Guðna voru Ársæll Hafsteinsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri lög-
fræðisviðs Landsbankans, Sigur-
jón Geirsson, innri endurskoðandi
Landsbankans, og Kristján Óskars-
son, sem var yfir viðskiptabanka-
sviði Glitnis.
Líklegt verður því að telja að
þrátt fyrir þá ástæðu sem Fjármála-
eftirlitið gaf upp hafi helsta ástæð-
an fyrir brottvikningu mannanna
úr starfi verið þátttaka þeirra í starfi
bankannanna fyrir hrun.
Heimildir DV herma að Guðni
hafi þann starfa innan breska fjár-
málaeftirlitsins að fylgjast með
lausafjárstöðu breskra banka.
Í fríi
Þegar DV hafði samband við breska
fjármálaeftirlitið til að ræða við
Guðna lenti blaðamaður á sessu-
nauti Guðna sem sagði að hann
væri í fríi. „Hjá Guðna Níels Aðal-
steinssyni [...] Hann er í fríi,“ sagði
sessunautur Guðna sem ekki gaf
upp nafn sitt. Samstarfsmaður
Guðna vildi ekki gefa upp hvenær
von væri á honum úr fríi og bar
því við að það væri trúnaðarbrot ef
hann færi að ræða um einkahags-
muni samstarfsmanna sinna við
blaðamenn.
Ljóst er að öfugt við íslenska
fjármálaeftirlitið vill það breska
nota starfskrafta Guðna þrátt fyr-
ir aðild hans að íslenska efnahags-
hruninu og tengdum málum.
iNGi F. viLhjáLmSSoN
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Hjá Guðna Aðal-steinssyni [...]
Hann er í fríi.
Frá Íslands til Bretlands
Guðni Níels fór frá því að vinna
undir íslenska fjármálaeftirlitinu,
í skilanefnd Kaupþings, og yfir til
þess breska á innan við ári.
frá kaupþingi
í eftirlitsstörf
Verð aðeins 17.950 krónur
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
• Shiatsu nudd
• Infrarauður hiti
• Titringur
• Fjarstýring
Fjölnota
nuddpúði
Opið virka daga frá kl. 9 -18
ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI
ÞETTA HELST Karl Gústaf Svíakonungur fékk sér sundsprett í Þingvallavatni í ferð sinni til Íslands og skoðaði meðal annars
gosstöðvarnar undir Eyjafjallajökli. Konungurinn dvaldi hér í
nokkra daga ásamt föruneyti. Hópurinn var við veiðar í Heið-
arvatni í Mýrdal. Karl Gústaf missti af tuttugu og fimm punda
urriða í veiðiferðinni.
HITT MÁLIÐ
2 FRÉTTIR 27. ágúst 2010 FÖSTUDAGUR
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Slakaðu á heima
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
Verið velkomin í verslun okkar
prófið og sannfærist!
Úrval nuddsæta
Verð frá 23.750 kr.
KONUNGUR SYNTI
Í ÞINGVALLAVATNI
Karl Gústaf, Svíakonungur, dvaldi
hér á Íslandi í nokkra daga við veið-
ar. Konungurinn var hér á landi á
eigin vegum á meðan hann var í
sumarfríi. Hann var eini meðlim-
ur sænsku konungsfjölskyldunnar
sem kom hingað til lands en hann
var hér ásamt föruneyti, lífvörðum
og vinafólki, alls átta manns. Talið
er að Karl Gústaf hafi síðast komið
hingað til lands árið 2004.
Veiddi í Heiðarvatni
Karl Gústaf kom til landsins um síð-
ustu helgi og stóð til að hann héldi
utan á ný á fimmtudag, samkvæmt
upplýsingum frá sænska sendiráð-
inu. Hann var við veiðar í Heiðar-
vatni í Mýrdal en hann hafði næt-
ursetu á Hótel Rangá við Hellu.
Konungurinn skoðaði sig um,
ásamt hópnum, á Suðurlandi og
fór meðal annars um gosstöðvarnar
undir Eyjafjallajökli. Þar ræddi Karl
Gústaf við Ólaf Eggertsson, bónda á
Þorvaldseyri.
Hann fór einnig til Þingvalla
þar sem hann fékk sér sundsprett í
norðanverðu vatninu.
Veiðiferð hópsins var gjöful. Sá
sem stærsta fiskinn veiddi krækti í
tuttugu og fimm punda urriða. Karl
Gústaf veiddi sjálfur fimm fiska, en
enginn þeirra var þó jafnvænn og sá
sem minnst er á að framan.
Ferðinni lauk síðan í Reykjavík
þar sem föruneytið gerði sér glaðan
dag og fékk sér meðal annars drykki
á veitingastaðnum Austur í Reykja-
vík.
Langar að koma aftur
Björn Erikson, hótelstjóri Hótels
Rangár, slóst í för með hópnum
hluta af ferðalagi hans, en hann
er sjálfur sænskur að uppruna.
Hann segir Karl Gústaf hafa skipu-
lagt ferðina fyrir um ári síðan. „Það
voru rosalega stórir urriðar þarna.
Sá stærsti sem ég hef fengið var 27
pund fyrir fimm árum. Karl Gúst-
af er mjög ánægður með Ísland og
langar að koma aftur. Þarna komu
átta strákar saman til þess að veiða
og höfðu gaman af. Veðrið var rosa-
lega fínt, veiðin góð og náttúran fal-
leg,“ segir hann.
Björn segir að Karl hafi þó ekki
talað um hvenær hann hygðist
koma aftur, vegna öryggisreglna
konungsembættisins.
Verndari Garðarsstofu
Áður hefur verið sagt frá því þegar
Haraldur fimmti Noregskonungur
kom hingað til lands en hann var við
veiðar í Vatnsdalsá í Húnaþingi, sömu
á og tónlistarmaðurinn Eric Clapton
hafði verið við veiðar í skömmu áður.
Haraldur kom, líkt og Karl Gústaf,
hingað til lands í einkaerindum með
vinum sínum.
Karli Gústaf hefur verið boðið að
vera viðstaddur opnun Garðarsstofu
á Húsavík á næsta ári, en hann hefur
gerst verndari verkefnisins auk þess
sem sænska sendiráðið hefur stutt
framgang þess, þar á meðal að gera
landnámi Garðars Svavarssonar skil.
Á Húsavík hafa einnig verið haldnir
sænskir dagar árlega.
RÓBERT HLYNUR BALDURSSON
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Karl Gústaf er mjög ánægður
með Ísland og langar að
koma aftur.
Karl Gústaf var í strákaferð
Konungsfjölskyldan var ekki með
í för í veiðiferðinni.
Haraldur veiddi í Húna-
þingi Stutt er síðan Haraldur
Noregskonungur var við
veiðar í Vatnsdalsá.