Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Side 40
90 ára sl. fimmtudag 40 ÆttfrÆði umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 27. ágúst 2010 föstudagur Ævar Kjartansson dagskrárgerðarmaður hjá rÚV Ævar fæddist í Reykjavík en ólst upp á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1971, BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1977, stundaði nám í hagfræði og heimspeki við háskólann í Aix-en- Provence í Frakklandi 1977-79 og lauk embættisprófi í guðfræði frá Há- skóla Íslands 2005. Ævar var kennari við Gagnfræða- skólann í Neskaupstað 1971-72, við Menntaskólann í Kópavogi 1976- 77 og Fjölbrautaskólann í Breiðholti 1979-80. Hann var þulur hjá RÚV 1972-73 og í afleysingum næstu ár, og hefur verið dagsskrárstjóri og dag- skrárgerðarmaður hjá RÚV frá 1981. Ævar sat í stjórn starfsmannafé- lags RÚV og var formaður þess 1984- 85, sat í stjórn Íslandsdeildar Amn- esty International 1983-89 og var formaður hennar 1987-88. Ævar stýrði menningarþættin- um Víðsjá um árabil en hefur nú um margra ára skeið séð um viðtalsþætti á sunnudagsmorgnum á Rás 1 um trúmál, heimspeki og pólitík. Fjölskylda Kona Ævars er Guðrún Kristjánsdótt- ir, f. 22.8. 1950, myndlistarkona. Hún er dóttir Kristjáns Friðrikssonar, f. 21.7. 1912, d. 26.4. 1980, iðnrekanda, og Oddnýjar Ólafsdóttur, f. 6.1. 1920, húsmóður. Börn Ævars og Guðrúnar eru Odd- ný Eir, f. 28.12. 1972, heimspeking- ur og rithöfundur en maður hennar er Ófeigur Sigurðsson rithöfundur; Uggi, f. 26.4. 1974, fornleifafræðingur og minjavörður Suðurlands, en kona hans er Guðrún Alda Gísladóttir. Börn Ugga og Huldu Proppé eru Ævar og Krummi en dóttir Ugga og Guðrúnar Öldu er Anna Eir. Hálfsystkini Ævars, samfeðra: Hjálmar Bernhard, f. 13.9. 1947, d. 11.5. 2000, trésmiður og bókbindari; Tómas Már, f. 16.4. 1949, rennismið- ur; Ingibjörg María, f. 10.6. 1953. Hálfsystkini Ævars, sammæðra, eru Sigríður Axels, f. 23.6. 1954; Trausti Axels, f. 27.8. 1955, prentari. Fóstursystkini Ævars: Bragi Bene- diktsson, f. 6.8. 1937; Aldís Pála Bene- diktsdóttir, f. 8.7. 1940, d.12.7. 2007, bankastarfsmaður; Sigríður Kristjana Benediktsdóttir, f. 17.9. 1951, banka- starfsmaður, Sigurður Axel Bene- diktsson, f. 19.7. 1955, starfsmaður Íslensku óperunnar; Sigurður Braga- son, f. 26.3. 1963, kerfisfræðingur. Fósturforeldrar Ævars: Benedikt Sigurðsson, f. 26.9. 1909, d. 22.6. 1990, bóndi í Grímstungu á Hólsfjöllum, og Kristín Axelsdóttir, f. 1.8. 1923, hús- freyja. Foreldrar Ævars: Kjartan Hjálm- arsson, f. 7.9. 1920, d. 20.2. 1984, kennari, og Áslaug Axelsdóttir, f. 16.12. 1927, d. 28.3. 1997, kennari. Ætt Kjartan var sonur Hjálmars, mynd- skera á Blönduósi og síðar í Reykja- vík, bróður Ingibjargar rithöfund- ar á Blönduósi. Hjálmar var sonur Lárusar, b. í Holtastaðakoti í Langa- dal Erlendssonar, frá Móbergi Guð- mundssonar. Móðir Lárusar var Sig- ríður Símonardóttir. Móðir Hjálmars var Sigríður ljósmóðir, dóttir Bólu- Hjálmars. Móðir Kjartans var Anna Halldóra Bjarnadóttir, b. á Klúku í Bjarnarfirði Þorbergssonar. Áslaug var systir Auðar, móð- ur dr. Axels Björnssonar, prófessors við Háskólann á Akureyri. Áslaug var dóttir Axels, b. og kennara á Ási í Kelduhverfi Jónssonar, b. í Sultum Egilssonar, b. í Tungugerði og á Ís- ólfsstöðum á Tjörnesi Stefánssonar. Móðir Axels var Kristín Stefánsdótt- ir, b. á Halldórsstöðum í Reykjadal Björnssonar. Móðir Áslaugar var Sigríður Stef- anía Jóhannesdóttir, b. á Sveinsströnd við Mývatn Friðrikssonar, og Hólm- fríðar Stefánsdóttur, systur Kristínar í Sultum. 