Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Síða 53

Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Síða 53
föstudagur 27. ágúst 2010 tækni 53 netflix í iPhone Netflix hefur sent frá sér viðbót fyrir iPhone-síma sem gerir notendum kleift að streyma myndböndum af síðunni í símann. Fyrir var í boði Netflix-viðbót fyrir iPad notendur en skjárinn á iPad er umtalsvert stærri en á iPhone. Netflix býður notend- um upp á að streyma kvikmynd- um og sjónvarpsþáttum gegn gjaldi. Fyrirtækið býður upp á þjónstu fyrir Bandaríkjamarkað. IPhone og iPad geta tengst við annaðhvort þráðlaust net, WiFi, eða 3G-farsímanet. Kostn- aðurinn við að streyma kvikmynd í símann getur verið mikill, því auk áskriftarinnar að Netflix þarf að borga fyrir það gagnamagn sem streymt er í símann. tivo til evróPu Tivo-fyrirtækið hyggst sækja á alþjóð- lega markaði innan skamms. Tom Rogers, forstjóri fyrir- tækisins, sagði í vikunni að fyr- irtækið væri að skoða mögu- leikana á því að bjóða þjónustu sína á stórum evrópskum markaðssvæðum eins og á Bretlandi og Spáni. Áætlanir fyrirtækisins um landvinninga í Evrópu koma í kjölfar þess að fyrirtækið tapaði 15,3 millj- ónum Bandaríkjadala á bandarískum markaði. Tivo býður upp á stafrænar sjónvarpsáskriftir svipað og Digital Ís- land og Sjónvarp Símans. froyo frá SamSung Samsung hefur í þróun töflutölvu svipaða og iPad frá Apple. Tölvan hefur hlotið nafnið Froyo og kemur til með að keyra á Android 2.2-stýri- kerfinu frá Google. Tölvan er búin myndavél sem snýr að notanda tölv- unnar en hún er sniðin fyrir mynd- símtöl. Tölvan býður upp á þráð- lausa nettengingu og möguleikann á SDHC-minniskorti. Hlutföll tölvu- skjásins er 16:10. Útlit tölvunnar er ekki ósvipað iPad en skjárinn á Froyo er sjö tommur. garmin innkallar gPS-tæki Garmin ætlar sér að innkalla um 1,25 milljónir Nüvi GPS-staðsetningar- tækja. Tækið sjálft er ekki gallað held- ur rafhlaðan sem fylgir tækinu sem Garmin keypti af öðrum framleið- anda. Rafhlaðan getur ofhitnað og valdið eldhættu við ákveðnar kring- umstæður. Garmin segir í tilkynningu að ekki sé um fleiri en tíu tilfelli að ræða þar sem rafhlaðan hafi valdið „umtalsverðum skemmdum“ eða slysum á fólki. Tækin sem verða inn- kölluð eru af gerðinni 200W, 250W, 260W, 7XX og 7XXT en XX stendur fyrir tölur sem eru mismunandi eftir tækjum. Garmin hyggst laga tækin og skipta út rafhlöðunum og skila þeim síðan til eigenda sinna. Vírussmitaður minnislykill í Austurlöndum nær: Vírus komst í tölvukerfi Bandaríkjahers Vírussmitaður minnislykill sem tengdur var við tölvu í bandarískri herstöð í Austurlöndum nær árið 2008 leiddi til einnar mestu tækni- ógnar sem Bandaríkjaher hefur stað- ið frammi fyrir. Þetta kemur fram í nýrri grein sem William J. Lynn III, aðstoðarvarnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, skrifar í bandaríska tímarit- ið Foreign Affairs. Vírusinn hlóð sér sjálfur inn á tölv- una og breiddist út í gegnum tölvu- net hersins án þess að neinn yrði var við. Vírusinn hefði getað sent leynileg gögn úr tölvunum án þess að nokkur tæki eftir. Það gerðist þó ekki að sögn Lynn. Lynn upplýsir ekki í greininni hver liggi undir grun um að hafa komið vírusnum fyrir en hann segir að er- lend leyniþjónusta hafi staðið á bak við árásina. Hann segir að margar leyniþjónustur reyni hvað þær geta til að ná upplýsingum út úr tölvukerfi bandaríska hersins. Lynn segir árásina hafa mark- að vendipunkt í stefnu bandarískra stjórnvalda og hersins hvað varð- ar varnir gegn tölvuárásum. Varn- armálaráðuneytið snérist til varnar árásinni með einni umfangsmestu tölvuaðgerð sinni sem hlaut nafnið Operation Buckshot Yankee. Að sögn Lynns er tölvugögnum stolið á hverjum degi og um sé að ræða, meðal annars gögn sem sýni teikningar af nýjum vopnum, aðgerð- aráætlanir og önnur leynileg gögn. Tölvukerfi bandaríska hersins spann- ar net um sjö milljón tölva í Banda- ríkjunum einum. Þá eru ótaldar þær tölvur sem tengjast tölvukerfi hersins í öðrum löndum. Hann segir að varnarmálaráðu- neyti Bandaríkjanna þurfi að setja aukinn mannafla í tölvudeild sína til að verjast árásum af þessum toga, og ennfremur að það sé jafn mikilvægt að hafa öfluga tölvudeild og öflugan herafla á láði, legi og í lofti. William J. Lynn III Aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna skrifar um tölvuárás- ir á bandaríska herinn í tímaritinu Foreign Affairs. Kringlan // Smáralind www.blendcompany.com 11.990,- 11.990,- 9.990,- 9.990,- 11.990,- 11.990,- 11.990,- 9.990,- GALLABUXNAÚRVALIÐ ER Í BLEND 11.990,- Style 6053 Style 6910 Style 6910 Style 6907 Style 6518 Style 6646 Style 6881 Style 6881 wash #902 wash #100 wash #100 wash #844 wash #916 wash #844 wash #902 wash #939 Style 6345 wash #933

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.