Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Side 33
föstudagur 27. ágúst 2010 úttekt 33 Fórnarlömb ólaFs skúlasonar Stefanía Þorgrímsdóttir varð fyrir kynferðislegri áreitni af hálfu Ólafs árið 1963, tólf ára gömul. Þegar hún steig fram og sagði sögu sína í fjöl- miðlum árið 1996 stóð fjölskylda hennar ekki með henni heldur biskupn- um. Hún hefur aldrei fyrirgefið kirkjunni þann gjörning að draga hana inn í lögreglurannsókn fyrir að segja sannleikann. Þetta var sársaukafull reynsla, bæði fyrir hana og börnin. Börnin mín fengu að kenna á því stefanía Þorgrímsdóttir var tólf ára þegar Ólafur Skúlason áreitti hana kynferðislega. Hún var á sundn-ámskeiði og hann var æskulýðs- prestur með fermingarnámskeið á sama stað. Þegar málið komst í hámæli var hún vænd um lygar. Prófastur á Þingeyri hélt því jafnvel fram að sundnámskeið og fermingarfræðsla hefðu aldrei farið fram á sama tíma á Laugum í Reykjadal. Þá var einnig bent á bréf sem bæði systir henn- ar og bróðir skrifuðu þar sem þau sögðust ekki kannast við frásögn hennar. Af því að fjölskyldan stóð ekki með Stefaníu heldur Ólafi varð málið enn erf- iðara og flóknara en ella. Hún er ekki til- búin til þess að rifja það upp eða fara aft- ur ofan í gamlan sársauka varðandi þetta atriði. Engu að síður segir hún þetta af- skaplega einfalt mál — kirkjan hafi brot- ið á henni. „Kirkjan braut á okkur með því að draga taum Ólafs Skúlasonar sem dró okkur í gegnum ítarlega lögreglurannsókn og dreifði óhróðri um okkur í fjölmiðlum. Mér leið mjög illa. Af hverju ætti ég núna, 14 árum eftir þessa meðferð, að rifja aftur upp þann sársauka sem ég og börnin mín upplifðum vegna þessa máls?“ Þurftu að horfast í augu við lygarnar Ólafur brást við ásökunum kvennanna með því að kæra þær til lögreglunnar fyr- ir ærumeiðingar. „Það virðist gleymast í umræðunni núna að það fór fram opinber rannsókn á þessu máli þar sem saksókn- ari kallaði 200 manns til vitnis. Það endaði með því að Ólafi Skúlasyni var ráðlagt að láta málið niður falla þar sem ekki þóttu efni til þess að halda því áfram. Það kom bersýnilega í ljós að við vorum að segja sannleikann. Ég hnykki á því. Kirkjunnar menn þurftu að horfast í augu við það að Ólafur og fleiri höfðu logið. Það er vanda- mál kirkjunnar. Ekki mitt. Ég botna hvorki upp né niður í því hvernig hægt er að horfa fram hjá því í dag. Ákveðnir valda- menn innan kirkjunnar gátu aldrei sam- þykkt þessa niðurstöðu.“ Missti barnatrúna Stefanía var ráðgjafi hjá Stígamótum þeg- ar mál Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Dagbjartar Guðmundsdóttur kom upp árið 1996. Þar sem hún bjó sjálf yfir þess- ari reynslu af Ólafi ákvað hún að stíga fram og segja sögu sína til þess að styrkja þær. Hún tók sér leyfi frá Stígamótum en sneri aldrei aftur til starfa. Aðeins einu sinni hefur Stefanía greint nákvæmlega frá því sem Ólafur gerði henni — í yfirheyrsl- um lögreglunnar. Hún ætlar ekki að gera það aftur. „Það þjónar engum tilgangi. En hann sýndi af sér perrahátt. Það kom í ljós að hann var ekki í lagi. Mér varð það ljóst að hann var perri. Ég slapp vel en mér leið ekki vel. Þetta var áfall fyrir ungt barn. Börn gera alveg greinarmun á því hvað er eðlileg snerting og hvað ekki. Það sem mér þykir alvarlegast var að þessi maður í þessu starfi rændi mig barnunga trúnni á presta og þar með fékk ég efasemdir um Guð. Ég missti barnatrúna. Hann hrakti mig frá trúnni því ég missti traust og trú á kirkjuna.“ Fórnarlömb valdabaráttu Í fyrstu virtist ekkert styðja frásögn Stef- aníu. En eins og hún segir er til gott fólk og vitni gaf sig fram. „Ég mundi ekkert eft- ir þessu vitni. Það var langt um liðið, ég var ekki nema tólf, þrettán ára þegar þetta gerðist. Þessi manneskja vissi meira en ég hélt. Ég var heppin því hún sannaði vitnis- burð minn. Prófastur á Þingeyri gekk svo langt að ljúga því til að það hefði aldrei verið sundnámskeið á sama tíma og ferm- ingarfræðsla. Ég veit ekki hvað þeim gekk eiginlega til því þetta var allt skrásett. En þess ber að gæta að það var enginn smá- ræðisæsingur í kringum þetta mál. Við vorum fórnarlömb valdabaráttu innan kirkjunnar þar sem svartstakkar tókust á við Ólaf Skúlason. Þeir höfðu hag af því að kjafta frá þessum leyndarmálum og sverta mannorð Ólafs. Hann brást við með því að ráðast á okkur. Við vorum fórnarlömb þessara átaka innan ríkiskirkjunnar. Það er mín skýring.