Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Qupperneq 11
miðvikudagur 8. september 2010 fréttir 11
Aðalfundur Bor
garahreyfingari
nnar
verður haldinn
þann 25. septem
ber nk.
að Borgartúni 6
, Reykjavík.
Í kjölfar ummæla Jenis av Rana í Mið-
flokknum og Alfreds Olsen, þing-
flokksformanns Sambandsflokksins,
hefur skapast umræða um það á Ís-
landi og í Færeyjum hvernig komið er
fyrir mannréttindum samkynhneigðra
í Færeyjum. Ummæli þeirra vekja óhug
hér á landi en í athugasemdakerfum
netdagblaða í Færeyjum má hins veg-
ar skynja að nokkuð sé um að tekið
sé undir þau. Samtökin ‘78 vilja huga
að réttindabaráttu samkynhneigðra í
Færeyjum og Páll Óskar Hjálmtýsson
vonar að Jóhanna Sigurðardóttir missi
ekki gullið tækifæri til að leggja þungt
lóð á vogarskálarnar hvað varðar bar-
áttuna, sérstaklega þar sem ummælin
umdeildu hafi ratað í heims pressuna.
Samtökin ‘78 í útrás til Færeyja
Svanfríður Lárusdóttir, formaður Sam-
takanna ‘78, segir Íslendinga og Fær-
eyinga eiga margt sameiginlegt en
þarna skilji þjóðirnar að. Bæði samfé-
lögin séu fámenn og friðsöm en það sé
hneyksli að þingmaður leyfi sér að tala
af slíkri óvirðingu við forsætisráðherra.
Jenis hafi sýnt sig sem forpokaðan og
fordómafullan. Íslendingar hafi stutt
Færeyinga með ráðum og dáð í sjálf-
stæðisbaráttu sinni og leiðtogi þjóð-
arinnar eigi ekki framkomuna skilið.
„Framkoman er ekki Færeyingum til
framdráttar,“ segir Svanfríður og bend-
ir á að þingmaðurinn sem um ræðir sé
í minnihluta í stjórn. „Þeir hafa ákveð-
ið fylgi í Færeyjum en oft láta þeir hæst
og ófriðlegast sem sitja í minnihluta.“
„Illa er komið fyrir mannréttind-
um samkynhneigðra í Færeyjum,“
segir Haukur Árni Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri Samtakanna ‘78. „Staða
þeirra er ekki í samræmi við góða
stöðu þeirra á Norðurlöndum og þar
hafa stjórnmálamenn og trúarskoð-
anir áhrif á afstöðu almennings. Við
erum öðrum ríkjum til fyrirmyndar,“
segir Haukur og minnir á að samtökin
hafi náð góðum árangri með rökfastri
baráttu sinni hér á landi. „Barátt-
an hefur opnað augu Íslend-
inga sem taka þátt í henni af
ánægju. Við höfum áhyggjur
af ungmennum í Færeyjum.
Þeirra líðan hlýtur að vera
slæm og við íhugum hrein-
lega að láta til okkar taka í
Færeyjum. Eflaust veitir þeim
ekki af krafti í baráttuna þar.“
Átök í almannaumræðu
Eitt elsta dagblað Færeyinga,
Dimmalætting, gerði netkönn-
un á netmiðli sínum, dimma.fo,
í gær og spurði lesendur að því
hvort þeir aðhylltust hjónabönd
samkynhneigðra. Um helming-
ur þeirra er svöruðu var and-
vígur. Í athugasemdakerfum
netmiðla má enn fremur sjá
að nokkuð er um að tekið sé
undir fordóma Jenis. Í gær
kvaddi sér hljóðs Alfred
Olsen, þingflokksformað-
ur Sambandsflokksins, og
sagði í viðtali við vefritið
Norðlýsið að heimsókn
Jóhönnu og maka henn-
ar væri ögrandi.
Sambandsflokkur-
inn er flokkur lög-
manns Færeyja, Kajs
Leos Johannesen, sem
bauð Jóhönnu Sigurðardóttur til Fær-
eyja í opinbera heimsókn.
Fjölmiðlaumræðan er þó ekki öll af
neikvæðum toga. Á þriðjudaginn skrif-
aði ungur færeyskur maður, Arni Za-
chariassen, opinbera afsökunarbeiðni
sem hann stílaði á Jóhönnu Sigurðar-
dóttur. Bréfið birtir Arni á Facebook
og á heimasíðu sinni. Í bréfinu biður
hann Jóhönnu afsökunar og segir að
með heimsókn hennar sé Færeyingum
sýndur heiður. Saga þjóðanna tveggja
sé samofin og verði það áfram um ald-
ir. Hann segir sorglegt að kristnir menn
réttlæti slíka framkomu með tilvísun-
um í Biblíuna. Hann minnir á dæmi-
söguna um Sódómu og Gómorru sem
svo oft er notuð gegn samkynhneigð-
um og að það var ekki samkynhneigð-
in sem kallaði réttláta reiði guðs yfir
borgarbúa heldur, samkvæmt Ezekiel
16:49-50, var það skortur á gestrisni.
Arni endar bréf sitt á því að segjast
fullviss um að meirihluti Færeyinga
myndi glaður bjóða Jóhönnu og Jón-
ínu að setjast með sér til málsverðar.
