Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2010, Side 12
12 fréttir 8. september 2010 miðvikudagur
Í skýrslutöku hjá lögreglunni árið
1996 sagði Vigfús Þór Árnason,
sóknarprestur í Grafarvogskirkju,
að hann hefði tekið á móti Sigrúnu
Pálínu Ingvarsdóttur og hlustað á
hana en það væri ekki það sama
og að trúa því sem sagt hefði verið.
Orðrétt er haft eftir Vigfúsi Þór: „Ég
hlustaði á hana og leit þannig á að
hún væri fyrst og fremst að létta af
sér byrði. Ég tek það fram, í tilefni
af því að ég hef séð haft eftir henni
í fjölmiðlum að ég hafi sagt að ég
tryði henni, að það að hlusta á ein-
stakling í sálusorgarviðtali er ekki
það sama og trúa því sem skjól-
stæðingurinn setur fram. Fyrsta,
önnur og þriðja regla okkar presta
í sálusorgun er að hlusta og það
var það sem ég var að gera í þetta
sinn. Niðurstaða viðtalsins var í
raun engin. Sigrún Pálína bað mig
reyndar að tala við presta um þetta
í þeim tilgangi að Ólafur Skúla-
son hætti sem biskup og sagði að
hann mætti ekki vera í því emb-
ætti vegna þessa máls. Ég tók ekki
að mér að gera eitt né neitt en ég
man að ég minnti Sigrúnu Pálínu
á þagnarskyldu mína sem prest-
ur og að ég gæti ekki borið ósann-
aðar upplýsingar út um fólk. Hins
vegar mótmælti ég ekki því sem
hún var að segja enda deilir prest-
ur ekki við þann sem hann er með í
sálusorgun um sannleiksgildi full-
yrðinga hans. Varðandi þessar til-
teknu fullyrðingar hennar í samtal-
inu sagði ég henni að hér væri orð
á móti orði.“ Þá var Vigfús spurður
hvað hann hafi gert með þá vitn-
eskju. „Ég hélt þessu leyndu fyr-
ir öllum og ræddi þetta ekki við
nokkurn mann, enda þessar ásak-
anir ósannaðar og mjög alvarlegar.“
Þetta kemur fram í lögregluskýrslu
sem DV hefur undir höndum.
Leitaði til Vigfúsar
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir leitaði
til Vigfúsar Þórs þegar hann fermdi
son hennar árið 1995. Hún vildi
koma reynslu sinni af Ólafi Skúla-
syni, þáverandi biskupi, á fram-
færi við Vigfús því þá tíðkaðist að
biskup heilsaði upp á fermingar-
börnin og hún vildi ekki að mað-
ur sem hafði beitt hana ofbeldi
væri með nokkrum hætti viðriðin
þessa athöfn. Vigfúsi Þór brá mjög
við þessi tíðindi en Sigrún Pálína
aflétti af honum trúnaði og bað
hann um að koma málinu áfram.
Hún kærði Vigfús Þór síðar til siða-
nefndar fyrir að hafa brugðist sér í
því og einnig fyrir að hafa sent út
opinbera stuðningsyfirlýsingu við
Ólaf semma árs 1996, áður en bisk-
upsmálið fór af stað en eftir fund
þeirra. Sú stuðningsyfirlýsing varð-
aði ekki þetta mál heldur var hún
svar við yfirlýsingu þáverandi for-
manns Prestafélags Íslands, Geirs
Waage, sem sagði að trúnaðar-
brestur ríkti á milli presta og bisk-
ups. Vigfús Þór var í forsvari fyr-
ir stuðningsyfirlýsinguna við Ólaf
og sagði þetta ekki rétt hjá Geir,
trúnaður ríkti milli biskups og fjöl-
margra presta sem bæru traust til
hans. Í samtali við blaðamann DV
sagði Vigfús Þór að það væri ekki
hægt að blanda þessum tveimur
málum saman, kynferðisbrotamál-
um biskups og yfirlýsingu þrjátíu
presta sem hefði snúist um deilur
innan kirkjunnar, stefnu hennar og
strauma. Þá sagði Vigfús Þór einn-
ig að hann hafi talað við Ólaf sama
dag og Sigrún Pálína leitaði fyrst til
hans, en Ólafur hafi brugðist illa
við og reiðst mjög. Vigfús Þór hafi
engu að síður rætt það tvisvar sinn-
um við biskup að það væri best fyr-
ir hann að víkja á meðan þetta mál
stæði yfir.