“ Fullkunnugt um sannleikann Stefanía hafði treyst einum presti fyrir reynslu sinni og telur að hann hafi sagt til hennar. „Það getur ekki annað verið. En hann var eini maðurinn innan kirkjunn- ar sem rengdi mig ekki. Hann benti mér líka á að það væri ekki hægt að dæma eikina út frá skemmdu epli. Kirkjan væri góð stofnun sem hugsaði um smælingj- ana í nafni Jesú Krists. Hún væri að vinna að mannbætandi málefnum. Ég vona að hún beri gæfu til þess að hreinsa til hjá sér og moka út sinn flór. Það hefur aldrei sakað félagasamtök eða einstaklinga að viðurkenna mistök og biðjast afsökunar. Þeim er fullkunnugt um það að þetta er sannleikurinn.“ Börnin fengu að finna fyrir því Sannleikurinn er sagna sárastur er stundum sagt. Sigrún Pálína Ingvars- dóttir segir að prestar hafi reynt að þagga niður í sér á sínum tíma. En Stefanía seg- ir að það hafi enginn haft slík afskipti af sér. „Þeir lögðu ekki í mig, höfðingjarn- ir. Þú heyrir hvað ég er erfið. En eftir því sem ég best veit tók Karl Sigurbjörnsson þátt í þessum aðgerðum. Ég trúi þessum konum betur en honum.“ Aðspurð gerir hún ráð fyrir því að lög- maður Ólafs Skúlasonar hafi haft milli- göngu um það að systkini hennar sendu bréf þar sem þau sögðust ekki kannast við frásögn Stefaníu. Lögmaður Ólafs var nefnilega í kunningsskap við fjölskyldu Stefaníu. Hún veit þó ekki alla söguna og getur því ekki sagt nákvæmlega til um það. En hún fékk að finna fyrir því. Börnin hennar líka. „Fólk skiptist í tvo hópa. Við vorum sagðar geðsjúkar, bilaðar og jafn- vel lygarar. Mín börn fengu heldur betur að kenna á því. Fólk veittist að dætrum mínum hálfuppkomnum og hellti sér yfir þær. Það virðist vera í mannlegu eðli að leggjast svo lágt að níðast á börnum vegna þess hverra manna þau eru þegar fólk leggur ekki í foreldrana. Ég vildi að það væri svo gott að þær konur sem fram komu hafi verið að ýkja eða fara með rangt mál. En Ólafur hafði þetta óeðli í sér. Slíkir menn hætta ekki nema þeir séu stoppaðir af og það greip enginn í taum- ana á Ólafi.“ Fyrirgefur ekki kirkjunni „Ég vil ítreka að það kemur enginn ósærður frá slíkri píslargöngu sem þessi lögreglurannsókn var, frá fjölmiðlafár- inu og aðkastinu sem við urðum fyrir frá fólki. En alvarlegast þótti mér að missa barnatrúna. Ég hef aldrei fyrirgefið þess- ari stofnun. Ég veit ekki af hverju ég ætti að gera það. Ég er sátt við sjálfa mig og ég er sátt við niðurstöður lögreglurann- sóknarinnar. Sem betur fer var tekið á málinu í dómskerfinu en ekki innan kirkjunnar. Lögreglan tók eiðsvarið vitni trúanlegt.“ Ólafur SkúlaSon guðrún ebba Sigrún pálína Sr. pálmi matthíaSSon n Sigrún Pálína leitar til séra Pálma Matthíassonar í raun- um sínum en hann lætur hjá líða að koma málinu áfram. Sr. vigfúS þÓr árnaSon n Sigrún Pálína leitar til séra Vigfúsar Þórs Árnasonar sem lætur einnig hjá líða að koma málinu áfram. Í framhaldi kærði Sigrún Pálína séra Pálma til siðanefndar kirkjunnar. áSakanir þriggja kvenna á hendur Ólafi n Í febrúar 1996 kom fram í DV að Sigrún Pálína hefði kært séra Vigfús Þór og kvartaði undan Pálma Matthíassyni til siðanefndar Prestafélags Íslands. Í framhaldinu birtust í helgarblaði DV ásakanir þriggja kvenna á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðislega misnotkun og tilraun til nauðgunar. Sú eina sem kom fram undir nafni var Sigrún Pálína Ingvarsdóttir. Allar sögðu þær frá kynferðislegu ofbeldi þáverandi biskups. Siðanefnd vísaði kæru Sigrúnar Pálínu á hendur biskupi til stjórnar Prestafélagsins sem tók þá formlega ákvörðun um að siðanefnd skyldi fjalla um kæruna. 1994 1995 1996 Ólafur og preStarnir fimm n Árið 1996 var haldinn árangurslaus sáttafundur í Grafarvogskirkju með Sigrúnu Pálínu og Ólafi Skúlasyni Sigrún skrifaði fundargerð af þeim fundi sem hún sendi að honum loknum til siðanefndar kirkjunnar. Á fundinum voru séra Vigfús Þór Árnason, Ólafur Skúlason biskup, Sigrún Pálína Ingvarsdóttir og eiginmaður hennar. Á fundinum gekkst Ólafur ekki við brotunum og að sögn Sigrúnar Pálínu sagði hann frá því að hann byggi yfir vitneskju um fimm óleyst mál tengdum kynferðis- brotum innan kirkjunnar. „Því næst sagði hann okkur að hann hefði ofan í skúffu hjá sér mál fimm presta sem væru ásakaðir um kynferðislega áreitni og hann hygðist ekki gera neitt við þær ásakanir.“ (Sigrún Pálina-Vikan, 2. júlí 2009, s. 29). framhald á næstu opnu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.