Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Page 26
Árið 1996 var aðeins fyrir fjór-tán árum en það virðist hafa verið fornöld engu að síður. Fórnarlömb kynferðisbrota biskups voru hrakin og smáð í stað þess að vera studd. Þetta hljómar meira eins og Afganistan en Ísland. Þetta kennir okkur að stundum finnst okkur við vera komin lengra en við erum í raun og veru. Árið 1989 var kvikmyndin Aft-ur til framtíðar 2 frumsýnd. Í henni ferðaðist Michael J. Fox til ársins 2015 sem kemur eftir fimm ár. Samkvæmt framtíðarsýn myndarinnar gátu bílar flogið, hjóla- bretti svifið og pítsum var stungið inn í ofn sem stækkaði þær margfalt. Jakkar þurrkuðu sig sjálfir og svo framvegis. Þetta rættist ekki en í staðinn er til int- ernet, farsímar, myndsímtöl, gps-tæki og fartölvur. Til eru fljúgandi smábílar en þeir þykja of dýrir og út í hött, rétt eins og Segway og iPad. Eftir 14 ár, árið 2024, verð-ur margt breytt. Allir verða með staðsetningartæki á sér. Þannig verður auðvelt að finna fólk. Sífellt fleiri dvelja í sýndarveru- leika þar sem þeir öðlast gerviham- ingju. Fólk lifir tvöföldu lífi. Einhleyp- um fjölgar, börnum fækkar. Bankaleynd auðmanna og fyrirtækja verður álitin hið undarlegasta skálkaskjól forn-aldar, óvinur hins upplýsta, frjálsa markaðar. Fæstir munu nota einkabíl til samgangna innanbæj- ar þar sem vitundarvakning verður orðin um hagkvæmni almennings- samgangna og stjórnmálamenn leggja peninga í þær. Í framtíðinni verður litið á Reykjavík nútímans, með allar sínar ógeðfelldu umferðaræðar, eins og við lítum á mengaðar borgir Bretlands í iðnbyltingunni. Það verður í auknum mæli álitið heimskulegt að hafa eytt stórfé í einkabíl í stað þess að stunda hreyfingu og spara pening. Engir bensínbílar verða til heldur aðeins raf- magnsbílar. Fólksflutningar til borg- arinnar snúast við því sífellt fleiri kjósa að búa úti á landi í stað fjölbýlishúsa- hverfa höfuðborgarsvæðisins. Líkamsræktarstöðvar munu að stórum hluta heyra sögunni til þegar fólk áttar sig á því að það getur hreyft sig hversdagslega og hlaupið úti í stað þess að borga stór- fé fyrir að keyra að líkamsræktarstöð til þess að hlaupa á bretti og lyfta með einum vöðva í einu. Engin sólbaðsstofa verður til árið 2024 og engin vídeó- leiga. Öllum að óvörum verða til bæk- ur, dagblöð og bíó. Dagblöðin verða hins vegar líkari nettengdum dúkum en blöðum. Kirkjum landsins verður breytt í félagsmiðstöðvar. Í stað presta verða heimspeki- og sálfræðimenntað- ir starfsmenn fengnir til að hjálpa fólki að leita hamingjunnar og bregðast við áföllum. Og fangar verða ekki vistaðir í fangelsum lengur. Hinir brotlegu verða þess í stað sítengdir staðsetningartæki og upptökutæki sem fylgist nákvæm- lega með öllum þeirra hreyfingum. Þegar þeir brjóta af sér verður það birt á netinu og þá verður nýtt mikilvæg- asta uppfinning nánustu framtíðar, „dislike“-takkinn á Facebook. Spádómurinn „Stundum leið mér eins og ég væri kominn inn í glæpasamtök.“ n Séra Fólki Kristinsson um starfshætti kirkjunnar á Íslandi. Hann segir kirkjuna skorta leiðtoga og að tími sé kominn til hreinsunar innan hennar.-DV. „Á sonur minn ekki að eiga rétt á líf- og sjúk- dómatryggingu?“ n Sunna Albertsdóttir sem fékk ekki að tryggja sjö ára gamlan son sinn hjá Sjóvá, en hann er greindur með ofvirkni og athyglisbrest. Hún veltir því fyrir sér hvort hann muni ekki njóta sama réttar og aðrir í framtíðinni-Fréttablaðið. „...ekki verra að fá einhverjar prósentur af þessu.“ n Sölvi Geir Ottesen, hetja FC Kaupmannahafn- ar, sem tryggði liði sínu sæti í Meistaradeild Evrópu og þar af leiðandi rúma þrjá milljarða íslenskra króna.-Fréttablaðið. „Þeir geta heldur ekki bætt í heimilisbók- haldið tugþús- undahækkun.