Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Qupperneq 23
FÖSTUDAGUR 27. ágúst 2010 ERLENT 23 en það er hægt og verður að gera með blandaðri aðferð skattlagningar og reglugerða,“ skrifaði Nóbelshagfræð- ingurinn Joseph Stiglitz í nýlegri grein sem birtist meðal annars í Fréttablað- inu. Hann segir að afnám regluverks á fjármálamörkuðum heimsins hafi reynst ömurleg mistök. Nú verði að regluvæða en ekki með hálfum hug. „Það þarf ekki að koma á óvart þótt fjármálageirinn vilji ekki láta koma taumhaldi á sig. Fyrirkomulagið hent- aði honum vel eins og það var. Þar sem lýðræðið er veikt og spilling land- læg hefur fjármálageirinn úrræði til að sporna við breytingum. En góðu heilli hafa íbúar Evrópu og Banda- ríkjanna fengið sig fullsadda. Stundin til að koma böndum á markaðinn er runnin upp. Það er enn margt ógert í þeim efnum.“ Fimm nýjar leiðir Til eru þeir sem vilja fara nýstárlegar leiðir til að skapa hagkerfi sem byggi á lýðræðislegum gildum samfélagsins. Katrin vanden Heuvel, blaðamaður Washington Post, skrifaði nýlega um fimm leiðir að réttlátara hagkerfi sem nú sé verið að reyna í Bandaríkjunum. „B-fyrirtæki“ Fyrirtæki nútímans eiga það sameig- inlegt að eltast við eitt heilagt mark- mið: að græða sem mest. Í Banda- ríkjunum geta hluthafar stefnt fyrirtækjum ef þeim þykir þau ekki fara eftir því. Í Maryland hafa ný lög verið sett sem leyfa fyrirtækjum að skrá sig sem „B-fyrirtæki“. Fyrirtæki af þeirri gerð verða bæði að vinna að hag hluthafanna og stuðla að almanna- hagsmunum, svo sem minni meng- un eða húsnæði á raunhæfu verði. Á meðan fylgist sjálfstæður þriðji aðili með því að fyrirtækið fari eftir þessum markmiðum um að bæta almanna- hag. Lög um B-fyrirtæki hafa einnig verið sett í Vermont-fylki og í bígerð er að koma þeim á í fylkjunum New York, Pennsylvaníu, New Jersey, Or- egon, Washington og Colorado. Bankar fyrir fólkið „Hundruðum milljarða dala af al- mannafé var varið í að bjarga bönk- unum á Wall Street sem hafa þakkað okkur fyrir með því að halda áfram að borga starfsmönnum sínum hneyksl- anlega há laun og bónusgreiðslur án þess þó að koma hjólunum aftur af stað,“ skrifar vanden Heuvel en bend- ir á að einn banki hafi ekki þurft á neinum björgunarhringjum að halda frá ríkinu. Það var Norður-Dakóta- banki, sem er í eigu samnefnds fylk- is. „Hann var stofnaður árið 1919, lifði undirmálslánakreppuna og afleiðu- vandræðin af og hefur fjóra milljarða dollara í sjóðum sínum til að lána við- skiptavinum,“ skrifar blaðamaðurinn frá Washington Post. DV ræddi á dögunum við Jón Þór Ólafsson en hann er meðlimur í vinnuhópi um úrbætur á fjármálakerfi Íslands og hefur lagt til við borgaryfir- völd í Reykjavík að þau stofni banka en hugmyndin er að mörgu leyti sótt til Norður-Dakótabanka. „Fylkisbanka- módel Bank of North Dakota hef- ur tryggt að fylkið er ekki skuldugt og skilar hagnaði í bankakreppunni,“ seg- ir Jón Þór. Hann telur að stöðugleiki náist með fjármálastofnun sem hafi hagsmuni fólksins í borginni að leiðar- ljósi. Banki af þessari gerð myndi leið- rétta óréttlætið sem felist í því