Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Síða 10
„Það er alveg skýrt að slíkt var ekki heimilað,“ segir Jón Pétur Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn lögregl- unnar á Suðurnesjum, um beiðni starfsmanna ísraelska ríkisins um heimild til að bera vopn utan flugvél- ar ísraelskra yfirvalda, sem millilenti á Keflavíkurflugvelli á sunnudag og fór aftur á mánudag. DV greindi frá málinu á miðvikudaginn. Áhöfnin gisti á Park Inn-hótel- inu í Ármúla í Reykjavík. Flugvélin var á leið vestur um haf en frá áhöfn- inni kom fram beiðni um heim- ild fyrir vopnaða öryggisverði sem skyldu gæta vélarinnar á flugvernd- arsvæðinu. Ríkislögreglustjóri hafn- aði beiðninni. Gæsla á íslensku flug- verndarsvæði er á hendi íslenskra yfirvalda, í þessu tilviki lögreglunnar á Suðurnesjum. Ekki vopnaleit „Þetta er náttúrulega á öryggissvæði, þetta er öryggismál. Eftirlitsaðilar í þessu tilviki eru lögregla og tollgæsla. Nákvæmlega um framkvæmdina er í sjálfu sér ekkert gefið upp, og er talið mjög óeðlilegt að gefa slíkt upp,“ segir Jón Pétur. Aðspurður hvort menn fari í gegnum vopnaleit áður en þeir koma inn í landið segir Jón Pétur að í þess- um tilvikum sé ekki um vopnaeftirlit að ræða. „Það er alveg tekið fram að ekki er heimilt að fara vopnaðir inn í landið. Viðkomandi aðilum er gert það alveg ljóst að þeim er ekki heimilt að bera vopn frá borði. Eftirlits aðilar ganga úr skugga um að það sé ekki gert,“ segir Jón Pétur. Mikil leynd Hann sagðist ekki geta tjáð sig að öðru leyti um eftirlitið og ekki sagt til um hvaða menn þetta voru sem dvöldu hér á landi til að hvíla sig. Samkvæmt sjónarvottum DV samanstóð ísraelski hópurinn af tveimur eldri mönnum og mönnum á fertugsaldri sem allir voru í mjög góðu líkamlegu ástandi og afar snyrtilegir til fara. Flugvélin sem þeir komu í til lands- ins var geymd á lokuðu svæði á Kefla- víkurflugvelli samkvæmt heimildum DV. Urður Gunnarsdóttir, upplýsinga- fulltrúi utanríkisráðuneytisins, sagðist í samtali við DV á miðvikudaginn ekki geta sagt hvaða menn var um að ræða. 10 fréttir 27. ágúst 2010 föstudagur birgir olgEirsson blaðamaður skrifar: birgir@dv.is Starfsmenn ísraelska ríkisins sem komu til landsins á sunnudag þurftu ekki að fara í gegnum vopnaleit er þeir stigu frá borði flugvélar ísraelska ríkisins á Keflavíkurflugvelli. Var þeim einfaldlega gert að skilja vopnin eftir í flugvélinni og gengu eftirlitsmenn úr skugga um að þeir færu ekki vopnaðir frá borði. VILDU VOPNAÐA VERÐI HJÁ FLUGVÉLINNI ... alveg ljóst að þeim er ekki heimilt að bera vopn frá borði. Ekki heimilað Starfsmennísraelska ríkisinsmáttuekkihafavopnaða verðifyrirutanvélinasemmillilentiá Keflavíkurflugvelliásunnudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.