Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Side 48
Ég fékk ungur áhuga á föt-um og tísku en klæddi mig fyrst alltaf í svart. Þeg-ar ég óx upp úr því og fór
að skoða það sem er í boði þróaðist
smekkur minn,“ segir Helgi Ómars-
son fyrirsæta og áhugaljósmyndari.
Helgi hefur alltaf haft áhuga á tísku
en hans uppáhaldsmerki er All Saint.
„Ég er All Saint-frík. Annars líkar mér
við flest vintage – American Appar-
ell, Urban Outfitters og svo er hægt
að detta á margt flott í H&M.“
Helgi er nýlega fluttur heim frá
Danmörku. Aðspurður segir hann
tískuna á Íslandi flotta. „Það
er svo gaman að fylgj-
ast með tískunni fara í
endalausa hringi. Ís-
lenskir hönnuðir eru
að gera ótrúlega góða
og flotta hluti og eru
að blómstra núna,“ seg-
ir hann og bætir við að
Mundi og Arndís Ey séu í
sérstöku uppáhaldi. „Eins
er Sara „Forynja“ að gera
geggjaða hluti og strákap-
eysurnar hennar Sonju Bent
eru geðveikar. Ég get ekki
beðið eftir að fjárfesta í einni
þeirra.“
Helgi segir eigin stíl rokk-
aðan og flippaðan. „Minn
stíll er dash af rokki og worn-
out-fötum og eins finnst
mér gaman að finna
flott vintage. Ég er bæði
rokkaður og flippaður.
Stundum hendi ég mér
bara í einhverjar tusk-
ur en oftast nenni
ég að vera flottur
og sætur,“ segir
hann og bæt-
ir við að hann
sé alls ekkert
merkjafrík.
„Ég elska
þegar ég
finn ódýr,
flott föt
sem ég get
notað og ég
versla óhikað
í Rúmfatalagern- um.
Auðvitað er gaman að eiga
flott merki en hitt er líka
æði. Ég fylgist líka vel með
útsölunum og geri þá góð kaup.“
Helgi starfar sem áhugaljósmyndari og
er þessa dagana að vinna að blaði sem
heitir 50+. „Svo fer ég fljótlega
til Indlands með Dís Guð-
mundsdóttur sem er með
Disdis Design og mynda
þar fyrir hana. Þaðan
fer ég svo til Malasíu að
hitta vinkonu mína og þaðan til London þar sem
ég ætla að skoða mig um og athuga hvort einhver
tækifæri séu á vinnu,“ segir Helgi sem starfar einn-
ig sem fyrirsæta. „Ég er svo heppinn að hafa fengið
að sitja fyrir og það heillar mig mikið að geta fengið
að taka þátt í þessum heimi. Ég vil lifa og hrærast
í tískuheiminum og reyna gera eitthvað skemmti-
legt úr þessu stutta lífi sem við eigum.“
indiana@dv.is
48 útlit umsjón: Indíana Ása HreInsdóttIr indiana@dv.is 27. ágúst 2010 föstudagur
RakaðaR
stjöRnuR
Söngkonurnar Kelis og Rihanna
voru líklega fyrstar til að ríða á vaðið
með þessa svölu klippingu sem felst
í því að raka undir aðra hliðina en
aðrar stjörnur sem hafa fylgt í kjöl-
farið eru ungstirnið Willow Smith,
R&B-söngkonan Cassie, fyrrver-
andi kryddstúlkan Mel B, leikkonan
Carmen Electra, söngkonan Eve og
brasilíska fyrirsætan Alice Dellal.
Úr Mad
Men í káp-
urnar
Kápuframleiðandinn London
Fog hefur valið leikkonuna
Christinu Hendricks til að aug-
lýsa haustlínuna 2010. Hin rauð-
hærða Hendricks er þekktust fyrir
leik sinn í þáttunum Mad Men og
þykir taka sig afar vel út í svart/
hvítum auglýsingum tískumerk-
isins en auglýsingaherferðin hefst
ekki fyrr en í október. London
Fog er einn stærsti framleiðandi á
kápum, frökkum og regnkápum í
heimi og hefur framleitt yfirhafn-
ir frá árinu 1923. Aðdáendur geta
fengið forsmekk á síðunni www.
londonfog.com
Íslenska hönnunarfyrirtækið Stáss er komið inn í nokkrar verslanir í Skandinavíu.
Nýtni í fyrirrúmi
„Við vorum að koma úr söluferð og
erum komnar inn í nokkrar búðir í
Stokkhólmi og í Kaupmannahöfn,“
segir Helga Vilmundardóttir, ann-
ar eigandi Stáss, en framleiðslu
þess er að finna í tólf verslunum
víðs vegar um Ísland. Helga og
Árný Þórarinsdóttir, sem báðar eru
arkitektar, hafa rekið Stáss frá ár-
inu 2008. „Við byrjuðum strax eftir
hrun og fórum rólega af stað. Okk-
ur langaði að gera eitthvað skap-
andi þótt við værum ekki lengur
að teikna hús,“ segir hún og bætir
við að það sé erfitt að bera saman
hönnun skartgripa og heimilisvöru
og hönnun húsa. „Við þurfum alla-
vega ekki að bíða í fimm ár til að
sjá árangurinn eins og í arkitekt-
úrnum. Nú sjáum við strax hvort
hlutirnir eru að virka eða ekki.“
Stáss var koma með nýja skart-
gripalínu sem heitir Á milli hluta.
„Fyrri línan var unnin upp úr ís-
lensku útsaumsmunstri en í nýju
línunni notumst við við fleiri frjáls
form og liti. Áherslan er lögð á
nýtni og það hentar vel andrúms-
loftinu í dag,“ segir Helga.
indiana@dv.is
Helgi ómarsson, fyrirsæta og áhugaljósmyndari, lifir og hrærist í heimi tískunnar.
Helgi er á leiðinni til Indlands og ætlar eftir það að freista gæfunnar í London.
MeRkið
skiptir ekki Máli
Flottur Helgi í svörtum þröngum gallabuxum sem hann fékk fyrir lítið á markaði hér á landi og í bol úr
Tik Tok, uppáhalds „vintage“-búðinni sinni í Danmörku. „Gallaskyrtuna fékk ég í H&m og leðurjakkinn er
Anderson & Lauth en þessi jakki hefur alveg bjargað lífi mínu,“ segir Helgi sem klæðist skóm frá All saint.
Húðflúr Bolurinn er úr Tik
Tok en húðflúrið var gert af
Thomasi Asher og er eitt af
mörgum á líkama Helga.
svalur með sólgleraugu Ray Ban-eftir-
líking, Levi’s buxur og belti en leðurjakki,
bolur og peysa úr All saint.
Mega stór og sæt Helgi í gömlum
snjáðum Lacoste-skóm og stutt-
buxum frá Cheap monday. Bolinn
fékk hann í American Aparell í Los
Angeles en skyrtuna á 1.200 krónur
í Rúmfatalagernum. „Ég elska þessa
skyrtu, hún er mega stór og sæt.“
M
yn
d
Ir
s
Ig
tr
yg
g
u
r
a
rI
Minn stíll er
dash af rokki
og worn-out-
fötum og eins
finnst mér
gaman að finna
flott vintage.
arkitektar Helga og Árný unnu
báðar sem arkitektar þar til hrunið
skall á. Þá vildu þær halda áfram
að gera eitthvað skapandi og eru
nú í tólf verslunum víðs vegar um
landið. Mynd róbert reynIsson