Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Side 3
miðvikudagur 8. september 2010 fréttir 3
„ÉG ÁTTI Í
KAUPÞINGI
– ÞVÍ MIÐUR“
Arion-safnreikningur hélt til dæmis
utan um hlutabréf fyrir ýmsa þekkta
viðskiptavini bankans. „Það get-
ur vel verið að þetta hafi ekki verið
beint á okkar nafni heldur í fram-
virkum samningum eða einhverj-
um fjandanum sem ég kann ekki að
lýsa. Það var enginn drusluskapur í
því.“
Jón Helgi segir að hann kann-
ist ekki við að Straumborg hafi selt
umtalsvert magn hlutabréfa í Kaup-
þingi í byrjun ágúst. „Það er ekki
rétt – því miður. Það kannast ég ekki
við.“ Hann segir að þessar upplýs-
ingar séu einfaldlega ekki réttar.
„Við vorum aldrei spurðir um þetta.“
Ljóst er því að misræmis gætir í
því sem kemur fram í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis og í orðum
Jóns Helga frá hruninu og einnig
nú, þegar staðhæfingar rannsókn-
arnefndarinnar eru bornar upp við
hann. Hver ástæðan er fyrir þessu
misræmi liggur ekki fyrir.
Misræmi Mikið misræmi
er á milli umfjöllunar rann-
sóknarnefndar Alþingis um
fjárfestingafélag Jóns Helga
Guðmundssonar í Byko og orða
hans sjálfs um afdrif hlutabréfa
sem hann átti í Kaupþingi.
Í skýrslunni er sagt að hann
hafi selt bréfin en Jón Helgi
þvertekur fyrir það.
Birgitta Jónsdóttir, þingkona Hreyf-
ingarinnar, telur æskilegt að Julian
Assange stígi tímabundið til hlið-
ar sem talsmaður WikiLeaks. Ass-
ange sætir nú rannsókn í Svíþjóð
vegna meintra nauðgana. Assange
hefur sagt opinberlega að kærurn-
ar á hendur honum beri þess merki
að vera árás gegn trúverðugleika
hans og jafnvel runnar undan rifj-
um FBI eða CIA. WikiLeaks, vefsíða
Assange, birti nýverið tugþúsundir
leyniskjala frá bandaríska hernum.
„Ég treysti mér ekki til að dæma
það hvort hann sé sekur eða sak-
laus, en ég get ekki skilið hvernig
hægt er að túlka þetta út frá þessum
skýrslum sem nauðgun, en ég vil
hvorki dæma honum né konunum
í vil fyrr en ég hef allar staðreyndir
málsins,“ segir Birgitta.
Talar ekki við Birgittu
Julian Assange segir í samtali við
DV að hann og Birgitta hafi ekki tal-
að saman í marga mánuði að und-
anskildu spjalli sem þau áttu fyrir
tveimur vikum. „Birgitta hefur ekki
beðið mig um að stíga til hliðar,“
segir Assange. Hann neitar því líka
að Birgitta starfi fyrir WikiLeaks þó
að hún hafi tekið þátt í að vinna
myndbandið Collateral Murder og
önnur íslensk verkefni WikiLeaks.
„Birgitta er ekki „starfsmaður Wiki-
Leaks“,“ segir Assange.
Birgitta er ekki sammála Ass-
ange um að kærurnar séu runnar
undan rifjum CIA eða FBI. „Ég hef
lesið lögregluskýrsluna og fleira á
netinu sem og fengið upplýsingar
um stöðu mála á öðrum stöðum
og get ekki undir neinum kring-
umstæðum séð að þetta sé eitt-
hvað sem runnið sé undan rifj-
um FBI og CIA,“ segir Birgitta og
heldur áfram: „Þær minna meira á
eitthvað sem kalla mætti ástarþrí-
hyrning og afbrýðisemi.“
Misskilingur í New York Post
„Það virðist gæta misskilnings
varðandi ummæli mín í tengsl-
um við Julian. Ég lagði til að hann
myndi stíga til hliðar sem talsmað-
ur og einbeita sér að málsókn-
inni gegn honum, held að það sé
heppilegra fyrir hann og WikiLeaks
að þessum málum sé ekki blandað
saman,“ segir Birgitta en hún ítrek-
ar að hún vilji ekki að staða hans
innan WikiLeaks verði önnur en
hún er nú.