Sakaði fleiri presta
um kynferðisbrot
Í helgarblaði DV sagði
Alfreð Wolfgang
Gunnarsson frá
því að Vigfús
Þór
hefði einnig setið fund með þeim
Ólafi og Sigrúnu Pálínu þar sem
reynt var að sætta þau. Fundurinn
fór fram í Grafarvogskirkju og Al-
freð segir að á fundinum hafi Ólaf-
ur sagt frá því að hann hefði upp-
lýsingar um fimm aðra presta sem
hefðu verið ásakaðir um kynferðis-
brot: „Allt í einu spyr hann byrstur
hvort það ríki trúnaður á þessum
fundi og Pála segir: „Nei, Ólafur ég
lofa þér engum trúnaði.“ Þá segir
hann: „Trúnaður eða ekki. Í skrif-
borðsskúffunni minni
eru fimm kærur
eða ásakanir á
hendur öðr-
um prestum
vegna kyn-
ferðislegrar
áreitni.“ Ég
velti því
fyrir
mér á
sínum
tíma
hvað það
kæmi
þessu máli við, hvort hann væri að
réttlæta sinn gjörning með því að
aðrir gerðu þetta líka. Ég velti því
líka fyrir mér af hverju þessar
kærur lægju í skrifborðs-
skúffunni hans og af
hverju þeim væri ekki
komið í réttan far-
veg. Síðan áttaði ég
mig á því af hverju,
hann geymdi þetta
því að þá hafði hann
tök á þessum prest-
um. Þarna var hann
með fimm presta í
vasanum. Hann hafði
reyndar svo gríðarlegt
vald yfir prestum, hann
var svo mikill sækópati að
þeir gerðu nákvæmlega það
„Ég hÉlt þessu leyndu fyrir öllum“
DV hefur undir höndum lögregluskýrslur frá biskupsmálinu. Þar kemur meðal ann-
ars fram að í skýrslutöku árið 1996 sagði Vigfús Þór Árnason að það væri ekki það
sama að hlusta á skjólstæðinga og trúa þeim. Pálmi Matthíasson taldi að Sigrún Pál-
ína Ingvarsdóttir hefði ekki beðið sig um að fara lengra með málið og því hefði hann
ekki gert það. Pálmi baðst afsökunar á fundi presta með fórnarlömbum Ólafs. Vigfús
Þór Árnason mætti ekki á þann fund og það gerði Karl Sigurbjörnsson ekki heldur.
Það varð til þess að Dagbjört Guðmundsdóttir afþakkaði fund með biskupi, þegar
hann boðaði loks til fundarins um þremur vikum eftir að hún óskaði eftir honum.
InGIbjörG DöGG KjartanSDóttIr
blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is
Að hlusta á einstakling í
sálusorgarviðtali er
ekki það sama og að
trúa því sem skjólstæð-
ingurinn setur fram.
nBiskupsmáliðhófstárið1996meðfréttíDVumaðSigrúnPálínaIngvarsdóttir
hefðikærtVigfúsÞórÁrnasontilsiðanefndarfyriraðbregaðstekkiviðásökun-
umhennaráhendurbiskupnum,enhúnsakaðihannumnauðgunartilraun.
Árið1996sögðu2.344einstaklingarsigúrþjóðkirkjunni.
Biskupsmáliðvarsvotekiðafturuppífjölmiðlumárið2010,enfyrstafrétt
umbiskupsmáliðbirtistíDVþann11.ágúst.FjallaðihúnumaðbréfGuðrúnar
EbbuÓlafsdótturhefðilegiðósvaraðhjábiskupiírúmtár,eníþvíbréfilýstihún
kynferðisofbeldisemhúnvarðfyrirafhendiföðursíns,ÓlafiSkúlasynibiskupi,
ogóskaðieftirfundimeðkirkjuráðitilaðræðaþað.Íágúst2010sögðu1.964
einstaklingarsigúrþjóðkirkjunni.
úrsagnir úr þjóðkirkjunni
Karl Sigurbjörnsson Dagbjört
Guðmundsdóttirdrómálsitttilbaka
eftiraðKarlogHjálmarJónssonhöfðu
árangurslaustreyntaðsættaÓlafog
konurnar.Dagbjörtóskaðieftirfundi
meðKarlienafþakkaðisvofundarboð-
iðþegarþaðbarstumþremurvikum
seinna.
Dagbjört Guðmundsdóttir Vildi
afhendakirkjunnileyndarmálsittog
gerðiþaðáfundimeðprestum.Fyrst
biskupsásérekkifærtaðmætaáþann
fundsáhúnekkiástæðutilþessaðfara
áfundhans.
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir Leitaði
tilVigfúsarÞórsÁrnasonarogPálma
Matthíassonaráðurenbiskupsmálið
fórafstað.Markmiðhennareraðgera
kirkjunaheila.