60 ára sl. fimmtudag Björn fæddist í Meðalheimi á Ásum í Austur-Húnavatnssýslu og ólst þar upp fyrstu átta árin, síðan á Hofsstöðum í Skagafirði til 1936, átti heima á Hnausum í Þingi 1936-39 og á Guðrúnarstöðum í Vatnsdal 1939-41. Björn stundaði nám við ungl- ingaskóla hjá séra Þorsteini Gísla- syni í Steinnesi í tvo vetur og út- skrifaðist frá Samvinnuskólanum í Reykjavík 1940. Björn flutti til Reyðarfjarð- ar 1941, stundaði afgreiðslu- og skrifstofustörf hjá Kaupfélagi Hér- aðsbúa á Reyðarfirði 1941-46, var aðalbókari og skrifstofustjóri þar 1947-67, fulltrúi kaupfélagsstjóra á Reyðarfirði 1967-76 og var deild- arstjóri Reyðarfjarðardeildar KHB og fulltrúi á aðalfundum um ára- bil. Björn flutti til Hafnarfjarðar 1977 og hefur átt þar heima síðan. Hann starfaði á endurskoðunar- skrifstofu SÍS í Reykjavík 1977-89. Björn sat í hreppsnefnd Reyð- arfjarðarhrepps 1955-58 og 1963- 74, var endurskoðandi sveita- stjórnarreikninga 1955 og 1958-63, hafði umsjón með byggingu fé- lagsheimilis á Reyðarfirði og var formaður byggingarnefndar 1952- 55, var bókavörður Lestrarfélags Búðareyrarþorps 1946-76, sat í stjórn þess 1943-76, hafði með höndum framkvæmdir fyrir Bygg- ingarfélag verkamanna á Reyðar- firði frá stofnun 1952-74 er lögum um byggingarfélög var breytt og sat í stjórn félagsins á sama tíma, var formaður Ungmennafélagsins Vals á Reyðarfirði í nokkur ár, sat í stjórn Ungmenna- og íþróttasam- bands Austurlands og var fulltrúi á þingum þess í nokkur skipti, var endurskoðandi útgerðarfélagsins Austfirðings hf. meðan það starf- aði og hafði umsjón með ýmsum framkvæmdum á vegum sveitarfé- lagsins, s.s. byggingu barnaskóla. Fjölskylda Björn kvæntist 3.3. 1945 Sigrúnu Jónsdóttur, f. 7.5. 1925, d. 10.4. 1973, húsmóður. Hún var dóttir Jóns Árnasonar, skipstjóra á Reyð- arfirði,og Gunnlaugar Ragnheiðar Sölvadóttur húsmóður. Börn Björns og Sigrúnar eru Erna Guðrún, f. 9.2. 1944, kennari við Ártúnsskóla, gift Ellert Borgari Þorvaldssyni, fyrrv. skólastjóra og ráðgjafa, og eru börn þeirra Sigrún lyfjafræðingur, gift Ágústi Leós- syni, fjármálastjóra hjá Medis og eiga þau soninn Arnar Leó, Krist- ín, leikskólakennari og eru börn hennar Ellert Scheving nemi, í sambúð með Sólveigu Magn- úsdóttur, og tvíburarnir Erna og Daníel Scheving, Björn Valur, lag- ermaður en dóttir hans er Aníta Sól; Eysteinn, f. 26.2. 1954, inn- kaupastjóri hjá Bóksölu stúdenta; Hanna Ragnheiður, f. 25.2. 1960, MA í barnasálfræði og MA í félags- ráðgjöf, en maður hennar er Haf- þór Theódórsson stýrimaður og er sonur hennar Jóhann Birnir Sig- urðsson nemi. Systkini Björns: Helga, f. 2.7. 1916, d. 9.9. 2009, húsfreyja að Hrauni i Ölfusi, var gift Ólafi Þor- lákssyni, sem einnig er látinn, bónda og eignuðust þau sex börn; Brynhildur, f. 4.2. 1918, d. 13.4. 2002, húsfreyja að Hrauni í Ölfusi, var gift Karli Þorlákssyni bónda sem einnig er látinn, og eignuð- ust þau sex börn; Hólmfríður, f. 18.4. 1919, d. 5.8. 1984, húsfreyja á Vilmundarstöðum í Borgarfirði og í Reykjavik en sambýlismaður hennar var Sigurður Geirsson sem einnig er látinn og eignuðust þau sex börn; Svanhildur, f. 9.11. 1921, d. 7.12. 1983, húsmóðir í Þorláks- höfn, var gift Georg Agnarssyni bifreiðastjóra sem einnig er látinn og eignuðust þau átta börn; Gest- ur, f. 1.5. 1923, d. 13.11. 1997, lög- fræðingur í Hveragerði og eign- aðist hann tvö börn; Kári, f. 14.1. 1925, fyrrv. rannsóknarmaður hjá Rannsóknastofnun byggingar- iðnaðarins, búsettur í Hveragerði, var kvæntur Fjólu Brynjólfsdótt- ur húsmóður sem er látin, og á hann eitt fósturbarn; Ásdís, f. 13.9. 