Dagblaðið Vísir - DV - 27.08.2010, Qupperneq 62
Erna Gunnþórsdóttir fyrir-
sæta er allt annað en sátt við
nýjustu skilaboð tískugeirans.
„Hef aldrei skilið fashion mod-
el-bransann. Anorexíu-dýrkun
öðrum megin og fitudýrkun á
hinum kantinum,“ segir Erna
á Facebook-síðu sinni og vísar
þar í nýjasta tölublað tískutíma-
ritsins V Magazine. Þar er spáð
miklum vinsældum svokallaðra
„stærri“, eða „plus-size“-fyrir-
sæta. „Mér finnst ekkert sniðugt
að tilbiðja það að vera of þungur
þó það sé ef til vill skárra en hitt.
Þú getur sem sagt verið gang-
andi beinagrind eða „plus size“.
Hvað um milliveginn sem lang-
flestar konur eru í?“ skrifar Erna.
„Gunnar Björn Gunnarsson mun leik-
stýra líkt og í fyrra,“ segir Jóhanna Jó-
hannsdóttir, aðstoðardagskrárstjóri
Sjónvarpsins, um áramótaskaupið í ár.
„Við reiknum með að hópurinn með
honum verði svipaður og í fyrra,“ bæt-
ir Jóhanna við en hún segir leikaraval
ekki endanlegt þar sem enn sé verið að
skrifa skaupið. „Tökur á skaupinu hefj-
ast alla jafna ekki fyrr en í nóvember
eða í fyrsta lagi í lok október. Fram að
því er unnið að undirbúningi og skrif-
um.“
Gunnar Björn leikstýrði fyrsta ára-
mótaskaupi sínu í fyrra og fékk það
frábær viðbrögð. Ásamt Gunnari
voru það þau Ari Eldjárn, Anna Svava
Knútsdóttir, Halldór E. Högurður, Ottó
Geir Borg og Sævar Sigurgeirsson sem
skrifuðu handritið en ekki er ólíklegt
að þessi sami hópur endurtaki leikinn.
Nýlega bárust af því fregnir að þess-
um hópi hafi verið boðið að fylla skarð
Spaugstofunnar sem var tekin af dag-
skrá sökum niðurskurðar. Hópurinn
lagði fram hugmynd að þætti sem var
hins vegar sleginn út af borðinu þar
sem hann þótti of dýr.
Gunnar, sem gerði það gott með
kvikmyndinni Astrópíu árið 2007,
vinnur nú að gerð kvikmyndar sem
byggð er á bók Ólafs Hauks Símon-
arsonar, Gauragangi, en hún verður
frumsýnd um jólin. Gunnar verður því
með nóg á sinni könnu fram að ára-
mótum.
asgeir@dv.is
Grínistinn Steinþór H. Stein-
þórsson, eða Steindi Jr., komst
í hann krappan þegar hann
skellti sér í laxveiði í Soginu í
vikunni. Sogið er með hættu-
legri laxveiðiám landsins sökum
þess hve straumhörð hún er en
þar hafa menn týnt lífinu. Þegar
Steindi var kominn út í miðja á
og mundaði stöngina skrikaði
honum fótur og datt hann kylli-
flatur í ána. Sem betur fer tókst
honum að koma sér á lapp-
ir aftur og í land. Steindi hefur
mikinn áhuga á veiði en hann
er í veiðifélagi sem ber nafn-
ið „Veiðir ekki skít“. Ástæðan er
aflaleysi Steinda og veiðifélaga
hans í sumar en þar varð lítil
breyting á að þessu sinni.
Hættkominn
í Soginu
62 fólkið 27. ágúst 2010 föstudagur
Simmi og Jói:
grindHoruð
eða feit
Við erum mjög ánægðir með þetta. Rúnar var ótrúlega flottur karl,“ seg-ir Sigmar Vilhjálmsson, annar eig-enda Hamborgarafabrikkunnar, en
staðurinn var að festa kaup á styttu af Rún-
ari heitnum Júlíussyni sem er í fullri stærð.
Kristinn Rúnar Hartmannsson gerði styttuna
árið 2009 en upphaflega stóð til að Reykja-
nesbær keypti hana. Bærinn hætti hins veg-
ar við á síðustu stundu. Hún hafði því safnað
ryki í heilt ár þangað til Sigmar og samtarfs-
maður hans, Jóhannes Ásbjörnsson, ákváðu
að kaupa hana.
„Okkur bauðst að kaupa styttuna og eftir
að hafa ráðfært okkur við fjölskyldu Rúnars
ákváðum við að slá til,“ heldur Sigmar áfram
en hann segir að styttan muni þjóna sérstök-
um tilgangi á staðnum. „Við getum ekki sagt
frá því alveg strax en
það kemur í ljós ná-
kvæmlega hvaða til-
gangi hún á eftir að
þjóna í byrjun sept-
ember.“
Styttan verður afhent
á hádegi í dag og verð-
ur hægara sagt en gert að
koma henni fyrir. „Það verð-
ur heilmikið verk. Hún er
bara steinmassi og nokkur
tonn á þyngd.“ Styttur eru þó
ekki nýjung á Hamborgara-
fabrikkunni en þar er þegar að
finna eina nokkuð sérstaka.
„Já, það er hún Blákolla,
beljan okkar. Í fyrstu
ætluðum við okkur ekkert
meira en hana Blákollu sem
er að okkar mati eitt flottasta
nútímalistaverk samtímans.
En við erum mjög ánægð-
ir með að hafa eignast stytt-
una af Rúnari. Hann er flottur
fánaberi þess sem við trú-
um á. Það að gera hlutina af
ástríðu og hafa trú á því sem
þú ert að gera sjálfur. En ekki
að gera eitthvað sem þú heldur
að fólki eigi eftir að líka.“
Styttusmiðurinn, Kristinn
Rúnar, gerði styttuna í samráði
við Rúnar en íhugaði að hætta
gerð hennar eftir að Rúnar féll frá.
Kristinn og Rúnar hittust í desem-
ber 2008 þar sem Kristinn tók mál
og myndir af honum en Rúnar
lést aðeins fimm dögum síðar.
Kristinn ákvað þó að halda
verkinu áfram en það tók
hann sjö og hálfan mánuð
að klára styttuna.
asgeir@dv.is
Simmi og Jói hafa ákveðið að kaupa styttu
Kristins Rúnars Hartmannssonar af
Rúnari heitnum Júlíussyni. Henni verður
komið fyrir á Hamborgarafabrikkunni
þar sem hún fær sérstakt hlutverk en
styttan var upphaflega ætluð Reykja-
nesbæ sem hætti við að kaupa hana á
síðustu stundu.
RúnaRS
Bjarga styttu
Engin smásmíði Styttan
af Rúnari en hann er að
sjálfsögðu með bassann
sér við hlið.
Simmi og Jói Ráðfærðu sig
við fjölskyldu Rúnars áður en
þeir keyptu styttuna.
gerir Skaupið öðru Sinni
GunnaR BjöRn GunnaRsson skRifaR oG leikstýRiR ÁRamótaskaupinu 2010
Gunnar Björn Gerir einnig
kvikmynd um Gauragang.