Birgitta og Julian hafa starfað
saman að málefnum WikiLeaks.
Hún tók virkan þátt í að undirbúa
og birta myndband frá Afganistan
sem sýndi bandaríska hermenn
gera, að því er virtist, tilefnislausa
og grófa árás á almenna borgara.
Birgitta hefur einnig verið ötull
talsmaður þess að Ísland verði gert
að athvarfi fyrir frjálsa fjölmiðlun.
Illa staðið að ákærunni
Birgitta segir ákærurnar á hendur
Julian bera þess merki að þær séu
jafnvel byggðar á andúð einhverra
á honum og að ljóst sé að þegar
málið sprakk út í heimspressunni
hafi CIA nýtt sér það í hag. „Þá er
jafnframt ekki hægt að neita því að
mjög illa var að ákærunni staðið í
upphafi,“ segir hún.
Handtökuskipun var gefin út á
hendur Assange, en hún var dreg-
in til baka daginn eftir. Handtöku-
skipunin var svo gefin út aftur en
þá sagði ríkissaksóknari í Svíþjóð,
þar sem málið er til meðferðar,
að samkvæmt þeim gögnum sem
hann hefði undir höndum liti út
fyrir að glæpur hefði verið fram-
inn og að sá glæpur væri nauðg-
un. Lögfræðingur Assange sagði
strax frá byrjun að málið kæmi á
óvart og ætti sér enga stoð í raun-
veruleikanum.
Í samtali við breska blaðið
The Guardian segir Assange að
hann sé að missa trúna á sænsk-
um dómstólum. „Ég veit hvað ég
hef gert um ævina og þess vegna
veit ég að þessar ásakanir eiga sér
enga stoð í raunveruleikanum og
koma illa við mig,“ sagði Assange.
„Hins vegar veit ég ekkert um efni
ákæranna.“
Náið samstarf
Birgitta og Assange hafa starfað
náið saman og eru lýsingar á sam-
skiptum þeirra í bandaríska blað-
inu The New Yorker til marks um
hversu náin þau voru. Þar er því
lýst þegar Birgitta kom inn á dval-
arstað Assange þegar hann dvaldi
á Íslandi. Hún sá til þess að hann
skipti um bol, klippti á honum
hárið og hellti upp á te fyrir hann.
Birgitta lét hafa eftir sér í er-
lendum fjölmiðlum um og fyrir
helgina að hún liti á sig og Ass-
ange sem góða vini. Hún sagði að
athugasemdir sínar um að Ass-
ange ætti jafnvel að stíga til hliðar
væru ekki persónulegar. Í samtali
við The Daily Beast sagði hún til
að mynda: „Mér er mjög annt um
WikiLeaks og ég lít á mig sem vin
Julians. En vinur er sá er til vamms
segir.“
Í samtali við DV staðfestir Birg-
itta að hún og Julian séu vinir en
hún segir jafnframt að samskipti
þeirra hafi ekki verið mikil undan-
farið vegna anna. Það kemur heim
og saman við það sem Assange
segir um að þau hafi nánast ekkert
talast við síðustu mánuði.
Birgitta Jónsdóttir kallaði eftir því um helgina að Julian Assange viki tímabundið
sem talsmaður WikiLeaks vegna rannsóknar á hendur honum vegna meintra nauð-
gana í Svíþjóð. Birgitta og Assange eru vinir og hafa starfað náið saman að málum
WikiLeaks. Sambandi þeirra er lýst sem nánu í úttekt New Yorker á Assange.
AðAlsTeINN kJArTANssoN
blaðamaður skrifar: adalsteinn@dv.is
kærður Assange hefur verið kærður fyrir tvær nauðganir í Svíþjóð. Rannsókn
stendur yfir.
Náin Birgitta hefur starfað
náið með Assange að
málum WikiLeaks.
Hún sá til þess að hann skipti
um bol, klippti á honum
hárið og hellti upp á te
fyrir hann.
wIKIleAKs-MAÐUR Í
„ÁsTARÞRÍhyRNINGI“