“ n Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, um að íbúar borgarinnar geti ekki bætt við sig þeim tugþúsunda útgjöldum sem hækkun á einu bretti á gjaldskrá Orkuveitunnar hafi í för með sér.-Morgunblaðið. Sama sauðahúsið Svo virðist sem vandræðagangur ríkisstjórnarinnar eigi sér lítil tak-mörk. Öll helstu mál hennar standa föst vegna innri illdeilna. Það er einungis að þakka styrk samfélagsins að ekki er allt í kaldakoli, beinlínis vegna stjórnarinnar. Nýjasta uppá- koman á stjórn- arheimilinu snýst um aðild- arumsókn að Evrópusamband- inu. Báðir stjórn- arflokkar sam- þykktu umsóknina á sínum tíma og var ákvörðun þeirra skráð í sáttmála. Fyrir lá að Sam- fylking stóð einhuga að umsókn um aðild og hef- ur á stefnuskrá sinni að Ísland gangi inn í sambandið. Vinstri grænir hafa aftur á móti efasemdir um aðildina en hafa þá yf- irlýstu stefnu að þjóðin eigi að fá að gera upp hug sinn. Þetta er allt sam- an fallegt á yfirborðinu og eðli- legt. En síðan kemur babb í bátinn. Einstakir þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna treysta ekki leng- ur þjóðinni til þess að taka um það ákvörðun hvort Ísland eigi að ganga í samband Evrópuþjóða. Ráð- herrann Jón Bjarnason hefur sett fram þá kröfu að hætt verði við aðildarumsókn- ina. Það kom fram í morgunþættinum Í bítið á Bylgjunni að Pétur Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, er sama sinnis. Þeir stjórnmálamenn sem vilja svipta þjóðina þeim rétti að kjósa um aðild eða ekki eru á lægsta mögulega plani hvað varðar framkvæmd lýðræðis. Dólgarn- ir eru sannfærðir um að þjóðinni sé ekki treystandi til að taka upp- lýsta ákvörðun. Og þeir vísa til skoðanakannana sem sýna að minnihluti þjóðarinnar aðhyll- ist aðild. Þetta er gróf móðgun við alla kosningabæra einstak- linga á Íslandi. Engu skiptir hvort líklegt sé að menn segi já eða nei við aðild. Þjóðin á skýlaus- an rétt á því að greiða atkvæði um ESB. Krafa um annað er vitleysisgangur og tilhneiging til þess að sniðganga rétt almennings. Pét- ur og Jón eru af sama sauðahúsi. reynir TrauSTaSon riTSTjóri Skrifar: Þjóðin á skýlausan rétt á því að greiða atkvæði leiðari svarthöfði bókstaflega Hinn brúni baggalútur Í dag er það sagt vera í tísku að bagga. En iðjan sú arna er fólgin í því að hnoða munntóbak í vænan bagga og troða svo bagganum undir efri- vörina. Einkum eru ungir karlmenn hér að verki. En ósiðurinn þekkist þó meðal eldri karla og svo er þessi slæmska farin að sjást meðal ungl- inga, jafnvel hjá drengjum. Mér er tjáð að í nokkrum skólum sé talað um baggavandamál. Þeir sem reykja tóbak, lykta eins og svín, þeir sem taka tóbak í nefið líta út eins og svín, en þeir sem éta tóbak þeir eru svín. Eitthvað í þessa veruna á Gústaf nokkur Adolf, sem sagður var göfuglyndur konungur í Svíþjóð, að hafa sagt. Og víst er það að göfuglyndi yfirvalda verður alla- jafna í hávegum haft. En um leið verðum við að skoða grandgæfilega lesti og misbresti. Auðvitað þarf þjóðin að rífast um það hversu mikið sprek á að fara á bálköst villutrúar og viðbjóðs- legra hneigða hins hempuklædda hégóma. Og fólk getur, mín vegna, haldið því fram að Guð eigi að segja af sér vegna þess að hann sé ófær um að gæta þeirra starfsmanna sem mis- nota ungar stúlkur. Ég ætla að leyfa öðrum þann mun- að að bæta gráu á svart í umræðu um helgispjöll og hrylling hinna svo- nefndu góðu guðsmanna. Í dag vil ég krefjast þess að yfirvöld geri eitthvað í því að hindra aðgang ungmenna að munntóbaki. BAGGIÐ BURT! Já, auðvitað má gagnrýna allt kukl yfirvalda og þeir eru ófáir sem bent hafa á þá vá sem baggið er. Þetta er að verða afar þungur baggi og er til- slökun