Hinsegin dagar Jóhönnu í
Færeyjum
Páll Óskar Hjálmtýsson segir að þótt
Jóhanna sé ekki þekkt fyrir að tjá sig
opinberlega um kynhneigð sína verði
að bera virðingu fyrir því hvernig hún
kýs að umgangast hana. „Eftir að hafa
fylgst með fréttum upplifi ég þetta sem
raunveruleikatékk fyrir Færeyinga.
Það er líka fallegt að heyra að ekki eru
allir Færeyingar sammála öfgastjórn-
málamanni. Það er þó gott að Jóhanna
er komin út út skápnum og hvaða
góðu afleiðingar það getur haft að lifa
einföldu lífi og senda út frá sér ein-
föld skilaboð heldur en tvöföldu lífi og
senda frá sér tvöföld skilaboð.
Maður ber virðingu fyrir kyn-
hneigð fólks og því hvernig það kýs
að umgangast eigin kynhneigð. Ég er
búinn að læra það í gegnum árin. Það
þýðir ekkert að ýta fólki út úr skápn-
um gegn vilja þess. Ég er persónu-
lega löngu hættur að reyna að fá fólk
til að fara með mér í einhverja skrúð-
göngu sem gengur út á stolt þegar það
er ekki stolt af sér fyrir það fyrsta. Jó-
hanna Sigurðardóttir er
ekki af sömu kynslóð
og ég. Hún elst upp
við allt aðrar að-
stæður en ég, hún
kemur úr allt
öðru umhverfi
og hún lifir og
hrærist í allt öðru
umhverfi en ég.
Ég verð að bera
virðingu fyrir því
en vil að sama skapi að hún beri virð-
ingu fyrir mér. Þetta gengur út á gagn-
kvæma virðingu.“
Páll Óskar segir hins vegar baga-
legt að Jóhanna noti ekki tækifær-
ið í þeirri valdastöðu sem hún er í.
„Hún er ef til vill að láta gullið tæki-
færi renna sér úr greipum. Hún er í
þeirri stöðu að geta lagt þungt lóð á
vogarskálarnar þó ekki væri nema
fyrir fólkið í Færeyjum. Samkynhneigt
fólk í Færeyjum á virkilega undir högg
að sækja. Ég hef heyrt af því að Færey-
ingar séu nákvæmlega þrjátíu árum
á eftir okkar tíma. Þetta er eins og að
fara í tímavél og stilla hana áratugi
aftur. Þetta er ekki svo galin samlík-
ing. Við Íslendingar getum litið í eigin
barm. Hvar vorum við stödd fyrir 30
árum? Orðið samkynhneigð var ekki
einu sinni til. Það var talað um kyn-
villu og kynhverfu. Samkynhneigðir
voru annars flokks þegnar.“
Vildi að Jóhanna talaði meira
Páli Óskari finnst hins vegar hægt að
lesa í það eitt að Jóhanna þiggur boð-
ið til Færeyja. „Hún hefði alveg getað
farið ein, en hún gerir það ekki. Hún
tekur eiginkonu sína með og veit vel
hverjar aðstæðurnar eru í Færeyj-
um. Kannski er hún að sýna stolt sitt
á þennan hátt. Þetta er hennar stíll.
Kannski er þetta hennar Gay pride?
Og núna er þetta komið í heimspress-
una og núna veit pressan hvernig
ástandið er í Færeyjum.
Mér þætti vænt um ef Jóhanna
myndi tala meira fyrir opnum tjöld-
um, að hún myndi láta hafa eitthvað
eftir sér. Ég sakna þess. Jóhanna Sig-
urðardóttir hefur aldrei komið fram
og haldið ræður á Hinsegin dögum
eða neinu í tengslum við Gay pride.
Það eina sem hún hefur gert er að
senda tilkynningu til Fríkirkjunnar
þar sem við fögnuðum hjúskapar-
lögunum 27. júní. Tilkynningin var
lesin upp þar sem hún óskaði okk-
ur til hamingju með daginn og bætir
því við að hún og Jónína hafi gift sig
í kyrrþey. Þetta er í fyrsta skipti sem
Jóhanna ávarpar okkur undir okkar
eigin fána. Ef afstaða hennar kemur
samkynhneigðum vel, þá er það gott.
En ef að afstaða hennar skemmir fyr-
ir baráttunni, þá er það miður og þá
mun ég persónulega skrifa henni bréf
og segja henni til syndanna.“
Samtökin ‘78 fordæma ummæli færeysks þingmanns og þingflokksformanns og telja vanlíðan samkyn-
hneigðra ungmenna þar í landi vera mikla. Forsvarsmenn samtakanna íhuga að hefja réttindabaráttu þeim
til aðstoðar í Færeyjum. Páll Óskar Hjálmtýsson segist telja að ferð Jóhönnu með eiginkonu sinni til Fær-
eyja sé hennar einka Hinsegin dagar.
Hinsegin dagar
JóHö nu í FæreyJum
kriStJana guðbrandSdÓttir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Hún er ef til vill að láta gullið tækifæri
renna úr greipum sér.
Þetta er hennar stíll Segir
PállÓskarumferðJóhönnuog
eiginkonuhennartilFæreyja.
gullið tækifæri
Jóhannageturlagtsitt
lóðávogarskálarnar.