að fjár- magnseigendur njóti meiri réttinda en venjulegir launþegar. Borgarstjórn- arflokkur Besta flokksins og Samfylk- ingarinnar vegur nú kosti og galla þessarar hugmyndar en samkvæmt heimildum DV eru nokkrir borgarfull- trúar mjög spenntir fyrir henni. Peningar færðir úr stóru bönkunum Fjölmiðlakonan Arianna Huffington hefur stofnað til átaksins „Move Your Money“ sem miðar að því að neytend- ur geti látið skoðun sína á stóru bönk- unum í ljós og haft áhrif á afkomu þeirra. Með átakinu er fólk hvatt til að færa sparifé sitt og viðskipti til minni banka. Mörg verkalýðsfélög hafa farið sömu leið og hótað að færa lífeyrinn úr stóru bönkunum ef þeir taka ekki betur á vandamálum húsnæðislána sem urðu til í kreppunni. „Verkalýðsfé- lög geta notað þessa aðferð til að láta bankana vita að ef þeir hegða sér ekki á réttsýnan hátt muni þau flytja pen- inga sína til banka sem hegða sér vel.“ Spilavítið skattlagt „Braskararnir sem veðjuðu hluta- bréfum, afleiðum og gjaldeyri í spila- vítinu á Wall Street voru lykilmenn í hruni hagkerfisins. Slík skammtíma- viðskipti gera ekkert gagn en við get- um haft hemil á þeim með því að skattleggja spákaupmennsku,“ skrifar Katrin vanden Heuvel. „Ef við leggjum 25 sent á hver viðskipti myndi það ekki skipta máli fyrir venjulega fjárfesta en yrði skammtímafjárfestum til trafala. Slíkt myndi afla góðra tekna; sam- kvæmt nýútkominni skýrslu myndi skatturinn afla 180 milljarða dollara á ári.“ Þessi hugmynd virðist njóta stuðnings yfirvalda víða um heim en Angela Merkel, kanslari Þýskalands og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, styðja hana. Starfsmennirnir ráði Fimmta leiðin sem Katrin vanden Heuvel gerir að umtalsefni í grein sinni snýr að rétti verkamanna gagn- vart vinnuveitendum sínum og að þeirri staðreynd að á meðan mik- ið atvinnuleysi ríki í Bandaríkjun- um græði mörg fyrirtæki á tá og fingri. Í Cleveland hafa verkamenn stofnað samvinnufélögin Evergreen Cooperatives. Þar eiga starfsmenn- irnir saman ýmis fyrirtæki sem rekin eru fyrir hagnað sem á að dreifast inn- an nærsamfélagsins. Starfsmennirnir byggja upp hlut sinn í félögunum en fá greidd laun á sama tíma. Fjármálakerfið þjóni en drottni ekki „Þeir eiga eftir að taka vel í þessar hug- myndir sem finnst að fjármálageir- inn eigi að þjóna hagkerfinu en ekki drottna yfir því. Þær eru róttækar og framkvæmanlegar. En til að hægt sé að nota þær þurfum við að vera ákveðin í hugsjónum okkar og skipuleggja okk- ur vel á komandi árum,“ skrifar Katrin vanden Heuvel að lokum í grein sinni í Washington Post. FJÁRMÁLAGEIRINN ÞJÓNI HAGKERFINU Þeim sem finnst að fjármálageir-inn eigi að þjóna hag-kerfinu en ekki drottna yfir því munu taka vel í þessar hugmyndir. Lögin hert Obama setti nýjar reglur fyrir fjármálakerfið en munu þær duga? MYND REUTERS Banki í ríkiseigu Norður-Dakótabanki er eini banki Bandaríkjanna sem er í eigu hins opinbera. Hann lifði kreppuna af og hefur ekki látið bilbug á sér finna í henni. MYND REUTERS KOMDU Í ÁSKRIFT! 512 70 80 dv.is/askrift FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.