yfirvalda og forráðamenna ungviðisins hér fyrst og fremst um að kenna. Merkileg er sú staðreynd, að í dag þykir fagnaðarefni hjá ríkis- valdinu að nú hafi mönnum loks tek- ist að margfalda sölu munntóbaks. En fyrir það klink sem inn er komið þarf að efla forvarnir – ekki seinna en akkúrat núna. Eins verða foreldrar að vakna til vitundar um þá vá sem er komin innúr gættinni. Ég held að ég sjái ekkert aum- ingjalegra en unga karlmenn með úttroðna efrivör af tóbaki. Þetta er hin versta sjón. Og svo spýta þeir ófögnuði sínum hvar sem þeim sýnist að slummu verði við komið. Kannski má lögurinn, sem ungviðið spýtir, kallast baggalútur, þar eð lút- sterkum bagga er skyrpt. Við ættum kannski að leyfa unga fólkinu að kíkja á nokkrar velvaldar myndir af ungum og flottum köpp- um sem þurft hafa að þola kvöl og pínu vegna munnholskvilla. Kvilla sem munntóbak hefur orsakað. Margt í heimi miður fer ef málefnin fá núning því kvalræði vort kannski er klætt í fagran búning. kristján hreinsson skáld skrifar „Ég held að ég sjái ekkert aumingja- legra en unga karl- menn með úttroðna efrivör af tóbaki.“ skáldið skrifar 26 umræða 27. ágúst 2010 föstudagur Daðrað við um- hverfissinna n Bréf Kanadamannsins ross Beaty, aðaleiganda Magma, til katrínar júlíusdóttur iðn- aðarráðherra þar sem hann lýsti eindregnum vilja til að selja orku til umhverfisvænna verkefna hefur vakið athygli. Þykir Suðurnesja- mönnum, sem aðhyllast álver við Helguvík, þeir vera illa sviknir. Meðal þeirra heyrist það sjónarmið að Beaty sé að gera örvæntingarfulla tilraun til að ná hylli umhverfissinna sem hafa beinlínis hatast við skúffufyrirtækið í Svíþjóð. Davíð og Jón Ásgeir saman n Þorbjörn Broddason fjölmiðla- fræðingur er ekki líklegur til vinsælda á meðal eigenda Fréttablaðsins og Morgunblaðsins eftir að hann lýsti því í samtali við Pressuna að stöð- ugur taprekstur beggja blaðanna væri vonlaus og eitthvað hlyti að láta undan. Leiddi hann getum að því að risarnir á brauðfótunum myndu sam- einast. Það myndi, eins og staðan er nú, þýða sameiningu Davíðs odds- sonar og jóns ásgeirs jóhannesson- ar sem þykir álíka líklegt og að Ísrael og Palestína gengju í eina sæng. spunameistari biskups n karl sigurbjörnsson, biskup Ís- lands, hefur ekki látið neinn bilbug á sér finna þrátt fyrir að hafa allar götur frá því biskups- málið kom upp í DV árið 1996 bar- ist, leynt og ljóst, gegn meintum fórnarlömbum gamla biskups- ins. Hundruð hafa snúið baki við þjóðkirkjunni undanfarna daga vegna stórundar- legra viðbragða biskupsins sem ýmist trúir ásökunum á hendur forvera síns eða ekki. Einn nánasti ráðgjafi Karls er séra halldór reynisson samstarf- maður hans á Biskupsstofu. Talið er að hann stýri biskupnum í skákinni við hinar forsmáðu. Leigupenni í önnum n Sú aðgerð Björgólfs thors Björ- gólfssonar útrásarvíkings að opna heimasíðu þar sem hans sannleikur kemur fram hefur mistekist ef marka má viðbrögð þeirra sem um er fjallað. Í sumum málum stend- ur vart steinn yfir steini og einhverjir hefðu talið betur heima setið. Launaður leigupenni Björ- gólfs, ragnheiður sverrisdóttir fyrrverandi blaðamaður Moggans, hefur í nógu að snúast við að reyna að snúa ofan af allri vitleys- unni. sandkorn tryggvagötu 11, 101 reykjavík Útgáfufélag: Dv ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir framkvæmdaStjóri: Bogi örn emilsson ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjóri: Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is dv á netinu: Dv.IS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur. Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. erró. gleymd framtíð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.