Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Page 2
2 fréttir 8. september 2010 miðvikudagur
Í skýrslu rannsóknarnefndar Al-
þingis segir að eignarhaldsfélag
Jóns Helga Guðmundssonar í Byko,
Straumborg, hafi selt hlut sinn í
Kaupþingi í byrjun ágúst 2008, tæp-
um tveimur mánuðum fyrir íslenska
bankahrunið. Kaupandi bréfanna
var Straumur-Burðarás fjárfestinga-
banki. Þetta kemur fram í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis. Sölu-
verð bréfanna var rúmir 5,7 millj-
arðar króna.
Engar tilkynningar bárust til
Kauphallar Íslands um áðurnefnd
viðskipti og engar slíkar tilkynning-
ar er að finna um þau á vef Kaup-
hallarinnar. Viðskiptin voru til-
kynningarskyld vegna umfangs
þeirra, vegna þess hversu Straum-
borg átti stóran hlut í bankanum og
eins vegna þess að starfsmaður Jóns
Helga, Brynja Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Norvikur, sat í stjórn
bankans fyrir hönd Jóns Helga.
Samkvæmt þessu var því um að
ræða viðskipti innherja með hluta-
bréf í Kaupþingi skömmu fyrir fall
bankans.
Fjármálaeftirlitinu bent á málið
Í byrjun ágúst 2010 var send fyrir-
spurn um söluna á Kaupþingsbréf-
unum til Kauphallar Íslands vegna
þess að engar opinberar tilkynn-
ingar fundust um viðskiptin. Heim-
ildir DV herma að Kauphöllin hafi
í kjölfarið, eftir að hafa grennslast
fyrir um málið, bent starfsmönnum
Fjármálaeftirlitsins á að viðskiptin
hefðu ekki verið tilkynnt til Kaup-
hallarinnar á sínum tíma. Ekki er
vitað hvort og þá hvað Fjármálaeft-
irlitið hyggst gera í málinu.
Samkvæmt þessum upplýsing-
um seldi Jón Helgi hlutabréf sín í
Kaupþingi áður en bankinn hrundi
í byrjun október 2008 og var ekki
greint frá því opinberlega.
Jón Helgi sagðist hafa tapað
hlutnum
Þessar upplýsingar stangast á við
það sem Jón Helgi hefur sagt um
fjárfestinguna í Kaupþingi í fjöl-
miðlum og hvað varð um hlutabréf
Straumborgar í bankanum.
Í viðtali við Fréttablaðið í janúar
2009, nokkrum mánuðum eftir ís-
lenska bankahrunið, skrifaði blaða-
maður Fréttablaðsins, og hafði þar
eftir Jóni Helga: „Jón Helgi segir
einu skráðu eignina í dag um fjög-
urra prósenta hlut í Kaupþingi.
Verðmæti hans nam um 17,2 millj-
örðum króna þegar ríkið tók hann
yfir í byrjun október í fyrra, en er
verðlaus í dag.“ Í 4. bindi skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis segir
hins vegar, líkt og áður hefur kom-
ið fram, að Straumborg hafi ekki átt
nein hlutabréf í bönkunum við fall
þeirra.
Í ársreikningi Straumborgar fyrir
árið 2008 kemur aftur á móti ekkert
fram um þessa meintu sölu félags-
ins á bréfunum í Kaupþingi. Þvert á
móti segir í reikningnum: „Á með-
al fjárfestinga félagsins eru eign-
ir í bankageiranum og hefur verð-
mæti þessara eigna rýrnað á árinu
út af fjármálakreppunni. Félagið
átti verulega eign í Kaupþingi sem
hrundi á árinu og var yfirtekið af ís-
lensku ríkisstjórninni. Út af þessum
aðstæðum skilar félagið tapi á ár-
inu.“
Ársreikningurinn rennir því
stoðum undir orð Jóns Helga um
söluna á hlutabréfunum í Kaup-
þingi.
Segist ekki hafa selt
Jón Helgi segir, aðspurður í samtali
við DV, að hann hafi ekki lesið um-
rædda umfjöllun um Straumborg í
skýrslunni og að það sé ekki rétt að
hann hafi selt hlutinn í Kaupþingi
fyrir hrunið. „Nei, ég átti í Kaup-
þingi – því miður.“
Aðspurður hversu stór þessi
hlutur hafi verið, hvort hann hafi
verið fjögur prósent, segir Jón að um
minni hlut hafi verið að ræða. „Nei,
nei, en ég átti andskotans nógu mik-
ið… Við áttum þessi bréf því miður
og við töpuðum því öllu saman við
fall bankans. Þetta voru miklar töl-
ur.“ Jón segir að hlutur Straumborg-
ar hafi numið um einu prósenti við
fall bankans.
Jón Helgi svarar því til, spurður
af hverju Straumborg hafi ekki verið
á hluthafalista Kaupþings skömmu
fyrir hrun bankans, að vel kunni að
vera að félagið hafi ekki verið skráð
sjálft fyrir bréfunum, heldur einhver
annar aðili eða að bréfin hafi verið
bundin í framvirkum samningum –
„ÉG ÁTTI Í
KAUPÞINGI
– ÞVÍ MIÐUR“
Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er sagt að fjárfestingafélag
Jóns Helga Guðmundssonar hafi verið búið að selja hlutabréf
sín í Kaupþingi við fall bankans haustið 2008. Fjármála eftirlitinu
hefur verið bent á umfjöllunina og að engar tilkynningar hafi
komið fram opinberlega um söluna. Jón Helgi segir að umfjöll-
unin í rannsóknarskýrslunni sé ekki rétt, hann hafi ekki selt
bréfin heldur tapað þeim í bankahruninu.
Við fall bank-anna var Straum-
borg ehf. búin að selja
öll hlutabréf sín í bönk-
unum.
Bls. 97 í 4. bindi rannsóknarskýrslu
Alþingis.
„Hlutabréfaeign Straumborgar ehf./
Norvest ehf. þann 1. janúar 2007 er
samtals 10,1 milljarður kr. og voru
það eingöngu hlutabréf í Kaupþingi.
Á tímabilinu eru veittar lánsheimildir
bankanna samtals að fjárhæð 7,8
milljarðar kr. Keypt hlutabréf á
tímabilinu nema 14 milljörðum kr.
og seld hlutabréf eru að andvirði 21
milljarður kr. Seld hlutabréf umfram
keypt nema þannig að andvirði 7
milljörðum kr. Við fall bankanna
var Straumborg ehf. búin að selja öll
hlutabréf sín í bönkunum.“
Hluthafalistar bankanna frá
Kauphöll Íslands sýna jafnframt að
Straumborg ehf. var ekki hluthafi í
Kaupþingi við yfirtöku Fjármálaeftir-
litsins á bankanum. Nafn félagsins
kemur hvorki fyrir á hluthafalistanum
frá 2. né 8. október 2008.
úr skýrslunni
inGi F. vilHJálmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Bent á málið Fjármálaeftirliti Gunnars
Andersen hefur verið bent á umræðuna í
skýrslunni um meinta sölu Straumborgar
á Kaupþingsbréfunum.