1927, kennari í Reykjavík, var gift Ásmundi Kristjánssyni kennara sem er látinn og eignuðust þau tvö fósturbörn. Foreldrar Björns voru Eysteinn Björnsson, f. 17.7. 1895, d. 2.5. 1978, bóndi á Guðrúnarstöðum í Vatnsdal í Austur-Húnavatns- sýslu, og k.h., Guðrún Gestsdótt- ir, f. 11.12. 1892, d. 30.8. 1970, hús- freyja. Ætt Eysteinn var sonur Björns Ey- steinssonar, b. í Grímstungu, og k.h., Helgu Sigurgeirsdóttur. Guð- rún var dóttir Gests Guðmunds- sonar, b. á Björnólfsstöðum. Björn Eysteinsson fyrrV. deildarstjóri Kristinn Helgi Sævarsson rappari og hljóðmaður Guðlaugur Eyjólfsson forstöðumaður hjá símanum Kristinn Helgi fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Árbænum. Hann var í Árbæjarskóla og Selásskóla, stund- aði nám við Menntaskólann við Sund um skeið, lauk síðan prófum í rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 2001, lauk sveinsprófi í raf- eindavirkjun 2004 og prófum í hljóð- upptökustjórnun við SAE-skólann í New York 2008. Kristinn starfaði hjá Tæknibæ á árunum 2002-2004, var hljóðmaður við Þjóðleikhúsið á árunum 2005- 2006, starfaði hjá Símanum 2007- 2008 og hefur verið hljóðmaður við sjónvarpsþættina Steindinn okkar á Stöð 2 frá 2009. Kristinn hefur rappað frá 2001 með Forgotten Lores en þeir gáfu út diskinn Týndi hlekkurinn, 2003, og diskinn, Frá heimsenda, 2006, sem var tilnefndur til Íslensku tónlist- arverðlaunanna. Þá gaf Kristinn út sólóplötuna Hesthúsið á þessu ári. Kristinn stofnsetti heimasíðuna og plötuútgáfuna Coxbutter.com árið 2008, ásamt tveimur félögum sínum, en þeir gáfu þar út átta plötur sem fengu rúmlega tíu þúsund nið- urhöl á fyrsta árinu. Þá hefur Kristinn haldið feikivin- sæl hiphop-kvöld undir nafni út- gáfusíðunnar á undanförnum miss- erum. Fjölskylda Kærasta Kristins er Ornella Thelmu- dóttir, f. 9.7. 1989, fyrirsæta og leik- listarnemi í Kaupmannahöfn. Systir Kristins er Anna Bára Sæv- arsdóttir, f. 20.8. 1983, hárgreiðslu- kona, starfsmaður við leikskóla og nemi. Foreldrar Kristins eru Sævar Magnússon, f. 20.2. 1957, vélstjóri hjá Jarðborunum, búsettur í Reykjavík, og Anna Margrét Aðalsteinsdóttir, f. 14.10. 1958, nuddari og sjúkraliði. Guðlaugur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Grindavík. Hann var í Grunnskóla Grindavíkur, lauk stúd- entsprófi frá Fjölbrautaskóla Suður- nesja 2001, lauk BA-prófi í uppeld- is- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, stundaði MA-nám í mann- auðsstjórnun við Háskóla Íslands. Guðlaugur starfaði á starfs- mannasviði hjá Flugmálastjórn 2005 en hefur starfað hjá Símanum frá 2006, fyrst sem deildarstjóri og síðan forstöðumaður þjónustu. Guðlaugur hóf ungur að æfa og keppa í körfuknattleik, hefur keppt með öllum aldursflokkum Grinda- víkur og leikið með meistaraflokki félagsins frá 1996. Hann varð bikar- meistari 1998, 2000 og 2006. Fjölskylda Eiginkona Guðlaugs er Sigríður Anna Ólafsdóttir, f. 23.7. 1981, ís- lenskukennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Dætur Guðlaugs og Sigríðar Önnu eru Saga Guðlaugsdóttir, f. 25.8. 2004; Brynja Guðlaugsdóttir, f. 3.1. 2009. Systir Guðlaugs er Gígja Eyjólfs- dóttir, f. 18.4. 1986, nemi í rekstrar- verkfræði við Háskólann í Reykja- vík. Foreldrar Guðlaugs eru Eyjólf- ur Þór Guðlaugsson, f. 29.7. 1959, framkvæmdastjóri Reiknisstofu fiskmarkaðanna, og Sigrún Guð- ný Jónsdóttir, f. 18.4. 1960, lækna- ritari. 30 ára á föstudag 30 ára á föstudag

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.